Dagur - 06.01.1954, Síða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 6. janúar 1954
Ofsaveður af suðvestri gekk yfir
Reykjavík og grennd í gær
Mörg skip slitnuðu upp í liöfninni - loftnet
útvarpsstöðvarinnar slitnaði
hefði verið hægt, því að hún var
í lagi. Þá vákti það undrun hér
um slóðir, að í miðdegisútvarpi í
gær, voru heldur engar fréttir
lesnar fyrir þá landsmenn, sem
ekki heyrðu fréttirnar um há-
degið og er þetta tillitsleysi við
hlustendur sem illt er að þola er
þannig stendur á.
Danskur leikari á að fara með sfórf
filufverk í Sölku-Völku
Rauðikross Akureyr-
ar stofnar sjóð til
kaupa á sjúkraflugvél
Á fundi í gær ákvað stjórn
Rauðakrossdeildar Akureyrar
að beita sér fyrir sjóðstofnun,
er hefði það markmið að
kaupa sjúkraflugvél, er yrði
staðsett hér á Akureyri og
ætluð til sjúkraflugs um Norð-
urland og Austurland og jafn-
vel víðar, ef þörf krefur.
Jafnframt ákvað stjórnin
að leggja fram 3000 krónur
sem stofnfé í þennan sjóð.
Margir ágæfir iðnsðarmenn á
framboðslisfa Framsóknarmanna
Iðnaðarmannafélagið skoraði á fiokkana að hafa
iðnaðarmann í öruggu sæti
í fyrrinótt og gærmorgun gekk
ofsaveður af suðvestri yfir Suð-
vesturland og komst vindhraðinn
upp í 14 stig í byljunum, en var
annars um 12 vindstig um kl. 8 í
gærmorgun, en fór að lægja er
leið á daginn.
Mikill glundroði varð í Reykja-
víkurhöfn, er skip, er þar lágu
við landíestar, slitnuðu upp og
tóku að reka.
Hæringur og fylgdarlið.
Meðal þeirra skipa, er upp
slitnuðu, var Hæringur, en við
hann lágu bundin sex skip, gamlir
togarar og varðskipið Þór. Varð-
menn um borð í Hæring gátu
kastað akkerum, er skipið tók að
reka, og héldu akkerisfestar.
Tókst að losa hin skipin frá Hær-
ingi og forða stórskemmdum. —
Ymsa báta, er mannlausir lágu
við bryggjur, rak út úr höfninni
og í strand við Laugarnes og
Gufunes, m. a. vélskipið Hvítá,
sem talin var liggja mannlaus við
bryggju. En er báturinn var
strandaður í Gufunesi kom í ljós,
að um borð höfðu verið tveir
næturgestir, og var þeim bjargað
í land.
Ekki var kunnugt um að nein
slys hefðu orðið á mönnum í
veðrinu, en skemmdir ýmsar á
bátum og mannvirkjum.
Útvarpsstöðin bilaði.
Loftnet útvarpsins á Vatns-
endahæð slitnaði og var ekki
hægt að hefja viðgerð fyrr en
leið á morguninn. Útvarpið sendi
út um hádegi með einhverjum
aukatækjum, sem eru svo kraft-
lítil að ekki heyrðist til þeirra
hér. En ekki var endurvarpsstöð-
in hér látin lesa fréttir, sem þó
Tjón af völdmn
hvassviðris
Stormasamt hefur verið hér
nyrðra nú um skeið. Sl. miðviku-
dag var vestan byljaveður og
mjög hvasst í verstu byljunum.
Nokkurt tjón varð í héraðinu af
veðri þessu. Á Krossum á Ár-
skógsströnd fauk fjárhús og
hlaða og um 40 hestar af heyi, auk
þess sem skemmdist í hellirign-
ingu að afstöðnu veðri þessu.
Varð bóndinn á Krossum, Snorri
Kristjánsson frá Hellu, fyrir- mjög
tilfinnanlegu tjóni. Á Jódísar-
stöðum í Eyjafirði fauk hluti af
fjárhúsþaki og áfastri hlöðu. Á
Urðum i Svarfaðardal fauk þak
af útihúsi. Um annað tjón er blað-
inu ekki kunnugt.
Danska blaðið Berlingske Tid-
ende skýrir frá því 29. des., að
hinn kunni danski gamanleikari
Ib Schönberg hafi fengið tilboð
um það frá sænska kvikmynda-
félaginu, sem hyggt kvikmynda
Sölku Völku eftir Laxness hér á
fslandi í sumar, að leika þar
stórt hlutverk, eða Bogesen
kaupmann.
Hefur blaðið það eftir Schön-
berg að sér þyki tilboðið freist-
andi og muni hann þvi sennilega
Kosið í niðurjöfnunar-
nefnd
Á bæjarstjórnarfundi hinn 22.
des. sl. var kosið í niðurjöfnunar-
nefnd fyrir árið 1954:
Þessir hlutu kosningu:
Sigurður Helgason, fulltrúa.
Hallur Sigurbjörnsson, skattstj.
Björn Jónsson, ritstj.' Verkarri.
Tómas Björnsson, kaupmaður.
Til vara:
Torfi Vilhjálmsson, verkam.
Arngrímur Bjarnason, skrifst.stj.
Áskell Snorrason, tónskáld.
Gunnar H. Kristjánsson, kaupm.
F ramk væmdast jóra-
starfi sjúkrahússins
ráðstafað til bráða-
birgða
Á sjúkrahússnefndarfundi nú
fyrir skemmstu var samþykkt að
fela formanni nefndarinnar,
Brynjólfi Sveinssyni mennta-
skólakennara, að gegna fram-
kvæmdastjórastarfi við nýja
sjúkrahúsið til 1. október næstk.
Mun það hafa verið eindreginn
vilji yfirlæknisins, að formaður
nefndarnnar, sem er manna
kunnugastur fjármálum sjúkra-
hússins og byrjunarörðugleikum
þess, tæki starfið að sér til bráða-
birgða og var því horfið að þessu
ráði og enginn af umsækjendum
um starfið ráðinn.
taka því. Það er hinn sænski leik-
stjóri kvikmyndarinnar Arne
Mattson, sem á í þessum samn-
ingum við Ib Schönberg.
í STUTTU MÁLI
FORSETI ÍSLANDS flutti
ávarp til þjóðarinnar á nýjárs-
dag, frá Bessastöðum, en á
gamlaárskveld flutti Ólafur
Thors, forsætisráðh., ávarp.
Báðar ræðurnar hafa verið
prentaðar í Rvíkurblöðunum.
—o—
HÖRMULEGAR SLYSFAR-
IR urðu er leið að árslokum.
Tvö ungmenni fórust á Vatns-
leysuströnd, er holskefla skol-
aði þeim af granda einum, er
þau voru á leið til lands eftir
að hafa bjargað kindum af
skeri. Voru þetta piltur og
stúlka, 10 ára og 24 ára. — Á
gamlaársdag varð enn eitt
banaslys í Reykjavík. Páll B.
Guðjónsson, Hofteigi 22, beið
bana, er bíll hans lenti á vöru-
bílspalli.
KOMIÐ HEFUR til verk-
falls á vélbátaflotanum við
Faxaflóa og er óséð enn, hvern
ig úr rætist. Krefjast sjómenn
hækkaðs fiskverðs og nokkurra
fríðinda. Samningaumleitanir
standa yfir. Sjómenn hafa víð-
ast sagt upp gildandi samning-
um við útgerðarmenn.
—o—
FRIÐRIK ÓLAFSSON skák-
meistari teflir um.þessar mund
ir á skákþingi í Hastings í
Bretlandi, þar sem sterkir
menn kljást. Friðrik mun ekki
áður hafa mætt svo mörgum
sterkum mönnum. Eru meðal
þátttakendanna Rússinn Bron-
stein, Frakkinn Tartakower
(sem Friðrik vann) og Bretinn
Alexander. Hæstir voru er sið-
ast fréttist Bronstein og Ale-
xander. Friðrik hafði 2 vinn-
inga eftir 5 umferðr.
Skömmu eftir að uppstillingar-
nefnd Framsóknarfélaganna liafði
gengið frá tillögu sinni um fram-
boðslista flokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar, barst full-
trúaráði félaganna bréf frá Iðn-
aðarmannafélagi Akureyrar, þar
sem greint er frá tillögu, er sam-
þykkt var á fundi í félaginu 3.
desember síðastliðinn.
Er þess jafnframt óskað, að
bréfið verði birt, og fer það hér á
eftir:
„Á fundi, sem haldinn var í
Iðnaðarmannafélagi Akureyr-
ar, 3. þ. m., var allmikið rætt
um þátt iðnaðarmanna í stjórn
bæjarins. Kom fram almenn
óánægja yfir því, áð engir af
aðalfulltrúum í bæjarstjórn,
síðasta kjörtímabil, hefði verið
faglærður iðnaðarmaður. —
Var bent á að iðnaðarmenn
væru það fjölmennir í bænum,
að eðlilegt væri að þeir ættu
þar málsvara.
Svofelld tiilaga kom fram á
fundinum, sem samþykkt var
einróma:
„Fundur haldinn 3. desember
1953 í Iðnaðarmannafélagi Ak-
ureyrar, skorar á þá stjórn-
málaflokka, sem bjóða fram
fulltrúa við næstu bæjarstjórn-
arkosningar, að hafa faglærðan
Kjörstjórn kosin
Á bæjarstjórnarfundi hinn 22.
des. sl. var kosið í yfirkjörstjórn
við næstkomandi bæjarstjórnar-
kosningar. — Þessir hlutu kosn-
ingu:
Sigurður M. Helgason, fulltrúi.
Brynjólfur Sveinsson, mennta-
skólakennari.
Tómas Björnsson, kaupmaður.
Til vara:
Jón Þorsteinsson, lögfræðingur.
Björn Bessason, endurskoðandi.
Kristján Árnason, kaupmaður.
Enn hefur ekki verið valið í
undirk j örstjórn.
Síldveiðin orðin nær
16000 raál í gærkveldi
Síðastl. laugardagskvöld var
síldveiðin hér á Akureyrarpolii
og innanverðum Eyjafirði orðin
rösklega 15000 mál, og síðan hef-
ur nokkur afli borizt, svo að heild
arveiðin nálgast nú 16000 mál. í
gærkveldi, er blaðið átti tal við
Krossanesverksmiðjuna, var
Akraborg að landa á annað
hundrað málum, en fregnir ekki
borizt af öðrum skipum, sem voru
að veiðum á Pollinum í gær og
köstuðu nokkrum sinnum og hafa
vafalaust nokkurn afla. Enn mæl-
ist allmikil síld, en fitumagn síld-
arinnar er nú lægra en áður, eða
um 10%.
iðnaðarmann í öruggu sæti á
lista sínum.“
Óskar stjórnin eftir, að þér
sjáið yður fært að taka þessa
tillögu til rækilegrar yfirveg-
unar. Ennfremur að bréf þetta
verði birt í blaði flokks yðar.
Virðingarfyllst,
f. h. stjórnar Iðnaðarmannafélags
Akureyrar.
Karl Einarsson, formaður.“
Á fundi í fulltrúaráði Framsókn-
arfélaganna, þar sem framboðs-
málin voru til umræðu, var sam-
þykkt að benda á, að flokkurinn
hefði tekið fullt tillit til óska iðn-
aðarmanna í þessu efni, með því
að í 3. sæti framboðslistans væri
Guðm. Guðlaugsson, sem um skeið
hefði átt sæti í stjórn Iðnaðar-
mannafélagsins, hefði oft verið
fulltrúi þess á iðnþingum og á
sæti í stjórn Iðnskólans. I 5. og 6.
sæti eru auk þess ágætir fulltrúar
iðnaðarmanna, þeir Stefán Reykja-
lín byggingameistari og Ríkharð
Þórólfsson verksmiðjustjóri, auk
þess sem efsti maður listans, Jakob
Frímannsson kaupfélagsstjóri, er
framkvæmdastjóri margra iðnað-
arfyrirtækja í bænum og hefur
manna mest lagt lið málefnum
iðnaðarins í bænum. Fleiri kunnir
iðnaðarmenn eru og á listanum. —
Er augljóst, að iðnaðurinn á ágæta
fulltrúa í öruggum sætum á lista
Framsóknarmanna.
FIMMTUGUR
Þorkell V. Ottesen
prentari
Fimmtugur verður næstk.
föstudag Þorkell V. Ottesen,
prentari hér í bæ. Hann er al-
kunnur dugnaðarmaður í starfi
sínu og vinsæll af öllum, er
hann þekkja. — Dagur færir
honum þakkir fyrir langt og
ágætt samstarf og árnar hon-
um allra heilla á þessum tíma-
mótum í ævi hans.
Leikfélagið byrjar
sýeingar á ný
Leikfélag Akureyrar byrjar nú
aftur að sýna sjónleikinn Fjöl-
skyldan í uppnámi og verða sýn-
ingar um næstu helgi, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. — Að-
göngumiðasalan í Samkomuhús-
inu er opin eftir kl. 5 leikdagana,
og einnig má panta aðgöngumða
fyrir hádeg leikdaga í síma 1906.
DAGUR
Dagur kemur aftur út næstk.
laugardag og mun svo verða
fyrst um sinn, að blaðið kemur
út tvisvar í viku, á miðviku-
dögum og laugardögum.