Dagur - 22.06.1955, Blaðsíða 8
8
Baguk
Miðvikudaginnn 22. júní 1955
Fjölbreytt listsýning Magnúsar og
Barböru í gagnfræðaskólahúsinu
Veggteppi frú Barböru, sem athygli hafa vakið
á Norðurlöndum, eru á sýningunni
Eyfirðingum boðið að sjá styttu
Jóns Arasonar, er sett verður
upp í minningarlundinum í Grýtu
Guðmundur Einarsson frá Miðdal færði Akur-
eyrarbæ málverk að gjöf
Það eru sjö ár liðin síðan Bar-
bara og Maguús Árnason sýndu
hér síðast en þá voru þau nýkoin-
in utan úr Grímsey.
Um þá sýningu sagði eitt af
hinum verðandi þjóðskáldum, að
það væri óþarfi að fara út í Gríms-
ey til að sjá Grímsey, það þyrfti
ekki annað en fara upp í Gagn-
fraeðaskóla! En síðan hafa þau
hjón víða farið, enda ber sýningin
þess vott. Að vísu er meirihluti
myndanna, og þar á meðal öll
stærstu málverkin, landslag frá ís-
landi, svo sem frá Papey, Vest-
mannaeyjum, Fljótshlíð, Rangár-
völlum, Flóa, Reykjavík, Trölla-
fossgljúfri og Hítardal. En auk
þess sjáum vér landslag frá Eng-
landi, Frakklandi, Sviss, Belgíu og
Noregi ber þar mest á skógar-
mynd; en meðal teikninganna eru
einnig myndir frá Hollandi og Sví-
þjóð.
Myndir frá París.
Þau hjónin voru heilt ár í París,
1952—53, til að kynna sér nýjar
stefnur í listinni frá fyrstu hendi
og til að sjá sig um í heiminum.
Ekki getum vér orðið þess varir,
að listamennirnir hafi orðið fyrir
miklum áhrifum af hinum nýju
listastefnum, ef undanskildar eru
tvær „abstrakt“-tilraunir, eins og
Magnús kallar þær, og ein af högg-
myndunum.
Skeggið horfið.
Auk landslagsmyndanna eru hér
nokkrar blómamyndir og bar á
meðal ein frá hinum fræga blóma-
markaði í París. Ekki sjáum vér
nema eina andlitsmynd að þessu
sinni: „Sjálfsmynd 1950“ af lista-
manninum með sitt fræga skegg,
sem þótti bæjarprýði í Reykjavík
á sínum tíma og myndast hafa
þjóðsögur um. Vér veitum því at-
hygli að núna er listamaðurinn vel
rakaður.
Frá Papey.
Mörgum mun verða starsýnt á
„Papamessu undir Hellisbjargi".
Myndin er máluð úti í Papey, á
þeim stað, sem málarinn taldi lík-
legast að paparnir hefðu haldið
messur sínar.
Meðal höggmynda er minnis-
merki yfir Sigurbjörn Sveinsson,
höfund „Bernskunnar“. Af þessari
mynd hefur þegar verið gerð af-
steypa í eir og var hún reist á leiði
skáldsins í Vestmannaeyjum á síð-
astliðnu hausti. Myndin sýnir
Skrifstofa Framsóknarflokksins
hér á Akureyri hefur ekki verið
starfrækt að staðaldri að undan-
förnu, en nú hefur skrifstofan ver-
ið opnuð á ný, í nýju húsnæði. —-
Jafnframt hefur Bjöin Hermanns-
son lögfræðingur trá Yzta-Mói
verið ráðinn erindreki flokksins
norðanlands og er hann þegar tek-
inn til starfa.
dreng sem situr með krosslagða
fætur, niðursokkinn í að lesa í bók.
Listamaðurin nmun hafa haft §on
sinn til fyrirmyndar.
Höggmyndir úr móbergi.
Þrjár af höggmyndunum eru
gerðar úr íslenzku móbergi, hinar
úr gibsi. Þar sjáum vér Salóme tak-
andi dansspor með höfuð Jóhann-
esar á lofti, „Blygðun" og „Salt-
stólpann", sem mun eiga að tákna
konu Lots, „Abstrakt-form“ og
„Steinblóm“. Og loks er brjóstlíkan
af syni listahjónanna, Vífli, þegar
•hann var ársgamall.
Teikningarnar eru flestar gerðar
með skóáburðarvökva, eftir því
sem listamaðurinn tjáir oss, en aðr-
ar með blýanti.
Veggteppi frú Barböru.
Frú Barbara sýnir að þessu
sinni aðeins fimm af veggteppum
sínum. Teppi þessi hafði hún á
sýningu í Þjóðminjasafninu í vor,
eins og kunnugt er,.og vöktu þau
talsverða athygli í Reykjavík, En á
Norðurlöndum hafa þau vakið
miklu meiri athygli — frúin er sem
stendur á skemmtiferð með föður
sínum meðfram Noregsströndum
— því að blaðamenn hafa setið um
hana í Kaupmannahöfn, Osló og
Bergen til að ná tali af henni og
birta myndir af henni og því eina
teppi, sem hún hefur meðferðis.
Hugmynd hennar þykir þar bæði
frumleg og falleg, eins og vér höf-
um haft tækifæri til að sjá af blaða
úrklippum.
Notið tækifærið, Akureyringar.
Sýning þessi mun vera stærsta
og fjölbreyttasta listsýning, sem
nokkurn tíma hefur verið haldin á
Akureyri. Listsýningar eru fátíð
fyrirbæri hér hjá okkur. Notið því
þetta tækifæri, Akureyringar og
aðrir Eyfirðingar, að sjá verk
ágætra listamanna á sýningunni í
Gagnfræðaskólanum. —- Sýningin
verður enn opin í nokkra daga.
Sláttur er ekki almennt hafinn í
Eyjafirði. Fyrstir byrjuðu þeir
bændurnir Eiður Jónsson, Grýtu,
og Vilhjálmur Jóhannesson, Litla-
Hóli. Slóu þeir 14. júní allvel
sprottin tún.
Nakkrir bændur aðrir hafa nú
slegið nýlegar sléttur, sem fyrst
spretta. Góð sprettutíð hefur verið
síðustu daga og fleygir öllum
gróðri fram.
Skrifstofan er til húsa í HAFN-
ARSTRÆTI 95, þar sem áður var
Hótel Goðafoss, og er þar á aðal-
hæð hússins. Símanúmer er 1443.
Skrifstofan er opin daglega kl 10
—12 og 1,30 til 5. Þess er vænst,
að sem flestir Framsóknarflokks-
menn líti inn á skrifstofuna og hafi
samvinnu við Björn Hermannsson
um útbreiðslumál flokksins.
Veiddi 33 punda lax í
Laxá í Aðaldal
y " ---------------------
Ásgeir með laxitm.
Laxveiðin í Laxá í Aðaldal hófst
að vanda 1. júní sl. og hafa til
þessa veiðst um 60 laxar. Laxinn
hefur yfirleitt verið fremur vænn.
Stærsti laxinn til þessa, er 33
punda fiskur, sem Asgeir Krist-
jánsson bifvélavirki á Akureyri
fékk í Kistufíyl í Laxamýrailandi
sl. föstudag. Náði hann laxinum á
land eftir rösklega 5 klst. viður-
eign. Annar stærsti laxinn fékkst á
sunnudaginn, 24 pund, og nokkrri
laxar hafa vegið 16—19 pund.
Tvö knattspyrnulið
keppa hér um helgina
Tvö lið, Víkingur frá Reykjavík
og lið frá Austfjörðum, keppu hér
á laugardag og sunnudag, Víkingur
við A-lið Akureyringa en Austfirð-
ingar við B-lið.
Fjölsóttur fundur í
Húsavík
Húsavík.
Fundur sá í Húsavík, er Her-
mann Jónasson, formaður Fram-
sóknarflokksins, hafði boðað til
fyrra þriðjudag, var fjölsóttur. —
Flutti Hermann snjalla ræðu, er
var ágætlega tekið. Urðu fjörugar
umræður á eftir.
Akfært kringum
Mývatn
í sumar mun verða akfært
kringum Mý.vatn. Veiður unnið að
vegagerð þeirri er á vantar og
mun það gleðja margan ferða-
manninn, sem fram að þessu hefur
orðið að láta sér nægja að leggja
land undir fót til að komast hring-
inn eða bíða betri tíma, sem rnun
nú véra skammt undan í þessu
efni.
Völsungar keppa á
Akureyri
Þriðji flokkur knattspyrnumanna
úr Völsung í Húsavík kom hingað
um síðustu helgi og keppti við 3.
Þessa dagana stendur yfir lista-
verkasýning í Gildaskálanum á
Hótel KEA. Þar sýnir listamað-
urinn, Guðmundur Einarsson frá
Miðdal, 16 olíumálverk, 20 vatns-
litamyndir og að auki st.yttu þá,
sem hann hefur gert af Jóni bisk-
upi Arasyni.
Er þetta frummyndin úr gibsi,
og verður hún send héðan til Dan-
merkur og steypt í málm. Síðan
sett upp í ' minningarlundinum í
Grýtu. Biskup er í fullum skrúða,
með krossmark í hægri hendi, en
bagal í vinstri hendi og mítur á
höfði. Er myndin mikilúðleg.
■ uj:’ "♦ '**■ •: *i | *Wi
Akureyri fær frunnuyndina.
Er sýningin var opnuð, tilkynnti
Guðmundur Jónsson garðyrkju-
maður, form. minningarlunds-
nefndar, að listamaðurinn hefði
heimilað nefndinni að ráðstafa
frummyndinni, og væri nú ákveðið
að gefa Akureyrarbæ hana. En
staðsett skyldi hún í háskóla Norð-
urlands, ef einhvern tíman yrði
stofnaður. Guðmundur frá Miðdal
tilkynnti og, að harm gæfi Akur-
eyrarbæ málverk af Grímsvatna-
gosi 1934, og afhenti hann gjöfina.
Forseti bæjarstjórnar, Þorst. M.
Jónsson, þakkaði gjafimar hlvjum
orðum.
Nokkrar myndir þegar seldar.
Myndirnar, sem Guðmundur frá
Miðdal sýnir að þessu sinni eru
flestar íslenzkar landslagsmynd-
ir, en auk þess nokkrar athyglis-
verðar myndir frá Grænlandi og
frá Lapplandi. En Guðmundur er
ferðagarpur mikill og hefur víða
flokk Þórs og K. A. Fór fyrri leik-
urinn fram á laugardaginn og
kepptu þeir þá við Þór og sigruðu
með 3:2. Síðari leikurinn fór
fram á sunnudaginn. Þá sigruðu
Húsvíkingar K. A. með 1 : 0. Far-
arstjórar austanmanna voru þeir
Freyr Bjarnason og Halldór Ing-
ólfsson.
Brúargerð í S.-Þing.
Lokið er við upppsetningu brú-
ar á Laxá við Núpafossa. Brú þessi.
er ein af þremur brúm er losnuðu
er nýju brýrnar voru gerðar á Laxá
neðar og Mýrarkvísl. Hin nýupp-
setta brú er ekki akfær ennþá,
vegna þess að uppfyllingu vantar
að henni. Onnur gamla brúin var
sett á Reykjadalsá við Akra og sú
þriðja verður sett yfir Flalldórs-
staðaá í Bárðardal.
Nú er farið að vinna við Skjálf-
andafljótsbrúna nýju hjá Stóru-
völlum. Verður þeirri framkvæmd
væntanlega lokið í sumar.
Vegur milli Mánár og
Auðbjargarstaða
Hafin er vinna við vegagerðina
á Tjömesi. Er þar 16 1?m. lcafli
veglaus á milli byggða, Mánár á
Tjörnesi og Auðbjargarstaða í
farið og málað. Nokkrar myndanna
eru þegar seldar. Sýningin verður
opin a. m. k. þessa viku. Er ástæða
til þess fyrir alla, sem þess eiga
kost, að líta inn á Gildaskálann og
sjá málverk Guðmundar og hina
miklu styttu hans af Jóni Arasyni.
r
Lesstofa IsL-ame-
rískafélagsins
opnuð í nýju hús-
næði
Ísl.-ameríska félagið hér á Akur-
eyri hefur starfrækt bókasafn og
lesstofu undanfarin 2 ár. Var
starfsemi þessi til húsa á Hótel
Goðafossi. Nú hefur hún verið flutt
í rýmra og betra húsnæði í Geisla-
götu 5, efstu hæð (hús Kr. Krist-
jánssonar)). Verður lesstofan opn-
uð þar við hátíðlega athöfn á föstu-
dagskvöldið kemur að viðstöddum
félagsmönnum og nokkrum gest-
um, m. a. verður sendiherra Banda-
ríkjanna hér, Mr. John J. Muccio,
viðstaddur. Auk bókalánastarfsemi
verða kvikmyndasýningar í hinni
nýju lesstofu, sem er mjög rúmgóð
og vistleg.
MISLINGAB hei-ja á margar
sveitir Suður-Þingeyjarsýslu um
þessar mundir, svo sem Bárðard.,
Aðaldal og Mývatnssveit. og
valda miklum erfðlekum. Hefur
margt fullorðið fólk tekið veikina.
Kelduhverfi. Verðui í sumar unn-
ið fyrir a. m. k. 300 þús. kr„ sem
veittar voru til þessa verks.
Miklar refaveiðar
Reynihlíð.
Fyrstu túnin í Mývatnssveit
voru slegin í gær, 16 júní. Var það
í Vogum, tún sem liggja í skjóli
innan um hraunin. Yfirleitt eru þó
tún heldur illa sprottin enn sökum
langvarandi þurrka og kulda í vor.
Búið er að liggja á fimm tófu-
grenjum hér og hafa unnist yfir 30
dýr fullorðin og hvolpar.
Grenja leitað
Nöýlega fannst greni rétt utan
við Húsá, lítinn spöl oían við
Bægisá á Þelamörk. Grenjaskyttan
Jóhannes Jóhannesson bóndi á
Vindheimum kom þegar á vett-
vang og skaut læðuna og náði
hvolpunum, en rebbi slapp. Annað
greni fannst á Þverárdal, um 2ja
klukkustunda gang frá Þverá í
Öxnadal. Fór þar eins að læðan
náðist og hvolparnir, en karldýrið
kom aldrei í skotmál.
Leitað hefur verið grenja í ná-
grenni Akureyrar og nú síðast á
Glerárdal, en ekkert fundist.
Skrifsiofa Franrasóknarflokksins á
Ákureyri fekin iil sfarfa á ný
Björn Hemannsson lögfræðingur ráðinn
erindreki flokksins norðanlands
Ýmis tíðindi úr nágrannabyggSum