Dagur - 28.05.1952, Síða 8
8
Dagur
Miðvikudagirm 28. maí 1952
Vátrygpgadeild KEA afhenti 5
heiðursmerki fyrir öruggan akstur
Merkt starf Samvinnutrygginga til að auka
umferðamenningu og öryggi í akstri
Skógarþrösfur valdi sér hreiður-
stæði í siöðyarbíl, sem er í
daglegum aksfri
4 egg komin í hreiðrið í hríðinni í gærmorgun
(Ljósmynd: V. Guðm.).
Samvinnutryggingar hafa
ákveðið að taka upp þá nýbreytni
að heiðra alla þá biíreiðaeigend-
ur, sem hafa bifreiðar sínar
tryggðar hjá félaginu í samfellt
fimm ár, án þess að valda skaða-
bótaskyldu tjóni á þeim tíma. —
Mun þeim verða gefið merki, sem
hefur verið sérstaklega gert í
þessum tilgangi, og er skráð í það
„Fimm ára öruggur akstur“.
Fyrstu bifreiðatryggingar Sam-
vinnutrygginga, á öðrum en nýj-
um bílum, tóku gildi 1. maí 1947,
eða fyrir fimm árum síðan. Létu
þá inargir bifreiðaeigendur
tryggja bifreiðar sínar hjá félag-
inu, og 1. maí síðastliðinn kom í
ljós, að 116 þeirra höfðu aldrei
valdið tjóni á þessu tímabili.
Fimm fá öryggismerkið hér.
Vátryggingadeild KEA hefur,
sem kunnugt er, umboð fyrir
Samvinnutryggingar hér um
slóðir og skýrðir forstöðumaður
deildarinnar, Jóhann Kröyer,
blaðinu svo frá, að 5 menn, sem
tryggt hafa bifreiðir sínar hjá um
boðinu, hafi ekki valdið skaða-
bótaskyldu tjóni í 5 ár og hljóti
nú þegar öryggismerkið. Þessir
menn eru: Jakob Frímannsson
kaupfélagsstjóri, bifreið A—4,
Þór O. Björnsson deildarstjóri,
bifreið A—322, Garðar Halldórs-
son, bóndi, Rifkelsstöðum, jeppa-
bifreið A—444, Magnús Bryn-
jólfsson skíðakappi, vörubifreið
A—453 og Sverrir Guðmundsson,
Lómatjörn, jeppabifreið Þ—185.
Fleirí menn en hér eru taldir,
hafa ekki valdið skaðabótaskyldu
tjóni, en þeir hafa ekki haft bif-
reiðar sínar í gangi allt árið og
er ökutíminn því ekki 5 ár enn
sem komið er. En menn munu fá
öryggismerkið jafnóðum og 5 ára
tímanum er náð, ef ekkert tjón
hefur þá orðið.
Aukin umferðamenning og
öruggur akstur.
Það er tilgangur Samvinnu-
trygginga með öryggismerki
þessu, að hvetja ökumenn til þess
að sýna fulla gætni við akstur og
gera þeim það kappsmál að valda
aldrei tjóni á bifreið sinni eða
öðrum farartækjum.
Samvinnutryggingar hafa hald-
ið uppi margvíslegu starfi til þess
að stuðla að aukinni umferða-
menningu og draga úr árekstrum
og slysum. Vai'ð félagið fyrst ís-
lenzkra tryggingafélaga til þess
að veita mönnum 10—25% afslátt
af tryggingagjöldum, ef þeir
valda ekki tjóni í ákveðinn tíma,
og eru hinir öruggu bifreiðastjór-
ar þannig verðlaunaðir með
beinni lækkun á tryggingagjöld-
um. Nam slíkur afsláttur yfir
190.000 krónum á árinu 1950, og
fengu þá 2300 bifreiðar afsláttinn
af 3500, sem tryggðar voru.
Þá hafa Samvinnutryggingar
gefið út bókina „Öruggur akst-
ur“, sem nú er því miður þrotin,
ritið „Tryggingu“ og fleira af
prentuðu máli, er hvatt hefur til
gætni í umferð og aukins öryggis.
Tjónin nema milljónum króna.
Bifreiðaeign íslendinga er nú
metin á 3—400 miljónir króna, og
nemur tjón af völdum árekstra og
slysa milljónum á ári hverju. Hjá
Samvinnutryggingum einum,sem
tryggja þriðjung allra bifreiða í
landinu, nema greiðslur fyrir tjón
á bifreiðum og áætluð, ógreidd
tjón síðastliðin fimm ár samtals
5.600.000 krónum.
Árekstrar og slys munu hafa
verið svipuð á síðastliðnu ári og
árin áður, og er því full ástæða
til að reyna að dragá úr þeim. —
Samtals bárust á árinu 1350 til-
kynningar um tjón frá þeim 3700
bifreiðum, sem félagið tryggir.
Nemendatónleikar
Tónlistarskóla
Akureyrar
Síðastl. sunnudag efndi Tón-
listarskóli Akureyrar til nem-
endahljómleika í Samkomuhúsi
bæjarins. Efnisskráin var harla
fjölbreytt, svo sem vænta mátti.
Þar komu fram einleikarar á
slaghörpu, orgel, fiðlu og klari-
nett og ennfremur einsöngvarar,
allt nemendur tónlistarskólans.
Var það æði sundurleitur hópur,
allt frá börnum og byrjendum í
listinni upp í fullorðið fólk og
sumt alllangt komið út á skeið-
völl tóníþróttanna. En öllum var
vel fagnað af áheyrendum, og
vissulega að maklegleikum. —
Ekki skal hér út í það farið að
skýra frá einstökum atriðum, né
heldur leggja dóm á, eða gera upp
á milli frammistöðu hins unga
fólks, sem þama kom fram. Þó
mun óhætt að segja, að ekki hafi
hvað sízt þótt mikið til koma ein-
söngs Eiríks Stefánssonar (djúp-
ur barrytónn eða bassi, ágæta
mikill og fallegur) og klarinett-
leikaranna tveggja, Finns Eydal
og einkum hins eldra —. og sjálf-
sagt æfðara þelrra tveggja — Sig-
urðar Jóhannessonar. Og vel
klykkti Hörður Kristinsson út
þessá skemmtilegu tónleikum
með slaghöi-puleik sínum.
Tónlistarskólinn er þörf og
vinsæl stofmm í bænum. Skóla-
stjóri hans er Jakob Tryggvason,
organleikari og forsöngvari Ak-
ureyrarkírkju.
Sonarsonur William
r
Both kominn til Islands
Kommandör Wycliffe Booth,
sonarsonur Williams Booth stofn
anda Hjálpræðishersins, sem hef-
ur nýlega tekið við stjórn Hjálp-
ræðishersins í Noregi, Færeyjum
og íslandi, er kominn til íslands,
ásamt konu sinni, Renee Booth,
sem er sonardóttir Peyrons, óð-
alseiganda og milljónamærings,
sem varð frumherji hersins í
heimalandi sínu, Frakklandi, og
gaf allar eigur sínar til starfsem-
innar.
Munu þau hjónin koma til Ak-
ureyrar ásamt E. Ringstad,
norskum Hjálpræðishersforingja,
og halda hér samkomur þann 3.
og 4. júní næstk.
Norðaustan stórviðri
með snjókomu í gær
í fyrrinótt brast á hér um slóð-
ir norðaustan stórviðri með snjó-
komu til fjalla og slydduhríð á
láglendi. Var versta veður í allan
gærdag, einkum við ströndina, en
hægara hér á Akureyri og inn til
dala. Bændur voru víða búnir að
sleppa lambám og má búast við
að veðrið hafi grandað einhverju
af lömbum, þótt fregnir hafi ekki
borizt af því. Einnig mun það
vafalaust hafa valdið skemmdum
í görðum.
Háspennulínan frá Laxá rofn-
aði um klukkan 6 í gærmorgun
og var bærinn rafmagnslaus í
gær. Óvíst var í gærkvöldi, hvort
viðgerð mundi takast þá eða
hvort það mundi dragast fram á
daginn í dag, en vonandi verður
ekki lengri bið.
Saurbæjarhreppi 26. mai.
„Síðastl. sunnudagsnótt skeði
það hér í Saurbæjarhreppi, að
nokkrir menn brutust inn í bæinn
á Skáldsstöðum og frömdu þar
ofbeldi og meiðingar á fólki, en
ekki munu þeir hafa tekið neitt
með sér. Voru þar þekktir a. m.
k. 3 menn af Akureyri. — Halda
sumir að þar hafi átt að fremja
stúlkurán. Finnur bóndi Krist-
jánsson í Ártúni og Jón bóndi í
Hólum komu þar fyrstir á vett-
vang, og sáu þeir öll verksum-
merki. (Blaðið hefur borið þessa
frásögn undir yfirvöldin hér á
Akureyri og segja þau að um-
kvörtun hafi borizt um atburði
þessa og kæra muni væntanleg
og mál þetta þá tekið fyrir).
_A_
Tíðin köíd og stormasamt. Gróð-
lítill. Nokkm-t kal í túnum, bæði
gamalt og nýtt. Bændur mega
henda rándýrum áburði ofan í
þetta, og fá svo ekki af stórum
pörtum nema Vz eða % afrekstm'.
Skógarþrestir okkar — bæði
heimafuglar og suðrænir gestir —
velja sér stundum hin undarleg-
lustu hreiðurstæði. Á þessu suinri
eru hreiður í gluggaskotum, á
húsasvölum, á girðingarstaurum
og öðrum slóðum, sem sýna, að
fuglamir óttast ekki manninn svo
mjög og virðist mörgum þeir ger-
ast spakari með hverju árinu sem
líður.
Undarlegasta hreiðurstæði, sem
blaðið hefur frétt um í ár, er sýnt
á myndinni hér að ofan. Viðskipt-
um fuglsins og bílsins er enn
engan veginn lokið, en til dagsins
Skepnuhöld góð og sauðburður
gengur vel.
Nú á að fara að nema Sölvadal
í annað sinn. Þangað flytjast tvær
húnvetnskar fjölskyldur. Önnur
fer í Ánastaði, en hin fær Selja-
hlíð til afnota að sögn.
_A.
23. þessa mánaðar varð húsfrú
Indíana Sigurðardóttir í Ártúni
60 ára. Heimsótti hana við það
tækifæri allmargt af vandamönn-
um og vinum, og veitti hún gest-
um sínum af rausn og skörungs-
skap, enda hefur aldrei veiið
nein hálfvelgja í því, sem sú kona
gerir. Hún hefur verið heilsutæp,
en unnið þó með sóma heimilis-
störf sín. Hún er gift Finni Krist-
jánssyni, og hafa þau búið á þess-
ari jörð yfir 30 ár. Finnur varð
60 ára 8. janúar 1951. — Þennan
sama dag varð 50 ára hrepps-
nefndarmaðurinn Halldór Frið-
riksson bóndi í Iíleiðargarði. Var
var og fjöldi gesta við glaum og
gleði. Halldór er góður og gegn
bóndi.“
í dag er saga hreiðursins á þessa
leið:
í stöðvarbíl.
Bifreið A—629 er Chevrolet-
vörubifreið, með vélsturtum, eig-
andi og bílstjóri er Ólafur Ey-
land. Hann á heima í Krabbastíg
1, á Ytri-brekkum hér í bæ, ekur
á bifreiðastöðinni Stefni. Bílnum
leggur hann í götunni, þegar
hann er heima. Á fimmtudaginn
var, stóð bíllinn heima við hús,
því að eigandinn var að skipta
um hjólbarða á framhjólum. —
Þurfti hann þá að lyfta palli til
að ná í tjakk og þennan morgun
voru engin verksummerki. Á
föstudagsmorguninn lyfti hann
pallinum til þess að láta tjakkinn
á sinn stað og þá var komið hreið
ur á bita, sem er yfir þveran bíl-
inn vegna vélsturtanna. Sýnir
myndin hvernig karfan leit út. —
Ólafur leitaði þegar ráða hjá
dýravinum og fuglafræðingum,
hvort ráðlegt væri að færa körf-
una, t. d. upp í tré, en talið var
að fuglinn yrði að ráða það við
sig sjálfur, hvort hann héldi
áfram hreiðurgerð og varpi við
þessar kringumstæður, eða af-
rækti allt saman. Bíllinn fór í
akstur á föstudaginn og var svo
þann dag og laugardag. Á sunnu-
dagsmorguninn kom fyrsta eggið
og annað eggið á sunnudags-
kvöld. Bíllinn var í akstri þennan
dag meira og minna. Þriðja eggið
kom á mánudaginn síðdegis, og
þá var bíllinn allan daginn á
stöðinni og í akstri, og fjórða egg-
ið var komið á þriðjudagsmorg-
uninn, í hríðinni og rokinu. Ól-
afur hefur orðið var við fuglinn
á ferðum sínum um bæinn og
hefur hann flogið af eggjunum á
ýmsum stöðum ef palli hefur ver-
ið lyft. Eftir er að sjá, hvort hann
venst því að vera á sífelldu ferða-
lagi með bílnum, eða hyort hon-
um vaxa svo i augum þeir erfið-
leikar, sem eru á barnauppfóstri
við slíkar kringumstæður, að
hann afræki hreiðrið og búi sér
kannske til annað á öllu hentugri
stað. En til þess hefur hann bæði
tíma og tækifæri enn.
Húsbrof á Skáldssföðum í Saur-
bæjarhreppi - filraun fil konuráns?
Sölvadalur numinn í annað sinn