Dagur - 28.05.1952, Side 5
Miðvikudaginn 28. maí 1952
DAGUR
5
Bernharð Stefánsson alþingismaður:
FORSETAKJÖRIÐ
Níræður sæmdarmaður - 5 ættliðir
Eins og áður er frá greint hér í blaðinu, átti Tómas Tómasson fyrrum
bóndi að Auðnum og Bakkaseli níutíu ára afmæli sl. laugardag og
urðu margir til að minnast hins aldna hciðursmaims á þeim tíma-
mótum í ævi hans. Ekki aðeins ættmenn fjölmargir — en afkom-
endur hans telja þegar fulla sex tugi manna — heldur og margir
samstarfsmenn frá fyrri árum og vinir. Hann var kumiur bóndi í
héraðinu, mikill dugnaðar- og hraustleikamaður, átti hvarvetna vin-
sældum að fagna. Tómas dvelur hjá syni sínum, Elíasi bankagjald-
kera hér í bæ, er vel ern, þrátt fyrir liinn háa aldur, og hefur jafnan
ferlivist, en sjónin nú biluð. Þéssi sérstæða mynd hér að ofan sýnir
Tómas Tómasson á 90. aldursári og 4 ættliði, er frá honum eru
komnir. Yzt til vinstri er Bósa dóttir hans, að baki hennar Ingibjörg
dóttir hennar, Kristjánsdóttir, þá Páll Snævar Jónsson, sonur henn-
ar, og loks heldur Tómas á Jóni Ingvari Pálssyni. Eru því þarna 5
ættliðir saman komnir á einni Ijósmynd, og mun slíkt sjaldgæft
mjög, ef ekki einsdæmi hér um slóðir.
Mundir þú standasf landspróf
í íslenzku ?
• Eins og nú mun kminugt, hef.
eg lýst yfir fylgi við Ásgeir Ás-
geirsson við forsetakjörið í vor.
Hins vegar stendur meiri hluti
miðstj órnar Framsóknarflokksins
í Reykjavík, ásamt Sjálfstæðis-
flokknum, að framboði séra
Bjarna Jónssonar. Með því að eg
er flokksmaður í Framsóknar-
flokknum og þingmaður hans og
ekki hefur orðið nein breyting á
stjórnmálastefnu minni, þykir
mér rétt að gera nokkru nánari
grein fyrir afstöðu minni í þessu
máli.
í áróðrinum gegn Ásgeiri Ás-
geirssyni þykir það nú henta, að
gera mikið úr því mikla valdi,
sem forseti íslands hafi. Það er og
rétt, að stjórnarskráin veitir for-
setanum allmikil völd í orði
kveðnu, en aðeins í orði, því að
hún kveður svo á, jafnframt, að
hann sé ábyrgðarlaus og að engin
stjórnarathöfn hans sé gild, nema
ráðherra undirskrifi hana með
honum og taka ábyrgð á henni.
Hér hefur og ríkt þingræði í
nærri hálfa öld og þó þingræðis-
reglan sé ekki beinlínis skráð
Iög, heldur hefðbundin venja,
sem kalla má óskráð lög og eng-
inn forseti mundi brjóta, og eg
held allra sízt Ásgeir Ásgeirsson,
þá er þó hið pólitíska vald í hönd-
um Alþingis og þeirrar ríkis-
stjórnar, sem meiri hluti þess
raunverulega skipar. Myndi Al-
þingi hins vegar enga stjórn,
verður forsetinn að vísu að gera
það til bráðabirgða, en Alþingi
hefur ráð þeirrar stjórnar í hendi
sér og getur fellt hana hvenær
sem er, svo að valdið er Alþingis
en ekki forsetans eftir sem áður.
Forseti íslands er því samkvæmt
stjórnskipun okkar og hefðbundn
um venjum, þjóðhöfðingi með
sama hætti og þjóðhöfðingjar
annarra lýðræðisríkja Norðurálf-
unnar. Segja má að staða hans sé
að nokkru leyti pólitísk, því að
hann verður að fjalla um pólitísk
mál (þó með ráði og á ábyrgð
ráðherra), en hitt er þá jafn víst,
að hún er ekki flokkspólitísk.
Forsetinn verður að vera hafinn
yfir alla flokka. Þetta gildir jafnt
fyrir því, þó stjórnmálamaður sé
kosinn forseti. Það hefur oft ver-
ið gert í lýðveldum Norðurálf-
unnar og venjulega gefist vel.
Forsetinn hefur þá ekki litið á sig
sem flokksmann á meða'n hann
gegndi forsetaembættinu, heldur
sem þjóðhöfðingja, og það mundi
Ásgeir Ásgeirsson áreiðanlega
gera. Það hefur þó svo sem komið
fyrir í öðrum lýðveldum að
,,hlutlaus“ maður, utan stjórn-
málanna, hefur verið valinn for-
seti, en þeir hafa áreiðanlega ekki
gefist betur, né verið hlutlausari,
heldur en stjórnmálamennirnir
(sbr. t. d. Hindenburg og Petain).
Vel færi að vísu á því, að þjóðin
gæti verið samhuga um einn
mann sem forseta sinn, eins og
varð um Svein heitinn Björnsson,
eftir að reynsla fékkst af honum
í því starfi. En nú er sá samhug-
hr ekki fyrir hendi, enda varla að
vænta þess fyrr en við endurkjör,
og forsetakjör á að fara fram. Ber
þá að hafa það í huga, að forset-
inn á að vera.þjóðhöfðingi, en
ekki fulltrúi neins flokks eða
flokka. Kosningin ætti því að
vera ópólitísk og atkvæði kjós-
enda að fara eftir því einu, hvern
frambjóðanda þeir telja hæfastan
til að gegna þjóðhöfðingjastarf-
inu. Flokksbönd eiga ekki að ráða
í þessu efni.
í lögum Framsóknarflokksins
eru ákveðnar reglur um það,
hvernig mál verður gert að flokks
máli. Þær reglur voru ekki við-
hafðar, þegar framboð forseta-
efnis var ákveðið af flokksins
hálfu. Sú samþykkt getur því
ekki verið bindandi fyrir mig, né
aðra þá flokksmenn, sem ekkert
vissu um hana fyrr en eftir á.
Þó að eg telji samþykkt meiri
hluta miðstjómar Framsóknaz--
flokksins í Reykjavík ekki bind-
andi fyrir mig og eg fari mínar
eigin götur í þessu máli, þá vil eg
taka það skýrt fram, að eg dreg
mannkosti sr. Bjarna Jónssonar
á engan hátt í efa. Eg veit að
hann er heiðui’smaðui'. En þó for-
setinn hafi ekki pólitísk völd að
jafnaði, þá þarf hann þó að
þekkja mjög vel til stjórnmála og
starfsaðferða flokka og stjóm-
málamanna, enda eru stjórn-
málamenn oftast kosnir försetar
annarra lýðvelda og í konungs-
ríkjum er reynt að búa ríkiserf-
ingjana sem bezt undir stai'f sitt,
surns staðar fá þeir t. d. sæti í
ríkisráði 18 ára gamlir, til að
venjast þar stjói-nai'störfum o. s.
frv. Ekki er vitað að sr. Bjarni
hafi reynslu og æfingu í slíkum
stöi'fum. Hann hefur verið önnum
kafinn embættismaður allt til
þessa, við allt önnur störf. Ásgeir
Ásgeirsson er aftur á móti þaul-
reyndur stjórnmálamaður. Hann
var t. d. forsætisráðherra í 2 ár og
þó blað eitt telji honum það lítt
til frægðar og finni það til, að
hagur landsins hafi ekki vei'ið
góður, er hann lét af völdum, þá
mætti kannske spyrja: hvaða
lönd komust hjá afleiðingum
heimskreppunnar, sem þá hafði
farið eldi um löndin? Eg held að
Ásgeir hafi borið jafn mikla
ábyrgð á henni og núverandi
stjórn á síldarleysinu.
í blöðum ríkisstjórnarinnar í
Reykjavík er nú rekinn mikill
áróður gegn Ásgeiri Ásgeirssyni
og ber mun meira á honum, held-
ur en á meðmælum með sr.
Bjarna Jónssyni. Ymsir ei'u farn-
ir að skilja þennan áróður og
önnur skrif þessara blaða svo, að
þau telji það eiginlega óleyfilegt,
að nokkur annar en sá, sem ríkis-
stjói-nin hafði komið sér saman
um og tvær flokksstjórnir í
Reykjavík s amþykkt, skyldi
bjóða sig fram við forsetakjör, og
enn óleyfilegra af kjósendum að
kjósa annan. Það séu þessir aðil-
ar, en ekki þjóðin, sem eigi að
ráða því, hver sé forseti íslands.
Verði þessi skilningur ofan á (og
það getur svo sem vel orðið í
þessu landi flokkavaldsins), þá er
þjóðkjör forsetans orðið algerlega
þýðingai-laust, bá væri mikið ein-
faldai-a og kostnaðai'minna að
láta Alþingi kjósa forsetann. Þar
mundu flokksforingjarnir, að öll-
um líkindum, ráða foi'setavalinu,
eins og þeir t. d. ráða a. m. k.
mestu um stjórnai'myndanir.
Aðkasti því, sem Ásgeir Ás-
geirsson hefur oi'ðið fyrir, ætla eg
ekki að svara, enda ekki rúm til
þess í stuttri blaðagrein. Margt
af því er líka þannig vaxið, að
það dæmir sig sjálft, eins og t. d.
þegar svo er helzt að heyra, að
Ásgeir hafi verið einvaldsherra
í Alþýðuflokknum, hinir þing-
menn flokksins og aði’ir ráða-
menn hafi aðeins veiúð viljalaus
verkfæri hans, vald sitt hafi hann
svo einkum notað til að gera
Framsóknarflokknum til bölvun-
ar og þá væntanlega eins með
því að styðja Framsóknaimenn í
ríkisstjói'n, en það hefur hann
gert meii'i hlúta þess tíma, sem
hann hefur verið utánflokka og
síðar í Alþýðuflokknum. í stjórn-
málum eiga auðvitað ýmsir högg
í annars garði, en sjaldan veldur
einn þá tveir deila.
Eg hef lengi þekkt Ásgeir Ás-
geirsson allnáið og eg veit, að
hann er vitur maður, víðsýnn og
velviljaður. Hann er friðsamur og
óáleitinn að eðlisfari og vill helzt
ekki taka þátt í illvígum deilum,
enda ekki gert það nú í mörg ár.
Þetta eru ekki allt kostir á flokks
foringja, en allgóðir þjóðhöfð-
ingjakostir hygg eg það séu. Við
þetta bætist svo náin þekking á
stjóz’nmálum landsins og högum
þjóðarinnar. Að lokum skal svo
það nefnt, sem sumum finnst að
vísu aukaatriði, að Ásgeir væri
einn hinn glæsilegasti fulltrúi
þjóðaz-innar bæði út á við og inn
á við, og þá ekki síður kona hans,
frú Dóz-a Þóz-hallsdóttir. Er mörg-
um enn z' fersku minni forstaða
hans fyrir Alþingishátíðinni 1930,
sem jafnt samhez’jar og andstæð-
ingar dáðu, svo og útlendir gestir.
Eysteinn Jónsson telur að
stjórnmálaleiðtogar eigi að vera
á Alþingi en ekki á Béssastöðum.
Eg er því sammála, að húsbónd-
inn á Bessastöðum eigi ekki að
vera flokksleiðtogi né flokks-
maður eftir að í Bessastaði er
komið, en vel teldi eg fara á því,
að sanngjarnir stjórnmálafoz-ingj-
ar, eða aðrir stjóz'nmálamenn,
enduðu féril sinn á Bessastöðum
og eg treysti þeim engu síður til
óhlutdrægni í staz-fi, heldur en
flökksmönnum þeiz-ra ýmsum,
sem aldrei hafa komið næz-ri
stjórnmálum opinbez-lega. Nú er
Ásgeir Ásgeirsson að vísu ekki
flokksforingi, þó hann hafi verið
góður liðsmaður í flokki. En hvað
sem um það er, þá er eg þess al-
veg fullviss, að þegar til Bessa-
staða kæmi, mundi hann leggja
öll flokkssjónaz-mið á hilluna og
stunda það eitt að vera óhlut-
drægur þjóðhöfðingi í þingræðis-
landi.
Bernharð Stefánsson.
ÍBÚÐ,
1—3 herbergi og eldhús,
óskast nú þegar.
Afgr. vísar á.
I síðasta blaði birtist lands-
prófsverkefni í landafræði. —
Spreyttu ýmsir lesendur sig á
því ög fannst fróðlegt að sjá,
hverrar vitneskju er lcrafizt af
unglingunum og hvaða mæli-
kvarði er lagður á kunziáttuzza.
Hér á eftir fer annað próf, ekki
síður athyglisvert, í íslenzku.
Fyrir 10 árum eða svo, er óvíst
að stúdentar hefðu treyst sér til
að svara nema um það bil
helming spurninganna. Kröfur
um þrönga málfræðikunnáttu á
bók hafa verið mjög þyngdar
síðan landspróf var upp tekið.
Hér fer á eftir prófverkefnið í
vor:
I. Gremið í orðaflokka undir-
strikuðu orðin í eftirfarandi
málsgreinum: Mér þótti verst að
geta ekki staðið honum jafnfætis.
Verið nú samtaka, ög ýtið bílnum
upp brekkuna. Bóndinn kvaðst
eiga þá konu, sém bæði væri fríð
sýnum og gáfuð. Hvers vegna
beittir þú drenginn hörðu, þegar
hazzn strauk að heiman?
II. a) Finnið tvær afleiddar
myndir sagnarinnar að taka
(myndaðar með i-hljóðváz-pi).
Sýnið, af hvaða kennimyndum
þær eru dregnar. — b) Ritið
kemzimyndir veiku sagziazizia,
sem myndaðar eru af þátíðar-
hljóðskipti þessara stez'ku sagna:
drífa, sitja. — c) Greinið hætti
sagnanna í þessari málsgrein:
Skyldu bátar mínir róa í dag? —
d) Greinið myndir sagnanna í
eftiz-farandi málsgrein: Þú fanzist
hreiðrið, en fuglinn var floginn.
— e) Greinið persónu og tölu
sagnanna z þessari málsgrein:
Stúlkurnar minntu kennarann á,
þegar þær vantáði verkefni.
III. a) Gerið grein fyrir eftir-
farandi sérhljóðsbrcytingum:
spinna-spuna, eta-jata, móðzu--
mæði, halda-höldum. — b) Orð-
myndunargreining: misvituz-,
sofna, vísir. — c) Hvernig er
eignarfall fleirtölu þessara orða:
nes, smiðja, haugur?
IV. Greinið þessa málsgrein í
setningaz-hluta: Jón var spuz'ður,
hvort hann vildi mála húsið sitt
rautt.
V. Skrifið upp eftirfarandi'
málsgrein, afmarkið setningarnar
með lóðréttum stz-ikum og segið,
hvað hver þeirra heitir: Áður var
það siður að piltar sem stóðu við
slátt færu á fætur um miðja nótt
(Fz'amhald á 7. síðu).