Dagur - 11.04.1953, Qupperneq 1
12 SÍÐUR
ÁSKRIFT að DEGI tryggir að
þér fylgist með málefnum
þjóðarinnar.
Dagur
AUGLYSING
í Degi nær til langflestra
Akureyringa og Eyfirðinga.
XXXVI. árg.
Akureyri, laugardaginn 11. apríl 1953
19. tbl.
5 ára santningur Dana og
manna um fiskveiðar við Grænland
Banir segjast vilja greiða götu norskra
og færeyskra fiskimanna
Eitt hið mikilvægasta áhuga-
mál Alasundsmanna og annarra
Sunnmæringa, sem þorskveiðar
stunda á Grænlandsmiðum, hefur
verið að ná varanlegum samningi
við Dani viðvíkjandi umhleðslu
fisks í Færeyingahöfn.
Síðastliðin ár eftir heimsstyrj-
öldina hefur verið unnið allmikið
að málum þessum af Norðmanna
hálfu. Hafa þeir haldið fram, að
ekki væru fullnægjandi samn-
ingar þeir, sem hingað til hafa
gerðir verið til aðeins eins árs í
senn, þar eð ekki sé hægt að gera
neinar fastar framtíðar-ráðstaf-
anir á svo tæpum grundvelli,
þ. e. a. s. á sVo skömmum tíma.
5 ára samningur.
Fyrir skömmu skýra norsk
blöð frá því, að fréttamaður
Norsku frétlastofunnar (NTB^
hafi átt átt tal við danska^for-
sætisráðherrann, Erik Eriksen,
og hafi hann skýrt fréttamann
inum frá, að nú hafi nýskeð tekizt
að komast að samningum er
standa eigi um 5 ára skeið. Verði
kjör öll nokkurn veginn hin sömu
og áður, — Telur Álasundsblaðið
„Sunnmörsposten“, að samn-
ingur þessi muni gera Sunnmæra
félaginu „Utrustning“ h. f. miklu
hægara um vik en áður. Hefir
félagið til þessa haft talsverðan
rekstur í Asgrikóhöfn á Græn-
landi og hefir ætlað sér að halda
þar áfram fiskveiðum bæði með
línu og botnvörpu. — Er talin
Lætur af starfi
TRYGVE LIE
liefur nú látið af starfi sem aðal-
forstjóri Sameinuðu þjóðanna, en
því embætti hefur hann gegnt frá
upphafi stofnunarinnar við ágæt-
an orðstír. — Eftirmaður har.s er
Svíinn Dag Hammerskjöld, áður
aðstoðarutanríkisráðherra Svía.
ástæða til að ætla, að hið nýja
frumvarp Dana um veiðar með
botnvörpu nái ekki fram að ganga
fyrst um sinn, enda myndi það
valda botnvörpungum allmiklum
erfiðleikum á Grænlandsmiðum.
Forsætisráðherrann segir að
lokum við fréttamanninn, að sér
sé það mikið áhugamál að greiða
sem bezt götu danskra,norskraog
fæi’eyskra fiskimanna, sem veiðar
stundi á Grænlandsmiðum. —
Ekki er íslendinga getið í þess-
um fréttum.
Búizt er við að fiskveiðiskip
frá Álasundi og Sunnmæri leggi
af stað vestur um 20. apríl, þareð
Færeyingar hafi oft verið búnir
að veiða allt að 100 smálestum á
skip snemma í apríl, er norsk
skip hafa komið vestur.
varpa nýju Ijósi á stefnu Slalins
Snjókoma í gær spillti
enn akfæri
í fyrrinótt og gærmorgun var
hér enn norðan stórhríð og setti
niður mikinn snjó ofan á það, sem
fyrir var, og stórspilltist akfæri
bæði á þjóðvegum og í bænum. í
gær var talið ófært öllum venju-
legum bílum víðast hvar á þjóð-
vegum, þó var brotizt með mjólk
úr Arnarneshreppi á stórum bO,
og von var á mjólkurbílnum úr
Hrafnagilshreppi í gærkvöldi og
fór ýta fyrir þeim. í bænum sjálf-
um er mjög ógreiðfært og hefur
versnað til muna. Þíðviðri var
síðdegis í gær og batnandi útlit
þrátt fyrir ljóta veðurspá.
SKÍÐAMOT AKUREYRAR
Skíðastökk í I. og II. fl. fer fram
á Miðhúsabraut á morgun kl. 4.
Þátttakendur eiga að gefa sig
fram á mótsstaðnum hálftíma áð-
ur en keppni liefst.
Miklar skemmdir hafa komið fram
í íslenzkum freðfiski í Mið-Evrópu
Austurríkismenn afþökkuðu 1000 lesta send-
ingu eftir að hafa fengið 500 lestir
Þegar sendinefnd sú, sem unn-
ið hefur að markaðssölu fyrir ís-
lenzkan freðfisk í Mið-Evrópu að
undanförnu, kom hcim nú fyrir
skömmu, hafði hún ljótar fréttir
að segja, sem sé þær, að miklar
og alvarlegar skemindir hafi
koniið fram í íslenzkum freðfiski,
sem fluttur hefur verið út nú í
seinni tíð, einkum í Austurríki og
Tékkóslóvakíu.
Hafa skemmdirnar þegar orðið
til stórtjóns fyrir fiskmarkað ís-
lendinga og ekki enn séð fyrir af-
leiðingarnar. Eru þetta hin alvar-
legustu tíðindi og umhugsunar-
efni fyrir alla landsmenn.
Austurríkismenn afþökkuðu
1000 lestir.
Samið hafði verið við Austur-
ríkismenn um sölu á 1500 lestum
af hraðfrystum fiski í skiptum
fyrir ýmsar iðnaðarvörur, en eft-
irað Austurríkismenn höfðu tek-
ið á móti fyrstu 500 lestunum, af-
þökkuðu þeir meiri fisk og rift-
uðu kaupunum. Fiskur þessi
reyndist verulega skemmdur,
varð vart við ýldu í honum, auk
þess að hann væri með roði þótt
seldur væri sem roðflettur. —
Skemmdir af svipuðu tagi hafa
komið fram í freðfiski í Tékkó-
slóvakíu og munu hafa haft mjög
slæm áhrif á markaðinn þar. Ekki
er grunlaust um að skemmdir séu
á íiski, sem farið hefur til fleiri
landa, þótt ekki sé vitað með
vissu.
En upplýst er, áð sumt af ís-
lenzka fiskinum fór beint í fiski-
mj ölsverksmiðj ur, er út kom.
Skortur á samvizkusemi og
vöruvöndun.
Skemmdir þessar eru taldar
stafa af skorti á samvizkusemi og
vöruvöndun hér heima, fiskurinn
of gamall er hann er frystur og
ekki nægilega samvizkusamlega
meðfarinn á frystihúsunum. Ekki
er upplýst, hvaða frystihús hér
eiga hlut að máli, en þau munu
allmörg og víða á landinu. Ýmis-
legt bendir til þess að lengra hafi
verið gengið hér en góðu hófi
gegnir nú um sinn að frysta tog-
arafisk sem ekki er nægilega nýr
úr sjónum, er að landi er komið.
Þessi tíðindi hljóta og að vekja
þá spurningu, hvemig fiskmatinu
sé háttað í landinu. Hér er um
svo geysilega þýðingarmikið mál
að ræða fyrir afkomu þjóðarinn-
ar, að taka verður á því hörðum
höndum og endurreisa það orð-
spor, að íslenzkur fiskur sé ævin-
lega fyrsta flokks vara.
Nefnd sú, sem út var send, mun
hafa gefið sjávarútvegsmálaráð-
herra greinargerð um mál þetta,
og eftir að vakið var máls á því
í Tímanum í fyrradag, birti ráð-
herrann greinargerð í gær, þar
sem skemmdirnar eru viður-
kenndar, og upplýst er að athug-.
un hafi verið framkvæmd í
frystihúsum við Faxaflóa, en
ekki hafi komið í Ijós skemmdir
við þá athugun.
Skrifin um Stalin sem æðri veru hafa verið
stöðvuð - verður næsta skrefið að ásaka hinn
látna einvalda um svik við koinmúnismann?
Engin tíðindi hafa vakið aðra eins athygli um hinn frjálsa heim að
undanförnu og tilkynning Sovétstjórnarinnar um að kunnustu lækn-
ar Sovétríkjanna, sem setið höfðu í haldi eftir að hafa játað á sig land
ráð og glæpi, hafi verið pyndaðir alsaklausir til játninganna.
Tilkynningin varpar beinlínis
skugga á stjórnarhætti Stalíns og
hlýtur að minna kommúnista
heima fyrir og annars staðar
óþægilega á ýmsar hreinsanir,
réttarhöld og játningar, sem fram
Molotoff.
Vishinsky.
fóru í tíð Stalíns hvað eftir annað.
En uppljóstunin í sambandi við
læknamálið er ekki eina stór-
fréttin sem komið hefur frá
Moskvu og öðrum kommúnista-
ríkjum nú um sinn. Ljóst er, að
Stalín var ekki búinn að liggja í
gröf sinni nema skamma hríð, er
hinum nýju valdhöfum þótti tími
til kominn að breyta stefnunni á
fleiri sviðum en í réttvísinni. —
Með skömmu millibili hafa þeir
söðlað um á ýmsum sviðum í
samskiptum við hinn vestræna
heim. Allir þessir atburðir hafa
gefið stjórnmálamönnum og
blaðamönnum á Vesturlöndum
tækifæri til þess að skyggnast á
bak við járntjaldið og reyna að
gera sér grein fyrir því, sem gerzt
hefur og valdið hefur þessum tíð-
indum.
Grein Alsops.
Kemur margt athyglisvert fram
í sumum þessum skrifum, t. d. í
grein, sem bræðurnir Jósef og
Stewart Alsop birtu í Nevv York
Ilerald Tribune hinn 6. apríl sl.
Verður aðalefni hennar endur-
sagt hér á eftir.
Blaðamennirnir segja, að sá
möguleiki, að Jósef Stalín hafi að
lokum verið myrtur af samstarfs-
mönnum sínum, sé nú ekki leng-
ur talinn útilokaður, enda hafi
allir sérfræðingar um málefni
Rússlands verið undrun lostnir
yfir hraðanum sem er á því að
hverfa frá stefnu Stalíns. Ofan á
það kom svo tilkynningin um
læknana og viðurkenningin að
þeir hefðu verið látnir sæta
pyndingum. Gefur það grun-
semdum um raunveruleg endalok
Stalíns aukinn styrk. Auðvitað er
ekkert hægt að fullyrða neitt um
þetta, en þessir atburðir opna
möguleika til þess að menn láti
sér detta ýmislegt í hug. Síðan
telja blaðamennirnir upp . það,
sem gerzt hefur og minna á, að
hér eru hlutir, sem ástæða er til
að taka alvarlega. Á sviði utan-
ríkismála er það fyrst, að Chou
En-lai hófst handa um að leysa
Kóreumálið úr þeirri sjáifheldu,
sem það var komið í, og Molotoff
utanríkisráðherra studdi tillögur
hans. Á sviði Sameinuðu þjóð-
anna hefur Vishinsky endurvakið
umræður um afvopnunarmálin
og kjarnorkumálin. Rússar buð-
ust til að ræða möguleika á því að
hindra frekari árekstra í lofti yfir
V. -Þýzkalandi.
Stalín var varla orðinn kaldur er
breytingamar hófust heima fyrir.
Á sviði innanríkismála voru
breytingamar ekki síður örar.
Stalín hafði ekki fyrr verið kistu-
lagður en stórfelldar breytingar
voru gerðar á Sovétstjórninni og
ráðherraembættum fækkað svo
að skipti tugum. Hið flókna kerfi,
sem hann hafði skapað og útlistað
(Framhald á 11. síðu).
Ungur Siglfirðingur
drukknaði við Sauðanes
Síðastl. þriðjudag drukknaði
tvítugur maður af Siglufirði, Pétur
Þorláksson, við Sauðanes, er verið
var að flytja vitavörðinn út í
Sauðanes. Fóru menn á trillu út
eftir og höfðu léttbát með og fóru
á honum í land. Gekk landtakan
vel, en er léttbáturinn skyldi aft-
ur fara út í trilluna, fyllti hann og
sökk, er bára kom á hann. Tveir
menn voru í bátnum, Pétur heitinn,
og Ólafur Guðbrandsson, og tókst
hinum síðarnefnda að bjargast til
lands.