Dagur - 17.12.1952, Blaðsíða 8
8
Miðvikudaginn 17. desember 1952
Bagujr
Sameining Glerárþorps og Akur-
eyrar á dagskrá Alþingis
BemharS Stefánsson, 1. þing-
maður Eyfirðinga, hefur flutt
þingályktunartili. í Sameinuðu
Alþingi um sameiningu Akur-
eyrarkaupstaðar og Glerárþorps.
Er efni tillögunnar, að skora á
félagsmálaráðherra að beita sér
fyrir samningum í milli bæjar-
stjórnarinnar á Akureyri og
hreppsnefndar Glæsibæjarhrepps
um sameiningu og leggja síðan
frv. run þetta efni fyrir næsta Al-
þingi.
Við umræður um málið gerði
Jónas Rafnar, þingmaður bæjar-
ins, grein fyrir viðhorfi bæjar-
stjórnar Akureyrar til málsins, er
það kom á dagskrá bæjarstjórnar'
snemma á árinu. Er mergurinn
málsins, að bæjarstjórnin vill
tryggja fullsmíði Glerárbrúar og
vegargerð í gegnum þorpið, áður
én sameiningarmálið verður af-
greitt, og ennfremur — ef út í
þessa sálma er farið — víkka lög-
sagnarumdæmið meira en aðeins
um Glerárþorp, eða svo að það
nái einnig yfir jarðirnar Ytra-
Krossanes, Mýrarlón og Kífsá og
allt land í milli Glerár og þessara
jarða. Þingsályktunartill. Bern-
harðs um afskipt félagsmála-
ráðuneytisins var samþykkt sam-
hljóða.
Varaþingmaðurinn lætur Ijós
sitt skína.
Varaþingmaðurinn fyrir Eyja-
fjarðarsýslu, Magnús Jónsson, er
situr á yfirstandandi Alþingi fyr-
ir Stefán Stefánsson frá Fagra-
Rúsínur í pk. og 1. vigt
Sveskjur
Möndlur
Síróp, ljóst og dökkt
Bökunardropar
Vanilleekstrakt
Fíkjur í pk.
Döðlur í pk.
skógi, sem er sjúkur, upplýsti
þingheim um það í sambandi við
mál þetta að „frystihússkostur
Gerárþorpsbúa væri bágborinn",
sbr. frásögn Mbl. — Má e. t. v. af
þéssu ráða að varaþingmaðurinn
hafi í hyggju að betrumbæta
frystihús Glerárþorpsbúa — og
þá kannske að vænta frv. frá
honum um það efni, enda munar
ekki um eitt í safnið. En rétt væri
þá fyrir þorpsbúa að láta hann
vita, að hann verður að reisa
mannvirkið frá grunni, því að
ekkert frystihús hefur verið til í
Glerárþorpi fram á þennan dag,
en varla er von að stórnarráðs-
fulltrúinn viti það, því að hann
mun fremur sjaldséður gestur í
þorpinu.
Heitara hér í nóvember
en nokkurn tírna fyrr
Heitara var hér í nóvember sl.
en verið hefur hér um langan
tíma. Meðalhitinn var 1,3 stig, en
meðalhiti fyrir þennan mánuð et
annars 0,9 stig. Hitastigið hefur
því orðið rösklega 2 stigum hærra
en meðallag. Þegar talað er um
meðallagshita er átt við tímabilið
1901—1930, en við það er aðallega
miðað í veðurfræði hvarvetna um
heim. í Reykjavík var meðalhit-
inn í nóv. sl. 2.7 stig og er það
1,4 stigum yfir meðallag í nóvem-
ber. Hér mældist aðeins 3 mm.
úrkoma í nóvember og er það
minnsta úrkoma hér síðan mæl-
ingar hófust. Nóvemberveðrið
var blíðskaparveður um land allt.
Mllllllllllllllllllllllllllll lil llllllllllllllllllllllllililiuiii
1 NÝJA BÍÓ
í kviild kl. 9: i
! Ferð til Höfðaborgar I
\ Amerísk slagsmálamynd um \
I svaðilfarir á sjó. E
Aðalhlutverk:
Broclerick Crawford
\ John Ireland i
SÖLUTURNINN
við Hamarsstíg.
BÆNDUR!
Höfum ennþá nokkuð af
Ameríska kúafóðrinu
kr. 107.00 pokinn eða kr. 2.38 kgr.
Athugið að verðið er mjög liagstætt.
Verzlunin Eyjaf jörður h.f.
Danskur ráðherra saknar
þess að íogbátar þeirra fá
ekki að skrapa íslenzka
firði eins og forðum!
Danir liöfnuðu nýlega mála-
leitan ísl, útgerðarfyrirtækis,
að mega landa 100 smál. af
ísfiski í danskri höfn og stóð
fiskimálaráðherrann, Knud
Reé, fyrir neituninni. Ástæðan
er sú, segir ráðherrann í viðtali
við Ekstrabladet 5. des. sl., að
vöruskiptasamningur landanna
hljóðar upp á saltfislc. En ráð-
herrann bætti við: „Annars er
rétt að taka fram, að hin nýja
landhelgisreglugerð fslendinga
hefur verið mjög óþægileg
(meget stærkt generende) fyr-
ir danska fiskimenn. Margir
danskir bátar veiddu fyrrum í
íslenzkum fjörðum og flóum, en
eru nú neyddir til að leita að
nýjum miðum.“ Auðséð er því,
að ráðherrann saknar þeirra
tíma, er danskir dragnótabátar
skröpuðu íslenzka firði, alveg
upp í landssteina, fluttu héðan
milljónaverðmæti og eyðilögðu
dýrmæt lcola- og rauðsprettu-
mið í leiðinni. Auðséð cr af um-
mælum þessa danska ráðherra,
hverja aðstoð fslendingar eiga
í Dönum í sambandi við deil-
una við Breta.
Skíðanámskeið K. A.
Stjórn félagsins hefur ákveðið
að stofna til skíðanámskeiðs fyrir
drengi og stúlkur félagsins á
aldrinum 7 til 14 ára.
Hinir áhugasömu skíðamenn
úr skíðadeild félagsins sjá um til-
högun þess og kennslu. Þátttaka
ókeypis. Námskeiðið hefst föstu-
daginn 19. þ. m. — Kennt
verður frá kl. 11—12 f. h. og 1—
2.30 e. h. Kennt verður í Búðar-
gili og brekkunni neðan Brekku-
götu. Að námskeiðinu loknu
mun verða stofnað til skíðamóts,
fyrir þá, er það sóttu. Væntan-
legir þátttakendur snúi sér til
eftirtaldra, er gefa nánanri upp-
lýsingar: Magnúsar Brynjólfs-
sonar Lækjarg. 9 og Bergs Eí-
í'íkssonar, Hólabraut 22.
Aðalfundur K. A. var haldinn
11. þ. m. í félagsheimili f. B. A.
Fóru þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf. í "stjórn félagsins
voru kosnir: Haraldur M. Sig-
urðsson foi'm. Ragnar Steinbergs-
son v. f. ísak Guðmann ritari.
Gísli Guðmann gjaldkeri Einar
Einarsson spjaldsk.r. Bergur Ei-
ríksson. meðstj. og Hermann Sig-
tryggsson meðstj.
Til sölu:
3 kw rafofn og ágætur
kolaofn.
Björn Grímsson.
Sínii 1256.
J óladrykkurinn
er og verður:
Appelsin
frá
Ö1 & Gosdrykkir h. f.
Simar 1337 og 1893.
1500 manns hafa skoðað náttúru-
gripasafn bæjarins síðan það
var opnað í ágúst
Um 1500 manns hafa skoða'3
náttúrugripasafn bæjarins síðan
það var opnað almenningi í ágúst
síðastl.
Safnið er stofnað með hinni
höfðinglegu gjöf Jakobs Karls-
sonar, er átti uppsetta alla ís-
lenzka fugla og að auki ýmsa
sjaldgæfa flækinga, og gott
eggjasafn. Safnið er til húsa í
einni stofu í slökkvistöð bæjarins
og hefur mununum verið komið
smekklega fyrir þar, í skápum,
sem bærinn lét gert.Eru þeirmjög
vandaðir, rykþéttir, og til fram-
tíðarafnota. Stofan er skreytt með
landslags- og fuglalífsmjmdum
eftir Elísabetu Geirmundsdóttur.
Þótt safnið hafi engin fjárráð
haft til munakaupa, hafa því
borizt nokkrir munir til viðbótar
gjöf Jakobs Karlssonar, en baga-
legt er að geta ekki keypt muni
fyrir nokkra fjárhæð árlega og
þarf bæjarfélagið að sjá til þess
að það verði hægt.
Þessi vísir til náttúrugripasafns
hér er markverð nýjung, sem
ekki má niður falla, heldur verð-
ur að efla hana og auka, unz hér
er komið gott safn íslenzkra nátt-
úrugripa og hæfilegt safn er-
lendra gi'ipa, til fróðleiks og
skemmtunar fyrir alla þá, sem
hér búa eða bæinn gista, t. d. er
slíkt safn til stórmikils gagns fyr-
ir skólana. Þótt húsakynnir. í
slökkvistöðinni séu lítil, má samt
enn auka við safnið lítils háttar,
án þess að of þröngt verði um
það. Umsjónarmaður safnsins er
Kristján Geirmundsson. Það er
opið almenningi á hverjum sunnu
degi kl. 2—4.
Verzlanir í Akureyrarkaupstað
verða opnar til kl. 10 að kvöldi föstudaginn
19. desember.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Verzlunarmannafélagið á Altureyri.
Kaupfélag Verkamanna.
Konfektka
Odýrasta og heppilegasta
jólagjöfun
verður úrvals konfektkassi
frá LINDU.
Fæst í hverri sælgætisbúð.
Ekta Ananassafi
frá Californíu.
Kr. 6.20 og 4.50 dósin.
Hollur drykkur fyrir börn
og fullorðna.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin og útibúin.