Dagur - 12.05.1954, Síða 11

Dagur - 12.05.1954, Síða 11
Miðvikudaginn 12. maí 1954 DAGUR V Bækur Halldórs Friðjónssonar í æskulýðsheimili templara - Heimsókn til Odense (Framhald af 5. síðu). hljóta allir sanngjarnir menn að dást að því frjálslyndi, sem þarna birtist, að óttaleysinu við árásir hleypidóma og að þeirri viðleitni, sem þarna er til þess að lyfta tákni lýðstjórnarinnar upp úr hversdagsleikanum og skapa því virðulega og uppörvandi um- gjörð. Hugsað heim Fyrir íslendinga er það lær- dómsríkt að skoða ráðhús í borg- um Norðurlandaþjóðanna. Við eigum enn mikið starf að vinna til þess að skapa okkur borgara- legu stjórn umhverfi, sem henni hæfir. Fámenni okkar sker þröng an stakk. Okkar bæir munu seint eignast ráðhús, sem hægt er að jafna til ráðhúsanna í Odense og Aarhus, sem eru þó ekki stór- borgir. En virðulegri umgjörð um hina borgaralegu stjórn en tíðkast í þessu ráðhúsalausa landi er lýðræðisstjórnarfyrirkomulagi okkar öllu hollt að eignast fyrr en seinna. Og íslendingar hafa skilning á þessu og vita, hvernig á að skapa slíkan ramma. Það er eftirtektar- vert og umhugsunarvert, að arkí- tektinn, sem fylgist með dagleg- um framkvæmdum við smíði ráð- hússins í Odense er íslendingur, Kjartan Sigurðsson, frá Eyrar- bakka. Það var því íslenzkur maður, sem ásamt Werner borg- arstjóra og öðrum trúnaðarmönn um, fylgdi okkur um hið veglega hús. Fortíð og nútíð Frá ráðhúsinu var ekið út að byggðasafni Fjónsbúa þar sem sveitabýli og þorpshús eru áminn ing um, að menning og auður landsins eiga rætur í hinni fjónsku mold og langri sögu. í Sortuberjakrá, þar sem svartir raftar bera uppi stráþakið og matur er framborinn í trogum, lyftir Werner borgarstjóri í ný- tízku .iðnaðar- og verzlunarbæ glasi fyrir fslandi og drekkur okkur til í Óðinsmiði. Og litlu síðar er okkur boðið að sjá meira af ökrum, skógum og vötnum þessa hýra lands. H. Sn. í s.l. viku var bókasafn Hall- dórs Friðjónssonar fyrrv. ritstj. flutt frá heimili hans í Lundar- götu í Varðborg og sett þar upp í æskulýðsheimili templara, til afnota fyrir unga fólkið ,er þang- að sækir. Þegar æskulýðsheimilið tók til starfa á s.l. hausti, tilkynnti Hall dór að hann mundi gefa heimil- inu bækur sínar allar, og var þetta höfðingleg gjöf og vottaði áhuga Halldórs fyrir æskulýðs- starfi góðtemplarareglunnar. í safni Halldórs munu vera um 1500 bindi, og er þar margt á- gætra og fágætra bóka, m. a. tímarit og blöð, er hann hefur safnað, fslendingasögur, bækur um þjóðleg fræði, skáldrit, inn- lend og erlend, m. a. verk Strind- bergs og Björnsons o. m. fl. Mikið af safninu er í góðu bandi. 300 bindi frá útgefendum Áður hafði æskulýðsheimilinu borizt um 300 bindi bóka frá ýmsum útgefendum. Má því með sanni segja að æskulýðsheimilinu Mildl hrifning á söng- skemmtun Guðrúnar Símonar Mikil hrifning var meðal áheyr- enda á söngskemmtun Guðrúnar að syngja aukalög. Ungfrú Guð- rún Símonar er nýlega komin heim að afloknu námi á Bi-etlandi og ítalíu og hefur hún tekið mikl- um framförum. Er hún nú ein hin fremsta söngkona landsins. — Söngskemmtunin hér var haldin á vegum Tónlistarfélagsins. hafi orðið gott til bóka á þessu fyrsta starfsári. 3 félög kepptu á skíða- móti UMSE Skíðamót U.M.S.E. fór fram á Dalvík á sumardaginn fyrsta. Veður var hið ákjósanlegasta, en færi nokkuð þungt. Keppendur voru frá þrem félögum, UMF Svarfdæla, UMF Ársól og Skíða- félaginu Væringjar úr Öngul- staðahrepp. Helstu úrslit urðu þessi: SVIG 1. Jón Laxdal Skf.V. 1.30.5 mín. 2. Örlygur Helgas. Skf.V. 1.38.0 3. Broddi Björnss. UMF Ársól 1.39.8 mín. STÓRSVIG 1. Örlygur Helgas. Skf.V. 33.9 sek 2. Friðrik Jónsson Skf.V. 40.2 sek 3. —4. Óttar Björnss. UMF. Ársól 45.2 sek. 3-—4. Helgi Sigfússon Skf.V. 45.2 sek. BRUN 1. Friðrik Jónss. Skf.V. 1.23.0 mín 2. Örlygur Helgas. Skf.V. 1.30.0 3. Jón Laxdal Skf.V. 1.35.0 mín. 10 km. ganga 1. Hörður Jóhannesson Skf. V. 59.55.4 mín. 2. Friðrik Jónss Skf.V. 61.59.0 mí Svigbrautin var um 300 m löng með 25 hliðum, stórsvigsbrautin Svig- og brunbrautir voru í Uísafjalli utan og ofan við Dal- vík og gangan í Ufsadal. Þetta er í annað skifti, sem slík keppni fer fram á vegum U.M.S.E. Sú fyrri var háð í Sprengibrekku ofan Knararbergs í Vaðlaheiði vetur- inn 1952. I.O.O.F. Rbst—21025128V2. I. O. O. F. _ 13651481/2 — MessaS kl. 2 e. h. í Akureyrar- kirkju. F. J. R. Káþólska kapellan (Eyarlands- vegi 26). Lágmessa kl. 10.30 árd. á sunnudag, sem er 4. sunnudag- ur eftir páska. Öllum heimill að- gangur við messur. Guðsþjónustur í Grundarþinga- prestaliöllum: Hólum, sunnudag- inn 23. maí kl. 1.30 e. h., Saurbæ, sama dag kl. 3.30, Grund, hvíta- sunnudag kl. 1.30, ferming, Kaup angi, annan hvítasunnudag kl. 2 e. h., ferming. Fermingarbörn komi til viðtals í Barnaskólann á Laugalandi mánudaginn 17. maí kl. 1. e. h. Rauð ikrossinn. — Gjafir til sjúkraflugvélar: Frá Steinunni, Þóru og Stefáni, til minningar um Steinþór Loftsson kr. 200. — Sig. Sigurðsson kr. 100. — Arnfr. Sig- urðard. kr. 25. — Lilja Randvers- dóttir kr. 100. — H. Jónsd. kr. 10. — G K. S. kr. 10. — N. N. kr. 20. — N. N. kr. 50. — Margeir Stein- grímsson kr. 100. — J. J. kr. 50. — S. B. kr. 100. — Guðrún og Björn kr. 100. — Anna Björnsd. kr. 25. — Kristrún Júlíusd. kr. 50. — Gerður og Jóhannes kr. 100. — Ónefndur kr. 30. — Ó. Kristjánss. kr. 50. — N. N. kr. 100. — E. S. kr. 100. — Margrét Sig.d. kr. 30. — N. N. kr. 100. — Ólafur Sölva- son kr. 100. — Þ. Magnúsd. kr. 10. — G. Gíslason kr. 50. — N. N. kr. 100. — B. Á. kr. 50. — Ó. S. kr. 500. — Sigr. — Árni kr. 100. — E. Sigurðsson kr. 50. — N. N. kr. 50. — N. N. kr. 500. — Árni Magnús- son kr. 100. — Þór. Kr. Eldjárn kr. 200. — Sv. Árnadóttir kr. 100. — N. N. kr. 100. — G. P. kr. 100. — María Jónasd. kr. 50. — Rann- veig Jósefsd. kr. 100. — M. A. kr. 100. — Ónefndur kr. 25. — Sv. Skaftad. kr. 30. — R. J. kr. 10. — H. Sigurðsson kr. 100. — A. B. kr. 1100. — S. Þ. kr. 100. — J. J. kr. 100. — A. Sigmundsd. kr. JjO. — N. N. kr. 50. — R. B. kr. 50. — N. N ,kr. 50. — Bj. Kristj. kr. 50. — A. J. kr. 10. — Þ. Valdimarsson kr. 100. — B. Kristjánsson kr. 50. — Tr. Kristjánsson kr. 100. — S. ísleifsd. kr. 50. — Kærar þakkir. Færeyjakvöld í Zíon. í kvöld kl. 8.30 verour sýnd úrvaís lit- mynd frá Færeyjum. Færeying- urinn majór Hilmar Andresen skýrir myndirnar. Lautinant Kristján Jörundsson o. fl. for- ingjar og hermenn aðstoða, — Strengjasveit. — Allir velkomnir! Sunnudaginn 16. maí kl. 2 e. h. sunnudagaskóli, kl. 4 e. h. úti- samkoma, kl. 8.30 e. h. samkoma. Majór Hilmar Andresen stjórnar. Velkomin. Frá Tónlistarfélagi Akureyrar. 2. tónleikar fyrir styrktarfélaga og gesti þeirra á þessu starfsári verða sennilega 19. eða 20. maí. Kemur þá hingað franskur fiðlusnillingur og með honum píanóleikari og hafa hér einn konsert á vegum félagsins. — Ennþá er hægt að taka á móti nokkrum styrktarfélögum og ættu tónlistarunnendur að athuga það í tíma, þar sem nú er næstum fullskipað í áheyrendasal. Þórsfélagar! Æfingar eru þegar hafnar. Æfingaskrá verður af- hent í verzlun Péturs og Valdi- mars. Námskeið í frjálsum íþrótt- um fyrir drengi hefst bráðlega. Kennari Tryggvi Þorsteinsson. Kirkjubrúðkaup. Þann 10. máí sl. voru gefin saman í hjónaband af séra Pétri Sigurgeirssyni, ung- frú Fjóla Gunnarsdóttir og Pét- ur Valdimarsosn, vélvirkjanemi á Odda. Heimili þeirra er að Ása- byggð 2, Akureyri. Hjónavígslan fór fram í Akureyrarkirkju. Frá NLFA. Rúgbrauð úr ný- möluðum rúgi geta félagsmenn fengið keypt í Vöruhúsinu h.f. Mæðradagurinn er n.k. sunnu- dag. Mæðrablóm verða seld á götunum allan daginn og blóma- búðirnar verða opnar frá kl. 9 f. h. til 2 e. h. og þar seld blóm til ágóða fyrir málefnið. I. O. G. T. Stúkan Brynja. — Fundur í Skjaldborg n.k. mánu- dag á venjulegum tíma. Innsetn- ing embættismanna Kosningar fulltrúa á umdæmisstúkuþing og stórstúkuþing. Skýrsla forstjóra Skjaldborgarbíós. Kosið í húsráð. Þar sem þetta verður sennilega síðasti fundur fyrir sumarfrí, er fastlega skorað á félagana að mæta. Á. Símonar, í Nýja-Bíó i sl. viku. | 550 m löng með 15 hliðum og Var húsfyllir og var ungfrúnni | brunbrautin um 1100 m löng. forkunnar vel fagnað og varð hún ' Mótsstj. var Hermann Sigtryggss. i 4 £ 4 £ I I I £ I I I I i £ 4 £ 1 I- 4 I 4 1 4 t V,c 4 4 FORSETI fSLANDS sextugur. (Framhald af 7. síðu). um sínum unnið við sjávarútveg og» landbúnað, síðar verið kennari, fræðslumálastjóri, bankastjóri og ráðherra, eins og hér að framan er rakið. Margir skoruðu því á hann að bjóða sig fram sem forsetaefni, og varð hann við áskorun þeirra. En ekki náði hann kosningu baráttu- laust. Stjórnir tveggja langstærstu stjórnmálaflokka landsins beittu sér gegn kosningu hans. Og stærstu og útbreiddustu blöð þessara flokka hófu sína stjórnmálastórskotahríð. Fylgismenn Ásgeirs Ásgeirssonar gáfu út 7 nr. af litlu blaði, er nefnt var „Forsetakjör“. Það sem ein- kenndi það blað var prúðmennska í rithætti svo mikil, að aldrei var sagt neitt meiðandi orð í garð mót- kandídata Ásgeirs Ásgeirssonar, er buðu sig fram sem forsetaefni. Ekk- ert slíkt leyfði Ásgeir Ásgeirsson stuðningsblaði sínu. Þar sem Ásgeir Ásgeirsson var mest þekktur, hafði hann eindregnast fylgi. Og sú stétt þjóðarinnar, sem hafði haft mest samskipti við hann og þekkti hann allra stétta bezt, kennarastéttin, fylgdi honum nær óskipt. Og Ásgeir Ásgeirsson vann sigur og er því nú forseti íslands. íslandsóhamingju verður ekki ævirilega allt að vopni. Nú var hamingjan íslandi hliðholl, Það var lífvörður sveinsins frá Kóranesi, er eg hefi minnzt á hér að framan, sem sá um, að svo varð. Herra Ásgeir Ásgeirsson hefur nú um nær tvö ár verið forseti íslands. Þjóðin virðir hann og treystir hon- um. Samskipti hans við Alþingi og ríkisstjórn hafa verið góð. Förin til Norðurlanda, sem for- setahjónin eru nú nýlega komin úr, virðist eftir öllum fregnum að dæma hafa verið óslitin sigurför. Erlend blöð dá þau. Sennilega hefur ísland og íslenzk menning aldrei verið bet- ur kynnt en með þessari för forseta- hjónanna og í sambandi við hana. Og ísland á vonandi eftir að hafa mik- inn gróða af þessari landkynnirigu. Á morgun er forseti vor, herra Ásgeir Ásgeirsson, sextugur að aldri. Þá munu hugir Islendinga leita til Béssastaða á Álftanesi. Fyrr á öld- um sátu þar æðstu fulltrúar hins erlenda konungsvalds. Þá voru Bessastaðir ekki sveipaðir góðhug né velvild íslendinga, heldur svört- um skýjum uggs og ótta. En nú eru þau ský horfin, og bjart er nú yfir Bessastöðum. , Herra Ásgeir Ásgeirsson er enn á góðum aldri og á vonandi enn eftir að skapa merkilegan sögukafla ásamt þjóð sinni. Hjartanlegar árnaðaróskir munu íslendingar senda forseta sínum á þessum merkisdegi * ævi hans, með þeirri bæn og von, að hann megi enn lengi lifa og starfa í þjónustu þjóðar sinnar. Þorsteinn M. Jónsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.