Dagur - 05.05.1954, Qupperneq 1
GERIST ÁSKRIFENDUR!
Sími 1166.
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
áskriíendur!
XXXVU. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 5. maí 1954
22. tbl.
Kvikmyndadísir hjálpa börnum
er m
Nýlega tóku tvær kunnar kvikmyndadísir, Deborah Kerr (t. v.) og
Audrcy Hcpburn, þátt í útvarpsdagsskrá í Bandaríkjunum, er átti
að stuðla að skilningi og meiri framlögum til hamahjálparsjóðs
Sameinuðu þjóðanna. — Myndin sínir dísirnar við hljóðnemann.
Líklegf að radar fyrir flugvélar
verði seffur upp hér í
Líklegt má nú telja, að radar-
tæki, til öryggis fyrir flugvélar,
vcrði sett upp hér í bænum þegar
í sumar.
Eins og áður er greint frá, hef-
ur flugmálastjórnin ákveðið að
koma upp radar á nýja flugvell-
inum við Eyjafjarðarórósa, en
alllangt er þangað til flugvöllur-
inn verður nothæfur. Radarinn
mun hins vegar senn tilbúinn til
afgreið,slu. Af því tilefni kom
hingað laust fyrir helgina síðustu
sérfræðingur frá Decca-verk-
smiðjunum brezku, sem fram-
Jeiða radarinn, Mr. Hansford að
nafni, ásamt Sigfúsi Guðmunds-
syni, öryggismálafulltrúa flug-
málast j órnarinnar.
Vel framkvæmanlegt.
Athuguðu þeir aðstæður til
þess að taka radartæki í notkun
þegar í sumar með því að setja
þau til bráðabirgða upp hér í
bænum. Varð niðurstaða þeirrar
athugunar sú, að ekkert væri því
til fyrirstöðu og kostnaður mundi
ekki mikill. Má því telja líklegt
að horfið verði að því ráði að
koma radar-tækjunum fyrir til
bráðabirgða hér í bænum og auka
þannig öryggi flugsamgangnanna
hingað, en þegar er flugvöllurinn
verður tekin í notkun, verða rad-
artækin flutt þangað, svo ogdoft-
skeytatæki þau, sem hér eru
starfrækt og annar öryggisbún-
aður.
Bretarnir [ickktu ekki
sína eigin gúmmibáta!
Brezka blaðið Fishing News
skýrði nýlega frá því, er brczki
togarinn Hull City bjargaði B
mönnum af vélbátnum Glað fró
Vestmannaeyjum, er togarinn
fann gúmmíbát þeirra á reki
undan Súðurlandi. Segir blað-
ið, að skipstjórinn á brezka
togaranum hafi orðið svo hrif-
inn af „hinum íslenzka
gúmmíbát“ að hann hafi fengið
leyfi til þess að fara með hann
til Bretlands, og áður en skip
hans kom í höfn, hafði hann
símað togaraeigendum og
fiskimannasamtökum og til-
kynnt, að hann mundi kynna
þessa íslenzku nýjung. Hefur
ekki frétzt af sýningunni á
gúmmíbótnum, en e. t. v. hafa
einhverjir Bretar þá komið
auga á þó staðreynd, að
gúmmíbátar þessir — sem
reynzt hafa mjög vel hér við
land — eru brezk framleiðsla.
Akureyrarböm fá sfarf við fisk-
þurrkun og garðrækt í sumar
Vinnuskóli bæjarins tekur á móti 11, 12 og 13
ára börnum til starfs
Ákveðið hefur verið að Vinnu-
skóli Akureyrarbæjar taki til
starfa 20. þ. m. og standi til 20.
september í liaust.
Skólinn tekur á móti 11, 12 og
13 ára börnum og verða verk-
efni þeirra að starfa við fiskþurrk
un og garðrækt. Verður tilhögun
sú, að börnin vinna annan dagirin
við fiskþurrkun, en hinn við
garðrækt.
Garðræktin.
Skólinn leggur til ókeypis
kennara, áhöld, útsæði og áburð.
Áðalfundur Framsóknarfélags
Ákureyrar er annað kvöld
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Akureyrar verður haldinn
í Gildaskála KEA annað kvöld
og hefst kl. 8.30. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf. Auk
þess verður kjörið í fulltrúaróð
félagsins. Skorað er á félags-
menn að fjölmenna á aðal-
fundinn.
i imorgtin
Þak liússins féll, margar síldarnætur
brunnu ennfremur fólksbifreið,
dráttarvél og fleira verðmæti
Mikill eldsvoði varð á Hjalteyri í gærmorgun, er mjölskemma
síldarverksmiðjunnar þar brann að verulegu leyti ásamt verðmæt-
um vélum og síldarnótum, er þar voru geymdar. Var ekki búið að
áætla tjónið í gær, er blaðið átti tal við Hjalteyri, en talið að það
mmidi mikið. Hér er um að ræða næst stærstu mjölskemmu landsins.
— verður börnunum greitt með
væntanlegri uppskeru, allt að 8-
faldri, en það sem fram yfir er,
gengur til Vinnuskólans. Stjórn
skólans mun og aðstoða á allan
hátt við sölu jarðávaxtanna.
Börnunum verður úthlutaður
reitur til matjurtaræktar. Mun
skólinn sjá um útvegun á plönt-
um, en börnin greiði sjálf dnd-
virði þeirra.
Fiskverkunin.
Tekinn verður þveginn saltfisk
ur til sólþurrkunar á fiskgrind-
um á svæði norðan Glerár. Börn-
in,sem þar vinna.mæti þann dag-
inn, sem ekki er unnið við garð-
ræktina, til vinnu við fiskinn. Á-
kveðið er að greiða börnunum
nokkra byrjunargreiðslu á klst.,
en endanlega greitt við skólaslit,
eftír .því sem fiskverkunin gefur
af sér. Þau börn, sem óska eftir
vinnu í skólanum, eru skuldbund
in að vinna jöfnum höndum við
garðrækt og fiskþurrkun.
(Framhald á 7. síðu).
Auk mikilla skemmda á hinni
stóru mjölskemmu, eyðilagðist
fólksbíll, dráttarvél, lítil upp-
mokstursvél, færibönd og all-
margar síldarnætur, líklega 6—7
stk., að því talið er.
Eldur gaus upp um þakið.
Það var um 9 leytið í gærmorg-
un, að verkamenn á Hjalteyri sáu
hvar eldur gaus upp um þak
mjölhússins. Var slökkviliðinu
hér þegar gert aðvart og brá
það skjótt við og ók til Hjalteyrar.
Heimamenn reyndu ~að bjarga
bifreiðum og öðru verðmæti, er
geymt var í húsinu, og tókst þeim
að ná ýmsu út. En eldurinn
breiddist mjög ört út og varð
þakið alelda á skammri stundu.
Þegar slökkvilið Akureyrar kom
á vettvang, var sýnt að þakið
mundi brenna og falla, en reynt
var að verja timburverkstæði,
sem var afþiljað í húsinu, einnig
rannsóknarstofu verksmiðjunnar,
sem einnig var afþiljuð, og tókst
það. En þakið féll og yfirleitt
brann allt, sem brunnið gat,
gluggar, hurðir og annað tréverk.
Mikinn reykjarmökk lagði upp
af húsinu og bar mjög á honum
héðan að sjá um 10 leytið í gær-
moi'gun.
Mun ekki trufla starfrækslu
í sumar.
Veggir mjölhússins, sem er
mikið hús, standa enn, enda
steyptir, en þakið, með 4 burst-
um, brann allt. Er húsið því stór-
skemmt, en þó talið auðvelt að
gera við það og gera nothæft á
ný. Mun bruni þessi því ekki
trufla starfrækslu ve»'ksmiðjunn-
ar í sumar.
Mikil verðmæti brunnu í húsinu.
Sem fyrr segir brunnu þarna
mikil verðmæti, sem geymd voru
í húsinu. Allmargar síldarnætur,
sem flestar munu hafa verið eign
Kveldúlfs, brunnu. Var ' tala
þeirra ekki örugglega kunn í gær,
en þær munu hafa verið a. m. k.
6—7 talsins. Þá brann fólksbif-
reið, eign Stefáns Stefánssonar í
Fagraskógi, dráttarvél, upp-
mokstursvél, færibönd, og auk
þess fleiri verðmæti, en ekki full-
komlega kannað í gær, hver þau
voru. Um eldsupptök var ekki
annað vita en að líklegast var tal-
ið að þau væri frá rafmagni, þótt
ósannað væi'i, en réttarhöld hóf-
ust þegar siðdegis í gær. Um vá-
tryggingar verðmæta í mjölhús-
inu var ekki fullkunnugf. í gær,
en þó talið að einhverjar af síld-
arnótum þeim, er brunnu, hafi
verið óvátryggðar.
Bifreið stoiið - stór-
skemmd
Frá lögregbmni hefur blaðinu
borizt eftirfarandi:
Fágætt óþokkabragð var fram-
ið hér í bænum aðfaranótt sl.
mánudags, 3. þ. m. Vörubifreiðin
A—991, <em stóð læst upp við
Setberg, var tekin og farið með
hana h-mgt suður og upp fyrir
bæ, upp að Miðhúsaklöppum, og
þar ■'tolið úr henni vatnskælin-
um, dynamó og framljósa-kúpl-
um. Framrúður bifreiðarinnar
voru rústmölvaðar og fleira var
átt við farartæki þetta, sem er
dökk-græn G.M.C. vörubifreið.
Skorað er hér með á hvern
þann, sem séð hefur til nefndrar
bifreiðar umrædda nótt eða getur
að öðru leyti gefið einhverjar
upplýsingar um mál þetta, að
hafa strax samband við lögregl-
Fámennt í kröfu-
göngu
L maí
Kalsaveður var hér 1. maí og er
það sennilega aðalástæðan fyrir
því að mjög fámennt var í kröfu-
göngu verkalýðsfélaganna og lítil
þátttaka í útifundl þeirra. Mun
bæjarmenn og lítt hafa langað til
að sjá og heyra kommúnista-
forspi'akka þá, sem raðað var á
ræðumannalista við þessi hátíða-
höld. Tókst kommúnistum nú
sem löngum áður að setja flokks-
stimpil sinn á hátíðahöldin og
eyðileggja þannig áhrif þeirra.