Dagur - 21.01.1953, Blaðsíða 14

Dagur - 21.01.1953, Blaðsíða 14
14 D AGUR Miðvikudaginn 21. janúar 1953 1 Hin gömlu kynni I e/ízr /£55 GREGG 13. DAGUR. Washington. Hún var glæsileg í (Framhald). (Framhald af dagbók Elísa- betar): T. Thauly, Emma. Þjónustastúlka á Statler-hóteli, miðaldra, sver. „Eg get nú ekki komið því fyrir mig lengur, hver hann er,“ sagði hún. „Eg sat fyrir hjá fjölda manna í þá daga. Eg var þá öðru- vísi í vextinum en í dag. En eg er búin að eiga fjögur börn síðan — giftist snemma. Ed — það er maðurinn minn — var járnsmið- ur, en það var erfitt með fjárhag- inn ,svo að eg byrjaði að sitja . fyrir. Eg get ómögulega munað sérstaklega eftir herra Wrenn í því sambandi.“ Næst þegar eg fór á fund frú Thaulý, kom eg með ljósmynd af hinu fræga málverki Wrenns: Mynd af Emmu. ,,Jú, þetta er af mér,“ sagði hún. „Þér sjáið að eg var vel vax- in í þá daga.“ Eg fór ákaflega varlega að henni, en lagði þó að lokum þá spurningu fyrir hana, hvort hún hefði nokkurn tíman þekkt Wrenn náið. Hún skildi hvað eg var að fara, en varð Jivorki hissa né vond. „Nei,“ sagði hún. „Ed mundi ekki hafa tekið því þegjandi. Eg var bara kuningjakona þessara manna, það var allt og sumt. Og þar að auki var þessi Wrenn bundinn einhverri anarri, að því með skildist. Eg só hana aldrei, nema mólverk af henni, en hann þvoði það af léreftinu með terp- entínu og notaði sama léreftið til að mála mig á. Einn daginn kom vinur hans, sem heitir skrítnu .nafni (Ester- hazy) með bréf til hans. Þegar Wrenn hafði lesið bréfið, spurði vinurinn: „Ætlarðu til hennar aftur?“ Én Wrenn svaraði neit- andi. '„Það er allt búið,“ sagði hann. En morguninn eftir, þegar eg kom til að sitja fyrir, segir hann að hann sé hættur við myndina og þarfnist mín ekki lengur. Og svo vissi eg ekkert meira fyrr en eg las í blöðunum, að hann hefði hlaupizt á brott með þeirri rauðhærðu. Eg sá hann aldrei aftur.“ W. Wallach, Kitty Leighton. „Það var Edith Harper, sem fyrst kom með hann heim til mín,“sagði hún.„Eg held að Edith og móðir hennar hafi langað til að kynna hann fyrir einhverju fólki, sem var líklegt til að eiga aura fyrir málverkum. Eg hafði engan áhuga fyrir að láta mála mig, en mér datt Elísabet strax í hug. Málurum þótti gott að láta hana sitja fyrir, og sjálf vissi hún ekkert skemmtilegra. En bað því að að koma til okkar. Það stóð ekki á því. Hún kom ein, því að þingmaðurinn var í þá daga, hórið rauðbrúnt og mik- ið, hörundsliturinn hvítur og fallegur. Eg hélt að Wrenn mundi verða yfir sig hrifinn af tækifær- inu að fá að mála hana. Eg hélt líka að nærvera hennar mundi taka af honum tunguhaftið, en Wrenn sagði aldrei neitt nema á hann væri yrt, ekki heldur eftir að Elísabet kom. Og hún hjálpaði honum þá heldur ekki af stað. Hún varð sjálf þögul- eins og til samlætis honum, svo að eg varð að hafa mig alla við að fylla í eyðurnar og mala í sífellu sjálf. Eg leiddi talið að franskri list, og þá vaknaði áhugi hjá honum og hann sagði nokkur orð. En svo stóð hann á fætur og bað sig afsakaðan, sagð- ist nauðsynlega þurfa að fara. Elísabet bað hann þó að fylgja sér heim. því að myrkur væri dottið á. Daginn eftir kom hún til mín til að fá lánað eintak mitt af Inferno eftir Dante. Þau höfðu þá talað um það, það er að segja Maríus ' hafði gert það. Seinna heyrði eg að hann væri að mála mynd, af henni en eg lagði ekki saman tvo og tvo fyrr en daginn sem eg sá hana í skemmtigarðin- um. Þá skildist mér að hún væri yfir sig hrifin af Maríusi. Hún bar það með sér hvar sem hún fór og hvað sem hún sagði. Mér leizt ekki á þetta, en hvað var hægt að gera? Elísabet tók aldrei tillit til annarra, fór sínu fram, hlustaði ekki á ráðlegging- ar. Og svo þegar allt dundi yfir, eg á við hjónaskilnaðurinn, þá var eg hvergi nærri, var sjálf á brúðkaupsferð í Evrópu. Við vorum í New York þegar við heyrðum andlátsfregn Maríusar. Og strax eftir jarðafförina, fór hún til Evrópu. Eg og maðurinn minn fylgdum henni til skips. Eg gleymi líklega seint bílferðinni að skipshlið. Hún var öll vafin svörtum sorgarslæðum, hátíðleg og þögul eins og gröfin. Hún var niðurbrotin. Hún hafði alltaf elskað kraftinn og Maríus var sterkur. Það geislaði af honum mikill kraftur. Og þegar hann var tekinn frá henni, var eins og fótunum væri um leið kippt und- an henni. Og eg held að hún hafi alla tíð síðan verið í árangurs- lausri leit að hamingjunni, sem hún kynntist þá, en hún hefur sjálfsagt aldrei fundið hana aft- Það var síðdegis á miðvikudög- um, að hárgreiðsludama madame von Schillar kom jafnan. Á fimmtudögum sat barónessan svo í móttökustofu sinni, og 'hafði skrautleg tesett sér við hlið og beið eftir gestunum, sem aldrei komu. En alla aðra daga vikunnar sátu konurnar tvær í stólum sín- um framan við arineldinn. Bar- ónessan sagði þá frá ýmsum end- urminningurn en Elísabet hlust- aði með athygli. Þessi þriðjudagur hefði verið eins og aðrir hversdagslegir dag- ar ef ekki hefði orðið vart við að madame von Schillar var í æstu skapi. Hún horfði stranglega á húsþernuna, frú Worth, sem stóð í dyrunum „Hver er það, segið þér?“ „Það er herra Hereford," svar- aði konan, „á eg að segja að þér séuð ekki heima?“ „Eg veit ekki, eg veit það hreint ekki,“ tautaði barónessan. Hún leit á Elísabetu, gekk síðan að stórum spegli og fór að laga á sér hárið. „Hárið á mér er ómögu- legt,“ sagði hún svo. „Get eg aðstoðað?11 spurði El- ísabet. „Já, þér getið það. Þér getið gert mér þann greiða að ganga sem snöggvast upp á herbergið yðar. Eg þarf að tala dálítið við þennan herra.... æi, eg man ekki hvað hann heitir. Gjörið svo vel að ganga upp bakdyrastigann, já, þakka yður fyrir." Þegar Eílsabet var farin, skipti barónessan í snatri um kjól, hlóð á sig armböndum og hálsfestum, dreypti á sig ilmvatni, og gekk síðan inn í dagstofuna. Hann sneri baki að dyrunum þegar hún köm inn, var að verma sig við eldinn. „Quincy!“ hrópaði hún þegar hún sá hann. Þegar hann sneri sér við, sá hún fyrst glampa á gleraugun hans, síðan á skallann. Hann hafði látið sér vaxa yfirskegg, en 3að var grátt orðið og féll inn í fölan hörundslitinn. Hánn hneygði sig hofmannlega. „Það er orðið langt síðan riiér hefur veitzt þessi ánægja,“ sagði hann. „Já, það er orðið langt síðan, Quincy,“ sagði hún. „En hefurðu gleymt því að við vorum dús?“ Hún var vingjarnleg, reyndi að leyna því hversu undrandi hún var að sjá, hvað hann var orðinn gamall. „Gjörðu svo vel að setj- ast.“ „Þú ert sjálfsagt að velta því fyrir þér, hvað valdi þessari heimsókn?“ „Nei, eg. er nú ekki að því. Gamlir vinir geta alltaf hitzt. En eg var farinn að halda að þú vær- ir búinn að gleyma mér, sem kannske er vonlegt, þar sem þú hefur nú Elenóru — eða heitir hún það ekki?“ „Elaine heitir hún ,eg á reynd- ai' tvær með því nafni núna.“ „Dóttir þín?“ „Nei, barnabarn. Eg á þrjú barnabörn.“ Hún stóð á fætur. „Jæja, gamli vinur, það var óvænt ánægja að sjá þig, en eg er mjög störfum hlaðin nú — og ekki sízt í dag, svo áð eg vona að þú afsakir mig. ... “ „Hægan,“ sagði hann. „Það var einmitt í sambandi við þessi störf þín, sem eg kom hingað. Viltu ekki gjöra svo vel að setjast meðan þú hlustar á mig?“ Hann var líka staðinn á fætur. En hún settist ekki, heldur stóð kyrr. Þannig vildi hún tryggja rað að hann settist ekki og heim- sóknin stæði ekki lengur en brýnasta þörf var. „Jæja?“ sagði hún. „Mér hefur verið sagt að þú sért að skrifa æviminningar þín- ar. Er það satt?“ „Já, það er satt. Var þetta allt og sumt, sem þú vildir spyrja um?“ „Ætlarðu þar að segja eitthvað um mig og okkar kynni?“ Hún horfði á hann, brosið var tvírætt. „Eg veit það ekki, satt að segja hefi eg ekkert ákveðið um það enn.“ Hann horfði í gaupnir sér, en ■sagði svo: „Eg geri naumast ráð fyrir að eg geti talið þig á að gleyma þeim þætti gersamlega? Eg gæti þó gert það vel þess virði fyrir þig.“ Hún varð harðleg á svipinn. „Hvað getur þú svo sem boðið méi', sem eg ekki þegar hef? Ætl- arðu kannske að koma mér inn í sátt við aristókratíið hérna í Boston?“ „Eg hafði aðeins það í huga, að eg vil forða Elaine frá óþægind- um og raunar allri fjölskyldu minni.“ „Já, og halda virðingu þinni! Og forðast að klúbbfélagarnir skotri til þín augunum? Ósköp var þetta líkt þér. En hver veit, kæri vinur, nema svona bók gæti orðið þér uppörvun og upplyfting í ellinni, hrifið þig upp úr hvers- dagsleikanum og umhverfinu? Eg skal segja þér nokkuð: Einkarit- ari minn rakst á bréf frá þér fyrir nokkrum dögum, ákaflega barna- legt bréf, undirritað Q. Það mundi kannske vekja athygli í bókinni?“ „Finrist þér eg ekki vera búinn að taka nóg út, öll þessi ár?“ sagði hann gremjulega. En hún lét það ekki á sig fá. „Eins og eg sagði áðan, hef eg enga ákvörðun tekið um, hvern- ig eigi að fara með þig í æviminn- ingunum. Þú getur kynnt þér sjálfur, hver ákvörðunin verður, þegar bókin kemur út. Það verð- ur væntanlega innan eins árs.“ „Ætlarðu að halda því leyndu fyrii' mér þangað til bókin kemur út? Á eg að eiga í þessu tauga- stríði í heilt ár?“ „Eg beið eitt sinn lengur en ár,“ sagði hún hörkulega um leið og hún þrýsti á hnapp til þess að gefa þjónustustúlkunni til kynna að hún mætti fylgja herranum til dyra. „Vertu sæll, Quincy,“ sagði hún. „Berðu konunni þinni kveðju frá mér. Þú værir vænn að gera það.“ (Framhald). Árshátíð iðiiaðarmanna verður háldm í Alþýðúhúsinu laugardaginn 24. þ. m., kl. 8.30 e. h. Félagsmenn vitji aðgöngumiða sinna í Alþýðuhúsið, kl. 8—10 fimmtudaginn 22. þ. m. Dökk föt — Siðir kjólar. Nánar í ginggaauglýsingum. NF.FNDIRNAR. frá Almamiatryggingum, Akureyri: Greiðslur 1 ífeyris fyrir januarmánuð hefjast að þessu sinni íimmtudaginn 22. janúar. Fjölskyldubætur verða ekki greiddar fyrr en í næsta rnánuði, og verður tilkynning gefin út um það síðar. Akiireyrarumboðið, Kaupvangsstræti 4. Tekið verður á nlóti áburðarpötnunum á á skrifstofu vorri til 12. febrúar n. k. Atb. Áburðarpahtanirnar eru bindandi. Finnur Árnason ráðunautur tekur á móti áburðarpöntunum garðeigenda í Akureyrar- deild KEA. — Viðtalstími hans er kl. 1—2 e. h. virka daga. ííaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.