Dagur - 21.12.1955, Page 12
12
Bagur
Miðvikudaginn 21. desember 1955
Millilandaflugvélin Sólfaxi á
Akureyrarflugvelli
Merkum áfanga fagnað
Góðir gestir að sunnan.
Kl. 7.30 á föstudagskvöldið,
lenti Sólfaxi é Akureyraflugvelli.
Er það i fyrsta sinn að stór 4.
hreyfla millilandaflugvél, lendir á
vellinum. Flugfélag Islands bauð
flugmálaráðherra og mörgum for-
ráðamönnum flugmála, svo og
blaðamönnum hingað norður. Voru
þeir farþegar i þessari fyrstu ferð,
sem var einskonar vígsla á flug-
vellinum, eftir þær framkvæmdir,
er þar voru gerðar í sumar. Lend-
ingarbrautin er nú 1400 metrar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar
bauð gestum til kvöldverðar að
Hótel KEA. Voru þar ræður flutt-
ar, sem blaðið kann ekki frá að
segja.
Yfirflugstjóri var Jóhannes
Snorrason.
Nauðsynlegur öryggisvöllur.
Koma Sólfaxa markar nokkur
tímamót í flugsamgöngum innan-
lands og Akureyrarflugvöllur er
einnig orðin öryggisflugvöllur
vegna millilandaflugs. Flugvöllur-
ir.n á Akureyri er hálfgert mann-
virki. Til hans hefur verið varið
á 6. milljón króna. Má þó enn
líkja honum við nýbýli, þar sem
búið er að brjóta lönd til ræktunar
en bóndinn á eftir að húsa bæ
sinn, en býr á meðan í bragga.
Meiri framkvæmdír aðkalland/.
Næsta aðkallandi framkvæmd
er flugturn og svo aðrar nauðsyn-
legar byg^ingar og stækkun og
endurbætur á vellinum og við
hann.
Takmörkuðu fé mun nú varið
til flugvallagerðar á næsta ári og
verður því fé væntanlega ráðstaf-
að að miklu leyti hingað norður
til áframhaldandi framkvæmda.
Rúmt ár er liðið frá vígslu vall-
arins og verður ekki annað sagt
að nokkuð hafi miðað áleiðis frá
þeim tíma.
Framsðknarvisfinná lauk á föstu-
daginn - Óvenjuleg verðlaun
Konurnar voru sigursælastar, og hlútu bær
öll verðlaunin
Undanfarið hefur staðið yfir
skemmtileg Framsóknarvist á Ak-
ureyri, sem Framsóknarfélagið á
Akureýri gekkst fyrir., Fór hú.n
íram að Hótel KEA og tóku þátt
í henni um 200 manns. Síðasta
föstudagskvöld var 4. og síðasta
vistin spiluð og þá keppt til úr-
slita um aðalverðlaunin. Þau voru
nokkru veglegri en venjulegt er
eða: Þvottavél, hrærivél og kulda-
úlpa. 4
Konur urðu hlutskarpastar og
voru þær í 6 efstu sætunum. Vinn-
ingana hlutu: Ungfrú Anna
Tryggvadóttir afgreiðslumær, fékk
hún hæsta slagatölu í Framsókn-
arvistunum samanlögðum, og þar
með fyrstu verðlaun. Var það
vönduð þvottavél. Onnur verðlaun,
hrærivél, hlaut frú Soffía Guð-
mundsdóttir, og þriðju verðlaun,
kuldaúlpu, fékk frú Dórothea
Finnbogadóttir.
Voru þessi verlaun afhent að
vistinni lokinni og síðan dansað af
fjöri. Á þessu síðasta kvöldi stjórn-
Sigurður bóndi Vigfússon á Foss-
hóli dansinum.
Framsóknarfélagið mun hafa í
huga, vegna fjölda óska, að efna
til samkoma með svipuðu sniði
eftir áramótin.
Magasár mannskæðara
en influenza
Magasár eru mannskæðari en
inflúenzka og verða fleiri mönnum
að aldurtila en hinir algengu smit-
sjúkdómar, segir í skýrslu, sem
Alþjóða heilbrjgðisstofnunin hefur
nýlega gefið út.
I skýrslu stofnunarinnar (WHO),
segir m. a., að fleiri karlmenn en
konur deyi af magasári og það sé
sjaldgæft að ungt fólk látist af
völdum magasárs.
I yfirliti um dánartölur vegna
magasárs er Noregur lægstur með
4 dauðsföll fyrir hverja 100.000
ibúa. í Finnlandi er talan 4,8, í
Danmörku 7,4 og 8,7 í Sviþjóð.
Hæsta dánartala af völdum maga-
sárs er í Japan, þar sem 20,1 af
hverjum 100,000 íbúum létust af
magasári.
Tölurnar eru frá 1951—1953.
Vorinaðm Fnmt-
aókvarfélagsms, Ás
grítnur Stefánsson,
afhendir ungfrít
Ömm Tryggva-
dóttur vandaða.
þvottavél, sem
fyrstu verðlaun að
fjórum spilakvöld-
7/7/; lokmnn. —
Mynd'm cr tekin sl.
föstudagskvöld.
680 verkamemi á náms-
ferðum í Vestur-Evrópu
Um 400 iðnfyrirtæki í 13 lönd-
um Vestur-Evrópu hafa boðizt til
að þjálfa 680 verkamenn í verk-
smiðjum sínum. Er hér um að
ræða erlenda verkamenn, sem fá
tækifæri til að kynnast vinnuað-
ferðum í sinni atvinnugrein.
Það er alþjóðavinnumálaskrif-
stofan í Genf (ILO), sem hefur
geugist fyrir þessum námsferðum
verkamanna.
Jólasveinninn (Ólafur Magnútsson frá Mosfelli) og harmomku-
leikarinn fíragi Hlíðberg á Ráðhústtrgi.
Flugfélag íslands skilur þýðingu
auglýsinga, og er fundvíst á
skemmtilega hluti. Á sunnudaginn
sendi það hingað jólasvein til að
gleðja börnin á Akureyri. Safnað-
ist múgur og margmenni á Ráð-
hústorg upp úr hádeginu og beið
hans þar. Átti jólasveinninn að
koma akandi á sleða. Jólasveinn-
inn, Kertasníkir, kom svo akandi
á vörufcíl með harmonikuleikarann
Braga Hlíðberg við hlið sér og var
vel fagnað af miklum fjölda barna
og fullorðinna. Söng hann og tal-
aði við börnin og stjórnaði happ-
drættinu. Vinningar voru flugfar
til Reykjavíkur og heim aftur,
reiðhjól og útvarpstæki. Hafði
númerum áður verið útbýtt meðal
barnanna ókeypis. Varð af þessu
hin bezta skemmtun. Ólafur
Jólasveinninn heimsækir FjórSungssjúkralmsið
Sjúklingurinn horfði undrandi á gestinn.
Magnússon frá Mosfelli var í gerfi
Kertasníkis. Börnin, sem hlutu
vinningana voru: Ragna Kemp
Guðmundsdóttir, 8 ára, fékk reið-
hjól, Herdís Ingvadóttir, 7 ára, út-
varpið, og Eyjólfur Freiðgeirsson,
11 ára, flugfarið. Öll '/iðstödd
börn nutu örlætis Kertasníkis.
Fengu þau góðgæti og voru hin
kátustu.
Aldrei hefur svo gjöfull jóla-
sveinn heimsótt Akureyri, þótt
margir séu góðir. Kertasníkir kom
með á 17. hundrað jólagjafir. -—-
Gleðin skein á hverju barnsand-
liti. Það hefði verið vel viðeig-
andi að þakka heimsóknina í heyr-
anda hljóði. En það fórst fyrir. —
Flugfélagið og Kertasníkir hafi
beztu þökk fyrir komuna.
Nýir námsstyrkir lista-
mömium til handa
Vísinda- og menningarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (UNESCO)
hefur stofnað til 14 nýrra náms-
styrkja, sem veittir verða rithöf-
undum, tónskáldum, listmálurum,
myndhöggvurum og arkitektum.
Styrkirnir eru að upphæð frá 200
til 300 dollarar á mánuði í sex
mánuði.
Ýmis tíðindi úr nágrðnnabyggðum
22 kindur fundust
Reynihlíð 19. desember.
Nýlokið er leitum á Austurfjöll-
um, svo sem áður er frá sagt.
Vantaði þó eitthvað af fé og fóru
5 menn aftur af stað að leita.
Komu þeir heim með 22 kindur.
Leitarmenn voru allir á skíðum og
var færi sæmilega gott.
Jólaskreytingar á
Sauðárkróki
Sauðárkróki 19. desember.
Kaupfélagið opnaði jólabazar 6.
þ. m. í Aðalgötu 16. Þar er alls
konar jólavarningur og rafmagns-
vörur og fl., á boðstólum. Kaupfé-
lagið hefur sett upp Neeon-ljósa-
skilti yfir aðalgötu verzlana
sinna.
Sauðárkróksbakari er nýflutt
með brauðbúð sína í björt og rúm-
góð húsakynni. /
Bærinn lætur setja/upp jólatré
á Kirkjutorgi, í fyrsta sinn.
Verzlanir eru allar með jólasvip,
meira en verið hefur. Mótorbátur-
inn Stígandi frá Skagaströnd, gerir
út á fiskveiðar frá Sauðárkróki í
vetur, eins og í fyrra. Skipstjóri er
þaðan, en skipshöfn frá Sauðár-
króki. Fiskur hefur verið allgóður.
Nú siðast 3—4 tonn í róðri.
Lömunarveikin í
Clafsfirði
ólafsíirði 19. desember.
Lömunarveikin hefur á ný gert
vart við sig í Olafsfirði. Hafa 3
veikzt og lamast lítillega.
Búið er að setja stærri trillurn-
ar, en þær minni fara á sjó af og
til. Stvndum er afli sæmileegur,
en oft lítill.
Jöku'.fell tók hér 3 þúsund
kassa af frosnum fiski í gær.
Engin jólaferð
Crímsstöðum 17. desember.
Veturinn er góður það sem af
og er óvenjulegi snjólétt. Þessa
dagana er verið að taka fé á hús.
Almenn heilbrigði er hér yfirleitt.
Rjúpur eru nægar, en ekki skotnar
af Fjallabændum. Ekki fara bænd-
ur héðan í kaupstaðarferðir í til-
efni jólanna. Verða þeir að byrgja
sig upp á haustin eða síðla sumars,
þvi að sjaldan er að treysta veðri
og færi í skammdeginu, til svo
langra ferðalaga.
Rafmagn í
SVarfaðmlal
Þverá í Svarfaðardal 19. des.
Svarfdælingar eru búnir að fá
lengi þráð rafmagn, svo sem ráð
var fyrir gert á þessu ári. Er
Þverá fremsti bserinn að vestan,
en Hofsárkot að austan. Á nokkr-
um stöðum á þó eftir að leggja í
útihús. Enda bættust allmargir
bæir við upphaflega áætlun.
Snjór er töluverður og var færi
orðið mjög þungt fyrir mjólkurbíl-
ana. Var þá skafið af vegunum og
er gott bílfæri nú.
Fé er víða alveg í húsi.