Dagur - 30.06.1954, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 30. júní 1954
„Og tíminn er kominn að takast í hendur"
Ræða Þorsteins M. Jónssonar, forseta bæjarstj.,
r
flutt í Lystigarðinum við komu forseta Islands
til Akureyrar
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson! Forsetafrú, Dóra
Þórhallsdóttir!
Velkomin til Akureyrar!
Hjartanlega velkomin!
Akureyringar fagna komu
ykkar!
Heiðruðu áheyrendur!
Skáldið Einar Benediktsson
segir meðal annars í aldamóta-
kvaeði sínu:
„Orka með dyggð reisti bæi og
byggð,
hver búi að sínu með
föðurlandstryggð.
Frelsi og ljós yfir landsins
strendur,
ei lausung né tálsnörur hálfleiks
og prjáls.
Því menning og eining, er öllu
ljær hagnað
með einstaklingsmenntun, sem
þjóðinni er gagn að
og frelsi þarf táps móti tæling
og lygð,
ei trúgirni á landsins féndur.
Þá verður vor móðir og fóstra
frjáls,
er fjöldinn í þjóðinni nýtur
sín sjálfs.
Er kraftarnir safnast og
sundrungin jafnast
í samhuga fylgi þess almenna
máls.
Og tíminn er kominn að takast
í hendur,
og tengja það samband,
er stendur.“
Vér Islendingar eigum senn
ellefu hundruð ára sögu. Sú saga
er saga um sigra og ósigra. En
það er í raun og veru ekkert sér-
kennilegt við sögu íslendinga, því
að svo er um sögu allra þjóða og
flestra manna.
Síðustu hundrað árin er saga
þjóðar vorrar saga um sigurvinn-
inga, sem þó hafa orðið lang-
stærstir seinustu áratugina. Á
þessum tíma hefur velmegun
sigrað fátæktina, trú á landið og
gæði þess og trú þjóðarinnar á
mátt sinn og megin hefur sigrað
trúleysið. Frá því að vera dönsk
hjálenda hefur sá sigur unnizt að
verða fullvalda ríki, og loks hin
síðustu 10 árin, þá hefur hér ríkt
innlendur þjóðhöfðingi í stað er-
lends þjóðhöfðingja, er þjóðin
hafði lotið í margar aldir.
í upphafi vega, er íslenzk þjóð
verður til, þegar ríki er stofnað í
landi voru, þá vildi þjóðin engum
þjóðhöfðingja lúta, er gæti skatt-
lagt hana eða kvatt hana til her-
þjónustu og herferða. Landnáms-
mennirnir og synir þeirra, er
stofnuðu hið forna íslenzka þjóð-
veldi, vildu stjórna sér sjálfir.
Þeir höfðu verið sjálfræðinu van-
ir og sjálfstæðir vildu þeir vera.
En þeir voru það vitrir og lífs-
reyndir, að þeir vissu, að lög varð
að setja og lögum varð að hlýða,
svo að líft yrði í landinu. Og lög-
réttan kaus mann til þriggjá ára
í senn, er var hin lifandi lögbók
landsmanna. Hann var jafnan sá
maður, er Alþingi og þjóðin í
heild taldi öruggt að vissi, hvað
lög væri og segði í þeim efnum
jafnan fullan sannleika. Þetta var
hinn svokallaði lögsögumaður. Á
blómatíma hins forna þjóðveldis
nutu nær allir lögsögumennirnir
þess trausts, að þeir voru endur-
kosnir meðan heilsa þeirra og
aldur entist. Það má segja, að
starf lögsögumannsins væri að
vera samvizka þjóðarinnar. Og
áður en íslenzk lög voru skrifuð,
var hann sannleikskyndill þjóð-
félagsins. Og að þessu leyti var
hann þjóðhöfðingi, þótt hann
væri ekki kallaður það, og verk-
svið hans væri að mörgu leyti
annað en þeirra manna, er bera
þjóðhöfðingjatitil. En þessir fornu
þjóðhöfðingjar vorir, er eg vil
svo nefna, unnu margir þjóðinni
ómetanleg störf ,er mörkuðu
stefnu hennar í löggjöf, trú og
menningu um langt skeið. Nöfn
margra þeirra munu enn um óra-
langa framtíð geymast í minningu
þjóðarinnar og bera glæsibrag í
sogú hénnar.'
En er þjóðin gengur á hönd er-
lendum þjóðhöfðingja með kon-
ungstitli, þá verða hin miklu
þáttaskil í sögu hennar, er valda
því, að afkomu hennar og menn-
ingu hnignar um aldir, þar til
hún um skeið er nær.dauða kom-
in. Hinir erlendu konungar voru
ekki samvizka þjóðarinnar, sann-
leikskyndlar né leiðbeinendur,
eins og lögsögumennirnir flestir
höfðu verið á þjóðveldisöld, en
þriggja hinna seinustu munu þó
íslendingar jafnan minnast með
hlýhug. Alþjóð íslands hafði lítið
af flestum konungum sínum að
segja. En á Bessastöðum sátu um-
boðsmenn konunganna um langt
skeið, er innheimtu skatta,
studdu flestir danska kaup-
menn á einokunaröldum í
féflettingu almúgans og lögðu
köll og kvaðir á íbúa byggðanna
við sunnanverðan Faxaflóa. í
þann tíð þótti bezt að búa sem
fjærst Bessastöðum og hafa sem
minnst af höfðingjum þaðan
að segja.
En fyrir 10 árum verða enn
mikil þáttaskil í sögu vorri.
Bessastaðir eru gerðir að bústað
hins fyrsta forseta vors, herra
Sveins Björnssonar, og þar með
var ákveðið, að Bessastaðir yrðu
í framtíð bústaður forseta íslands.
Og frá þeim tíma eru Bessastaðir
tignasta heimili landsins. Nú er
að myndast sú málvenja að segja
„heim að Bessastöðum“, líkt og
var hér á Norðurlandi eftir að
biskupsstóll var settur á Hólum,
að segja „heim að Hólum“. Þá
voru Hólar mest virta og fjölsótt-
Þorsteinn M. Jónsson,
forseti bæjarstjórnar.
asta heimili Norðurlands. Nú eru
Bessastaðir tignasta, ástsælasta
og fjölsóttasta heimili alls íslands.
Þangað sækja margir íslendingar
og margt erlendra manna frá
ýmsum þjóðum. Þar er íslenzk
þjóð, íslenzk gestrisni og islenzk
menning kynnt með ágætum.
„Timinn er kominn að takast í
hendur
og tengja það samband, er
stendur".
Það er talið svo, að forsetaem-
bættinu fylgi ekki mikil völd
fremur en lögsögumannanna á
voru forna þjóðveldistímabili. En
eins og hinir valdalausu lögsögu-
menn hins forna þjóðveldis vors
höfðú” m’árg’ir' feikna mikil áhrif
til .góðs fyrir þjóðféíagið,.SYO ,sem
að setja niður innlendan ófrið og
bjarga Alþingi úr ógöngum, eins
og Þorgeir Ljósvetningagoði
gerði árið 1000, þá mun forsetum
vorum auðnast að tengja saman
andstæð öfl þjóðarinnar, þegar
mikið liggur við. Það var sundr-
ung þjóðarinnar og eiginhags-
munabarátta nokkurra höfðingja,
er eyðilagði fyrst og fremst vort
forna þjóðveldi. En saga vor
sannar, að þótt vér séum örlítil
þjóð, þá getum vér mikið, þegar
vér erum samtaka.
íslendingar munu jafnan velja
þann forseta, er þeir treysta bezt
til þess að sameina sundraða
krafta þjóðarinnar, og til þess að
vera samvizka hennar og sann-
leikskyndill, og til þess að vinna
henni traust og álit meðal ann-
arra þjóða. Hinir tveir forsetar,
er þjóðin hefur valið á þessum
fyrsta áratug lýðveldis vors, hafa
ekki náð kosningu vegna fylgis
neins sérstaks flokks, heldur af
því, að þjóðin hefur álitið, að þeir
væru báðir hafnir yfir þröng
flokkasjónarmið, og treyst þeim
báðum til þess að vera samein
andi tengiliðir til þess að þjóðin
geti gert þau átök, lyft þeim
Grettistökum í menningarbaráttu
sinni, sem hún ræður ekki við,
nema hún standi sameinuð.
„Því menning og eining, sem öllu
ljær hagnáð
með einstaklingsmenntun, sem
þjóðinni er gagn að;
og frelsi þarf táps móti tæling og
lygð,
ei trúgirni á landsins féndur.“
Tilvera þjóðar vorrar hlýtur í
framtíð sem í fortíð að grundvall-
ast á menntun og menningu. Vér
værum ekki lengur til sem sjálf-
stæð þjóð, ef foi'feður vorir á
hinni fornu þjóðveldisöld, hefðu
ekki skráð bókmenntir á móður-
máli sínu, sem stóðu framar
flestu, er skráð var í öðrum lönd-
um Evrópu á þeim tíma. Þeim er
Dað að þakka, að þjóðin hefur
varðveitt mál sitt. Tungunni og
fornbókmenntunum eigum vér
^að að þakka, að vér erum enn
til sem sérstök þjóð,og getummeð
^essu tvennu sannað þýðingu og
réttmæti tilveru vorrar sem sjálf-
stæðrar þjóðarf Menntun og
menning er grundvöllur góðrar,
efnalegrar afkomu og álits á með-
al annarra þjóða, er við oss
skipta. Og eg er þess fullviss, að
fáir íslendingar skilja þetta betur
en forseti vor. Um skeið var hr.
Ásgeir Ásgeirsson forstjóri ís-
lenzkra skólamála, og eg held, að
eg segi ekki ofmikið, þótt eg segi,
að öll íslenzka kennarastéttin
dáði hann og virti. Hann mun
manna bezt skilja, að öll þjóðin,
hvaða stétt sem er ,nýtur sín þeim
mun betur, sem hún er betur
mennt.
Forseti vor er ekki háður „trú-
girni á landsins féndur“. Hann
trúir á mátt menningarinnar.
Hann trúir á ljósið í tilverunni,
en ekki á myrkrið. Hann treystir
frelsinu, stjórnarfarslegu frelsi
þjóðarinnar, frelsi hvers ein-
staklings og jafnrétti allra manna,
frelsi í hugsun og athöfn, frelsi
sem aflgjafa táps og þreks og sem
sé öruggasta vörnin „gegn tæl-
ing og lygð“.
Eg gat þess áðan, að íslenzk
þjóð og íslenzk menning væri
með ágætum kynnt á Bessastöð
um. En þar er ekki forsetinn einn
að verki, hans ágæta kona, frú
Dóra Þórhallsdóttir, er þar hans
jafnoki.
Hr. Ásgeir Ásgeirsson hefur
jafnan verið hamingjumaður.
Þjóðhöfðingi getur ekki verið
hamingjusamur, nema þjóð hans
sé það líka. Herra Ásgeir Ás-
geirsson hefur að vísu ekki enn
verið forseti nema tvö ár. En
þessi tvö ár hafa verið íslending-
um hagsæl. 'Veðrátta ein hin
bezta, er gamlir menn muna eftir,
grasspretta góð og fiskgengd vax-
andi. Og á þessum árum hefur
þjóðin hafið mestu mannvirki,
sem ráðizt hefur verið í hér á
landi og lokið við önnur. Bjart
sýni þjóðarinnar eykst, enda er
hagur hennar góður og fátækt
minni en í flestum öðrum lönd-
um. Hamingjan hefur því enn
fylgt forseta vorum. Og eg bið
og vona, að mikil hamingja fylgi
jafnan hér eftir sem hingað til
honum og frú hans, Dóru Þór-
hallsdóttur, og að þeim auðnist á
örlagastundum að sameina krafta
þjóðarinnar og efla föðurlands-
tryggð hennar. Eg efast ekki um
að á þessum tæpum tveim árum
frá því að herra Ásgeir Ásgeirs
son var kosinn forseti, þá hafi
þeim hjónum auðnazt að auka
virðingu þjóðarinnar út á við.
Það hafa þau gert heima á Bessa-
stöðum og með heimsókn sinni til
Norðurlanda nú fyrir skemmstu.
Sennilega er ferð þeirra til
Norðurlanda ein bezta landkynn-
ing íslendinga.
Flestir yðar áheyrenda munu
kannast við hina rómversku sögn
um Júlíus Cæsar, er hann fékk
fiskimann á Grikklandsströnd til
oess að flytja sig á bátkænu yfir
Adríahaf. En fiskimaðurinn
jekkti ekki Cæsar. Storm gerði á
hafinu og fiskimanninum þótti
tvísýnt um lífið, en Cæsar sagði
við hann: „Áfram, kunningi, og
vertu óhræddur, þú hefur Cæsar
og hamingju hans innanborðs."
Það má segja, að þjóðfélag vort
sé sem ein lítil bátkæna í hlutfalli
við stórt hafskip eða bryndreka,
er það er borið saman við flestar
aðrar þjóðir, og að oss sé meiri
hætta búin en nær öllum öðrum
þjóðum vegna smæðar vorrar. En
þótt nú séu viðsjórverðir tímar í
heiminum, þá getum vér huggað
oss við það, að vér höfum innan-
borðs á þjóðarfleyinu herra Ás-
geir Ásgeirsson, og frú Dóru Þór-
hallsdóttur og hamingju þeirra.
„Frelsi og ljós yfir landsins
strendur“.
Hlýjan og ljósið, sem fylgir
ykkur, þið ágætu forsetahjón,
ylja hugi allra, sem kynnast ykk-
ur. Eg þakka ykkur ástsamlega
fýrir komu ykkar hingað til Ak-
ureyrar, og eg hygg, að mér sé
óhætt að flytja það þakklæti frá
öllum bæjarbúum. Og vér von-
um, að guð og gæfa og allar
heilkídísir lands vors og þjóðar.
fylgi ykkur og verndi ykkur hér
eftii' eins og hingað til.
Bið alla viðstadda að hrópa fer-
•: t
falt húrra fyrir forseta vorurp, hr.
Ásgeiri Ásgeirssyni, og frú hans,
Dóru Þórhallsdóttur.
Þau lengi lifi!
Vinnufataefni,
grátt, blátt og grænt.
Eldhúsgluggatjaldaefni
Taftbútar
ÁSBYRGI h.f.
Dælu á vélsturtur
vil eg kaupa.
hidriði Sigmundsson,
Stefnir s.f.
Sími 1218.
Til sölu
Svefnpoki og vinddýna vel
með farið.
Afgr. vísar á.
Bifreið til sölu
Chevrolet vörubifreið með
6 manna húsi og körfu. Bif-
reiðin er í mjög góðu
standi. Hagkvæmir greiðslu-
skilmálar. — Upplýsingar í
síma 1105 Ak. og hjá eig-
andanum Kára Leifssyni,
Höfðavegi 11, Húsavík.