Dagur - 22.06.1955, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 22. júaí 1955
DAGUR
7
- Ameríkubréf
(Framhald af 5. síðu).
ungur maður brotið sér braut ef
hann ætti'nógan dugnað og nægi-
lega ráðdeild. Talið barst að ýmsu,
m. a. skólaveru hans, sem unglings
í Lnugaskóla. Þar fannst honum
gott að vera, og það taldi hann
hafa gert sér gagn að Verða sjálf-
ur að hugsa um herbergið sitt og
annast ræstingu við og við Mér
þótti gott að heyra þetta, bvi að
það hefur jafnan verið sannfæring
mín, að heimavistarskólar, ekki
sízt unglinga, ættu að venja þegna
sína á þegnskap og umhirðu. Það
væri sjálfsagður liður í þvi upp-
eldi, sem skólanum bæri að veita.
Og einmitt þetta atriði var það,
sem Jónas Jónsson frá Hriflu lagði
mikla áherzlu á þegai hann var að
móta löggjöfina um héraðsskólana
á sinni tið.
Með Gunnari Matthíassyni.
Þau hjónin sýndu mér þá vin-
semd að bjóða heim til sín Is-
lendingum eitt kvöldið, og var
Gunnar Matthíasson frá Akureyri
einn þeirra ásamt frú sinni. Hann
hafði ég raunar hitt áður og litið
heim til hans og verið með honum
mikinn hiuta úr degi. Ég hafði sér-
staka ánægju af því að kynnast
þessum rammísl.heiðursmanni,sem
enginn, er heyrir hann, lætm sér
til hugar koma að hann hafi mælt
að mestu á enska tungu í meira
en hálfa öld. Svo hreimhrein er
íslenskan enn á tungu hans. —
Hann sagði líka, að sá sem einu
sinni hefði lært að tala íslenzku
almeunilega og kynni eitthvað af
stuðluöu máli á þeirri tungu, hann
gæti ekki gleymt henni. — Ljóða
kunnátta væri lífsnauðsyn tung-
unnar. Og svo þuldi Gunnar ljóð
og vísur og .vitnaði til ■ margs. Og
það var ekki'áðeins skáldakvhslóð
föður hans, sem attu í honum tök,
heldur einnig eitt frá nútímanum,
Jón Helgason próf. Mér virtist
hann dá hann, og a. m. k. kunni
hann margt eftir hann. Já, það var
gaman að hitta þennan ramís-
lenzka heimsborgara.
Byggóasafn Kaliforníumanna.
— En eitt þarna vakti elveg
sérstaka eftirtekt mína, fyrir utan
alla nýju barnaskólana á einni
hæð og frímínútna-leiksvæðin, sem
ég dáði var það safn eitt mikið,
sem sj'na á og geyma minninguna
um líf og störf hinna fyrstu manna
í Californíu. — Er það safn
geysi mikið og merkilegt, og minn-
ir vitanlega á söfnin á Bygdö í
Oslo og Skansinum í Stokkhólmi,
en er þó enn meira lifandi sýning
en þau. — Þarna sézt gullnáma og
gullgröftur og öll þau frumstæðu
tæki, sem þessir æfintýramenn
urðu að nota. Þarna eru kofarnir
þeirra, hinar ömurlegu vistarverur,
áhöld þeirra, rúmflet o. s. frv.,
skóla og kirkju, og er þetta allt að
sjálfsögðu flutt víðsvegar að og
safnað þangað saman. Og þarna
sjást þeir í einni stofubálka hússins
sitjandi við peningaspil og er há
upphæð í borði og mikill spenn-
ingur í andlitum þeirra, því að
þarna eru líkön þeirra sitjai.di í
fullri stærð- — Og þó hafði ég
einna mest gaman af að sjá hve
vel þeim hafði tekist að sýna svona
hálfgerða veizlu í þessum stíl í all-
stórri stofu. Sú mynd var Ijóslif-
andi. Þar var stórt borð hlaðið
krásum. húsbóndinn við enda þess
og auðsjáanlega orðinn allsvínkað-
ur, enda stóð flaskan hjá honum.
Aðrir við borðið, og þeir voru nokk
uð margir, ungir og gamlir, voru
hinir glöðustu á svip. Amma gamla
ruggaði sér í ákafa í í ruggustól,
drengur lék sér undir borðinu. en
smátelpa hélt í pils móður sinnar,
sem stóð við eldavélina við gafl
stofunnar. — Þá var sýnt margt
úr lífi Indíána, og voru menn sem
það gerðu.cGamlar kerrur, gamlir
vagnar, gamlar járnbrautir. allt
var þetta liíandi og á hreyfingu.
Og gamla'hételið var fullt af fólki,
sitjandi drefckándi, dansandi, spil-
andi, en dörhur tvær í dansklæð-
um sátu þat-út á bekk til að viðra
sig og kælh, og karlar tv’eir á
öðrum með pipur sínar og virtust
una sér vél. Þetta feikna safn,
þessi mikli „þjóðgarður" fyrri tima,
er sóttur af fjölda manns og tink-
um er skóláfóiki ætlað að sjá hann
og rifja þannig upp sögu landnem-
anna og þeirrar samsteypu, sem
ameríska þjóðin er í dag.
Sn. S.
Tapazt liefur
Waterniaa-lindarpenni í
gormhaldára. Vinsamlega
skilist til F.iríks Signrðsson-
ar. Sími 1262.
Lítil íbíið
til leirfu’ í' Bergi í Glerár-
þorpi. Upplýsingar gefnr
Kjaftan Sigurjónsson.
BARNÁSKYRTUR
og KOT
Verzl. Skemman.
Hiisgögn
2 danskir armstólar til sölu.
Ódýrt.
.--■r Áfgr. vísar á.
Mikið tirval nf fallegu
kjóla og blússuefni
Nylon, perlon, rifs, clirystal
" o. fl.
VtTzl, Skemman.
Fallegar og vandaðar
BLLSSUR
VerzL Skemman.
Sá sem tók
bláan.“idrágtarjakka í mis-
gripujqaað Sólgarði á sunnu-
dagskvöldið^- geri svo vel að
skila Tronum í Hafnarstræti
98 og vitji síns þangað.
Til sölu
Mjögcj^ptt og lítið notað
Biiick -bíltæki. Ennfremur
ný 1 (SkTélga.
■ ■• ••
Afgr. vísar á.
Fordson-seridibíll
TIL- SÓLU.
Afgr. vísar á.
Pípulagningamenn
óskast til Reykjavíkur,
Upplýsingar gefur
Jóhann Ingimarsson.
Sími 1797.
Góð kaupakona
óskast frá 1. júlí til septem-
berloka.
Stefdn Ásgeirssson,
Gautsstöðum.
Sími: Svalbarðseyri.
Ford Junior
Til siilu er Ford-Junior í
ágætií lagi. — Lágt verð.
Uppl. i sima 1108.
Til sölu:
Girðingastaurar tír járni,
hestajárn, ljáir, Ijábakkar.
Trollgarn og nætur yfir
hey. — Er kaupandi að bog-
um úr bretabröggum.
Hallgrimur Jónsson,
járnsmiður.
Trillubátur
Nýlegur 17 feta trillubátur
til sölu, upplýsingar gefur
Baldur Halldórsson,
Hlíðarenda,
sími 02.
B R A G GI
TIL SÖLU.
Afgr. visar á.
Hef keypt fjármark
Þorbjörns Kaprasíussonar:
Sneitt framan, biti aftan
lvægra. Sýlt, tvíbitað fram-
an vinstra.
Brennimark: PPII.
Peter Petersen,
Hrafnabjörgum,
Akureyri.
Kaupakona
óskast um tveggja mánaða
tíma í sumar í nágrenni
Akureyrar.
Afgr. vísar á.
Oska eftir vinnu
á góðu sveitaheimili 2—?>
mánuði.
Gunnar Shaftason,
Brekkugötu 29.
BÆNDUR
TÚN GIRÐING ARNET
Væntanleg með m.s. Fjall-
foss næstu daga.
Verzl. Eyjafjörður li.f.
□ Rún 59556247 — Frl.: Rós.:
Frá kirkjunni. Sökum prtsta-
stefnunnar verða báðir sóknar-
prestarnir fjarverandi fram yfir
næstu helgi. Á mcðan má vitja
vottorða úr kirkjubókum ti! séra
Fúiðriks J. Róifnar, Utskálum,
Glerárþorpi. Sími 1223.
Stúlkur úr Æskulýðsfcl. Akur-
eyrarkirkju! Ykkur er gefinn
kostur á ókeypis dvöl í sumarfríi
á Löngumýrarskólanum í Skaga-
firði með þeim skilmálum að
vinna fyrir fæði og húsnæði. Gefið
ykkur sem fyrst fram við Signu
Hallsdóttur, Þingvallastræti 44,
Akureyri.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Edda
Indriðadóttir, Akureyri, og Helgi
Hallsson, Siglufirði.
Borgargolfið er opið sem hér
segr: Þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 5—7 og 8—10, laugardaga og
sunnudaga kl. 2—7 og 8—10.
Kvenfélagið Framtíð heldur
dansleik í Varðborg sunnud. 26.
júní kl. 9 e. h. Amerísk dans-
hljómsveit spilar.
Agóði rennur í Eelliheimilissjóð.
Hjónaefni. 17. júní opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Þórey Aðal-
steinsdóttir, Klettaborg 1, Akur-
eyri og Árni Björn Árnason,
læknis í Grenivk.
Jón Rögnvaldsson bóndi og
garðyrkjumaður í Fífilgerði varð
sextugur sl. laugardag, 18. þ. m. —
Jón hefur mjög komið við sögu
garðyrkjunnar á Akureyri og á
Norðurlandi, og skógræktin á hauk
í horni þar sem Jón er, enda er
hann skógræktar- og skrúðgarða-
fræðingur að menní. Þau fræði
nam hann í Ameríku. Flestir eldri
garðar á Akureyri og víða annars
staðar hér nyrðra, eru gerðir eftir
hans teikningum og tilsögn. Hefur
hann skrifað bókina Skrúðgarðar
um þetta efni. — Jafnframt tíma-
frekum leiðbeiningastörfum hefur
Jón alltaf rekið búskap að Fífil-
gerði og garðyrkju, og einnig á Ak-
ureyri, og haft þar blómabúðina
Flóru til skamms tíma. — Heima í
Fífilgerði ber hinn stórmerkilegi
garður hans gott vitni um kunnáttu
og hagleik hins fjölfróða ræktunar-
manns. — Nú er Jón Rögnvalds-
son umsjónarmaður Lystigarðsins
á Akureyri og mun það ve! ráðið.
— Jón ber enn engin ellimörk, og
gengur af kappi að hverju verki.
Dagur snedir honum árnaðaróskir
og kveðjur á þessum tímamótum.
Vegna þrengsla verður mik-
ið efni að bíða næsta blaðs, þar á
meðal dagskrá Landsmóts ung-
mennafélaganna.
Aðalfundur Húsmæðraskólafé-
lags Akureyrar verður haldinn í
Húsmæðraskólanum 23. þ. m, kl.
8.30 e. h. Bæjarkonur! Komið og
ræðið skólamálin.
Hjónaefni. 17. júní opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Sigríður Jóns-
dóttir Norðurgötu 38 og Guð-
mundur Magnússon bílayfirbygg-
inganemi Akureyri.
Frá Golfklúbb Akureyrar. Sl.
sunnudag lauk keppninni um
Stigabikarinn sem er forgjafalaus
höggkeppni. Leiknar voru 54 hol-
ur alls. Sigurvegari varð Her-
mann Ingimarsson eftir mjög
harða og tvísýna keppni við Haf-
liða Guðmundsson um fyrsta og
annað sæti. Urslit urðu þessi: 1.
Hermann Ingimarsson 246 högg.
— 2. Hafliði Guðmundsson 249
högg. — 3. Jón Egils 255 högg. —
4. Jakob Gíslason 256 högg.
Hjónaefni. Þann 12. júní birtu
trúlofun sína ungfrú Helga Val-
borg Pétursdóttir stud. art.,
Reynihlíð, og Arnþór Bjönisson
frá Svínárbökkum í Vopnafirði.
Hjá okkur
fáið þið:
Baðker
Klósett
Handlaugar
Hitavatnsdunka,
W C setur
Miðstöðvaofna
Miðstöðvakatla
Stálvaska
Blöndunartæki
Gufukrana
Stoppkrana
Skotventla
Vatnskrana
og margt fleira.
Miðstöðvardeild KEA
Sími 1700.
Garðyrkjuverkfæri:
Garðskæri Kvíslar
Kvistaskæri Plöntugafflar
Grasklippur Plöntuskeiðar
Garðhrífur Laufhrífur
Beðahrífur Áburðarausur
Stunguspaðar Saltskóflur Girðingastrengjarar
Dömuspaðar Stauraborar
Vinkilgafflar Heykvíslar
Arfasköfur Klórur
Véla- og búsáhaldadeild