Dagur - 03.03.1954, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR
DAGUR
kemur næst út á reglul.
útkomudegi, miðvikudag-
inn 10. marz.
Dagur
ASKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
áskrifendur!
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 3. marz 1954
12. tbl.
Leikfél
li
PJ'
] VI
i
rr
tlMSSSf I ’1®1
Leikurinn sýndur í Iieiltl sinni og óstyttur
jón Norðfjörð Icikstjóri
undanförnu æft sjónleikinn Úti
lcgumenn (Skugga-Svein) eft-ir
Matthías- Jochumsson og er nú
ákveðið að frumsýningin verði
fimmtudaginn 11. marz næstk.
Leikstjóri er Jón Norðfjörð, en
leikendur eru ýmsir kunnustu
leikarar bæjarins og svo nokkrir
nýliðar.
Skipun hJutverka.
Hlutverk eru þessi: Sigurður í
Dal, Hólmgeir Pálmason, Ásta,
dóttir hans, Björg Baldvinsdóttir,
vinnuhjúin í Dal leika Valdimar
Jónsson (Jón sterki), Sigurjóna
Jakobsdóttir (Gudda) og Guð-
mundur Ágústsson (Gvendur),
Lárentíus sýslumann leikur
Vignir Guðmundsson, Margréti
þjónustu hans leikur Matthildur
Sveinsdóttir, Hróbjart vinnu-
mann leikur Jón Norðfjörð. Stú-
dentana leika Haukur Jakobsson
og Egill Jónasson. Kotunga leika
þeir Björn Sigmundsson og Jó-
hannes Jónasson, Galdra-Héðin
Leikféíag Akureyrar hefur að leikur Jón Ingimarsson. Útilegu-
mennina leika þessir: Skugga-
Sveinn, Eggert Ólafsson, Harald-
Vilhjálmur Árnason, Og-
Landbmrður
af fiski á Snðnr-
og Vesturlandi
Mikill afli er nú á fiskimiðum
sunnan- og vestanlands, einna
mestur í Vestmannaeyjum og svo
frá verstöðvum á Snæfellsnesi.
Fá bátar allt að 20 lestum í róðri.
Mikil atvinna er hvarvetna í ver-
stöðvunum og algengt, að skóla-
fólk sé kallað til framleiðslustarf-
mundur, Jóhann Ögmundsson, og
Ketill, Tryggva Kristjánsson.
Fyrirkomulag aðgöngumiðasölu.
Frumsýningargestir þurfa að
taka aðgöngumiða sína í Bókav.
Eddu þriðjudaginn 9. marz. Að-
göngumiðasala verður í Eddu
dagana fyrir leiksýningar kl. 2—
4 síðd. og er þess vænst að leik-
húsgestir taki sem flestir miðg
sína á þeim tíma. Einnig verður
aðgöngumiðasala í leikhúsinu frá
kl. 6 leikdágana. Pantanir verða
teknar í síma 1906 á öðrum tím-
Júlíns Bogason skák'
meistari Norðlendinga
Skákþing Norðlendinga, sem
háð hefur verið hér að undan-
förnu, lauk sl. laugardag. Urðu
úrslit þau í meistaraflokki, að
Júlíus Bogason, Akureyri,- varð
efstur og skákmeistari Norðlend-
inga 1954. Hlaut hann 33/2 vinning
af 5 mögulegum. Næstir urðu:
Ingimar Jónsson 3 vinninga og
þrír jafnir næstir, Jón Ingimars-
son, Unnsteinn Stefánsson og
Guðm. Eiðsson. í I. fl. sigraðj
Adolf Ingimarsson, með 4l/z v.
af 5, og . II. fl. Rögnvaldur Rögn-
valdsson, með 7 v. af 8. Mótinu
verður slitið annaðkvöld í Ás-
garði.
Fimdn íé á Bleiks-
mýrardal 24. febrúar
»
Seint í febrúar fóru tveir
menn úr Kaupangssveit í eftir-
leit á Vestur-Bleiksmýrardal.
Lá grunur á, að fé gengi þar úti
enn. Austur fóru Helgi Árna-
son i Skálpagerði og Bjarni
Sveinsson á Brúarlandi. Þeir
fundu alls 7 kindur á Vestur-
Bleiksmýrardal, skammt utan
við heimari Lambá og voru all-
ar kindurnar úr Eyjafirði. —
Þetta voru 4 ær og 3 lömb. Féð
áttu Bjarni Sveinsson á Brúar-
landi, sem fyrr getur, 4
kindur, Ásgeir Björnsson,
Knararbergi 1 og Snæbjörn
Sigurðsson á Grund tvö
lömb. Ærnar litu sæmilega út
en lömbin voru orðin rýr. Féð
var rekið í Reyki í Fnjóskadal
og sótt þangað á bíl. Komið
liefur fyrir á undanförnum ár-
um að fé hefur gengið af vetur-
inn á Bleiltsmýrardal. Til
dæmis munu a. m. k. 5 kindur
hafa gengið af sl. vetur þar
austur frá.
Kominn vetur
Um miðja sl. viku gerði dálítið
hríðarkast og hefur snjóað tals-
vert síðan, svo að samgöngur á
landi eru erfiðari orðnar en áður,
þótt ekki hafi enn komið til tafa
hér innanhéraðs utan einn dag
eða svo úr sumum sveitum. Bíl
fært er enn talið í milli Reykja-
víkur og Akureyrar.
Öskudagsfagnaður í dag
' ® r
f ■ ' r:;Á: '
: r
i-' ■ ,
_____
1 v v'
362 dráttarvélar í byggðuntim báð-
um megin Eyjafjarðar — stórfelld
breyting á lö árum - fróðlegar um-
ræður á Bændaklúbbsfundi fyrra
•j
þriðjudagskvöld
Bændaklúbburinn hélt fund að Ilótel KEA hér á Akureyri fyrra
þriðjudagskvöld. Að þessu sinni var aðallega rætt um meðferð og
hirðingu búvéla. Auk þess komu fram á fundinum merkilegar upp-
lýsingar um nýtt landbúnaðarverkfæri, sem Magnús Árnason vél-
smiður á Akureyri liefur í smíðum. — Frummælandi var Guðmund-
ur Halldórsson starfsmaður í Véla- og varahlutadeild KEA. Ræða
hans var mjög fröðleg, enda hefur hann langan starfsferil að baki í
þessari grein og var miltill ávinningur að því að fá einmitt slíkan
mann til að vera málsliefjandi við þessar umræður.
f dag er öskudagurinn og þá jafnframt hátíð barnanna hér á Akureyri. Hér klæðast bömin skraut-
búningum alls konar, safnast í flokka og slá köttinn úr tunnunni, fara að því búnu syngjandi um bæ-
inn. Oft er farið í skemmtiferð fyrir aura er safnast. Myndin að ofan er frá öskudegi hér fyrir fáum
árum. Þá varð ekki komist út úr bænum vegna snjóa og það ráð tekið að fara í skemmtif. í afgrbát. F. í.
Stóraukin vélamenning.
Guðmundur gerði í ræðu sinni
grein fyrir aðalhlutum í aflvél-
unum, hvernig með þær skyldi
farið og hvað varast bæri. Marg-
ar vélar sömu tegundar bila á
sama hátt. Orsökin er oftast sú
sama og virðist lítilsháttar, en
veldur þó stórtjóni í viðgerðum
og vinnutöfum. Aukin þekking og
meiri og betri hirðing búvéla
kemur í veg fyrir þá gífurlegu
sóun verðmæta, sem liggur í við-
haldi illa hirtra véla. Kom frum-
mælandi víða við, benti á mörg
dæmi er bændur könnuðust vel
við. Þrátt fyrir þetta sagði hann
að vert væri að viðurkenna — og
væri það vel — að bændurnir
hefðu yfirleitt verið fljótir að til-
einka sér þekkingu á vélum sín-
um og væru þegar nokkuð á
veg komnir að vera sjálfum sér
nógir um smærri aðgerðir og við-
hald véla. Taldi hann að véla-
námskeið með ýtarlegri kennslu
gerðu mikið gagn og hvatti til
þess að til þeirra yrði stofnað.
Stórbreyting á 10 árum.
Nú væru í sýslunni, að með-
töldum Grýtubakka-, Svalbarðs-
og Hólshreppum 362 dráttarvélar,
að meðtöldum vélakosti ræktun-
arsambandanna, en að auki ýms-
ar aðrar vélar, svo sem mjalta-
vélar, súgþurrkunarvélar, sax-
blásarar o. fl. Fyrir um það bil 10
árum voru engar dráttarvélar til
hér. Vélamenning okkar á þessu
sviði er því ekki löng, en allt
bendir til þess að hún fari ört
vaxandi.
Guðmundur hafði látið prenta,
í Samráði við Olíusöludeild KEA,
smekklegan leiðarvísi um notkun
frostlögs á bifreiðir og aðrar vél-
ar. Var leiðarvísi þessum útbýtt
meðal fundarmanna.
Námskeið í meðferð búvéla.
Erik Eylands ráðunautur var
mættur á fundinum. En hann
hefur nýlokið námskeiði í með-
ferð dráttarvéla í Mývatnssveit.
Benti hann á í ræðu — að gefnu
tilefni — að nú lægju fyrir 30
pantanir um slík námskeið og
væri því óhugsandi að sér gæfist
tækifæri til að kenna á nám-
skeiði hér á þessum vetri. —
Reynsla sín á námskeiðum víða
um land væri sú, að meðferð og
hirðing búvéla fari ört batnandi.
Á fundinum komu fram ein-
dregnar óskir um að innflytjend-
ur búvéla gerðu meira fyrir
kaupendur vélanna en tíðkast
hefur. M. a. með því að láta þýða
(Framhald á 11. síðu).
Búfjársjúkdómar
umræðuefni á
siæsta Bænda^-
klúbbsfusidi
Bændaklúbburinn heldur fund
næstk. þriðjudag — 9. marz — að
Hótel KEA á venjulegum tíma.
Umræðuefni að þessu sinni er
búfjórsjúkdómar og varnir gegn
þeim. Frummælandi verður Gud-
mund Knutson héraðsdýralækn-