Dagur - 21.12.1955, Page 1
12 SÍÐUR
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 11. janúar 1956.—
XXXVID. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 21. desember 1955
60. tbl.
Dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðherra, í forsæti á
nýloknum fundi ráðherranefndar Atlantshafsbandalagsins,
en hann er formaður ráðsins þetta ár.
ísland hefar óinefanlegt gildi fyrir
varnarkerfi Atlanfshsfsbandal.
— segir Wright, flotaforingi Atlantshafsflotans
Uppreisii á
v>
í fyrrakvöld kom togarinn
Norðlendingur inn á Poll-
inn og varpaði akkerum. —
Togarinn kom fyrir nokkru
úr söluferð til Þýzkalands
og hafði farið þangað beint
af veiðum. Hafði hann ekki
viðkomu á heimleiðinni og
hélt beint á veiðar. Er veið-
ar voru að liefjast, lögðu
flestir skipsmenn niður
vinnu og töldu samninga
brotna á sér vegna dráttar á-
kaupgreiðslu. Sigldi Norð-
lendingur þá þegar til Ak-
ureyrar og lagðist hann að
bryggju um kl. 14 í gær. —
Hófust sjópróf þá þegar og
stóðu enn yfir, þegar blaðið
hafði síðast spumir af.
Sprengja veldur
íkveikju?
Um klukkan 4 í fyrrinótt varð
vart við reyk, er lagði úr suðvest-
Bandaríkpmciin liaía gert stónnerka
uppíinnifigo om notkun
átvarpsbylgna
París 15. desember.
Hinn árlegi ráðherrafundur A.-
bandlagsins hófst hér í París í dag.
Fundinn sitja allir utanríkisráð-
herrar bandalagsríkjanna og flestir
landvarnar- og fjármálaráðherrar.
Dr. Kristinn Guðmundsson stjórn-
aði þessum fundi, eins og ráð-
herrafundinum fyrr á þessu ári. —
Auk ráðherranna sátu af Islands
hálfu fundinn: H. C. Andersen,
fastafulltrúi Islands í bandalaginu,
Pétur Benediktsson, sendiherra,
og Hörður Helgason og Haraldur
Kröyer, fulltrúar Islands í sendi-
ráðinu hér. Fundurinn sjálfur, sem
fjallaði að vanda um hin mikil-
vægustu landvarnarmál þátttöku-
ríkja bandalagsins, var lokaður.
Blaðamenn og ljósmyndarar
fengu aðeins að vera viðstaddiv
komu ráðherranna í Chaillot-höll-
ina, síðan var fundarsalnum lokað
báða dagana.
SKÝRSLA ISMAY LÁVARÐAR.
samræma nú fremur en áður fyrr
loftvarnir og veita NATO-her-
stjórninni aukið vald í París á því
sviði, og var tillaga um það efni
samþykkt í ráðinu.
NÝJUNG í ÚTVARPS-
BYLGJUNOTKUN.
Þá skýrði Gruenther blaðamönn-
um frá því, að ásamt með radar-
viðvörunarkerfinu í Evrópu, yrði
nú tekið í notkun nýtt kerfi út-
varpsbylgna, til þess að koma
áleiðis, skjó.tt og án truflana, við-
vörunarsendingum radarkerfisins.
Er þetta ný amerísk uppfinning,
svconefnd Scattersystem, sem er
97% öruggt og verður ekki truflað
af mannavöldum. Þótti þetta hin
merkasta nýjung og heyrðust radd-
ir um að hún mundi hafa mikið
framtíðargildi fyrir útvarp og sjón-
varp. Er nú líklegt að sjónvarps-
tækni sigrist á fjarlægðinni áður
en langt líður.
París 14. desember.
íslenzkir blaðamenn, er hafa
dvalið hér í nokkra daga, í boði
A.-bandalagsins, áttu í dag viðtal
við Wright flotaforingja, yfir-
manns flotadeildar Atlanshafs-
bandalagsins. Flotaforinginn hefur
aðalbækiðstöðvar í Norfolk í
Bandaríkjunum, en dvelur í París
í tilefni fundarins. Wright skýrði
blaðamönnum frá heimsókn dr.
Kristins Guðmundssonar utanríkis-
ráðherra í Norfolk í vetur, er ráð-
herrann var þar vestra á aðal-
stöðvum allsherjarþings S. Þ.
Kvaðst hann hafa skýrt ráðherran-
um frá áætlunum um varnarráð-
stafanir og varnarmál Islands sér-
staklega, ef á þetta svæði eða önn-
ur aðildarríki yrði ráðist.
I spjalli sínum við blaðamenn,
lagði flotaforinginn áherzlu á mik-
ilvægi Norður-Atlantshafsins. Is-
land hefði lagt fram stóran skerf
til öryggis hinum frjálsa heimi,
með leyfum um bækistöðvar. Hið
sama hefðu Danir gert á Græn-
landi og Portúgalar á Azoreyjum.
Vegna legu Islands á norðursvæði
í Atlantshafi, væri hlutverk þess
sérlega mikilvægt.
Flotaforinginn svaraði spurn-
ingu um, hvort í ráði væri að
koma upp flotabækisíöð á Islandi
og kvaðst hann ekki vita til þess
að neinar slíkar ráðagerðir væru á
prjónunum. Hins vegar væri það
von yfirherstjórnarinnar, að samn-
ingar um uppsklpunarhöfn í
Njarðvík mætti takast. Þyrfti að
gera nokkrar endurbætur á höfn-
inni, en þær myndu losa Reykja-
víkurhc^fn við uppskipun birgða
þar, en alkunnugt væri að þar
væru mikil þrengsli.
Flotaforinginn skýrði einnig frá
því, að þess myndi óskað, að floti
hans fengi að hafa legufæri í
Hvalfirði og fengi að setja kaf-
bátanet fyrir fjarðarmynnið. Ekki
myndu nein herskip hafa þar
bækistöð, heldur væri hér um að
ræða öryggisráðstöfun, ef til þyrfti
að grípa.
Um radarstöðvar sagði hann, að
þær væru mikilvægar fyrir allt
vamarkerfið, en taldi að ekki væri
ráðgert að aðhafast meira í því
efni en þegar hefur verið byggt
eða byrjað á. Að lokum fór flota-
foringinn lofsamlegum orðum um
framlag Isleendinga til varnar-
kerfis hins frjálsa heims.
ÐAGUR
kemur rtæsr úí miðvikudaginn
inn 11. janúar 1956.
urhorni hússins Hafnarstræti 99,
sem er mannlaust geymsluhús. —
Slökkviliðið var þegar kallað út og
slökkti það eldinn. Hafði kviknað
í stoppi, utan fré. Er talið líkleg-
ast að neisti úr sprengju hafi vald-
ið íkveikjunni, því að á þessum
slóðum voru unglingar með
sprengjur kvöldið áður. — Er full
nauðsyn á ströngu eftirliti með
sprengjum. Hvílir sú skylda ekki
síður á foreldrum en lögreglu að
forða eftir megni ógætilegri með-
ferð slíkra leikfanga.
Fjárlög ekki afgreidd
I fyrsta skipti í mörg ár náðist
ekki samkomulag um afgreiðslu
fjárlaga fyrir jól. Þingi var frestað
frá 17. des. til 5. jan. 1956.
Bönsku konungshjónin
koma til Islands
10. apríl
Ákveðið hefur verið að
dönskti konungshjónin
komi í opinbera heimsókn
til íslands dagana 10.—12.
apríl 1956, til þess að end-
urgjalda heimsókn forseta
Islands til Danmerkur vor-
ið 1954.
Áður en fundur hófst, hafði
Ismay lávarður blaðamannafund
og rakti þar í stórum dráttum þau
mál sem á dagskrá væru. Hann
gat þess í upphafi, að nú tæki
ítalskur hershöfðingi við af grísk-
um, sem formaður hernaðarmála-
nefndarinnar, með því að Island,
sem hefði með réttu lagi átt að
taka við formennskunni í nefnd-
inni, hefði ekki herlið og því held-
ur ekki hershöfðingja til að gegna
störfum.
Ráðherrafundurinn fjallaði fyrst
og fremst um skýrslu Ismay lá-
varðar um starfsemi bandalagsins.
Eitt helzta atriði hennar var, að
nú er ákveðið að bandalagsríkin
reisi stórhýsi á góðum stað í Par-
ís. En bráðabirgðahúsnæði það,
sem notast hefur verið við, rétt hjá
Chaillot-höll sjálfri, verður rifið.
En húsnæði þetta hefur þótt spilla
fegurð hallarinnar og hefur verið
þyrnir í augum Parísarbúa.
Ætlað er að hið nýja hús verði
fullbúið árið 1957. Þá skýrði fram-
kvæmdastjóri frá þróun sameigin-
legra landvarnarmála. Nýjir flug-
vellir hafa verið byggðir fyrir sam-
eiginleegt fé og önnur varnar-
mannvirki treyst og aukin. Veru-
legur hluti skýrslunnar fjallaði um
þörfina á að auka mjög upplýs-
ingastarfsemi um eðli og takmark
A.-bandalagsins og nauðsyn þess
að aukin áherzla verði lögð á að
framkvæma 2. grein samningsins,
sem fjallar um samstarf í efna-
hags- cg menmngarmálum.
Gruenther yfirhershöfðingi
NATO, skýrði blaðamönnum frá
ýmsum þáttum skýrslu sinnar um
horfur og aðgerðir í varnarmálum
ríkjanna. Lagði hann áherzlu á að
Vinabæir skiptast á
gjöfum
Nú er það alltítt orðið að vina-
bæir skiptist á gjöfum. Þannig
sendi Oslóborg, Reykjavíkurbæ,
fagurt jólatré. Var það reist upp á
Austurvelli með viðhöfn. Sendi-
herra Norðmanna og borgarstjór-
inn í Reykjavík fluttu ávörp og
kórar sungu. Var athöfnin stutt
en virðuleg.
Randers sendi Akureyrarkaup-
stað jólatré að gjöf, nú fyrir
skemmstu, og hefur því verið val-
inn staður á Ráðhústorgi. Ekki
hefur bæjarstjórn Akureyrar ekki
séð ástæðu til að gera veð-
ur út af slíku í þetta sinn, og er
það sorgleg afturför og tæplega
viðeigandi. Má þó vera að bæjar-
stjórn bíði eftir öðru jólatré frá
Álasundi og ætli þá að „slá tvær
flugur í einu höggi“ með einni við-
höfn.
Sæmdur gullmerki ÍSÍ
Þorgeir Sveinbjarnarson hefur
verið sæmdur gullmerki ÍSÍ fyrir
störf sín í þágu íþróttahreyfingar-
innar í landlnu. Nú hefur Þorgeir
hvatt sér hljóðs á skáldaþingi, með
útgáfu ljóðabókarinnar: Visur
Bergþóru, sem hlotið hefur
óvenjugóða dóma.