Dagur - 22.04.1953, Blaðsíða 8
8
Baguk
#
Miðvikudaginn 22. apríl 1953
Vaxandi aðsókn að dagheimili
barna - Pálmholti - hér við bæinn
Fjársöfnun í bænum á morgun til styrktar
þessu nauðsynjafyrirtæki
Ársrit Ræktunarfélagsins verður
tímarif, kemur úf ársfjórðungslega
Félagið verður fimmtugt á þessu ári
Kvenfélagið Hlíf hér í bæ kom
dagheimilinu Pálmholti upp af
miklum dugnaði og hefur síðan
staðið undir rekstri licimilisins
með stuðningi borgaranna og lít-
ilsháttar opinberum styrk.
Þörfin fyrir slíkt heimili í svo
fjölmennum bæ sem Akureyri er,
kom þegar í ljós, því að heimilið
hefur verið fullsetið frá uppphafi
og er vaxandi aðsókn að því. í
upphafi var ljóst, að ekki yrði
unnt að láta mánaðargjöld barn-
anna standa undir öllum rekst-
urskostnaði, því að þá yrði dvölin
svo dýr, að ekki væri á færi
þeirra heimila, sem mesta þörfina
hafa, að koma börnum þangað.
Opinber styrkur hrekkur hér
skammt, er nú samtals 20 þús. kr.,
15 þús. frá bænum og 5 þús. frá
ríkinu. Félagið hefur starfandi
fimm stúlkur frá júníbyrjun til
(Framhald af 1. síðu).
á frosna sfld. Aflinn hefur verið
alveg ótrúlega mikill, t. d. varð
trillubátur, sem lagði 15 lóðir að
fara þrisvar fram til þess að
bjarga öllum aflanum, annar fékk
að meðaltali 250 kg. á stokkinn.
Mikil atvinna hefur verið í
Húsavík þessa síðustu daga og
full þörf á því, segja Húsvíking-
ar, eftir deyfðina í vetur. Var
unnið dag og nótt að kalla beztu
afladagana.
Ólafsfjörður: Frá Ólafsfirði róa
nú 5—6 stórar trillur, auk nokk-
urra smábáta, sem fara á hand-
færaveiðar á firðinum, auk þess
eru gerðir út þaðan 2 stórir tog-
bátar .Allir bátarnir hafa aflað
vel, trillurnar fengu hlaðafla
meðan loðna var til beitu, en nú
er hún gengin til þurrðar og þá
þverr aflamagnið. Það háði Ól- j
afsfirðingum nú, að bæði bátar
þeirra, hinir stærri, og mikill
mannafli er á vertíðinni syðra. —
Aflinn er frystur, saltaður og
hertui', en mikið af hjallaefninu
fór undir snjó um mánaðamótin
íslendingar gerðu rétt,
segir brezkur fisk-
kaupmaður
Fishing News hefur það eftir
brezkum fiskikaupmanni,að hann
og margir stéttarbræður hans
telji íslendinga hafa gert rétt í
því að færa út landhelgina og
vernda fiskimiðin. Hann sagði, að
togararnir væru búnir að eyði-
leggja Norðursjávarmiðin og í
sömu átt hefði stefnt á íslands-
miðum.
15. september, til að annast börn-
in og er þeim ekið uppeftir frá
vissum stöðum í bænum. Kostar
þetta og umönnunin öll mikið fé.
Heimilið tekur rösklega 50 börn
og hefur nýlega verið auglýst eft-
ir umsóknum fyrir sumarið, sem
í hönd fer.
Merkjasala o. fl.
Að venju munu börn ganga um
bæinn og selja merki, ^uk þess
verður barnaskemmtun í Sam-
komuhúsinu kl. 2 og auk þess
kaffisala og bazar og verður aug-
lýst með sérstökum auglýsingum
tilhögun á því. Allt, sem inn
kemur, rennur óskipt til Pálm-
holts og treysta hinar ósérhlífnu
Hlífarkonur því enn sem fyrr að
bæjarbúar styrki barnaheimilið
með því að kaupa merki, kaffi eða
eitthvað annað af því, sem á boð-
stólum er.
og er því ekki hert eins mikið og
efni standa til. Ólafsfirðingar telja
þetta aflakast hið mesta, sem
komið hefur um fjölda ára. Er
stutt að sækja á miðin frá Ólafs-
firði og virðist fiskur vera um
allan sjó. Togbátarnir fá 25—30
lestir á fáum dögum og hefur afli
þeirra yfirleitt verið góður síðan
um páska og fer batnandi.
Litli-Árskógssandur: Þaðan róa
2 dekkbátar og 1 trilla, og eru ný-
byrjaðir. Hafa aflað ágætlega í
þeim róðrum, sem farnir hafa
verið, enda haft loðnu til beitu.
Þessir bátar leggja allir upp í
heimahöfn og er aflinn saltaður.
Einn bátur bætist í hópinn þar á
næstunni.
Hauganes: Þaðan róa 3 dekk-
bátar og 2 trillur, eru trillurnar
I rétt byrjaðar, en dekkbátarnir
hafa farið 4—6 róðra. Afli hefur
verið afbragðsgóður, um 12 skipd.
í róðri. Er þetta miklu betra en
sjómenn þar hafa átt að venjast
um langa hríð. Mikið hefur verið
að gera á Hauganesi að undan-
förnu og mikil uppörvun að þess-
um aflabrögðum fyrir þetta
byggðarlag allt. Þá rær í trilla frá
Syðri-Vík og hefur aflað af-
bragðsvel og loks eru róðrar að
hefjast frá Rauðuvík.
Hér innfjarðar var um skeið
ágætur afli á handfæri og línu,
allt hér inn á Akureyrarpoll, en
hefur mjög tregast síðustu dag-
ana, að því blaðinu er sagt úr
Glerái'þorpi. Telja sjómenn að
selur sé kominn hér inn á fjörð-
inn og allt inn á Poll og styggð að
fiskinum. Afli báta hér á Akur-
eyri og næsta nágrenni mun að
mestu hafa gengið til fiskbúðanna
og í salt.
Maríuerlan á Litla-Hóli
lifir góðu lífi
Maríuerlan, sem heimilis-
fólkið á Litla-Hóli í Eyjafirði
hefur alið inni í stofu í allan
vetur, er hin sprækasta og allar
horfur á því að henni ætli að
auðnast að lifa það að sjá stall-
systur sínar koma fljúgandi
sunnan um höf í sumar, en þá
er ætlunin að sleppa henni,
sagði Vilhjálmur Jóhannesson
bóndi á Litla-Hóli blaðinu í
gær. Það var á sl. hausti, 27.
nóv., sem maríuerlan var hand-
sömuð og henni bjargað frá því
að krókna í kuldanum. Hafði
hún orðið eftir, er aðrir fuglar
flugu til suðrænna landa. Fugl-
inn hefur nærst á flugum, sem
veiddar hafa verið í fjósinu,
brauðmolum og ýmsu fleiru, og
nú upp á síðkastið hefur hon-
um geðjast einkar vel að súru
slátri!
Hannes J. Magnússon
skólastjóri kominn heim
úr 10 vikna Norður-
landaför
Hannes J. Magnússon, skóla-
stjóri Barnaskóla Akureyrar,
kom heim fyrir helgina úr 10
vikna för til Norðurlanda. Ferð-
aðist Hannes til Kaupmanna-
hafnar, Stokkhólms, Gautaborgar
og Osló og heimsótti skóla og
uppeldisstofnanir. Hann sagði í
viðtali við við blaðið í gær, að för
þessi hefði orðið sér til mikils
gagns, enda hefði hann hvarvetna
notið hinnar ágætustu fyrir-
greiðslu skólamanna og skólayf-
irvalda, og gerði hann sér vonir
um að þessi kynnisför mundi
bera árangur í starfi skólans hér
er tímar liðu. Hannes hefur nú
aftur tekið við starfi sínu hér, en
í fjarveru hans gegndi Eiríkur
Sigurðsson yfirkennari skóla-
stjórastarfinu.
Karlakór Akureyrar
efnir til hljómleika
Karlakói' Akureyrar efnir til
samsöngva í Nýja-Bíó föstudags-
kvöldið 24. apríl næstk. kl. 9 og
sunnudaginn 26. aprfl kl. 3.
Hljómleikarnir á föstudagskvöld-
ið eru fyrir styrktarfélaga kórs-
ins. Mun kórinn syngja þar 13
lög eftir innlenda og erlenda höf-
unda. Sjö af innlendu lögunum
eru eftir höfunda hér á Akureyri,
þar af 4 eftir Jóhann Ó. Haralds-
son. Þrjú þeirra hafa aldrei verið
sungin opinberlega fyrr. Ein-
söngvarar kórsins að þessu sinni
verða: Eiríkur Stefánsson og Jó-
hann Konráðsson.
DAGUR
Dagur kemur aftur út á laugar-
daginn kemur. — Auglýsingar
þurfa að berast fyrir kl. 2 á
föstudag. — Auglýsing í Degi
kemur fyrir augu mikils þorra
Akureyringa og Eyfirðinga,
auk f jölda manns í öðrum hér-
uðum.
Á síðsutu aðalfundum Rækt-
unarfélags Norðurlands og Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga var
ákveðið að efna til samvinnu í
milli félaganna um útgáfu tíma-
rits.
Hafði Sigui'ður O. Björnsson
prentsmiðjustjóri gert félögunum
mjög hagkvæmt tilboð um slíka
útgáfu og hvatt til hennar. Ár-
angurinn er nú að koma í ljós, því
að um þessar mundii' er verið að
senda á markaðinn 1. hefti þessa
rits, sem er um leið 49.—50. árg.
Ársrits Ræktunarfélags Norður-
lands. Heitir ritið sama nafni og
áður ,en það mun koma út 4 sinn-
um á ári og verður fjölbreyttara
að efni en áður hefur verið.
Ræðir fræðandi og vekjandi
málefni.
í greinargerð fyrir breyting-
unni, sem Ólafur Jónsson héraðs-
ráðunautur, ritstjóri ársritsins,
birtir í þessu fyrsta hefti, segir
hann um framtíðarfyrirætlanir
ritsins: „Reynt verður að gera
efni ritsins mun fjölbreyttara en
verið hefur. Ákveðið er að gefa
ritið út í samstarfi við Skógrækt-
arfélag Eyfirðinga og mun það
því eigi aðeins fjalla um venju-
legan landbúnað heldur einnig
um skógrækt, en auk þess mun
ritið flytja greinar náttúrufræði-
legs eðlis og eigi heldur sneiða
hjá almennum, þjóðmálalegum og
menningarlegum viðfangsefnum.
Með öðrum orðum: Þótt kjarni
ritsins verði landbúnaðar- og
skógræktarmál, mun það einnig
ræða önnur málefni, er talizt geta
almennt fræðandi og vekj-
andi... . “
Auk inngangsorða ritstj., eru
þessar greinar í heftinu, sem nú
er nýútkomið: „Oft eg svartan
sandinn leit“ eftir Steindór Stein-
dórsson menntaskólakennara. —
Ræðir þar um uppblástur og ör-
tröð, sem er merkilegt viðfangs-
efni hér á landi. Er leitast við að
svara þeim spumingum, hvort
landið hafi verið eins og það er nú
fi'á öndverðu, hverjar séu orsakir
uppblásturs og landeyðingar og
hvort líkur séu til að hægt sé að
hamla gegn eyðingu landsins. Þá
Eyfirðingur biður bana
af slysförum
Það hörmulega slys varð á
Keflavíkurvegi á Reykjanesi sl.
laugardag, að Þór Pétursson bif-
reiðarstjóri frá Hjalteyri, varð
undir vörubílspalli og beið bana.
Var hann einn á ferð, mun hafa
lyft pallinum til að aðgæta keðjur
bílsins, en lyftutæki pallsins ekki
verið í lagi. Engir sjónarvottar
voru að slysinu. Þór Pétursson
var maður á bezta aldri.
er grein eftir Ólaf Jónsson um
arfann og þær látlausu orrustur,
sem við hann eru háðar hér á
landi á hverju ári og er bent á
leiðir til sigurs í þeirri baráttu. Þá
er ávarp til lesenda frá Ármanni
Dalmannssyni, og greinargerð um
samstarf Skógræktarfélagsins og
Ræktunarfélagsins um útgáfuna.
Jón Kristjánsson á Víðivöllum
skrifar minningai'grein um Einar
E. Sæmundsen skógarvörð; Há-
kon Bjarnason skógræktarstjóri
skrifar greinina „Skjólbelti" og
hvetur þar eindregið til þess að
hafnar verði hér á landi tilraunir
til að rækta skjólbelti skógviðar í
allstórum stíl. Þorst. Þorsteinsson
gjaldkeri skrifar um skógrækt og
skógræktardaga og greinir frá
nokkrum aðalatriðum í skóg-
ræktarstarfinu hér um slóðir á
liðnum árum og gildi þess að hafa
sérstaka skógræktardaga til
gróðursetningar. Ármann Dal-
mannsson skrifar greinina
„Raddir frá Noregi“ og er þar m.
a. sagt frá ummælum norskra
blaða um það samstarf í skóg-
ræktarmálum, sem tekizt hefur
með íslenzku og norsku skóg-
ræktarfélögunum nú undanfarin
ár. Þá eru fundargerðir, ritfregn-
ir o. fl.
AthyglisverS nýjung.
Það er ástæða til að vekja at-
hygli á því er rit, sem með nokkr-
um sannindum má kalla nýtt
tímarit um ræktunar- og menn-
ingarmál, hefur hér göngu sína,
því að fátt er nú orðið um slíka
kvisti utan Reykjavíkur. Er þess
að vænta að tímarit þetta eigi í
framtíðinni að fagna útbreiðslu
sem víðast um land.
Skíðamót Akureyrar
heldur áfram á rnorgim
og n. k. sunnudag
Boðganga 4x5 km. fer fram kl.
8 að kveldi sumardagsins fyrsta.
Stórsvig í A-, B- og C-
flokki kl. 4 síðdegis n.k. sunnu-
dag. Fer sú keppni fram í Bílds-
árskarði og Sprengibrekku. Þar
fer einnig fram nýliðakeppni í
svigi. Eru það piltar 15 ára og
eldri, sem ekki hafa keppt áður í
þeim aldursflokki. Skiðaráðið
hyggst með þessari tilraun hleypa
nýju blóði í C-flokk, en hann er
nú mjög fáliðaður. Er þess vænzt
að drengir gefi þessu gaum og
mæti til keppninnar. Farið verður
héðan kl. 2.
Á sunnudaginn var lauk nám-
skeiði fyrir drengi á aldrinum 6—
14 ára. Kepptu þeir í fjórum ald-
ursflokkum í Miðhúsaklöppum og
var að því góð skemmtun.
- Fiskigengdin á grunnmiðum