Dagur - 03.03.1954, Side 7

Dagur - 03.03.1954, Side 7
Miðvikudaginn 3. niarz 1954 D A G U R 7 Eætt iim líklegan íramtiðarveg í milli héraðanna og nauðsyn nýrrar bníar á Fnjóská Eftir Sigurjón Valdimarsson í Leifshúsum ERLEND TÍÐINDI McCarfhy og þingnefnd hans mæfa vaxandi andspyrnu ííunnir blaðamenn og stjórnmálamenn fordæma starfsaðferðimar Það er kunnara en frá þurfi að segja, að það sem af er þessum vetri hefur verið svo snjólétt, að bifreiðasamgöngur hafa haldist svo að segja ótruflaðar á flestum vegum hér á landi. Þegar svo viðrar hvei-fa mörg- um úr huga þeir örðugleikar, sem skapast, þegar stórhríðar og fannkoma skellur yfir svo að veg- ir lokast Eg álít þó, að þrátt fyrir góðviðri og litlar truflanir af völdum snjóa, sé rétt að haldið sé vakandi umræðum um vegamál- in. Vil eg því fara hér nokkrum orðum um væntaniegan veg á milli Akureyrar og Suður-Þing- eyjarsýslu, eða nánar tiltekið að Fnjóská. Vaðlaheiðarvegur hefur lengi haft það orð á sér, — og það ekki að ástæðulausu, — að liggja mjög undir snjó, og teppa þannig oft samgöngur frá Akureyri austur á bóginn. Hefur alloft verið um það rætt og ritað, hvernig bezt yrði ráðin bót á þeim vanda. sem af því skapast, þegar vegur þessi lokast af snjó. Eg ætla ekki að eyða löngu máli í að ræðá um lagningu Vaðlaheiðarvegar, eða lýsa þeim göllum sem komið hafa í ljós í sambandi við liann síðan. Eg tei það beinlínis ósann- gjarnt, oft á tíðum, að deila hart á það eftir'á, þó í Ijós komi, að verk hefði betur værið unnið á annan hátt,. en gert var, hvort sem um vegalagningu, húsabygg- ingar, jarðabætyr eða annað er að ræða, því að venjulega er far- ið eftir því sem heppilegast og bezt er talið á þeim tíma sem vérkið er 'tínnið, þótt það fullnægi ekki síðavi tíma kröfum, sem fi'am komú. ,af. brcyttum aðstæð- um. Þó vil eg, í þessu sambandi benda á, í fullri vinsemd, að verkfræðingar mættu stundum taka meira tillit til skoðana ólærðra manna, á það einkum við um mál eins og vegalagningar, þar sem kunnugir þekkja snjóa- lög og aðstæður allar. Framtíðarvegur í inilli héraða. Hógværar umræður eiga líka, að mínum dómi, að vera til bóta fyrir hvert málefni, og geta oft aukið á fjölbreytni sjónarmiða, sem að sjálfsögðu er þýðingar- mikið atriði við úi'lausn vanda- samra mála. Vil eg nú í stuttu máli gera grein fyrir skoðunum mínum varðandi framtíðarveg frá Akureyri og austur að Fnjóská. Þegar Vaðlaheiðarvegur er lok- aður vegna snjóa, kemur það fyr- ir að bifreiðar fara ó milli Akur- eyrar og austur sveita S.-Þ. um Dalsmynni. í umræðum um þetta mál, hafa margir talið sjálfsagt, að þær ætti framtíðarvegurinn að hggja. Eg er á annarri skoðun. Skal eg nú gera grein fyrir við- horfi mír.u í þessu máli. Þegar leggja skal veg, er það einkum þrennt, sem hafa verið í huga. f fyrsta lagi, hvernig verð- ur vegurinn bezt lagður frá hag- fræðilegu sjónarmiði, en undir það heyra vegalengd, byggingar- kostnaður, viðhaldskostnaður og reksturskostnaður (þ. e. snjó- mokstur og heflun). í öðru lagi: Hvernig kemur vegurinn sem flestum heimilum í viðkomandi sveitum að sem beztum notum. f þriðja lagi: Hvað mikinn tíma og eldsneyti kostar bifreiðir, — einkum þungavöriibifreiðil', — að fara á milli tveggja ákveðinna staða, t. d. A’kureyrar og Fnjósk- árbrúar. Við skulum nú athuga þessi atriði nánar, í sambandi við vég milli þessara tveggja áðurnefndu staða. Eg mun þó sleppa að ræða um núverandi Vaðlaheiðarveg, þar sem aðalefni þessarar greinar er að bera saman nýjar leiðir austur. Ætla eg að nefna þrjár leiðir í þessu sambandi. Vegur um Dalsmynni. Tek eg þá fyrst fyrir að nefna veg um norðanvert Dalsmynni, þar sem nú er ruddur vegur, er þetta eini staðurinn, að undan- teknum Vaðlaheiðarvegi, þar sem nú er hægt að komast á bifreið- um austur, Hvernig fullnægir þessi leið áðurnefndum sjónar- miðum? Um þetta þarf að mínu áliti ekki mikið að fjölyrða, þar sem vegur á þessum stað liggur undir miklum skemmdum af skriðuföllum og snjóflóðum, og yrði af þeim ástæðum, á vissum tímum ársinns, beinlínis hættu- legur, eða jafnvel óiær. Þá gæti og viðhaldskostnaður orðið mjög mikill á þessum vegi. Eg tel því að þessi leið sé sú óheppilegasta af þeim þremur sem eg nefni hér, og læt eg því útrætt um hana. Næst er að athuga leið um Dalsmynni að sunnanverðu. Þar mun vera sæmilega snjóLétt, og eftir staðháttum ekki mjög óað- gengilegt að gera veg. Það, sem á móti mælir er, að hér er um mikla vegalengd að ræða, auk þess sem að þarna megin í Dals- mynni er engin byggð. Vegur um Víkurskarð. Þá sný eg mér að þriðju, og síðustu leiðinni sem eg nefni, en hún er um Víkurskarð. Vegur þessa leið yrði um 40 km. frá Ak- ureyri að Fnjóskárbrú, en um 38 km. ef brú yrði byggð norðar, sem lægi beinna við í sambandi við áframhaldandi veg austur. Mun eg víkja ögn að því atriði síðar. Vegalengd um Dalsmynni er aftur á móti um 60 km., og sjá því allir hvílíkur geysimunur er hér á. Vegarstæði um Víkur- skarð álít eg víðast hvar fremur gott. Það sem frekast mælir á móti þessari leið er að hún liggur á alllöngum kafla nokkru hærra en Dalsmynnisleiðin, en þar sem hún er svo mikið styttri mætti sennilega, fyrir sömu fjárupp- hæð, gera mjög vel upphækkað- an veg, og þá álít eg að ekki þyrfti að vera mikil hætta á að hann tepptist fyrr af snjó heldur en vegurinn um Svalbarðsströnd, sem fara þarf eftir, hver þessara þriggja leiða sem valin yrði. Það er ekki ætlun mín að fara, að þessu sinni, út í fleiri atriði sem styðja þá skoðun mína að framtíðarveginn austur beri að leggja um Víkurskarð, eg vildi aðeins gera grein fyrir áliti mínu á þessu. Lít eg svo á, sam- kvæmt því sem eg hef áður sagt, að til bóta sé að sem flestar leiðir séu athugaðar í þessu máil sem öðrum. Að endingu vil eg fara örfáum orðum um þrú á Fnjóská, í sam- bandi við nýjan austurveg, því að það hvort tveggja hlýtur að verða athugað sameiginlega. Vitað er að gamla steinboga- brúin á Fnjóská fullnægir ekki lengur kröfum tímans, einkum með tilliti til þungaflutninga, auk þess sem hún er staðsett þar sem snjó leggur mjög að báðum megin í árgilið, og svellar þar því oft mikið. Er kafli þessi því hinn varasamasti yfirferðar, og er þess skammt að minnast að bifreið rann þar út af veginum á hálku, þótt svo gæfulega tækist til þá, að ekki varð slys að. Að byggja nýja brú yfir Fnjóská, — fyrir þjóðvegíhn austur, — á sama stað og gamla brúin er nú, álít eg því óráðlegt. í sambandi við veg yfir Víkurskarð og áfram austur, lægi betur og beinna við að brúin kæmi t. d. 2 km. eða svo, norðar en núverandi Starfsemi Joseph McCarthy öldungadeildarþingmanns frá Wisconsin og þingnefndar hans hcfur lengi verið þyrnir í augum frjálslyndra Bandaríkjamanna, og utan Bandaríkjanna er það álit æ fleiri manna, að þessi þing- maður og klíka sú, sem næst hon- um stendur, hafi unnið Banda- ríkjunum og málstað lýðræðis og frelsis hið mesta ógagn á liðnum árum. Menn hafa með vaxandi undr- un heyrt um ofsóknir og yfir- heyrslur þingmanns þessa og jeirri spurningu hefur oft verið varpað fram, hvenær stjórn landsins og ábyrgur þingmeiri- hluti ætli að láta til skarar skríða gegn starfsaðferðum, sem minna alltof mikið á fasisma til þess að geta verið góð og gild vara í „landi frelsisins“. En enn sem komið er hafa Eisenhower og stjórn hans ekki þvegið hendur sínar af McCarthy og öllu hans athæfi og veldur það vonbrigðum. Demokrata, með Stevenson í broddi fylkingar, hafa fyrir löngu lýst andúð sinni á þessu fyrirbæri samtímans. Atburðir síðustu vikna. En þótt ekki hafi komið til op- inberra átaka með McCarthy og stjórn Bandaríkjanna, er samt Ijóst, að þingmaðurinn og lið hans á vaxandi andspyrnu að mæta, og kom það glöggt í ljós í fyrri viku, er McCarthy hóf svonefnda rann- sókn á tilhliðrunarsemi við kommúnista innan hersins. Lenti hann þá á kanti við hermálaráð- herrann og flest ábyrg blöð landsins Um sama leyti réðist annar McCarthyisti, Jenner þing- maður, með miklu offorsi á Warren, sem tilnefndur hafði verið forseti Hæstaréttar Banda- ríkjanna. Vakti sú árás ekki minni andúð og undrun. Eitt merkasta blað Bandaríkjanna, New York Times, fór svo hörðum orðum um þessa árás og þing- mann þann, sem að henni stóð, að til tíðinda má telja með svo orð- vart blað. Var sagt að þingmað- urinnn hefði staðið í því að „ausa óþverra, beint úr skólpræsunum“ yfir ágætan trúnaðarmann ríkis- ins. Harðorð blöð. Repúblikanaflokkurinn hefur alið McCarthy og Jenner við brjóst sér. Samt á eitt áhrifamesta ameríska blaðið, er oftast fylgir Repúblikönum að málum, nú varla nógu hörð orð til að for- dæma starfsaðferðir þessara úngmanna og allt þeirra athæfi. Það er New YorkHeraldTribune. í ritstjórnargrein nú skömmu fyrir mánaðamótin ræddi blaðið árásina á Warren og lét þá m. a. svo ummælt: „ÞaS sem gerzt hefur er ein- stætt, en þó ekki nema afleið- ing áhrifa, sem hafa sett blett á þjóðlífið að undanförnu. Fólk hefur verið hvatt til að njósna um nágranna sína. Of oft hefur verið tekið mark á upplýsing- um án tillits til sögumanna eða líkinda.... Það er ekki unnt að reikna út þann skaða, sem einstaklingar hafa orðið fyrir, né meta til fulls þau höft, sem frelsis- og umburðarlyndis- hugsjónin hafa orðið að þola af völdum þessari niðurlægjandi starfsaðferða....“ Og áfram í þessum dúr um þá herra McCarthy, Jenner og kumpána og allt þeirra athæfi. Ekki varð hinn heimsfrægi blaðamaður Walter Lippman ómyrkari í máli, er hann ræddi þessi mál nú um mánaðamótin. Eftir að hafa beinlínis getið árása McCarthys á einstaka hermenn og árásar Jenners á Warren, sagði Lippman: „Við höfum nú gengið eins langt á þessari braut og yfir- leitt cr hægt án þess að stofna í hættu friði og rétti í landinu.“ Lippman varaði þingið við þeim áhrifum, sem það hljóti að hafa, ef það geti ekki haft hemil á þingnefndum sínum og starfs- mönnum þeirra. Greinin er mjög harðorð og þrungin alvarlegum aðvörunum. Fagnáðarefni um Vesturlönd. Þessum skrifum í áhrifamikl- um amerískum blöðum mun al- mennt verða fagnað meðal frjáls- lyndra manna í Evrópu, sem hafa með undrun lesið um aðfarir McCarthys að undanförnu. Þeir munu margir, sem geta tekið undir með Herbert Morrison, brezka jafnaðarmannaforingjan- um, sem lét svo ummælt í sl. viku að starfsaðferðir McCarthy ein- kenndust af „forheimskun og mannvonzku“. Hinn frjálsi heim- ur bíður þess með vaxandi óþreyju að stjórn Bandaríkjanna sjálf slái úr höndum kommúnista það vopn, sem McCarthyisminu í Bandaríkjunum er í baráttu al- þjóðakommúnismans gegn skiln- ingi á þeirri stefnu, sem beztu menn Bandaríkjanna hafa mark- að í alþjóðamálum og enn er leið- arsteinn í utanríkisstefnu þeirra. ljóð um daginn og veginn óstundvísi. Þá safnast skal að samkomum og fundum, við sjáum oftast fáa, bíða og híma, hjá öllum þorra stundvísin er stundum stundargang á eftir réttum tíma. Sumum þykir þessi siður Ijótur, er þó kann stafa af tímaskekkju einni. Kannske er tíminn okkar allt of fljótur og ætti að vera klukkutíma seinni. Að seinka klukkum sízt þó mundi gagna, því sumir mundu halda gamla strikið, það mundi á öllu rími rugling magna, — af rírni er nú sjaldan nógu mikið. En líklegt er, að af því hljótist múður, og eftirlegukindur jarmi og nauði, daginn þann, er dómsins mikli lúður dynur, til að kalla hafra og sauði. Ætla má, þótt af því hlotizt gæti erfiðleikar sælustað að finna, að íslendingar, eftir venju, mæti æðilöngu seinna en nokkrir hinna. DVERGUR.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.