Dagur - 22.04.1953, Síða 7
Miðvikudaginn 22. apríl 1953
DAGUR
7
- Stefna Framsóknar-
(Framhald af 2. síðu).
Fiskifélag íslands, sem er víð-
tækasti félagsskapur meðal út-
vegsmanna um land allt hefur
ekki náð að verða jafn áhrifa-
mikið um sjávarútvegsmál og
Búnaðarfélag íslands um land-
búnaðarmál, þótt það hafi mörgu
merku komið til leiðar. Fram-
sóknarflokkurinn hefur ávallt
stutt að eflingu samtakanna i
Fiskifélagi íslands og er það vel.
Sjávarútvegsmenn um allt land
eiga að kappkosta að halda uppi
þróttmiklu starfi innan félagsins
REKSTRARFYRIRKOMULAG
ÚTGERÐARINNAR.
Flokksþing Framsóknarflokks-
ins lýsti yfir því, að það teldi
rekstri útgerðarinnar bezt borgið
með því að vinna að því, að jafn-
hliða einkarekstri á útgerð séu
rekin samvinnuútgerðarfélög sjó-
manna. Að það sé æskilegt, að
þeir, sem vinna að framleiðslu
sjávarafurða, eigi beinna hags-
muna að gæta um rekstursaf-
komu útgerðarinnar með hluta-
skiptum, ef um einkarekstur er
að ræða, eða beinni þátttöku í
félagsformi. — Það er fjarri mér
telja einkarekstur á vélbátaflot-
anum óheppilegt rekstrarform.
Margir dugandi og framsýnir út-
gérðarmenn háfá' unnið sjálfum
sér og þjóð sirini mikið og gott.
En það eru jnargir, sem ekki hafa
aðstöðu til að iþef-ja útgerð, vegna
fjárskorts, til mikils ógagns fyrir
þjóðarheildina. Það er skömm
fyrir menningarþjóðfélag að
reyna ekki að- tryggja öllum
möguleika til sjálfsbjargar. —
Það eru slíkir einstaklingar,
sem gætu þetta, ef þeir mynduðu
með sér samvinnuútgerðarfélag
og rækju útgerð í félagi. Þjóð
félagið á að auðvelda mönnum
slíka starfsemi. Á kreppuárunum
eftir 1930 risu upp nokkur sam-
vinnuútgerðarfélög. Öll unnu þau
mikið og gott starf í sínum
byggðarlögum. En tilraunir þess
ar voru gerðar á óhagstæðum
tímum, þegar mjög kreppti að
allri útgerð, sem eins og kunnugt
er endaði með almennum skulda-
skilum útvegsmanna og gengis
fellingu íslenzku krónunnar. Þeg-
ar nú aftur kreppir að, ættu sjó-
menn að hugsa til þess að stofna
með sér samvinnuútgerð.
Vegna atvinnuleysis í ýmsum
bæjum og kauptúnum landsins
hefur verið gripið til þess ráðs að
kaupa togara til að ráða bót á
því. En sökum þess, að togaraút-
gerð hefur reynzt áhættusamur
atvinnuvegur hafa smærri bæir
og kauptún kinokað sér við að
ráðast í slíkan rekstur. Flokks-
þing Framsóknarmanna markaði
þá stefnu í þessum málum, að rétt
væri að stofnuð yrðu, þar sem
nauðsyn krefrir, félög um rekstur
togara til atvinnuaukningar
hinum ýmsu landshlutum, með
stofnframlögum frá ríkinu, kaup-
stöðum og kauptúnum. Kaup
staðir og kauptún, sem hér um
ræðir mætti nefna sem dæmi:
Ólafsfjörð, Dalvílí, Hrísey og
jafnvel Hjalteyri og Glerárþorp.
(Framhald).
Þ A K K A R O RÐ
Við viljum, í tilefni af hinu snarlega björgmiarafreki
hr. yfirlæknis Guðmundar Karls Péturssonar, er hann
sl. sunnudag bjargaði syni okkar frá drukknun, fœra
honum okkar innilegustu þakkir.
Sigfríður Hóseasdóttir. Þorkell V. Ottesen.
*<HJ<HJ<HJ<HJ<t<Bj<Hj<HJ<HJ<í<Hj<HJ<t<í<HJ<HJ<t<HJ<Hj<HJ<HJ<Hj<Hj<HJ<t<t<HK
Til vorhreingerninganna:
Þvottalögur, 2 tegundir
Perlu þvottáduft * ' 1
Geysis þvottaduft
Sólar sápuspænir
Sólsápa
Vim ræstiduft
Ocedor húsgagnaáburður
Liq. Weneer húsgagnaáburður
Renol húsgagnaáburður
Þvottasódi
Fægilögur, o. fl.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin og útibúin.
lýjr lœ
í.
< Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
kröfur þeirra um gerð kvik-
mynda. En það mun staðreynd, að
það er ekki sízt óþroskaður
smekkur, sem stendur undir lé-
legu kvikmyndavali. Kvik-
myndahúsin sækjast síður eftir
úrvalsmyndum ef það er reynsla
þeirra, að fáir bíógestir kæra sig
í rauninni um þær.
Sjötug varð sl. mánudag frú
Hansína Steinþórsdóttir, kona
Lofts Guðmundssonar frá Þúfna-
völlum, til heimilis að Hlíðargötu
9 hér í bæ. Frú Hansína er hin
mesta sæmdarkona, sem öllum
þykir vænt um, er til hennar
þekkja.
Stúlka
óskast til heimilisstarfa
Pétur Sigurgeirsson
Sími 1648.
Neðri hæð
hússins Hafnarstræti 33,
Akureyri, er til sölu og laus
til íbúðar frá 14. maí n. k.
Upplýsingar um söluskil-
mála og annað varðandi
söluna gefur
Gunnar Thorarensen,
Akureyri.
□ RUN 59534227 — 1.:
I. O. O. F. — Rbst. 2 — 10142481/2
I. O. O. F. = 1344248V2 =
Messað í Akureyrarkirkju sum-
ardaginn fyrsta kl. 11 f. h. —
(Skátamessa). F. J. R.
Messað x Akureyrarkirkju kl. 2
e. h. á sunnudaginn kemur. P. S.
Messur í Möðravallakl.prestak.
Bakka sunnud. 26. apríl og
Glæsibæ sunnud. 3. maí kl. 2 e. h.
Starfsfólk Gefjunar og Ullar-
þvottastöðvarinnar hafði mynd-
arlega fjársöfnun fyrir mæðginin
á Auðnum. Alls komu inn þar kr.
5.535.00.
Kvenfél. Framtíðin heldur fund
næstk. fþstudagskvöld, 24. þ. m.,
kl. 8.30 í Húsmæðraskóla Akur
eyrar. Síðasti fundur vetrarihs.
Frá garðyrkjuráðunaut. Enn eru
nokkrir kai'töflugarðar lausir
garðlöndum bæjarins vegna van-
skila fyrri leigjenda og verða þeir
látnir í þessari viku hverjum sem
hafa vill.
Fyrir helgina sáust hér í kjöt
búð KEA fyrstu grænu salat
blöðin, sem koma á markað hér
nyrðra á þessu ári. Voru þau
frá Hreiðari Eiríkssyni garð
yrkjumanni á Laugabrekku. -
Þetta er — til viðbótar við allt
annað — merki þess að sumarið
er skammt undan ,ekki aðeins í
almanakinu heldur líka í nátt-
úrunni.
Slysavarnafélagskonur, Akur-
eyri! Áðux- aflýstur skemmtifund
ur deildarinnar verður að Lóni
föstudaginn 24. þ. m. kl. 8.30 e. h
Gjörið svo vel og takið með kaffi
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 20
frá N. N. Mótt. á afgr. Dags.
. Frá Amtsbókasafninu. Allir
þeir, sem haldið hafa bókum
lengur en venjulegan útlánstíma
gjöri svo vel og skili þeim fyrir
næstu helgi (26. apríl), ella verða
þær sóttar á kostnað lántaka.
Á sumardaghin fyrsta hefur
Kvenfél. Hlíf barnaskemmtun
Samkomuhúsinu kl. 2. Bazar að
Túngötu 2 kl. 3. Kaffisölu í Al-
þýðuhúsinu frá kl. 3. Kvik-
myndasýningar kl. 5 í Nýja-Bíó
Skjaldborg og Norðui'landsbíó. —
Merki seld allan daginn.
Til fólksins á Auðnum í Svarf-
aðardal. Vala, Ak., kr. 20Ö. —
Maren Stefánsdóttir, Ak., kr. 50.
Gunnar og Rósa, Ak., kr. 100.
H. J., Ak., kr. 20. — Zonta-
klúbbur Ak. kr. 530. — Halldór
Halldórsson, Ak.. kr. 100. — M.
Á., Ak., kr. 100. — G. J. kr. 50. —
B. G. H. kr. 50. — í. S., Ak., kr.
50. — Björn Gestsson, Björgum,
kr. 50. — N. N., Ak„ kr. 50. —
Bolli Sigtryggsson kr. 60. — S. T.
J. kr. 100. — Kolbeinn í Sandvík
kr. 100. — Heimilisfólkið, Torfu-
felli, kr. 200. — Oddur Daníels-
son kr. 50. — N. N. ki\ 200. — Z.
kr. 50. — Steinunn og Árni,
Laugalandi, kr. 150. — J. G. kr.
25. — Þoi'björg Þói’ðardóttir kr.
100. — V. G. kr. 50. — Guðný
Magnúsdóttir, Ak., kr. 50. — Val-
týr Aðalsteinsson, Ak., kr. 200. —
Haukur Valtýsson, Ak., kr. 100.
Mótt. á afgr. Dags.
Herbergi
til leigu frá 14. maí n. k.
Ujrþlýsingar i sima 1655.
Nýlegur barnavagn
óskast til kaiips.
Upplýsingar í sírna 1543.
Barnastúkurnar Sakleysið og
Samúð halda fund í Skjaldborg
næstk. sunnudag á venjulegum
tíma. Nánar auglýst í barnaskól-
anum.
Æskulýðs-
félag Akureyr-
kirkju. Fundir
á sunnudaginn:
Yngsta deild
kl. 5 e. h., Baldursbráarsveitin. —
Miðdeild kl. 8.30 e. h., Bláhatta-
sveitin. — Lokafundir.
Skemmtiklúbbur Templara
heldur skemmtikvöld sitt að Hó-
tel Norðurlandi föstud. 24. apríl
kl. 8.30 e. h. — Til skemmtunar:
Félagsvist og dans. Næst síðasta
sinn. S. K. T. A.
Misskilningur var það hjá
blaðinu sl. laugardag, að Davíð
Eggertsson, fyrrum bóndi á
Möðruvöllum, hefði verið stadd-
ur í Skriðu um stundarsakir, er
andlát hans bar að höndum. Hann
hafði dvalið þar hjá dóttur sinni
síðan 1948 og hafði átt við van-
heilsu að stríða sl. ár.
„Satan hefur marga
handlangara í sinni
þjónustu.. “
Hallesby
á prédikunarferð
Hið svonefnda kirkjustríð í
Noregi, sem hófst þar snemjna á
þegsu ári: >—’Og -endurómað hefui'
í n’okkrum blaðaski'ifum hér á ís-
landi — er hvergi nærri búið og
horfur á að það fari harðnandi nú
um sinn. Prófessor Ole Hallesby,
sem gaf tilefni til þessara vopna-
viðskipta í upphafi, hefur ekki
slíðrað sverðið heldur er hann
nýlega farinn af stað í prédikun-
ai-ferð um landið og vekja ræður
hans sumar hverjar ekki síður
athygli en útvarpsræða sú hin
fræga, sem deilurnar hófust út af.
— Snemma í þessum mánuði hélt
Hallesby fyrirlestur í Þrándheimi
og sagði þar að ekki nema helm-
ingurinn af prestastétt landsins
væri í rauninni trúaðir menn.
Hann mæltist til þess v.ið norska
söfnuði, að menn bæðu fyrir
norskum prestum. Samkvæmt
frásögn Dagbladet í Osló, mælti
Hallesby m. a. á þessa leið:
... Satan hefur marga hand-
langara í siimi þjónustu. Satan
ræðst gegn sjötta boðorðinu, og ef
það fellur, hrynja hin líka. Það er
hór að kyssa og kjassa þegar
menn eru að draga sig eftir
stúlku. Kynferðislegt samlíf er
aðeins fyrir þá, sem eru vígðir og
giftir. .. .“
„. . . . Vakið og biðjið. Andinn
er reiðubúinn en holdið er veikt.
Jörðin er orðin foi'garður hel-
vítis. Við megum ekki trúa því að
drottinn sé tilfinningalaus risi.
Hann gleðst yfir þeim, sem fúsir
fylgja andanum. Það er ekki
nauðsynlegt að fara til Mada-
gaskar eða Kína til þess að læra
þetta....“
Hallesby er að safna 350 þús.
kr. til nýs safnaðarskóla og skorar
á menn að leggja fi'am fé á sam-
komum þeim, er hann heldur.