Dagur - 22.04.1953, Blaðsíða 1
ÁSKRIFT að DEGI tryggir að
*
þér íylgist með málefnum
þjóðarinnar.
Dagu
AUGLÝSING
í Degi nær til Akureyringa og langflestra Eyfirðinga.
XXXVI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 22. apríl 1953
22. tbl.
^_____ |
Sennilegt að ný brú verði gerð á
Hörgá á surrsri komandi
Gamla Hörgárbrúin er orðin mikill farartálmi
og auk [>ess hættuleg yfirferðar
Áratugir síðan jafnmikil fiskiganga hefur
komið á mið Norðlendinga
■ i ■ 11 ■ i ■ 11 ■ 111 ■ ■ 11 ■ i ■ 11111111 • i •
Bátar hafa fengið 250 kg á 120 öngla - minni
afli síðustu daga vegna skorts á nýrri loðnu
í sl. viku kom mikil fiskiganga á grunnmið víða fyrir Norðurlandi
og hafa bátar frá mörgum verstöðvuin hér nyrðra fengið hlaðafla á
degi hverjum síðan. Margir bátar hafa tví- og og jafnvel þríhlaðið,
þótt ekki hafi verið lagðar nema 15 lóðir.
Miklar líkur eru fyrir því, að í
sumar verði loksins hafizt handa
uin að gera nýja brú á Hörgá til
þess að leysa af hólmi gömlu
Hörgárbrúna, sem er hengibrú og
hefur lengi verið mikill farar-
tálmi fyrir eðlilegar samgöngur í
héraðinu og auk þess hættuleg
þungum fIutningatækjum.7
Er t. d. ekki fært yfir brúna
fyrir stór jarðvinnslutæki,
stærstu traktora og skurðgröfur
og hefur orðið að fara yfir ána á
vaði með þessi tæki til mikils
baga og kostnaðar .Þá má telja að
ekki sé hættulaust að fara á
þungum bílum yfir brúna, enda
hafa verið sett takmörk um
þunga til öryggis, en af því leiðir
að ekki er hægt að fullnota flutn-
ingsgetu stórra farartækja, sem t.
d. aka í milli Ðalvíkur og Akur-
eyrar.
45 metra stöplabrú.
Nýja brúin verður byggð við
hlið gömlu brúarinnar, og mun að
öllum líkindum verða stöplabrú,
um 45 metra löng. í vetur hafa
Miklar skemmdir á veg-
um síðustu dagana
í hlákunni nú síðustu dagana
hafa orðið verulegar skemmdir á
vegum víðs vegar um héraðið og
horfur eru á að vegir skemmist
enn vegna vatnsaga .Hjá Stóra-
hamri í Eyjafirði gróf vatn skarð
í veginn, sem er um 2 metrar á
breidd og mannhæð á dýpt og er
vegurinn gjörsamlega ófær þar í
bráðina. Þá urðu verulegar
skemmdir á veginum hjá Syðri-
Tunguá, skammt frá Skriðu í
Hörgárdal, þar gróf vatn gjá í
gegnum veginn. Víða annars
staðar hefur vatn grafið veginn
sundur og vinnur flokkur við-
gerðarmanna að því að reyna að
forða frekari skemmdum og veita
vatni frá, en hefur lítt undan.
Lóan kom á mánudaginn
Á mánudagsmorguninn heyrði
Sigurður Björnsson bóndi í
Kollugerði til lóunnar og er
hann sá fyrsti, sem blaðið hefur
frétt um að hafi hcyrt til ló-
unnar. í fyrra sást fyrsta lóan
hér nyrðra 19. apríl, að því
hermt var frá liér í blaðinu um
það leyti. ..
verið gerðar botnrannsóknir á
Hörgá til undirbúnings brúar-
smíðinni.
Væntanlega verður ekkert til
þess að hindra það, að hafizt verði
handa um þessa brúarsmíði. Eins
og ásigkomulag Hörgárbrúarinn-
ar er og með tilliti til eðlilegra
samgönguþarfa héraðsins, er
óverjandi með öllu að fresta
framkvæmdum lengur.
Almennur bænadagur
10. maí
Biskup landsins hefur skrifað
próföstunum og tjáð þeim að
hann hafi ákveðið, að almennur
bænadagur hinnar íslenzku þjóð-
kii’kju verði sunnudaginn 10. maí.
'Þetta verður þriðji almenni
bænadagurinn, sem þjóðkirkjan
gengst fyrir.
Svalbakur fékk 250
lestir á 6 dögum - tog-
bátar afla vel
Togarinn Svalbakur kom hér á
mánudagsmorguninn með um 250
lestir af fiski, er skipið hafði
fengið í 6 daga veiðför hér fyrir
norðan land. Fór aflinn í herzlu.
Aðrir togarar Útgerðarfélags Ak-
ureyringa eru einnig hér fyrir
norðan og afla ágætavel. Togbát-
arnir, sem eru á miðunum hér
undan Norðurlandi, afla einnig
vel þessa dagana. M.b. Njörður
kom hér inn í fyrradag með 50
lestir eftir skamma útivist. Súlan
er farin að veiða og aflar vel. Þá
er M.s. Snæfell um það bil að
hefja togveiðar.
Samþykkt að gera
áætlun um nýja drátt-
arbraut á Oddeyri
Á hafnarnefndarfundi í gær
var samþykkt að láta gera áætl-
un um kostnað við nýja dráttar-
braut á Oddeyri, sem gæti tekið
upp togarana alla. Er talið að slíkt
fyrirtæki mundi kosta á þriðju
milljón. Engin ákvörðun var tek-
in ym hvort ráðizt verður í þetta
mannvirki og bíður það þess, að
áætlanir um kostnað og fyrir-
komulag verði fullgerðar.
Yfirlæknirinn |
bjargaði barni |
frá drukknun |
Guðm. Karl Pétursson yfir- :
læknir bjargaði á sunnudaginn i
j var 6 ára dreng frá drukknun
; við Höepfnersbryggju. — Var i
j læknirinn á sunnudagsgöngu
j með dætrum sínum og horfði á
i tvo drengi við dorg á bryggj-
j unni. Hljóp annar drengurinn
I eftir bryggjunni og féll niður
i um gat, sem á henni er og á
j kaf í sjóinn. Komst læknirinn
i niður um gatið og gat tyllt
i fæti á ísskör undir bryggj-
i unni og haldið sér í bryggju-
i gólfið um leið og hann rétti
j drengnum hinn fótinn, og síð-
i an kippt honum upp. Varð
j drengnum ekki meint af volk-
i inu. Hætt er við að dauðaslys
j hefði orðið þarna ef læknirinn
j hefði ekki verið þarna staddur
i af tilviljun. Er algerlega óaf-
i sakanlegt af eigendum bryggj-
i unnar — Akureyrarkaupstað
j og forráðamönnum hans — að
i bryggjan skuli beinlínis vera
j lífshættuleg, því að vandalítið
i ætti að vera að byrgja fúagöt
i í gólfinu, ef sinna væri á því.
SlllllimjuillllllllllltlltMltltlllMIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIItlllll
Áfengisbann
á ísafirði
Atkvæðagreiðslu um héraðs-
bann á ísafirði lauk á sunnu-
daginn og var það samþykkt með
562 atkvæðum gegn 357. Auðir
seðlar voru 16, en 3 ógildir, en alls
greiddu 938 atkvæði af 1535, sem
voru á kjörskrá. Lögin um hér-
aðsbann öðlast gildi 6 mánuðum
eftir að það hefur verið samþykkt
með meirihluta atkvæða.
Allir aðalakvegir
akfærir
Allir aðalakvegir hér innanhér-
aðs eru nú orðnir akfærir og hef-
ur snjó verið rutt af þeim með
ýtum að undanförnu. í gær var
orðið fært út í Höfðahverfi, til
Dalvíkur, vestur í Oxnadal og
Eyjafjarðarbraut að Leyningi og
Laugalandsvegur austan Eyja-
fjarðarár, að nokkru leyti, en á
honum hafa þó orðið skemmdir
vegna vatnsrennslis. Vegurinn
fram Svarfaðardal mun þó ekki
opnaður til fulls enn, að því skrif-
stofa vegagerðarinnar h'ér skýrir
blaðinu frá.
Húsavíkurbátur fékk 250 kg. að
meðaltali á 120 öngla lóð í einum
róðri og fleiri dæmi eru um slík-
an afla. Þetta er fallegur fiskur og
góður til vinnslu í frystihúsum.
Auk þessa ágæta afla á línuna
hafa togbátar og stórir togarar
fengið ágætan afla á djúpmiðum
að undanförnu. Línufiskurinn
virðist alveg háður því að ný
loðna sé til í beitu og nú er veru-
legur skortur á henni. Eyfirzku
verstöðvarnar hafa allar fengið
beituna héðan frá Akureyri. Til
þessa hafa veiðzt hér um 150 tunn
ur af loðnu á Akureyrarpolli, en
lítið sem ekkert hefur aflast síð-
ustu tvo dagana, en háldið er
áfram að leita að loðnu bæði hér
innra og út með firðinum, og eins
í grennd við Húsavík, en þar
veiddist nokkuð af loðnu um dag-
inn. Blaðið átti í gær tal við
fréttaritara sína á öllum ver-
stöðvunum hér í grenndinni, og
fékk hjá þeim eftirfarandi upp-
lýsingar.
Dalvík: Frá Dalvík róa 8—10
trillur og dekkbáturinn Nói er að
hefja veiðar, aðrir stærri bátar
Dalvíkinga eru á vertíð fyrir
sunnan. Dalvíkurbátar hafa feng-
ið hlaðafla, þegar loðnu hefur
verið beitt, hafa tvíhlaðið, hvort
heldur sem loðnan hefur verið
glæný eða nýfryst. Oll beitan hef-
ur komið frá Akureyri. Aflinn er
frystur í frystihúsi KEA, og kem-
ur sér nú vel að afköst þess voru
stóraukin á sl. ári. Til merkis um
aflabrögðin er, að ein trilla land-
aði 20 þúsund pundum á einum
sólarhring, fór í þrjá róðra undir
Gjögra á 24 klst. Dalvíkingar telja
að önnur eins fiskiganga hafi ekki
komið á grunnmið í marga ára-
tugi, að vísu kom aflahrota 1936
sem var mjög góð, en hún stóð
miklu skemur, aðeins 3 daga.
Mikil atvinna er í Dalvík um
þessar mundir og menn bjart-
sýnni um afkomuna en fyrr á
vetrinum.
Hrísey: Aflinn í Hrísey hefur
tregast mjög síðan loðnan þvarr,
í fyrradag fengu bátar þó 5000
pund í róðri, sem er góður afli,
þótt ekki jafnist á við uppgripin
fyrir helgina. Hríseyingar telja að
lítill fiskur hafi gengið inn á
sjálfan Eyjafjörð og lítið sé að
hafa innan Hrólfsskers. Aflinn er
frystur í hraðfrystihúsi KEA og
er mikil atvinna fyrir alla, sem
geta unnið. 5—6 vélbátar stunda
veiðina og fleiri eru um það bil að
fara af stað.
Grenivík: Afli í Grenivík hefur
verið góður sem annars staðar og
afbragðsafli var í 3 daga. Þaðan
sækja 3 trillur og einn dekkbátur
— Frosti. — Allur aflinn er salt-
aður. Þar er beituskortur sem
annars staðar og sama sagan og
hjá öðrum, fiskurinn tekur helzt
ekki nema loðnu.
Húsavík: Aflahrotan þar hófst
18. þ. m. og hefur síðan staðið
þéttari fiskur á lóðum Húsvík-
inga en elztu menn þar muna. Tíu
bátar hafa stundað þennan veiði-
skap, eru 4 dekkbátar en hinir
opnir bátar. Allir eru bátarnir
með línu og hafa beitt loðnu. Afl-
inn er hraðfrystur eftir því sem
afköst leyfa, auk þess saltað á 2
söltunarstöðvum. Bátarnir sækja
á grunnmið, mest undan Lundey.
f gær var orðinn verulegur
skortur á loðnu til beitu og óttast
að mjög dragi þá úr aflanum, því
að þegar er reynt, að ekki aflast
(Framhald á 8. síðu).
Eyfirðingum boðinn
Bragi?
I Alþm. í gær eru gefnar
nokkrar upplýsingar um
hvernig refsskák framboðsmál-
anna í Alþýðuflokknum stend-
ur um þessar mundir, en þó að-
eins undir rós. Birt er framboð
Axels Benediktssonar skólastj.
í Húsavík fyrir Alþýðufl. í S.-
Þingeyjarsýslu, Bragi Sigur-
jónsson var þar í framboði áð-
ur. Er því ljóst að Bragi er að
hörfa vestur á bóginn og mun
hafa búizt um í skotgröfum
hér á miðju áhrifasvæði Stefáns
Jóhanns Stefánssonar, sem var
frambjóðandi í Eyjafjarðar-
sýslu í síðustu kosningum, með
tryggingaskírteini landslista-
röðunar upp á vasann. Stefán
hefur með opinberri yfirlýs-
ingu miðstjórnar verið sviptur
þessu tryggingaskírteini og nú
er Bragi setztur að hér í miðju
héraði. Benda því líkur ein-
dregið til þess að Stefáni sé
ætluð öræfaganga í öðrum
landsfjórðungi, en Eyfirðingum
verði boðinn Bragi. Verður það
þá eitt, happið enn, ofan á fiski-
göngu þá hina miklu, sem borið
hefur að fjörum manna hér við
fjörðinn upp á síðkastið.
samþykkt