Dagur - 11.04.1953, Síða 7
Laugardaginn 11. apríl 1953
D AGUR
7
Keppnin á Skíðamóti íslands ýmist í hríð eða sól
Þingeyingar sköruðu fram úr í skíðagöngu - Siglfirðingar í stökkum
- ísfirðingar áttu verðlaunamenn í flestum greinum - Ungur Akur-
eyringur varð svigmeistari - Reykvíkingar unnu stórsvig
Skíðamót fslands fór fram hér
um páskana, þrátt fyrir ýmsa
örðugleika af völduin stórviðra og
ófærðar.
Mótið er alltaf að færast nær
því að vera hreint meistaramót,
sem það að flestra dómi á að
vera. Þátttakendum fækkar, með
því að flokkaskipting er nú úr
sögunni, og keppa þá eingöngu
fræknustu skíðamennirnir.
15 km. skíðagangan.
18 km. skíðagangan hefur ver-
ið stytt niður í 15 km. og komst
sú hreyting á í fyrra.' Er brautin
mæld með snúru og því mjög
nærri því að vera 15 km.
Veður var mjög óhagstætt þeg-
ar göngukeppnin hófst, norðan
liraglandi, úm það bil 7 vindstig,
renningur og fannkoma; frost 8
stig. Einn keppandi hætti í miðri
göngu, var hann um of létt-
klæddur í slíku veðri. Stóð
keppnin aðallega milli fsfirðinga
og Þingeyinga. Urðu úrslit þessi:
íslandsmeistari varð Finnbogi
Stefánsson, Þ., 1.18.24.
2. Oddur Pétursson, í., 1.20.37
3. Stefán Þórarinsson, Þ., 1.2.29
4. Ebenezer Þórarinss., í., 1.23.25
5. ívar Stefánssön,' Þ., 1.24.24
6. Sigurjón Halígrímss., F., 1.24.55
7. Sigurkarl Magnússon, Strand.,
1.26.38.
13 luku göngunni, sem var all-
erfið.
Áhorfendur, sem vel gátu
fylgzt með allri keppninni, með
því að brautin, lá oft fram hjá
íþróttahúsi bæjár'ihs, luku miklu
lofsorði á Finnboga, fyrir létt-
leika og fallega göngu.
Drengjameístári varð IHugi
Þórarinsson, Þ., og bar hann
mjög af öðrum keppendum.
Boðganga á skírdag.
Á skírdag fór svo 4x10 km. boð-
gangan fram og áttust við tvær
sveitir. Þingeyingarnir fvar, 111-
ugi, Stefán og Finnbogi unnu á
3 klst. 5 mín. og 16 sek. Sveit ís
firðinga: Sigurður, Oddur, Gunn-
ar og Ebenezer voru 5 mín. og 22
sek. lengur.
30 km. gangan.
Þennan sama dag var einnig
keppt í 30 km. göngu. Var nú
göngufæri og veður ágætt.
Finnbogi Stefánsson sýndi enn
yfirburði og sannaði, að hann er
bezti skíðagöngumaður landsins.
2. Gunnar Pétursson, f.
3. Ebenezer Þórarinsson, f.
í norrænni tvíkeppni mættu
aðeins tveir af sjö til stökkkeppn-
innar og vann Jón Sveinsson, S.,
þessa grein, en henni fylgdi áður
tignarheitið „Skíðakappi íslands'1.
Nú heitir afrekið: íslandsmeistari
í norrænni tvíkeppni.
Svigmeistarakeppnin.
Var nú komið að svigmeistara-
keppninni. Logn var á, glaða sól-
skin og gott færi. Keppendurna
bar við loft á klettunum sunnan
við Fálkafell. Hæð brautarinnar
var 185 metrar, lengd 7—8 hundr.
m. og röðuðu áhorfendur sér
meðfram henni neðan til. Meist-
arakeppnirnar eru eingöngu ein
menningskeppnir og hafa því á
sér allt annan blæ en átök milli
flokka. Hér var því látið vaða á
súðum, brautin frekar greiðfær
og leyfði mikinn hraða, hvað er
skemmtilegt fyrir áhorfandann.
Eftir fyrri umferð var Jón Karl
(í.) fyrstur, Haukur Sigurðsson
(í.) annar og Magnús Guð-
mundsson (A.) þriðji. Magnúsi
tókst að komast fram úr þeim
bræðrum í seinni umferð, Ásgeir
(R.) og Hjálmar (S.) héldu 4. og
5. sæti, Guðmundur og Þórarinn
(R.) fóru fram úr Berg og
Hauki (A.).
Úrslit:
Magnús Guðmundsson, A., fs-
landsmeistari, 131.0.
2. Jón Karl Sigurðsson, í., 131.9
3. Haukur Sigurðsson, í., 132.1
4. Ásgeir Eyjólfsson, R., 134.5
5. Hjálmar Stefánsson, S., 135.0
6. Guðmundur Jónsson, R., 139.0
7. Þórarinn Gunnarsson, R., 139.5
8. Bergur Eiríksson, A., 139.6
9. Haukur Jakobsson, A., 140.1
10. Guðni Sigfússon, R., 40.0
33 luku keppni og var tími síð-
asta manns 197.0 sek.
Stórsvigið fór fram í Sprengi-
brekku. Úrslit:
Laugardagurinn.
Veður fór nú batnandi og a
laugardag var það orðið sæmi- 2. Bergur Eiríksson, A
i__í v_____i.. i.i■■______ i...•- -1.9 ____
og 9. Keppninni luku 10 menn, en
7 mættu ekki til leiks.
Úrslit:
Skarphéðinn Guðmundsson, S.,
fslandsmeistari. Stökk lengst 43
metra.
2. Jónas Ásgeirsson, S.
3. Ari Guðmundsson, S.
4. Jón Sveinsson, S.
5. Bergur Eiríksson, A.
Drengameistarinn í stökki var
Arnar Herbertsson, S.
Mótsslit fóru fram að kveldi
annars páskadags, voru þar verð-
larrn veitt o. s. fr. — ísfirðingar
flugu heim fyrr um daginn, Sigl
firðingar og Ólafsfirðingar fóru
með Drang á þriðjudagsmorgun,
Reykvíkingar flugu á þriðjudag
en Þingeyingar bundu farangur
sinn á bakið og lögðu upp gang-
andi. fþróttafélag M. A., Knatt-
spyrnufél. Akureyrar og íþrótta
félagið Þór sáu um undirbúning
mótsins og framkvæmd þess und-
ir forystu Skíðaráðs Akureyrar.
Nokkur meiðsli á
skíðafólki
Nokkur meiðsli urðu á skíða-
fólki hér um páskana, þó ekki á
keppendum á skíðamótinu svo að
teljandi séu. Stúlka úr ameríska
sendiráðinu í Reykjavík, sem hér
var gestkomandi, fótbrotnaði
skíðafjallinu og var flutt
sjúkrahúsið hér og liggur þar
enn. Var í ráði að send yrði hing
að norður helikopter-sjúkraflug
vél til að sækja hana, en úr því
hefur ekki orðið enn. Þá mjaðm
arbrotnaði ung stúlka úr Glerár-
þorpi á skíðum, fékk byltu og
lenti á steini. Var hún flutt
sjúkrahúsið. Nokkrir aðrir hlutu
minni meiðsli, en ekki alvarlegs
eðlis. Var gert að þeim meiðslum
á sjúkrahúsinu, en því fólki síðan
leyft að fara heim.
Ljóð um daginn og veginn
GOTT ER NÚ ÞAÐ. -
Longum augum við lítum æ
til landanna fyrir handan sæ,
gamaldags foldu með grjóti og snæ
geðjast hofmönnum lítið að.
— Gott er nú það.
Innflutt mcnning á alla hlið
opnar vor þröngu hugarsvið,
börnin una svo ánægð við
áflogakvikmynd og hazarblað.
— Gott er nú það.
Kynslóðin unga er ei fróð
um vorn dýrmæta kvæðasjóð.
Æskan syngur sitt ástarljóð
öldungis rímlaust og vanstuðlað.
— Gott er nú það.
Kemur úr útvarps-homi hljóð,
hlemmasláttur og glamurljóð,
— dýrmæt nýjung á norðurslóð,
Þar sem Njála var lesin og skáldið kvað.
— Gott er nú það.
Flas hefur sjaldan fögnuð veitt,
framþróun skal með varúð beitt.
Enda gengur sumt ekki neitt
ellegar mjakast rétt úr stað.
— Gott er nú það.
Valdhafans erill er ei smár,
aðstoð hans bæði skjót og klár,
það tekur nú bara eitt, tvö ár
að athuga skýrslu og rita á blað.
— Gott er nú það.
Aðvörunum er engum sinnt,
yfirborðsþrasi fæst ei linnt,
þannig eltir hver annan blint
yfir margtroðið hundavað.
— Gott er nú bað.
DVERGUR.
Ásgeir Eyjólfsson, R., íslands-
meistari.
legt. Kepptu þá dömumar þrjár í
svigi og varð Marta Guðmunds-
dóttir, í., íslandsmeistari. Sama
daga reyndu fjögurra manna
svigsveitirnar með sér um Svig-
bikar Litla-Skíðafélagsins. Þykir
ýmsum þessi bundna flokka-
keppni einhver skemmtilegasti
liður í íslandsmótinu, enda fór
það svo að þessu sinni, að keppn-
in var jöfn og tvísýn. Eftir fyrri
umferð var staðan þessi:
Reykjavík 261.1
Akureyri 262.0
ísafjörður 263.0
Siglufjörður 270.5
Sem sagt þrjár sveitir svo að
segja jafnar. Nú gerðist það í
seinni umferð að ísfirðingar skut-
ust fram úr í fyrsta sæti, en sami
munur hélzt á Reykjavík og Ak-
ureyri, tæp sekúnda. Og varð úr-
slitaröðin því: 1. ísafj., 2. Rvík,
3. Akureyri, 4. Siglufjörður.
2. Einar V. Kristjánsson, í.
2. Þórarinn Gunnarsson, R.
3. Magnús Guðmundsson, R.
3. Guðmundur Jónsson, R.
3. Stefán Kristjánsson, R.
3. Björn Helgason, f.
íslandsmeistari kvenna varð
Jakobína Jakobsdóttir, í.
Stökkið.
Meistarakeppni í stökki var
háð á Breiðahjalla. Var dálítið
unnið að þeirri stökkbraut fyrir
nokkrum árum og þarf ekki nema
fáein þúsund krónur til þess að
gera þarna góða 50 m. braut.
Hins vegar er mikið starf, hverju
sinni, að laga aðstæður með snjó
hleðslu og útgreftri, svo að vel
fari. Mótinu lauk nú með stökk-
unum og var glæsibragur yfir
keppninni, dirfska, kraftur og ör
yggi. Siglfirðingar áttu fjóra
fyrstu menn, Akureyringar 5., 8.
Svíar hampa
Halldóri Laxness
Halldór Kijan Laxness hefur
verið í Svíþjóð og gera Svíar
mikið stáss með hann. Til dæmis
birti hið stóra og útbreidda tíma
rit Vi stóra forsíðumynd af hon
um, þar sem hann lítur út eins og
amerískur milljónari. Blaðið seg
ir að Laxness hafi nú mörg járn
eldinum, því að tvær skáldsögur
hans komi brátt út á forlag
Rabén & Sjögren í Stokkhólmi
Salka Valka verður kvikmynduð
hér heima á fslandi af Nordisk
Tonefilm, og loks mun tímaritið
Vi birta Hús skáldsins sem fram
haldssögu á næstunni.
Stórhríðin stöðvaði samgöngur og
gestakomu á Akureyrarviku
Norðanáhlaupið, sem gekk hér
ýfir um og eftir mánaðamótin,
lokaði landleiðinni frá Reykjavík
og stöðvaði flugsamgöngur um
tíma.
Varð því miklu færra um gesti
hér á Akureyrarvikunni en ráð-
gert hafði verið, en Skíðalands-
mótið fór fram skv. áætlun og er
skýrt frá því annars staðar í
þessu blaði.
Hófst aðfaranótt miðvikudags.
Þriðjudaginn 31. marz voru
horfur á að vegir mundu verða
færir og var þá unnið, að því að
opna Oxnadalsheiði og Holta-
vörðuheiði, og margt manna ætl-
aði að koma hingað að sunnan
með bílum og flugvélum á
miðvikudaginn. En á þriðju-
dagskvöldið fór að snjóa og var
stórhríð komin á miðvikudags-
morgun og herti veðrið síðan og
geysaði hér foráttu veður á föstu-
daginn langa, svo að varla var
fært í milli húsa hér á Akureyri.
Fannkoma var gífurleg og lokuð-
ust allir vegir, jafnt í bænum sem
utan hans. Var þá sýnt að lítið
mundi verða úr heimsóknum
gesta. En þátttakendur á skíða-
mótið voru komnir, svo og ýmsir
aðrir gestir, og var dagskrá
Ferðamálafélagsins hér í bænum
framkvæmd að verulegu leyti, en
niður féllu sérstakar skíðaferðir
gesta, skemmtun Hestamanna-
félagsins og Grímseyjarförin.
Vegir ruddir.
Uppstyttan kom á laugardag og
var þá fegursta veður og eins
páskadagana og var fljótlega far-
ið að ryðja vegi í bænum. Tókst
brátt að gera akfært til bæjarins
úr nærsveitum og varð mjólkur-
skortur aldrei tilfinnanlegur, en
naumast er enn fært nema stærri
bílum og hér innanbæjar eru
margar götur enn ófærar, en
unnið er að snjóruðningi á degi
hverjum.
Aðalfundur Rauðakrossdeildar Akureyrar
verður haldinn að Hótel KEA (Rotarysal) þriðjudag-
inn 14. apríl, kl. 8.30 e. h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Önnur mál.
STJÓRNIN.