Dagur - 28.05.1952, Síða 7
Miðvikudaginn 28. maí 1952
DAGUR
7
— Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
sem reykja. Tóbaksnautninni,
einkum reykingum ,fylgir sá stóri
galli, fyrir utan heilsutjónið, að
sá sem reykir, sættir sig betur
við iðjuleysið fyrir tóbaksnautn-
ina. Honum finnst hann vera eitt-
hvað að gera þegar hann er að
reykja. Það færi betur, að hann
gerði sér ljóst, hvers konar vinna
það er, sem hann er þá að stunda:
hann er að brenna göt á heilsu
sína. Hann sér þegar hann brenn-
ir gat á buxurnar sínar, en hann
sér ekki öll þau smágöt sem hann
brennir á æðakerfi sitt.
Hver sem reykir mikið má bú-
ast við að fá af því kölkun í æðar
sínar löngu fyrir tímann. Einkum
er hætt við að kölkunin geri vart
við sig þar sem verst gegnir,
nefnilega í hjartaæðunum. Kval-
irnar og angistin sem fylgir
krampanum í kalkandi hjarta-
æðum, geta tekið á taugar lækn-
isins, sem verður að horfa upp á
þær. Honum finnst hörmulegt að
vera vottur að kvölum sjúklings-
ins, vitandi hvernig hjartað er að
kafna vegna þess að reykjarsvæla
margra áratuga hefur lokað æð-
um þess og tekið fyrir súrefnið,
sem er því lífsnauðsyn. Hann var
ekki kallaður til, þegar sjúkling-
urinn var ungur og var að velta
því fyrir sér, hvort hann ætti að
byrja að reykja, „bara eina síga-
rettu, svona rétt að gamni sínu“.
Sennilega hefði ráðum hans ekki
verið hlýtt hvort sem var. Hann
hefur svo pft rekið sig á það,
hvernig menn gera allt sem þeir
geta til þess að eyðileggja heilsu
sína vitandi vits. Menn verða svo
átakanlega ‘ héimskir, þegar
augnabliksánægjan. . ..ei: annars
vegar. Hann þekkir það líka hjá
sjálfum sér og átasar ekki öðr-
um. En honum finnst raunalegt,
að skynsemin skuli hafa svo lítið
vald yfir tilfinningu augnabliks-
ins. ...
„Oscar Wilde sagði að sígarett-
an væri fyrirmyndamautn, af því
að hún veitti enga fullnægingu.
Réttara hefði verið að segja, að
hún væri lítilfjörleg nautn, af því
að hún veitir svo lélega fullnæg-
ingu, að mann fer fljótlega að
langa í aðra.
Ungar stúlkur ættu sérstaklega
að athuga vel sinn gang áður en
þær byrja að reykja. í fyrsta lagi
vegna þess, að engum karlmanni
lízt betur á þær vegna þess, nema
síður sé. Það verður stór skattur
á heimilinu ef bæði hjónin reykja
nokkuð til muna. En sérstaklega
vegna þess, að konum sem reykja,
hættir mikið til að fá króniskt
lungnakvef af reyknum, sem þær
anda ofan í sig, og þessi króniska
bólga í öndunarfærunum tekur á
sig sérstakt fom, þannig, að kon-
an tekur til að hósta á morgnana,
hefur þurran, Ijótan rolluhósta,
sem fælir menn frá henni. Auk
þess hættir öllum konum, sem
reykja mikið, til þess að fá af því
gráan, ljótan litarhátt, sem skap-
ast af margendurteknum sam-
dráttum í hörundsæðunum, svo
að húðin nærist illa og verður
Ijót.
Ekkert er hægara en að byrja
aldrei að reykja.
Fátt er erfiðara en að hætta að
reykja fyrir þann, sem hefur van-
ið sig á það. .. . “
„Á síðustu árum er það að
koma æ betur í ljós, að krabba-
mein er orðið mörgum sinnum
algengara í lungum heldur en það
var áður. Nákvæmar eftirgrennsl
anir hafa sýnt, að þessi aukning
stendur í réttu hlutfalli við síga-
rettuneyzluna, sem í flestum
menningarlöndum hefur aukizt
stórkostlega. Og þegar sjúkling-
arnir, sem koma með lungna-
krabbamein, eru spurðir spjörun-
um úr, kemur í ljós. að lungna-
krabbamein er algengast meðal
- Landsprófið *
(Framhald af 5. síðu).
til þess að nota rekjuna áður en
sólin kæmi upp og jörðin yrði of
iurr.
VI. Allt hafði annað róm
áður í páfadóm.
Skrifið upp vísubrotin, og skiptið
iví í hákveður og Iágkveður;
setjið áherzlumerki við atkvæð-
in; merkið ljóðstafi með hring.
VII. Skýrið eftirfarandi orð og
orðasambönd: landskuld, Saltari,
fagrahvel, ái_, mundriði, sifji, að
lyrma einhverjum, að reka í
vörðurnar ,að flytja kerlingar, að
fara hamförum (til íslands).
VIII.
Fer í gegnum skóg á skíðum
skörulegur halur einn,
skarlatskyrtli sveiptur síðum,
sára gyrður þorni fríðum.
Geislinn hans er ganibanteinn.
Hefur hann á mörkum marga
munntama þeim gefið bráð.
Sjálfs hans ævi er álík varga;
einn sér verður hann að bjarga:
hefur safnað ei né sáð.
a) Skýrið það, sem strikað er
undir í vísunum. b) Úr hvaða
kvæði eru þær, og hver er höf-
undur þess?
IX. a) Skýrði frá fyrsta fundi
Þorsteins- Egilssonar og Helgu
fögru. — b) Hvað varð um Siggu
Ólínú* eftir að hún sagði skilið
við Svein? (Úr Tilhugalífi).
X) a) Hvað tvennt varð Guð-
1 J. * t ' } !
'rúnu til bjargar, þegar djákninn |
' á Myrká ætlaði ’að tá'ká hana með
sér í gröfina? — b) Hver er hugs-
unin í þessum Ijóðlínum eftir
Stefán frá Hvítadal:
Heimurinn varð hjáleigan,
höfuðbólið draumsins ríki.
þeirra, sem mest hafa reykt. í
Bretlandi og Bandaríkjunum, þar
sem sígarettureykingar hófust
fyrst í stórum stíl, er krabbamein
í lungum nú orðið næstum eins
algengt eins og í maga. En áður
en reykingar hófust var krabba-
mein í lungum mjög sjaldséð fyr-
irbrigði. . . . “
„Verst er hve mjög tóbaks-
nautn hefur ágerzt meðal ungl-
inganna. Mér hefur verið sagt, að
í tilteknum gagnfræðaskóla í
Reykjavík muni 60% af strákun-
um reykja, og mikið af stúlkun-
um líka. Þetta eru unglingar á
aldrinum 14—16 ára. Það er nú
orðin algeng sjón að sjá krakka
um fermingaraldur, einkum
stráka, reykja sígarettur á göt-
um borgarinnar.
Þetta er alvarlegt mál. Börnin
vita ekki, hvað þau eru að gera.
Þeim finnst vera mannsbragur að
þessu, finnst það vera fínt að
reykja. Þau vita ekki, að þau eru
að grafa undan heilsu sinni með
þessu. Þegar stúlkurnar, sem
reykja, fara að ganga með börn
sín, líður blóðrás legsins við það
og fóstrið fær ekki þá fullkomnu
pæringu, sem það þarf. Það er
ekki nóg, að konan skemmi sínar
eigin æðar, hún spillir næstu
kynslóð, sínu eigin afkvæmi, sem
hún vildi þó gera eins vel úr garði
og kostur er. Unga stúlkan, sem
byrjar að reykja, veit þetta ekki,
en hún þyrfti að vita það... . “
Atvinna
Stúlka, vön saumaskap, ósk-
ast strax.
Upplýsingar hjá
Sigurði Guð'mundssyni,
Hafnarstræti 81.
Hvítasunnan!
Grænar baunir
Blandað grænmeti
Gulrætur
Hvítkál
Marmelade
Pickles
Aspargus
Salad Cream
Mayonnaise
Appelsínusafi
Hindberjasaft
Niðursoðnir ávextir
margar tegundir
Kaupfélag Eyfirðinga
N ýlendu vömdeild
og útibú
Þurrkuð epli
Dökkar steinlausar
Rúsínur
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin
og útibú.
KEX!
Margar tegundir af
útlendu kexi í plc.
Mjög hentugf á/írá-
tíðaborðið.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Flórusulta
Jarðarberja- og eplasulta
í heil- og hálfdósum
Hindberja- og eplasulta
í heil- og hálfdósum
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Stúlka
óskast í vist hálfan daginn,
Maria Ragnars,
Þingvallastræti 27.
Skemmtisamkoma
verður að Saurbæ á annan í
hvítasunnu. Hefst kl. 10.
Bögglauppboð — Dans.
Skemmtinefndin.
Næsta saumanámskeið
hefst miðvikudag 4. júní
n. k, Dag- og kvöldtímar.
Jóhanna Jóhannesdóttir,
Sími 1574.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
I. O. O. F. = 13453081Ú =
I. O. O. F. — Rbst 2 —
100528814 — II. III.
Hvítasunnumessur. Hvíta-
sunnudag kl. 2: Akureyri. P. S. —
Kl. 2: Lögmannshlíð.'F. J; R. —
2. í hvítasunnu: ,K1. 2: Akureyri.
F. J. R. — 2. í hvítasunnu kl. 2
e. h.: Barnaskólanum í Glerár-
lorpi. P. S.
Fíladclfía. Samkomur verða í
safnaðarhúsinu, Lundargötu 12:
Á hvítasunnudag kl. 8.30 e. h. Á
annan í hvítasunnu kl. 8.30 e. h.
Söngur með guitarundirleik. —
Allir velkomnir.
tK. A. Félagar! Hand-
knattleiksæfingar í
karlaflokki á _ mánu-
dögum og fimmtudög-
Um kl. 6.30 e. h. á tún-
inu sunnan við íþróttahúsið. —
Hjálpræ'ðisherinn, Strandg. 19B.
Hvítasunnudag kl. 8.30 e. h.: Al-
menn samkoma. — Annað hvíta-
sunnudag kl. 8.30 e. h.: Kveðju-
samkoma fyrir kaptein Óskar
Jónsson og fjölskyldu. — Komm-
andör Wycliffe Booth og frú
stjórna eftirtöldum samkomum:
Þriðjudag 3. júní kl. 8.30 e. h.;
Almenn samkoma. — Miðvikud.
kl. 3 e. h.: Samkoma fyrir konur.
Kl. 8.30 e. h.: Samkoma í kristni-
boðshúsinu „Zíon“. — Mr. Gook,
brigader Ringstad o. fl. aðstoða á
samkomunum. Verið velkomin.
Eitthvað hefur borið á því síð-
ustu dagana ,að unglingar hér
í bæ liafi verið að bjóða til sölu
egg villtra fugla, svo sem gæs-
f aregg^ ,Ióuegg, imdaregg o. s.
frv. Grúiiúr'- lellíur ó', að’ egg
þessi séu tekin í hólmuin Eyja-
fjarðarárósa. Eggjataka þar er
stranglega bönnuð. Auk þess er
hér um að ræða ómannúðlega
nieðfcrð á..fughu}yj[u, sem um
þessar múiidrföigí; ,við ærna
erfiðleika-a'ð. stríða, þótt mað-
urinn leggist ekki á eitt me'ð
náttúruöflunum. — Foreldrar
ætlu að brýúa íyrir bÖrnuin
og unglingum að' syna fiigíún-
um verðskuldaða vinsemd á
varptímanum og hvetja þau til
þess að vernda hreiðrin fremur
en ræna þau.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 30
frá M. G. — Mótt. á afgr. Dags.
Frá Amtsbókasafninu. — Yfir
sumarmánuðina verður safnið
opið' til útlána miðvikudaga og
finuntudaga kl. 4—7. Lesstofan
opin sömu daga á sama tíma.
Opnað' verður miðvikudaginn
4. júní.
Tillaga um íslenzkan
grasgarð í Laugarskarði
Fyrir nokkru luku garð-
yrkjumennimir Jón Rögn-
valdsson og Fiiuiur Árnason,
ásamt bæjarverkfræðingi Ás-
feiri Markússyni, við tillögu-
uppdrátt að nýju fyrirkomu-
legi andatjarnarinnar í Laug-
arskarði (Grófargili). Er þar
gert ráð fyrir nýjum fuglapolli
ofar í gilinu, umhverfi beggja
pollanna verði prýtt me'ð runn-
xmi og trjám, en fyrir neðan
núverandi tjöm er gert ráð fyr-
ir skrúðgarði, allt að Kaup-
vangsstræti. í Alþm. í sl. viku
ræ'ðir Steindór Steindórsson
menntaskólalíennari þcssar fyr
irætlanir, og gerir. það' að til-
lögu sinni, að í stað skrúðgarðs
með venjulegum skrautblóm-
um verði þama kómið upp ís-
lenzkum grasgarði og telur
hann aðstæður til þess hinat
ákjósanlegustu. í þennan gar'ð
yr'ði safnað sem flestum teg-
unduin íslenzkra plantna og
gróðursettar þar. Telur Stéin-
dór a'ð slikur garður mundi,
auk þess að vera bæjarprýði
hin mesta, vcrða til gagns fyrir
skólana í bænum og verða lík-
Iegur til þess að auka þekking
manna á gróðurríki fslands. Er
hér um athyglisverða tillögu að
ræð'a og líklega til þess að auka
hróður bæjarins, ef fram-
Itvæmd yr'ði.
Nýja-Bíó. Sameinúð samkoma,
hvítasunnudag kl. 4.30. Hljóð-
færasláttur, söngur, stuttar ræð-
ur. Allir velkomnir. Óskar Jóns-
son, kap. Arthur Gook.
Hjúskapur. Oddný Ólafía Sig-
urjónsdóttir, Akranesi, og Bene-
dikt húsg.smiður Hermannsson,
Ingimundarsonar, Akureyri. Gef-
in saman 24. maí af séra Friðrik
J. Rafnar. — Framtíðarheimili
þeirra verður á Akranesi. '
Kennarar úr nágrenni Akur-
eyrar, sem ætla á kennaramótið
að Laugum og vilja vita af ferð
austur ,eru beðnir að. hafa tal af
Eiríki Stefánssyni, Klapparstíg 1
eða Eiríki Sigurðssyni, Hrafna-
gilsstræti 12, sími 1262.
Frá Fcrðafélagi Akúrcyrar. —
Næsta ferð er 1. júní á Torfufell.
Farmiðar seldú á. föstudag hjá
Þorst. Þorsteinssyni. Kvöldferðir
hefjast 4. júní. Farið verður'suð-
ur um Eyjafjörð. Farmiðar séldir
hjá Þorst. Þorsteinssyni og á af-
greiðslu Flugfélags íslands, Ak-
ureyri.
Góð þátttaka í vinnuferðum
Skógræktarfélags Akureyrar. —
Fyrsta ferðin var farin sl. fimmtu
dag og komu þá 11 menn með
bíla til að aka fólki og 42 karlar
og 44 konur til að vinna að gróð-
ursetningu 4400 plantna. — Á
l.augardaginn voru 8 bíla.r við
flutning á fólki og 50 manns kom
til áð .gróðui'setjá 3300 plþntur.
Lífið í gluggana!
TERTU SPAÐAR
KÖKUGAFFLAR
ÁVAXTAHNÍFAR
SMJÖRHNÍFAR
OSTAHNÍFAR
SYKURTANGIR
TERTUFÖT
KRISTALSSKÁLAR
og margt fleira af
nýjum vörum
Járn- og glewörudeildin
Ilmvötn
EVENING IN PARIS
tvær stærðir
EAU DE COLOGNE
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlend uvö rude ild