Dagur - 05.06.1952, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 5. júní 1952
DAGUR
5
Heimilisliættir á þ j óðarheimilinu
eftir Jón H. Þorbergsson á Laxamýri.
Nehru segir kommúnista líkasta
trúarlegum ofstækisflokki
Indland mun aldrei kaupa verklegar framfarir
eins dýru verði og Rússland og Kína
Forsætisi'áðherra Indlands, hinn
hámenntaði og stórvitri stjórn-
málamaður Jawaharlál Nehru,
talaði nokkur órð í fullri mein-
ingu við kommúnista á þingi
lands síns hinn 22. f. m. við um-
ræðurnar, sem urðu um ávarp
forsetans við þingsetninguna.
„Vér munum aldrei' gjalda það
verð fyrir verklegar framfarír,
sem Sovét-Rússland og Kína
hafa gert og eg efa, að leiðtogar
þessara þjóða mundu yilja gjalda
það verð ef þeif hefðu tækifæri
til þess að íifa íiðna tíð Upþ á
nýtt,“ sagði Néhru.
Hann sagði að ræður komm-
únistaþingmannanna værú nú
orðið ekkert annað en „slagorð og
kennisetningar, sem eru orðnáf
úreltar fyrir löngii. Kommúnistar
eru stöðugir í trúnni eins og trú-
arlegir ofstækismenn. Eg hef
hingað til neitað að beygja mig
fyrir trúarlegu ofstæki og eg
neita enn að beygja mig fyrir of-
stækismönnum þessara nýju trú-
arbragða," sagði forsætisráðherr-
ann.
í framhaldi af þessu sagði
Nehru. — og sneri sér að þing-
mönnum kommúnista: „Þið dáið
mjög hvert atvik, sem fyrir kem-
ur í Rússlandi eða Kína, en gagn-
rýnið og bannsyngið sams kónar
atvik ef þau koma fyrir heima hjá
ykktii’. Það er mál út af fyrir sig,
að dást að öðru landi og reýná að
eftirlíkja þáð bezta, sem þar
finnst, en það er annað mál og
óskylt að telja það land fremra og
betra sínu eigin landi að öllu
leyti.“ Samkv. frásögn Herald
Tribune 23. maí.
Amtsbókasafnið á Akureyri 1951-52
Lesstofán frá 2. okt. til 14. maí:
Það gengur ávallt illa á því
heimili, þar sem aðeins sumir
hinna verkfæru vinna nauð-
synjastörfin. Þar sem sumir
leggast í leti og ómennsku og ætl-
ast til að aðrir vinni það, sem
þeim bér sjálfum að gera. Það
verður margt ógert, sem gera
þarf, og þar verður vöntun á
mörgu, sem nauðsynlegt er að
hafa fyrir hendi.
Þetta á sér því miður stað á
einstöku heimilum, en þó allra
mest á þjóðarheimilinu. Fram-
leiðslustörfin eru nauðsynjastörf
á því heimili, en þau eru þar mest
vanrækt allra starfa.
Breytingin frá aldamótum.
Um síðustu aldamót stundaði
71,5% af þjóðinni landbúnaðar-
störf. Hve mikill hluti hennar
stundaði þá sjávarútveg er ekki
kunnugt, en sennilegt er að þá
hafi allt að því 80% af þjóðinni
stundað framleiðsluna til lands og
sjávar.
Á þessu er nú orðin mikil
breyting. Samkvæmt útreikningi
Hagstofu íslands fyrir árið 1930,
yoru 35,8% landbúnaðarfólk, en
16,7 % sjávarútvegsfólk, eða alls
52,5% af þjóðinni, sem stóð að
nauðsynlegustu störfunum á
þjóðarheimilinu, framleiðslunni.
Tíu árum síðar eða 1940, höfðu
eftir sama útreikningi, þessar töl-
ur lækkað mjög verulega. Þá
stunduðu landbúnað 30,6%, en
sjávarútveg 15,9%. Alls stunduðu
þá framleiðslustörfin 46,5%. Enn
hef eg ekki náð í þessar tölur frá
manntalinu 1950. En að því má
ganga vísu, að þær hafi enn
lækkað. Það skal tekið fram, að
hér er átt við allt það fólk, sem að
framleiðslunni stendur, vinnandi
folk og skyldulið. Þessar tölur
lofa engu góðu um dugnað og af-
köst. Að vísu má segja að nokkuð
af framleiðslufólkinu sé nú starf-
andi við nauðsynleg iðnaðarstörf
innlendrar framleiðslu, svo sem
fiskiðnaðar, mjólkur-, kjöt- og
ullariðnað. Hve margt það fólk er
vitum við ekki. En sýnilegt er að
fjöldinn af því fólki, sem um
aldamót stundaði framleiðsluna,
ér lagst í leti og ómennsku, jafn-
vel þó það sé talið til einhverra
starfa. Mörg stprf á þjóðarheim-
ilinu eru ónauðsynleg og skaðleg
þjóðinni. Að þeim vinnur það
fólk, sem horfið er frá hinum
nauðsynlegu framleiðslustörfum.
í verzlunarstéttinni er fjöldi af
iðjuléysingjum. Til dæmis í
Reykjavík er ein verzlun fyrir
hverja 56 íbúa. Við prentverk og
útgáfu rita er mikill fjöldi fólks
við ónauðsynleg og skaðleg störf.
Prentfióðið er langsamlega of
mikið, með sorpritum, sem miða
að því að drepa alla heilbrigða
hugsun úr íslenzkri þjóðarsál. —
Svo kemur ýmiss konar fiktiðn-
aður, sem er bara til þess að
drepa tímann, og svo loks þeir,
sem gera helzt ekki neitt og þá
frekar eitthvað til ills, með óknytt
um og ýmiss konar braski.
Margar orsakir.
Nú vaknar sú spurning: Eru
íslendingar í eðli sínu letingjar og
óduglegir? Eg held að það sé
hægt að færa rök að því, að svo
sé ekki. Þeir hafa oftsinnis sýnt
sérlega góð áfrek í ýmsum mann-
raunum og fólk það, sem enn
heldur sig við framleiðslustörfin
er sérlega duglegt fólk. Orsakirn-
ar til ófdrnaðar þessa eru marg-
víslegar. Það er jafnan nokkuð
misjafn sauður í mörgu fé' og
þótt íslendingar eigi mikið af
dugnaði til, þá þykir mörgum góð
setan og legan og ávallt er hæg-
ara að ganga ofan í móti en upp á
við. Aðaltildrög þess að svo mjög
fækkar nauðsynlegum, vinnandi
höndum á þjóðarheimilinu, eru
Dau að töluvert of márgir hafa
gerzt húsbændur á þessu heim-
ili, sem vantað hefur útsjón,
dugnað og þjóðhollustu. Það hef-
ur á margan hátt verið hlaðið
undir leti og ómennsku og
ábyrgðarleysi um þjóðarafkomu,
en þeim gert erfitt fyrir, sem
stóðu að framleiðslunni, reyndu
að sjá farborða þjóðarheimilinu,
fjárhagslega. Þegar við bændur
fengum 1/3 framleiðslukostnað-
arverðs fyrir dilkana, aðalafurð
búanna, var af þessum húsbænd-
um talið fært að hækka kaup og
laun, sem miðaði að því að gera
framleiðandanum óstætt. Fólkið
vildi þá náttúrlega heldur vera á
kaupi. Það hefur verið búin til
vísitala fyrst og fremst fyrir þá,
sem ó.ábyrgir um framleiðsluna.
Vísitala, sem byggð er á ramm-
skökkum grundvelli. Til dæmis ef
innflutt vara, þótt hún sé meira
að segja óþörf, hækkar í verði, þá
ber að greiða hjúunum á þjóðar-
heimilinu meiri laun. En þá er
framleiðandinn látinn eiga sig og
sá sem lifir á samanspöruðu fé
sínu. Þetta veldur misrétti og má
því ekki eiga sér stað. Það sýnir
um leið ranglátan eða óvitran
húsbónda og miðar svo líka að
því að fólk verði fráhverft fram-
leiðslunni. Raunverulegur grund-
völlur launavísitölunnar hlýtur
jafnan að vera sá, hvað fram-
leiðslan til sjós og lands gefur í
aðra hönd, á hverjum tíma. Yrði
þá vísitala sú breytileg eftir ár-
ferði. — Þetta er óhætt að undir-
strika og taka til alvarlegrar at-
hugunar.
Kröfupólitík og þegnlegar
skyldur.
Þá hafa verið stofnuð víðtæk
samtök og félagsskapur, sem hef-
ur það á stefnuskrá sinni að vinna
sem minnst, en gera sem mestar
kröfur um laun. Það þróar leti og
ábyrgðarleysi hjá fólki og er
sannarlega ekki hollt uppeldis-
meðal fyrir æskuna í landinu. —
Þar af er svo sprottinn hinn fár-
ánlegi 8 stunda vinnudagur.
Hann er óvítrætt einvörðungu til
þess að draga úr nauðsynlegum
störfum um bjargræðistímann,
sem oft er hér skammur og enda-
sleppur. Með þessum vinnu-
brögðum fær fólkið nægan tíma
til að éyða daglega í margs konar
óþarfa, sem dregur athygli frá
nauðsynlegum störfum og veldur
margs konar óhollustu. En nauð-
synleg störf eru holl og göfga
manninn. Ríkið og löggjöfin hef-
ur svo lagt blessun sína yfir þeSsá
fjarstæðu,
Það vill ósjaldan til, að víð hér
í landbúnaðinum höfum fjóra eða
jafnvel þrjá mánuði til að vinna
að uppskerunrti, ef ætti að fram-
kvæma það Verk með átta stunda
vinnudagsfólki, yrði að leggja
landbúnaðinn niður.
Eg minnist þess rétt eftir alda-
mótin, þegar tekin var upp al-
mennt sú venja að vinna 12 tíma
daglega úm sláttinh, að þá fannst
bæði mér og öðrum leikur einn
að fylgja þeirri reglu. Áður var
vinnutíminn ótakmarkaður.
Undirstaða landbúnaðarins er
slægjuland og hey fyrst og
fremst. Til þess að afla þessa sem
mest, er hægast af öllu að leggja
á sig 12 tíma vinnu um sláttinn
daglega, virka daga.
Hér á landi úir og grúir af
samþykktum, til þess að herða á
kröfunum um meiri og meiri
„hlunnindi“, daglegt frí frá nauð-
synlegum störfum og hærri laun.
Þessu miðar vel áfram til meiri
slæpingsháttar á þjóðarbúinu,
sem og vænta má, þegar hús-
bændurnir eru jafnvel sjálfir
þátttakendúr á kröfufarganinu.
Aftur ó móti þekkjast ekki, úr
sömnu átt, neinar samþykktir,
um meiri framlagðar, þegnlegar
skyldur. Unglingarnir, sem eiga
að þroskast til manns í þessu
andrúmslofti, hljóta að skoða
slæpingjaháttinn sem takmark,
en nauðsynjastörfin sem böl eða
sport, sem náttúrlega fáir vilja
skemmta sér við. Þeir líta á
þessa samþykkta-grautargerð
sem lög, jafnvel þótt samþykkt-
irnar séu með þeim hætti að rík-
isstjórninni bæri skylda til að af-
nema þær, samkvæmt stjórnar-
skránni, þegar þær miða til nið-
urdreps framfaramálum þjóðar-
innar.
Afleiðing þessara samþykkta
eru svo verkföll, verðfelling
gjaldeyrisins, „bátagjaldeyrir" o.
fl., sem veldur stórtjóni og margs
konar örðugleikum á þjóðar-
heimilinu og miklu misrétti með-
al heimilisfólksins. Svo eru
álagðir tollar og skattar í hið ó-
endanlega, sem enginn botnar í
að lokum og sem því erfiðara er
að greiða, sem meira er slæpst og
sem lítið verður til að greiða
með, þegar nauðsynja- og fram-
leiðslustörfin eru meira og meira
lögð á hilluna.
Ef að véfengja á það, sem eg
segi, ber að líta á það um leið, að
þjóðarheimilið er í stórskuldum
og þiggur nú gjafafé frá Banda-
ríkjunum í stórum stíl, til nauð-
synlegra framkvæmda. Og þetta
stafar einvöi’ðungu af þvi, að
meix’i hluti þjóðarinnar er horf-
inn frá fi’amleiðslustöi’funum.
Ötul vinnubrögð haldbezta
aðstoðin.
Það verður aldi’ei byggt upp
heilbrigt fjái’málalíf í landinu
nema að framleiðsluatvinnuveg-
irnir standi á eigin fótum fjár-
hagslega. Aðstoð við þá eiga að
vera ötul og ósvikin vinnúbrögð
og hagkvæm lán til umbóta og
nauðsynlegra framkvæmda. Það
eru aðalatriðin. Það verður held-
ur aldrei byggt upp heilbrigt
fjármálalíf, nema að verðgrunn-
urinn, vísitalan, sé uppbyggð á
þeim arði, sem framleiðslan til
sjós og lands gefux’.
Framundan er gjaldþrot á
heimilinu, nema að fólkið hverfi
aftur til stai-fa við framleiðsluna.
Að þeim stöi’fum þurfa að standa
70—80 af hvei-ju hundi’aði lands-
manna, í stað um 40 manns, sem
nú mun næi’i’i því sem ér. Það
þarf að koma iðjuleysingjunum
af stað og afskrifa stóra hrúgu af
launamönnum, aðstoðarmönnum,
nefndum og ráðum, sem flest eru
ráðalaus. Minnst helmingur þjóð-
arinnar þarf að stunda landbún-
að. Til þess vanta sveitirnar í dag
yfir 30 þúsund manns. Það fólk er
til í landinu við ónauðsynleg
eða engin störf. Það þarf strax, af
leiðandi mönnum, að gera áætlun
um það, með hverjum hætti má
koma þeirri breytingu á ög hve
langan tíma muni þurfa til þess.
Nú eru í svéitum landsins tæp-
lega 40 þús. manns. Um síðustu
aldamót var sveitafólkið 63 þús.
og mýtti þá teljast bjargálna. Nú
er margt afkomenda þessa fólks
að mynda fátækrahverfi í höfuð-
stað landsins, þar sem ekkert
liggur fyrir því annað en eymd-
arlíf.
Þó að aukin tækni létti stöi’fin
og útheimti minni vinnu við
ákveðið framleiðslumagn, þá þarf
Gestir: Októbar 130, nóvember
192, desember 123, janúar 120, fe-
brúar 181, mai’z 202, apríl 144,
maí 47. Alls 1139 (í fyrra Í136).
Lánað á lesstofu alls 673 bæk-
ur, blöð og tímarit (í fyrra 562).
Útlán frá miðjum júní til 1. maí:
Notendur 878 og auk þetss lánað
í fjóra togara (í fyrra 781). Fjöldi
heimlángðra bpka: Barnabækur
1123, skáldsögur eftir íslenzka
höfunda 1591, skáldsögur eftir er-
lenda höfunda, þýddar á ísl., 7257,
landlýsingar og ferðásögur 368,
ævisögur og minningar 721, ís-
landssaga og ísl. fræði 402, Aðrir
flokkar ísl. bóka 322, ei’lendar
bækur alls 1638. Útánsbækur
13422. Á lessal 673. Samtals 14095
(í fyi’i-a 10929). Notendur safnsins
alls (878—4—1139) 2021 (í fyrra
1917). Auk skyldueintaka bætt-
ust safninu 308 eintök, frá 1. júní
1951 til 31. maí 1952.
Gefendur: Ólafur Jónsson 1 ein-
tak. Americon légation Rvík 6
eint. Utanríkismálaráðuneyti Nor
egs 3 eint. M. Andérson. West-
broök Maine U. S. A. tímaritið
„The Rotarian“. U. S. Informat-
ion Service Rvík tímaritið „Life“,
samt fólksins allt að einu með,
því að verkefnið er mikið við
ræktun landsins og á öðrum
Verklegum sviðum og mikil þöi’f
fyrir aukna framleiðslú.
í landbúnaðinum á að nota inn-
lent hey í stað erlends fóðurs, og
innlendan kraft sem mest í stað
érlendrar olíu, véla, kola o. s. frv.
Böl atvinnuleysisins og vei’k-
falla hverfur með því, að fólkið
haldi sig við nauðsynjastörfin og
sýni drengskap í því að bera
ábyrgð á þeim. Þá er hægt að una
glaður við sitt. Þá þarf heldur
ekki að lifa af gjafafé. Þá á að
vera hægt að koma á röð og reglu
á þjóðarheimilinu og ala þar upp
fólk með heilbrigðari skynsemi.
Jón H. Þorbergsson.
„Time“ og blaðið „The New York
Times“. The christian science
publ. society tímaritið „The her-
ald of christian science" og blaðið
„The christian science monitor",
Akureyrarblöðin, Vísir, Hagtíð-
indi, Hagskýrslur, Lögberg og
Heimskringla send safninu af út-
gefendum.
Safnið var opið til útlána einu
sinni í viku yfir sumarmánuðina.
Frá 4. okt. til 1. maí var opið til
útlána þrisvar í viku og lesstofan
opin alla daga, nema sunnudaga,
frá 2. okt. til 4. maí.
í sumar verður safnið opið til
útlána miðvikudaga og fimmtu-
daga kl. 4—7. Lesstofan opin á
sama tíma.
Bókavörður.
Ræjarhúsið skemmdist
af eldi
Um miðjan dag á fimmtudag-
inn kviknaði í húsinu Aðalstræti
23 hér í bæ, en það er gamalt
timburhús, tvær hæðir og ris á
kjallara, eign Akúreyrarbæjar. í
húsinu býr margt fólk, fjölskyld-
ur og einhleypingar. — Eldurinn
kom upp í kjallai-anum og varð
allmagnaður um tíma, en
slökkviliðinu tókst þó fljótt að
slökkva. Skemmdir urðu veru-
legar í kjallara og neðri hæð. Inn-
búi tókst að bjarga, en mun hafa
orðið fyrir einhverjxxm skemmd-
um eigi að síður.
Frá Skyndihappdrætti
Þórs
Nú eru allra síðustu forvöð að
kaupa miða. — Dregið verður
annað kvöld. — Félagar, gerið
þegar í stað skil fyrir seldum
miðum.