Dagur - 22.04.1953, Side 6
6
D AGUR
Miðvikudaginn 22. apríl 1953
ÍHin gömlu kynni |
Saga eftir JESS GREGG jN
27. dagur. ^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^
(Framhald).
„Eg hef mínar skoðanir á því
og gríp þær ekki úr lausu lofti.
Hún er í rauninni meira en
heimskingi, mér kemur í hug
hvort hún sé með réttu ráði. Nú
er hún búin að fela sig úti á Cape
Cod í heila viku. Hún segist vera
að safna efni, og trúað gæti eg því
að hún væri ekki ein að því. En
hvernig sem því er farið, þá
snertir sú efnissöfnun mig ekki.
Og einkalíf hennar kemur mér
heldur ekki við.“ Barónessan
greip handritið, stóran bunka af
skrifuðum blöðum, og rétti hon-
um. „Gjörið svo vel að lesa þetta.
Það skýrir sig sjálft.“
Mellett tók við handritínu, sett-
ist í hægindastól og hóf lesturinn.
Barónessan reyndi að taka á þol-
inmæðinni á meðan, en veittist
það erfitt. Hún horfði rannsókn-
araugum á Mellett, sem leit laus-
lega og hratt yfir það, sem Elísa-
bet háfði skrifað.
Þegar Mellett lagði handritið
loksins frá sér, var barónessan
fyrri til að tala. „Jæja, hvað segið
þér um þetta ,hvað ætlið þér að
gera í málinu?“
i, „Eg óska yður til hamingju,“.
sagði Mellett. „Þetta er merkilegt
verk. Hvenær má búast við því að
þið verðið búnar og bókin geti
farið í prentun?"
„Eg býst ekki við að henni
verði nokkru sinni lokið,“ sagði
barónessan með þunga. Hún bjóst
við að hann mundi taka þetta
óstinnt upp, en varð fyrir von-
brigðum.
„Eg skil vel að það er erfitt að
opna hjarta sitt á þennan hátt og
veita öllum aðgang að því,“ sagði
hann, en hvort sem sá sársauki
hefur verið mikill eða lítill, þá er
það einlæg von mín að við fáum
að prenta þessa bók. Þetta er e. t.
v. stærri ástarsaga en til er áður
í amerískum bókmenntum. Við
erum miklir elskhugar, Ameríku-
menn, en samt hefur okkur láðst
að skrifa stóra ástarsögu til þessa.
En mér virðist að hér sé einmitt
slík bók — harmsaga — og ástar-
saga mikils listamanns og glæsi-
legrar konu, fögur minningabók,
hispurslaus, einlæg, skáldleg og
logandi af þrá og innileik. .. . “
Hún leit á hann undrunaraug-
um, en röddin var róleg þegar
hún spurði: „Finnst yður þessi
framsetning sennileg og líkleg til
að ganga í augun?“
„Já, mér finnst bókin mjög
sannfærandi. Það er engu líkara
en blöðin séu beinlínis tekin úr
dagbók, sem skrifuð er með heitu
hjartablóði. Til dæmis þegar lýst
er endurfundi ykkar í skemmti-
garðinum, þá er frásögnin svo
heit og lifandi að maður sér allt
lifandi fyrir sér.“
Hún sneri sér undan. Það var
erfitt að bæla niður gremjuna og
reiðipa, en þessi skoðun hans
krafðist þess að hún endurskoðaði
afstöðu sína án tafar. Ef nú hún
leyfði að þessi furðulega saga yrði
birt? Vissulega var hún miklu
fallegri en sannleikurinn sjálfur.
Og kannske var það óhætt, því að.
fáir voru uppistandandi af þeim,
sem gátu sannað að þetta væri
skáldskapur og ekkert annað og í
rauninni í næsta litlum tengslum
við líf hennar og sögu.
Þegar hún sneri sér aftur að
Mellett, var hún óróleg, röddin
var mild og elskuleg, framkoman
eins og hæfði aðalsöguhetjunni í
stórri ástar- og harmsögu.
„Eg skal reyna að ljúka við
bókina sem fyrst,“ sagði hún.
„Rigndi ekki alla dagana, sem
þér voruð þar?“ spurði baróness-
an Elísabetu daginn sem hún kom
frá Cape Cod.
„Nei, aðeins fyrsta kvöldið. Mér
fannst yndislegt þar. Mér leið
sérstaklega vel þar.“
„Jæja ,jæja,“ sagði barónessan,
kankvíslega, „það getur verið
gaman þar eins og annars staðar,
ef maður hefur eitthvað fyrir
stafni og er í góðum félagsskap,
en annars er aldrei neitt um að
vera þar.“
„En eg hafði rióg áð gera. Eg
lauk við kaflann, sem segir frá
því er þið Wrenn hlupust á
brott.“
„Og gerðuð þér ekkert annað?
Bara skrifuðuð?11 Það var auð-
heyrt að barónessan trúði henni
ekki. En hún fylgdi spumingunni
ekki eftir, lét málið niður falla.
Henni var sama í bráðina þótt
Elísabet ætti ástarævintýri sitt
ein.
Og þegar leið á vikuna sætti
barónessan sig betur við að Elísa-
bet sæti löngum ein á herbergi
sínu. Þannig starfa líklega allir
rithöfundar, hugsaði hún. Líklega
leyndi þessi unga stúlka kostun-
um, var stærri persóna en hana
hafði grunað.
(Framhald).
ÍBÚÐ
1—2 herbergi og eldhús
óskast nú þegar eða 14.
maí. Tvennt í heimili.
Afgr. vísar á.
Tapast hefir
mórauður Imndur (hvolp-
ur) með Ijósar lappir og
bringu, og hvítan blett í
skottinu. Þeir sem kynnu
að verða hundsins varir,
eru góðfúslega beðnir að
láta undirritaðan vita.
Öngulstöðum 20. marz 1953
Halldór Sigurgeirsson.
í b ú ð
3—4 herbergja íbúð óskast.
Uppl. i síma 1082.
Stúlku
vantar um mánaðartíma á
gott sveitaheimili.
Létt vinna. Gott kaup.
Áfgr. vísar á.
Húsnæði
3—4 herbergja íbúð óskast
frá 14. maí
Einar Kristjánsson.
Símar 1485 og 1745.
Vörubifreið,
ekki eldri en frá 1942, ósk-
ast keypt. — Skipti á ágæt-
um jeppa koma til greina.
Tilboðum, merktum „Vöru-
bifreið“, sé skilað á afgr. Dags
sem fyrst.
Kaupamaður
Duglegan, verklaginn, reglu-
saman og ábyggilegan mann,
vanan öllum bústörfum,
vantar mig iim óákveðinn
tíma í sumar.
Einnig vantár mig góðan,
þægan og gallalausan drátt-
arhest, ef um er að ræða.
Stefán Jónsson,
Skjaldarvík.
(Símstöð).
Trillubátur,
ný-viðgerður, 3l/£ smálest,
til söl u. — Bátur og vél í
góðu lagi.
Semja ber við
Lórens Halldórsson,
Fróðasundi 3, Ak.
Smávörur
Hnappar og tölur
í fjölbreyttu úrvali
Teygja, hv. og sv.
Sokkabandateygja
Bendlar
Skábönd
Leggingar
Smellur
Krókapör
Málbönd
Fatakrít
Saumnálar
Saumavélanálar
og margt fleira
Vefnaðarvörudeild.
Verkfæri
NÝKOMIN
T e n g u r :
Gatatengur
Pumputengur, krom.
Rörtengur 3 stærðir
Klipitengur■
Síðubítar rafm.
Flatkjöftur
Hálfrunnar tengur
Þ j a 1 i r :
Hálfrurinar
Flatar
Þrikantaðar
Sverðfilar
Raspar hálfrúnnif
Smápjalir á spjöldum
Til sölu:
Föt á fullorðna og drengi.
GUFUPRESSAN.
Skipagötu 12.
Trillubátur
li/4—2ja tonna, með 6 ha.
Sleipner-vél, til sölu.
Upplýsingar gefur
Ingvar Ólafsson, Grænuhlíð,
Glerárþorpi, sími 1466,
á virkum dögum.
vantar nú þegar.
Saumastofa
Björgvins Friðrikssonar s.f.
Brekkug. 35. Sírni 1596.
Stálmálbönd 2 mtr.
Stálmálbönd 10 mtr.
í leðurhylki
Stálmálbönd 20 mtr.
í leðurhylki
Skrúflyklar 4, 6, 8 tommu
Skrúfjárn m. einangruðu
blaði og lialdi.
Siklingar
Stálheflar No. 5 og 6
Meitlar 15, 20, 22 sm.
Smergelhjól
Snittkassar
T opplyklakassar
Járnsagir
Þverskerar
Bakkasagir
• Sleggjur 21/2 kgr.
Borsveifar
T réborar
Klaufhamrar
Axir
Gluggastif tahamrar
og margt fleira
Sendum gegn póstkröfu um
land allt
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Ákureyri.
H
e r
erg
með sérinngangi til leigu
frá 14. maí n. k. í Brekku-
götu 5B.
IBUÐ
óskast til leigu 14. maí n. k.
Afgr. vísar á.
Bifreið - Bátur
Bifreið til sölu.
Lítil trilla eða árabátur
, óskast til kaups.
Afgr. vísar á.
Fólksbifreið,
Chevrolet ’41, til sölu.
Afgr. vísar á.
DANSLEIKUR
verður haldínn í þinghúsi
Glæsibæjarhrepps laugardag-
inn 25. þ. m. Hefst kl. 10 e. h.
Veitingar á staðnum.
Kvenfélagið.
Chevrolet hjólkoppur
tapaðist síðastl. sunnudag.
Skilist vinsaml. tli Edvards
Sigurgeirsso nar, Hafnarstr.
106.
2 herbergi
og eldhús til leigu í Odd-
eyrargötu 5. Barnlaust fólk
situr fyrir.
Sími 1450 eftir kl. 6 á kvöldin.
KALK
/~
n ý k o m i ð .
Byggingavörudeild KEA.
Gólfdúkur
A, B og C þykktir — fyrirliggjandi.
Byggingavörudeild KEA.
Vandvirka saumakonu