Dagur - 17.08.1955, Blaðsíða 8
Bagum
Miðvikudaginn 17. ágúst 1955
Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðum
Ríkissjóður sýknaður af kröfu
bílstjóranna í Drífumátinu
Brettingsstaðakirkja
rifin og endurbyggð
í Flatey
Frétzt hafði að verið væri að rífa
kirkjuna á Brettingsstiiðum á Flat-
eyjardal. Af því tilefni sneri blaðið
sér til hreppstjórans í Flatey, Jón-
asar Jónassonar, og spurðist fyrir
tim þetta. Sagðist honutii svo frá, að
rétt væri hernu. En Brettingsstaöa-
kirkja yrði endurreist úti í I'latey.
Væri fyrirhugað að hefja smíði
hennar á næsta vori, cða svo fljótt,
sem auðið væri. Verður luin iiyggð
upj> á austanverðri eynni á fögrum
stað og víðsýnum. Fyrrtim var kirkj-
an í Flatey öldum saman, cn var
síðar flutt að Brettirigsstöðum, cr
þar var fjölmennari sókn en í eynni.
Nú hefur þetta snúizt við. Flatevj-
ardalur er allur í eyði kominn, en
fólki fækkar ekki í Flatcy. Eru þar
nú búsettir um 90 manns. Viröist
því eðlilegt að kirkjan verði aftur
sett á sinn fyrri stað.
Jónas tjáði blaðinu, að afli væri
góður, og róa níu bátar til fiskjar
með handfæri. Tíðin væri með slik-
um ágætum í sumar, að önnur eins
tíð væri ekki í manna minnum, og
heilsufar gott.
Eins og getið hefur verið í blöð-
um sunnanlands, hefur Upplýsinga-
þjónusta Bandaríkjanna hér á landi
að undanförnu haft sýningar á
jiremur fræðslukvikmyndum, sem
fjalla um friðsamlega notkun kjarn-
orkunnar. Ffafa kvikmyndir þessar
þótt hinar fróðlegustu og aðsóknin
að sýningunum verið mjög góð.
Nú hefur verið ákveðið að sýna
Jóhann Konráðsson
hafði söngskemmtanir
á Austf jörðum
Hinn vinsæli tenórsöngvari Jó-
hann Konráðsson á Akureyri er
nýkominn heim úr söngferð um
Austfirði. Undirleikari var Askell
Jónsson söngstjóri. Héldu þeir
söngskemmtanir á Norðfirði, Seyð-
isfirði, Eskifirði og Reyðarfirði.
Var þeim hvarvetna ágætlega tek-
ið. Varð söngvarinn að endurtaka
mörg lög og syngja aukalög í öll-
<um stöðunum. Jóhann Konráðsson
er ágætur söngmaður og var því
vel til fallið, að hann legði leið
sína á þær slóðir, er lengi hafa
verið útundan í þessu efni og ekki
þótt nógu mannmargar fyrir hina
„stóru" atvinnusöngvara.
Söngvari og undirleikari eru
mjög ánægðir yfir söngferðinni og
hafa beðið blaðið að skila kærri
kveðju austur og innilegu þakk-
læti fyrir óvenjugóða fyrirgreiðslu.
Héraðsmót Framsóknar
manna í Skagafirði
Sauðárkróki, 7. ágúst.
Sunnudaginn 31. júlí var héraðs-
hátíð Framsóknarmanna í Skaga-
firði haldin í Varmahlíð. Ávörp og
ræður fluttu þeir Steingrímur Stein-
þórssori, landbúnaðarráðherra, pró-
fessor Olafur Jóhannesson og Gísli
Magnússon, form. Framsóknarfélags
Skagfirðinga.
Daníel Þórhallsson frá Siglufirði
söng við undirleik Hauks Guðlaugs-
sonar, og leikararnir Valur Gísla-
son og Klemens Jónsson skemmtu
með leikþáttum.
Veður var mjög ákjósanlegt, sól-
skin og blíða. Um kviildið var dans-
að í stóru tjaldi.
Samkoman var mjög fjölmenn og
þótti takast ágætlega.
Bændadagur Þingey-
inga að Laugum
Ilinn árlegi bændadagur verður
haldinn að Laugum í Reykjadal á
sunnudaginn kemur. Hefjast há-
tíðahöldin með guðsþjónustu, og
síðan verða ræður, einsöngur, kór-
söngpr og að sjálfsögðu dansað.
kvikmvndir þessar hér nyrðra, og
verða þær sýndar í Nýja Bíó hér
nú í kvöld kiukkan 7.30
e. h. Síðan fara myndirnar til Húsa-
víkur, og fer þar fram sýning á
þeim á fimmtudagskvöld, kl. 9 c. h.
Þriðja og síðasta sýningin [er fram
á Siglutirði á föstudagskviild, kl. 9
e. hád.
Kvikmyndir þessar eru alls þrjár,
og hugmyndin með þeim er að láta
í té fræðslu um þróun þessara mála,
einkum í Bandaríkjunum, og gefa
almenningi í öðrum löndum kost á
að kynna sér, hver þróunin liefur
verið í notkun kjarnorkunnar í
friðsamlcgum tilgangi. Jafnframt
cr reynt að skyggnast fram í tímann,
til þess að reyna að gera mönnum
grein fyrir því, hvað unnt verður
að gera mannkyninu til blessunar
með því að beita kjarnorkunni til
uppbyggingar og framfara, cn ekki
eyðingar.
Fyrsta kvikmyndin Iýsir eðli
kjarnorkunnar, hvernig sjrrenging
úraníumkjarnans fer fram, og á
hvern hátt hin svonefnda keðju-
vcrkun fer fram.
Á annarri myndinni er skýrt frá
notkun kjarnorkunnar og geisla-
virkra cfna í sambandi við rann-
sóknir, og hagnýta notkun á sviði
landbúnaðar, iðnaðar og loks við
framleiðslu raforku.
Þriðja og síðasta kvikmyndin
fjallar um notkun kjarnorku og
geislavirkra efna á sviði læknisfræð-
innar, og þá einkum við krabba-
meinsransóknir og lækning krabba-
meins. Þá er einnig sýnt, hvernig
íæknir notar geisjavirk efni til þess
að finna og nema lnirt æxli úr
heila.
Kvikmyndirnar eru allar með ís-
lenzkum taltexta.
Mikil sílarsöltun hefur
verið á Húsavík í sumar
Húsavik i gœr.
Hér eins og annars staðar norð-
austanlands heftir vcrið einmuna-
góð tíð til landsins, en þó frekar
stormasiim á miðum úti.
Síldarstiltun er hér orðin með
mesta móti, rúmar 13 þús. tunnur.
Kaupfélag Þingeyinga er búið að
frysta 500 tn.
Iley hér cru orðin mikil og góð
og verkun þeirr;t. Þó hefur sjrretta
á Framengjum í Mývatnssveit al-
gjörlega brugðizt, og er of miklum
þurrkum kennt inn.
Víða hér um sveitir gengu mis-
lingar og inflúenza yfir í sláttar-
byrjun og tafði það mikið fyrir
fólki. Á mörgum bæjum voru að-
cins einn cða tveir menn á fótum.
Nýlcga er látinn í Miðhvammi í
Aðaldal Kjartan Sigurjónsson bóndi
þar. Hann var tæjdcga sextugur.
Tvær jarðýtur vinna
að vegagerð á Flateyj-
ardalsheiði
Tvær jarðýtur ásamt vinnuflokki
eru búnar að vinna í vegagerð á
Flateyjardalsheiði nær hálfan mán-
uð. Ryðja þær veginn og gera ak-
færan og cru komnar út fyrir Heið-
arhús, eyðibýli nálægt miðri lieið-
inni. Miðar verkinu vcl, og verður
því hafdið áfram.
Verið er að byggja upp gamla
veginn frá Veisu að Végeirsstöðum
í Fnjóskadal.
Togarafiskur frystur
á Sauðárkróki
Sauðárkróki.
í fyrri viku landaði togarinn
Norðlendingur hér á Sauðárkróki.
Var hann með fullfermi af karfa
af Grænlandsmiðum. Lagði togar-
inn upp afla sinn hjá Hraðfrysti-
stöðinni h.f. Er þar unnið í vakta-
skiptum dag og nótt að nýtingu
aflans, en úrgangur fluttur á bílum
til Siglufjarðar.
í sambandi við löndun togarans
var tekin i notkun ný bílavog, sem
Sauðárkróksbær hefur keypt og stað-
sett rétt ofan við hafnargarðinn. Er
bílavogin til mikils hagræðis bæði
við löndun úr togurum og í mörg-
um öðrum tilfellum.
Kartöflumyglu vart
norðanlands
Kartöflumyglan, hinn skæði ó-
vinur sunnlenzkra kartiifluræktar-
manna, hefur lítið látið á sér bera
hér á Norðurlandi c^g ekki valdið
teljandi tjóni, sagði Ingólfur Dav-
íðsson, jurtásjúkdómafræðingur, í
gær við blaðið.
Ingólfur og Kári Sigurbjiirnsson
kartöflumatsmaður cru á leið til
Austurlands til að kynna sér heil-
brigði kartaflna hjá ræktunarmönn-
urn víðs vegar um sveitir.
Árið 1939 var mjiig hlýtt hér á
Norðurlandi, eins og margir muna.
Þá varð- kartiiflumyglunnar vart á
nokkrum stöðum tiorðaulands. Slð-
an hafa ekki kornið vcrulega hlý
siimur fyrr en nú, og þá lætur kart-
öflumyglan heldur ekki standa á
sér. Hefttr hennar orðið vart á
nokkrum stöðum, t. d. á Hólum
í Hjaltadal og í Ólafsfirði.
S.l. mánudag var kveðinn upp
hér á Akureyri dómur í svo-
nefndu Dr fumáli. Tildrög máls-
ins eru þau, að liinn 1. júní 1954
tók lögreglan hér í bænum í s’na
vörzlu áfengi úr vélbátnum Drífu
hér í höfninni.
Er báturinn eign nokkurra bil-
stjóra í bænum, og höfðu þeir
flutt áfengið, rúmlega 200 flöskur,
19.000 kr. virði, frá áfengisútsöl-
unni í Siglufirði. Áfengið var í
vörzlu lögreglunnar meðan rann-
sókn fór fram, en siðan var því
skilað aftur og var ekki höfðað
mál gegn eigendum þess.
Hins vegar höfðuðu 4 bifreiðar-
stjórar mál á hendur dómsmála-
ráðherra og fjármálaráðherra f. h.
rikissjóðs fyrir hneisu, álitsspjöll
og óþægindi að ósekju, vegna þess-
ara aðgerða lögreglunnar. Voru
það bifreiðarstjórarnir: Höskuld-
ur Helgason, Vernharður Sigur-
steinsson, Ásbjörn Magnússon og
Félag jrresta í hinu forna Hóla-
stifti hélt aðalfund sinn heima að
Hölum dagana 13.—14. ágúst s. 1.
Var fundurinn mjög vel sóttur eftir
atvikum og hinn ánægjulegasti.
Fundinn sátu 2/3 þeirra presta,
sem þjónandi eru á félagssvæðinu,
en það er hið forna Hólaslifti:
Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyja-
fjarðar- og báðar Þingeyjarsýslurn-
ar. Auk þeirra sátu fundinn boðnir
leikmenn og nokkrar prestkonur.
850 ára afmæli Hólastóls.
Fundurinn hófst um nónbil hinn
13. þ. m. með helgistund í dóm-
kirkjunni, cr prestur staðarins, séra
Björn Björnsson, annaðist. Að
henni lokinni tók fundurinn til
starfa í kennslustofu Bændaskól-
ans. Meðal mála fundarins má
nefna: 1 .Mál félagsins: Setningu
laga. kosningu I stjórn o. fl. 2. Alta
hundruð og fimmtiu ára minning
um stofnun biskupsstóls á Hólum
(1956). Fól funduririn stjórn félags-
ins, ásamt svo kallaðri „Hólanefnd"
að gangast fyrir og undirbúa há-
tíðahöld I tilefni þessa merka af-
ntælis á næsta ári. 3. Tvö hundruð
ára afmceli dómkirkjunnar á Hólum
Garðar Svanlaugsson. Setudómari
i málinu var skipaður Ari Kristins-
son sýslufulltrúi í Húsavík.
Kvað hann upp dóminn á mánu-
daginn. Dómsorð eru þau, að
ríkissjóður er sýknaður af kröfu
bílstjóranna, og er þeim gert að
greiða 1600 kr. í málskostnað
hverjum, en þóknun til talsmanna
stefnanda greiðist úr ríkissjóði
skv. lögum um gjafsókn í slíkum
málum.
5300 kr. sektir fyrir
ölsmygl
Skipsmaður af danska skipinu
Egaa, sem losaði vörur til Græn-
lands fyrir skemmstu, var í rétti
hér sektaður um 4500.00 kr. fyrir
að selja borgara í bænum 14 fl. af
öli, og kaupandinn hlaut 800 kr.
sekt fyrir ölsmygl.
1963. — Engin ályktun var gjörð í
málinu að þessu sinni, enda nokk-
ur tími til stefnu. — 4. Fermingar-
undirbúningurinn. Umræður, en
engin fundarályktun gjörð. — Er-
indi flultu á funclinum og í sam-
(Framhald á 4. síðu).
Akureyringur sigraði í
ritgerðarkeppni NATO
I vor efndi Atlantshafsbandalag-
ið til ritgerðasamkeppni meðal
þátttökuþjóðanna. Var keppnin í
tveim flokkum: Unglingar, 19 ára
og ungri, og ungir menn, 20—30
ára. Rætt skyldi um starfsemi
bandalagsins og gildi. Úrslit eru
nú kunn, og sigraði íslendingur í
yngri flokknum. Hann er Heimir
Hannesson, stúdent, sonur Hannes-
ar J. Magnússonar skólastjóra hér
í bæ. Hlýtur hann að verðlaunum
ferð til Parísar og dvöl í aðalbæki-
stöðvunum, væntanlega í október
n. k. I eldri flokknum sigraði grísk-
ur maður. Heimir Hannesson er
sem stendur á ferðalagi í Banda-
ríkjunum.
Nýtt póst- og símahús í Húsavík
Nýja póst- og símahúsið var tekið í notkun í sumar.
Kvikmyndir um friðsamlega
notkun kjarnorku sýndar
! á Norðurlandi
Sýning hér í kvöld kl. 7.30 í Nýja-Bíó
Norðlenzkir prestar ákveða há-
tíðahöld á 850 ára afmæli Hóla
Frá fundi presta hins forna Hólastifts í s.l. viku