Dagur - 22.06.1955, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 22. júní 1955
DAGUR
S
Ameríkubréf frá Snorra Sigfússyni:
Mikil náftúrufegurð í Josemite-þjóðgarðinum -
Fiskiræktarstarfsemi Kaliforníumanna - Einnig
hér vestur frá eru kaupfélögin merkar menn-
ingaslofnanir - Athyglisverð sýning um holl-
ustuhætti - Með íslendingum í Kaliforníu
Hér austur og suður í Sierra-
Nevadaíjölliuium, 320 kro. frá
Berkeley, er eitt hið mesta nátt-
úruundur. Þar skerst þröngur dal
ur inn í granitfjöllin og eftir hon-
um beljar allstór á. Allur er dal-
urinn viði vaxinn og sums staðar
stórvöxnum skógi. En sjálfur dal-
botninn er þó það sem dregur þang
að þúsundir manna víðsvegar að,
þetta nefndur þjóðgarður, Jose-
mite, þjóðgarðurinn, og er þar stöð
ugt mannaös. Um sumar helgar
eru þar um 40 þús. manns. Þessi
dalur liggur á mikilli hásléttu og
er dalbotninn um 4000 fet yfir
sjó. — Þar er nokkurt sléttlendi,
þar sem hótel og svefnskálar
standa á og innst inni er stöðu-
vatn, ekki stórt en fallegt, svipað
og í Ásbvrgi, og við það er bundin
mikil fiskirækt. — En það sem
þarna vekur alla eftirtekt og und-
ur eru hinar þverhnýptu granít-
blokkir, sem rísa svo að segja lóð-
rétt og sumar alveg lóðrétt frá
botni dalsins og eru geysiháar,
Þetta gráhvíta granitberg er sums
staðar um 4800 feta hátt yfir dal-
botninum. Og þarna fram af á ein-
um stað steypist all vatnsmikill
foss í 2 föllum, og er efra fallið
yfir'f1000 feta hátt, en bæði föllin
með millibili, þar sem vatnið llæð-
jr í strangri. bunu, munu vera um
4000 feta há. Eru þá sjálfir Nigara-
fossarnir ekki nema brot af þeirri
hæð, en auðv. vatnsmeiri. Þessi
foss þarna er talin þriðji hæsti foss
í heimi — vel fann maður fossúð-
an í 5-600 m. fjarlægð frá fossin-
um.
1 Josemitegarði.
En það sem ekki sízt vekur
furðu Islendinga er að sjá þetta
mikla granitberg viði vaxið hér og
þar. Hvar sem einhver skáhalli var
á berginu, hvar sem lítil sylla
myndaðist eða hola fannst, þar
hafði gróðurinn slegið rótum. Því
var bergið víða grænflekkótt. og
sums staðar há tré, sem eins og
hanga fiaman í fluginu.
— Þarna á sléttunni í dalbotnin-
um er allstórt hótel, og mun vera
þar dýr vistin. En þar eru líka
mikill fjöldi tjaldhúsa, ágætai vist-
arverur með góðum rúmum, og er
gisting þar ódýr flesta mánuði árs-
ins. Og svo er hægt að fá fremur
ódýran mat á matsölustað, sem
þarna er líka.
Uppúr dalnum ei farið í nokkr-
um krókum, ekki kröppum, og þarf
ekki að taka fram að allir vegir eru
þarna líka malbikaðir og ágætir.
Kemst maður þannig í 8000 feta
hæð fram á bergbrúnina á einum
stað, og ætla ég að það muni flest-
um ógleymanleg sjón að sjá niður
af þessu hengiflugi, þar sem bíl-
arnir sýnast eins og smá mýs á
yeginum, Þarna uppi var snjór í
30 stiga hita og höfðu vegir \erið
nýmokaðir. En lengra inn til lands-
ins gnæfa við fannkrýnd fjöll
miklu stærri en þessi dalur, sem
ég var að lýsa, eða eins og stór
sýsla heima um 75-80 km. frá au.
til v. En í þessu dalverpi fengum
við að líta eitt stærsta tré í heimi.
Þarna er að vísu allstaðar stór-
vaxinn rauðviðarskógur og trén
feikna stór, sum svipuð á stærð
eins og þau, sem ég sá í Muir garð-
inum urc daginn. En þarna ber þó
eitt tré af öllum, sem nefnt er al-
mennt ,,risinn“ og sagt mesta tré
í heimi. Það er ekki mjög hátt,
ekki nema 209 fet, en í þvermál
er stofninn 37,7 fet, og hugsa ég
að 15-20 menn þurfi til að faðma
hann! Og neðsta greinin er 6 fet
í þvermál. Aldur risans er víst um
4000 ár, ef menn þá geta reiknað
það út En sagt er mér að af slíku
tré, væri hægt að reisa um 40
hús allstór, en ekki veit ég nema
það kunni að vera ágizkun.
Klak vatnafiska.
En þegar maður horfir á bílana
aka í gegnum þesi tré þarna. þá
stendur maður steinilostinn yfir
þessum ósköpum. Og þegar við ók-
um frá þessum' undrum náttúrunn-
ar, kom mér í hug crð skáldsins,
eins og þegar ég hefi staðið frammi
fyrir ægifegurð ýmissa staða heima
á Islandi, þótt öðruvísi sé — „Þú
ert mikill hrópa ég hátt himna guð,
ég sé þinn mátt. Fyrir þinni hægri
hönd hnigur auðmjúk í duftið mín
önd.“
Eg minntist áðán á silungaklak-
ið við vatnið í botni dalsins. Það
er mikil klakstöð, sem Califoiníu-
ríkið rekur þár. Þar synda billjónir
seyða í kerum, allt frá agnarögn-
inni upp í silunga um 2 fet á
lengd. 900 þús smáseyða og 50
þús. stórum silungum er sleppt í
ár og vötn á hverju ári frá þess-
ari stöð. I 5000 vötn og ár, sem
eru samt. 25 þús. mílur á lengd,
þ. e. Californíuámar, er sleppt 18
millj. fiska árlega. Allan, eða a. m.
k. mestan kostnað við þetta upp-
eldi allt, bera þeir sem fá leyfi til
að veiða, fara með stöng í árnar,
en þeir verða að greiða 3 dali á
ári, hver og einn. Þannig em þeir,
sem fiskinn veiða, látnir borga
þennan brúsa.
1 kaupfélagsbúð.
— Hérna í Berkeley er kaupfél-
ag, stærsta matvælabúðin, stofnuð
af Finnum, var sinátt fyrst sem
líklegt má þykja, en stækk ar óð-
fluga. Þangað hefi ég haft ánægju
af að koma. Búðin er geysistór
sjálfsafgreiðsla, og gengur allt
fljótt og vel og finnst mér ótrú-
lega fátt fólk vinna að afgreiðsl-
unni, sem er að vísu aðeins að
pakka vöruna þegar kaupandinn
kemur með sinn vagn, og leikna
út verðið. Ég sagði matvælabúð,
en þar er líka selt margt annað, t.
d. pappírsvörur og bækur. I einu
horninu er smá kaffisala, og geta
menn fengið sér þar kaffisopa eða
mjólk. Og í öðru homi er leik-
stofa fyrir böm, sem húsfreyjurn-
ar verða að hafa með sér. Er þar
sérstök gæzlukona sem leikur við
börnin. svo að mæðurnar geta
verzlað áhyggjulausar þess vegna
Áhrifarík og frumleg sýning,
Og kaupfél. vill vinna menningar-
starf hér se mannars staðar og
kenna fólkinu að lifa heilbrigðu
lífi og borða holla fæðu. Þarna
eru að vísu margar auglýsingar og
ábendingar í orðum, en áhrifa-
mest mun þó ein þeirra, enda er
það sú merkilegasta auglýsing. sem
ég hefi séð í verzlunarbúð á æf-
inn. Hún er fólgin í því að sýna
fólkinu Tottur, sem þarna eru í
búrum og til sýnis. Þær eru 2
sinar í hverju búri og eru teknar
úr sömu fjölskyldunni, svo að kost-
ir eða ókostir erfða skyldu vera
hinir sömu. En þær eru aldar á
ólíkri fæðu. Þær sem eru í öðru
búrinu fá eingöngu að eta brauð
úr hvitu hveiti, ýmiskonar sælgæt-
ismuðling, mayónes, pikles o s.
frv. og svo fá þær að drekka coca-
cola, og ennfr. fá þær talsvert af
gulrótum. I hinu búrinu fá þær
brauð úr heilhveiti, harðsoðin egg,
græn salatblöð og gulrætur, og að
drekka mjólk. Og bæði búrin fá
svipað magn af þessu (þyngd). En
hér verður mikill munur á þroska-
ferli. Blasa þarna við allra augum
þau sannindi, sem ekki geta orðið
rengd, að þær sem átu hvíta hv.
sælgætið og drukku coka-cola, eru
horaðar, smáar og ótútlegar á all
an hátt en hinar búsrnar og sælleg-
ar. Ég gæti trúað því að þessi
auglýsing þarna væri áhrifameiri
en margar bækur og mikið lesmál
um þessa hluti. Þarna er ljóslif-
andi sönnun þess hvers virði það
er fyrir ungviði allt, ekki síður
ménn en dýr, og raunar alla menn
á öllum aldri, að lifa á hollri fæðu.
Og ég verð að segja það, að mér
flaug í hug sumt skólafólkið okkar,
sem í stundarfríunum hangir við
sælgætisbúðirnar drekkandi coca-
cola og etandi sætabrauð.
Ungur Islendingur býr hér að
heimavistarskólanum.
A ferð minni til Los Angeles og
borganna þar í kring kom ég til
Long Beach, þar sem oliubrunn'
amir setja svip sinn á stórsvæði
og olíudælurnar stansa aldrei nótt
og dag. — Þar í Long Beach, sem
er rúmar 100 mílur frá landamær-
um Mexico hitti ég ungan Reykvík
ing, sem kom heim í fyrra og söng
fyrir fólkið, og konu hans amer-
íska, sem er ágætur píanisti og
spilaði einnig heima. — Sverrir
heitir hann og cr Runólfsson kaup-
manns í Rvik og Láru Guðmunds-
dóttur frá Lómatjörn. — Er hann
þarna með sjálfstætt fyrirtæki,
sem er í blóma og mun bráðdug-
legur athafnamaður. Eiga þau hjón
mjög fallegt heimili og 3 böni. —
Mér þótti að ýmsu leyti gaman
að tala við þennan unga mann.
Hann unir hag sínum vel, en er þó
mjög með hugan heima, og sagði
mér það að þegar hann býggði sér
nýtt hús, sein ekki yrði langt að
bíða, ætlaði hann a ðhafa eina
stofu alíslenzka, safna í hana öllu
íslenzku, sem hann gæti náð til,
Honum fannst athafnafrelsið hér
hið mesta hnoss, og bar það saman
við viðjarnar heima. Hér tgæi hver
Framhald á 7. síðu).
Héraðsmót Ungmennasambands Eyjaf jarðar
Héraðsmót Ungmennasambands
Eyjafjarðar var haldið að Sól-
garði í Saurbæjarhreppi dagana
18. og 19. júní sl.
Hófst það með undanrásum í
frjálsum íþróttum á leikvellinum á
Melgerðismelum laugardaginn 18.
júní.
Mótið var sett af héraðsstjóran-
um, Valdemar Óskarssyni, kl 2 e.
h. á sunnudag. Var þá orðið fjöl-
menni að Sólgarði og veður hið
ánægjulegasta.
Síðan fór fram guðsþjónusta.
Séra Benjamín Kristjánsson pré-
dikaði. Þá flutti Gísli Jónsson
menntaskólakennari ræðu og
Karlakór Akureyrar söng undir
stjórn Askels Jónssonar.
Hófust þá íþróttirnar aftur á
Melgerðismelum. Þeim stjórnuðu
íþróttakennarar U. M. S. E. þeir
Höskuldur Goði Karlsson og Björn
Daníelsson. Fóru þær vel og skipu-
lega fram.
Veitingar voru allan daginn að
Sólgarði og sáu konur úr U. M. F.
Saurbæjarhrepps um þær. Voru
jær bæði miklar og góðar.
Að síðustu var dansað til kl. 1
um nóttina. Segja má að mót þetta
færi yfirleitt vel fram. Það var
mjög fjölmennt og aðstaða á hinu
nýja félagsheimili í Sólgarði, gerði
sitt til að skapa þá aðstöðu, sem
nauðsynleg er héraðsmótum þess-
ara félagssamtaka.
Úrslit í frjálsum íþróttum, urðu
sem hér segir:
80 m. hlaup kvennai
Helga Þórsdóttir U.M.F. Þorst.
Svarf. 12,1 sek.
LarigstÖkk kvenná:
Helga Þórsdóttir U M. F. Þorst.
Svarf.. 3,91 m.
100 m. hlaup karla:"
íngólfur Jónssori Ú. M. F. Svarf.
12.1 sek.
400 m. hlaup karla:
Stefán Árnason U. M. F. Svarfd.
58.2 sek.
1500 m. hlaup:
Stefán Árnason U. M. F. Svarfd.
4,30,0 mín.
3000 metra hlaup:
Stefán Árnason U. M. F. Svarfd.
9,56,8 mín.
Kúluvarp:
Gestur Guðmundsson U. M. F.
Þorst. Svarf. 13,10 m.
Kringlukast:
Gestur Guðmundsson U. M. F.
Þorst. Svarf. 39,34 m.
Spjótkast:
Ingimar Skjóldal U.M.F. Framt.
44.90 m.
Langstökk:
Arni Magnússon U. M. F. Saur-
bæjarhr. 6,05 m.
Hástökk:
Helgi Valdimarsson U. M. F.
Þorst. Svarf. 1,68 m.
Þrístökk:
Árni Magnússon U. M. F. Saur-
bæjarhr. 13,15 m.
Stangarstökk:
Stefán Árnason U, M. F, Svarf-
dæla 2,75 m.
4x100 m. boðhlaup:
Það vann sveit U. M. F. Möðru-
vallasóknar á 52,1 sek.
Handknattleikur kvenna:
Stúlkur frá Dalvík og Svarfaðar-
dal kepptu við stúlkur úr U. M. F.
Árroðinn. afntefli varð 2 : 2.
Stighæsta félagið á héraðsmót-
inu var U. M. F. Svarfdæls og
hlaut 47 stig og hlaut þar með
farandbikar U. M. S. E. í 4. sinn
Stighæsti einstaklingurinn var
Stefán Árnason U. M. F. Svarfdæla
og hlaut hann 23 stig.
Keppendurnir voru frá 7 ung-
mennafélögum.
Skólaslit Húsmæðra-
skólans á Laugalandi
Húsmæðraskólanum á Lauga-
landi var sagt upp miðvikudaginn
15. júní síðastliðinn að aflokinni
guðsþjónustugerð, er sóknarprest-
urinn, séra Benjamín Kristjánsson
að Laugalandi, flutti. Nokkrir gest-
ir voru viðstaddir.
Sýning var á handavinnu náms-
meyja sunnudaginn 12. júní og
sótti hana að venju mikill fjöldi
manna af Akureyrii og úr ná-
grenni. Var þar margt faguna og
vel gerðra muna. Á þriðjudaginn
fóru námsmeyjar og kennslukonur
skemmtiferð að Hólum í Hjaltadal
og hlutu þar hinar alúðlegust a við-
tökur á heimili skólastjórahjón-
anna. Síðan var staðurinn skoðað-
ur. Á heimleiðinni var skoðað
byggðasafnið í Glaumbæ og komið
við í Húsmæðraskólanum á Löngu-
mýri.
Við skólaslitin gerði forstöðu-
konan, frk. Lena Hallgrímsdóttir,
grein fyrir skólastarfinu á síðast-
liðnum vetri. Alls höfðu 33 náms-
meyjar stundað nám í skólanum í
vetur, en af þeim luku 30 burtfar-
arprófi. Hæsta einkunn hlaut Guð-
rún Elín Klemensdóttir frá Brekku
í Svarfaðardal, 9,09. Fæðiskostn-
áður var tæ'par 15 .krónur ,.á.'da|.
Ennfremur gat forstöðukonan þess,
að enda þótt verið hefði nokkru
kvillasamara í skólanum í vetur en
stundum áður, hefðu riámsmeyj-
arnar stuðlað að því með iðni sinni
og ástundun, prúðmennsku og
glaðværð, að gera skólalífið einkar
ánægjulegt. Verkin sýndu merkin
um það, að þær hefðu ekki setið
auðum höndum. Væri það og enn
brýnni nauðsyn meðal fámennrar
þjóðar, að hver einstaklingur væri
dugandi og gerði skyldu sina, enda
kostaði þjóðin miklu fé til skóla-
bygginga í þeirri von, að svo roætti
verða. Að lokum þakkaði hún
nemendum og kennurum góða
samvinnu og árnaði hinum ungu
húsmæðraefnum allra heilla.
Húsmæðraskólinn var á síðast-
liðnu hausti allur múrhúðaður ut-
an með hvítum marmara og silfur-
bergi og verður væntanlega á þessu
sumri að fullu lokið endurbygg-
ingu hans.
Húsfyllir á leik-
sýiiingum Þjóð-
leikhússflokksins
Leikflokki Þjóðleikhússins, sem
sýnir sjónleikinn „Fædd í gær“ eft-
ir Kanin hér norðanlands um þess-
ar mundir, er hvarvetna ágætlega
fagnað. Hér á Akureyri hefur
flokkurinn haft þrjár sýningar og
hafa öll sæti verið fullskipuð og
sýningunni mjög vel tekið. Aðal-
hlutverk leika: Þóra Friðriksdótt-
ir, Valur Gíslason, Benedikt Árna-
son, Rúrik Haraldsson, Gestur
Pálsson, Regína Þórðardóttir og
Klemenz Jónsson. Leikstjóri er
Indriði Waage.