Dagur - 18.02.1956, Síða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. Sími 1166.
Daguk
DAGUR
kemur næst út mið-
vikudaginn 22. febr.
XXXIX. árg.
Akureyri, laugardaginn 18. febrúar 1956
9. tbl.
Eyðimerkur ræktaðar
Samvinnutryggingar endurgreiða 2.8
Hér er starfsmaður Alþjóðasamvinnustofnunarinnar að skýra
út fyrir ungnm Pakistanbúum gerð og notkun dieselvéla, en
nú á að reyna að flytja mold á eyðimerkursvæði með stórvirk-
um vélum og gera að ræktuðu landi.
Ákureyringar þuria strætisvagna
Nýtt hlutafélag Strætisvagnar h.f.
Síðan tilraunin með strætis-
vagna á Akureyri var gerð í
haust, hafa æ fleiri komist að
þeirri niðurstöðu, að full
nauðsyn sé á þeim í bænum.
Margt af því fólki er brosti van-
trúað að þessari nýjung 1. nóvem-
ber í haust, finnst óhugsandi nú að
vera án vagnanna.
Eins og kunungt er, voru stræt-
isvagnarnir og eru enn, reknir með
7500,00 króna mánaðarstyrk frá
bænum. En fargjöldin hafa verið
lág.
Því miður hefur nokkur truflun
orðið í rekstri vagnanna í vetur,
vegna bilana á þeim. Þeir eru ekki
nýir og ekki eins heppilegir og
vera þyrfti. Hefur það sætt nokk-
urri gagnrýni, en eins og á stóð í
haust var ekki um annað að velja.
Vagnamir voru fengnir að láni hjá
Norðurleið h.f. En Jón Egilsson
hefur séð um reksturinn.
Breyting 1. maí.
Fyrsta maí þarf að skila þessum
bifreiðum og frá sama tíma hættir
bæjarsjóður að styrkja rekstur
strætisvagna í þessu formi.
Nýtt hlutafélag, Strætisvagnar
h.f., mun hins vegar taka við
stjórn strætisvagnanna á Akureyri.
Hefur það pantað 2 sænska vagna
af fullkominni gerð og fengið lof-
orð bæjarstjórnarirnnar um 300
þús. kr. lán til kaupanna. Munu al-
menningi verða boðin hlutabréf til
kaups.
Akureyringar hafa lært að nota
og umgangast strætisvagna í vetur.
Með hentugri og betri vögnum,
munu þau not enn aukast.
Þess er fastlega vænst að ekki
standi á nauðsynlegum leyfum til
kaupa á nýju vögnunum, þar sem
vitað er um töluverðan innflutning
stórra vagna til Reykjavíkur og
einnig til margra sérleyfishafa
víðs vegar.
B B 5 b
Brezkur landhelgis-
brjótur tekinn
í fyrradag gerðist sá merk-
isatburður, að íslenzkar
flugvélar tóku togara í land-
helgi og stefndu honum til
hafnar, án aðstoðar varð-
skipa. Flugvél landhelgis-
gæzlunnar fann brezkan
togara 3,9 sjómílur innan
við landhelgislínuna, suður
af Ingólfshöfða. Náði vélin
samband við togarann með
morsmerkjum og gaf hon-
um fyrirmæli um að lialda
til hafnar. Sveif vélin svo yf-
ir honum, þar til Douglas
vél frá Reykjavík kom aust-
ur og leysti hina af hólmi.
En flugvél landhelgisgæzl-
unnar brá sér til Egilsstaða
og bætti við benzínforðann.
Kom liún svo aftur á vett
van og fylgdist með skipinu
til hafnar á Norðfirði.
Tiniimi í nýjum búningi
Tíminn hefur nú verið
stækkaður úm þriðjung og
ýmsar breytingar á honum
gerðar. Vekur hann umtal
og athygli um land allt. —
Askriftarsími Tímans á Ak-
ureyri er 1166.
Á aðalfundi
Akureyrardeildar KEA, sem hald-
inn var sl. fimmtudag, var frá því
skýrt að deildin hefði, samkvæmt
eldri samþykkt, gefið Byggðasafni
Eyjafjarðar 10 þús. kr. og kr. 2
þús. til Skógræktarfél. Akureyr-
inga í Minningarsjóð Þorsteins
Þorsteinssonar.
Sýning á listaverkum
Asgríms Jónssonar
í tilefni af afmæli Ásgríms
Jónssonar, sem er áttræður 4.
marz næstk., hefur ríkisstjórnin
beitt sér fyrir því að kynna verk
listamannsins. Verður yfirlitssýn-
ing eldri og yngri verka, olíu-
myndir, vatnslitamyndir og teikn-
ingar, til sýnis í Listasafni ríkisins.
Enginn ágóði af bifreiðatryggingum, vegna
mikils tjóns og árekstra
Samvinnutryggingar hafa ákveðið að endurgreiða til hinna
tryggðu í sjódeild og brunadeild fyrirtækisins 2.818.000
króna fyrir árið 1955. Ennfremur hefur félagið ákveðið, að
brunatryggingar hjá félaginu skuli eftirleiðis gilda fyrir snjó-
flóðatryggingar líka, án þess að iðgjöld hækki.
Frá Skákþingi Norðlendinga
Friðrik hefur unnið allar skákir sínar
Samvinnutryggingar eiga 10 ára
afmæli síðar á árinu, en síðan fé-
lagið tók að greiða tryggjendum
tekjuafgang sinn, 1948, hefur það
greitt samtals 9,6 milljónir króna
til þeirra, að meðtöldum þeim 2,8
milljónum sem greiddar voru fyrir
1955.
Nokkuð í stofnsjóð.
Tekjuafgangur fyrir 1955 verð-
ur að nokkru leyti greiddur út og
að nokkru lagður í stofnsjóð við-
skiptamanna félagsins. Fá þeir,
sem hafa brunatryggt hjá félaginu,
endurgreidd 15% af iðgjöldum,
þannig, að 10% verða dregin frá
endurnýjunargjöldum, en 5%
verða lögð í stofnsjóð. I sjóðdeild
verða endurgreidd 25% af iðgjöld-
um fyrir vörur tryggðar i flutningi,
10% greidd út, en 15% lögð í
stofnsjóð. Fyrir skipatryggingar
verða endurgreidd 10%, 5%
greidd út og önnur 5% lögð í
stofnsjóð og fyrir ferðatryggingar
20%, þar af 10% útborguð og
10% lögð í stofnsjóð.
Enginn tekjuafgangur af
bifreiðatryggingum.
Enginn tekjuafgangur varð á
árinu af bifreiðatryggingunum og
stafar það af hinni miklu aukn-
í framhaldi af því, er áður var
sagt frá mótinu, hefur skákstjórinn,
Jón Hinriksson, gefið blaðinu eftir-
farandi upplýsingar:
Þriðjudaginn 14. þ. m.
I meistaraflokki fóru leikar
þannig, að Friðrik vann Kristinn,
Jón vann Randver, Július vann
Margeir, Guðmundur og Þráinn
eiga biðskák.
Miðvikudaginn 15. þ. m.
Friðrik vann Guðmund, Júlíus
vann Harald, Margeir vann Jón og
Kristinn vann Unnstein, Randver
og Þráinn gerðu jafntefli.
Fimmtudaginn 16. þ. m.
Friðrik vann Þráinn, Guðmund-
ur og Unnsteinn gerðu jafntefli,
Margeir og Randver eiga biðskák
og Haraldur og Jón eiga biðskák.
Eftir 5 umferðir er staðan
þannig:
Friðrik 5 vinninga.
Júlíus 2Vz vinning og 1 biðskák.
Unnsteinn 2Vz vinning og 1 bið-
skák.
Þráinn 2 vinninga og 1 biðskák.
I fyrsta flokki: Hörður Einars-
son hefur 3V2 vinning.
Tryggvi Kristjánsson 3 vinninga.
I öðrum flokki: Snorri Sigfússon
hefur 4 vinninga og 1 biðskák.
Friðfinnur Friðfinnsson hefur
3V2 vinning.
I drengjaflokki- er Magnús Ing-
ólfsson hæstur með 5 vinninga og
Þóroddur Hjaltalín hefur 4.
Vcg:
irnir
opnir
Vegurinn frá Akureyri til Húsa-
vikur er nú góður, sem á sumar-
dagi. Áætlunarferðir hófust á mið-
vikudaginn var. Hafði það dregist
of lengi að hreinsa Vaðlaheiði, því
að snjór var mjög lítill orðinn. Þá
eru hafnar áætlunarferðir milli
Reykjavíkur og Akureyrar, og er
vegurinn sæmilegur. Innanhéraðs
eru allir vegir í góðu lagi og snjó-
lausir, en sums staðar ósléttir.
Framsóknarvistin í
sýslunni
Fyrstu umferð í Framsóknar-
vistinni í Eyjafjarðarsýslu er nú
lokið i Svarfaðardal og Dalvík. —
Þátttaka var ágæt. Á miðvikudag-
inn var fyrsta spilakvöldið í Saur-
bæjarhreppi. Var það haldið að fé-
lagsheimilinu Sólgarði, með þátt-
töku úr hreppunum tveimur, Saur-
bæjar- og Hrafnagilshreppum. Þar
spiluðu 116 manns og vistinni
stjórnaði Þorleifur Þorleifsson af
sinni alkunnu röggsemi. Þar verður
önnur umferð spiluð næstkomandi
miðvikudag á sama tíma.
Á Svalbarðsströnd verður fyrsta
vistin spiluð á morgun. Á öðrum
stöðum eru spilakvöldin í undir-
búningi.
ingu bifreiðaslysa og árekstra, auk
þess sem viðgerðir og efni til bif-
reiðaviðgerða hafa hækkað veru-
lega. Varð afkoma bifreiðadeildar
þannig, að iðgjöld og tjón stóðust
því sem næst á, en allur kostnaður
við deildina varð tap félagsins.
Framkvæmdastjórn félagsins tek-
ur fram, að afkoma kaskotrygginga
hefði verið sérlega slæm.
Snjóflóðatryggingar.
Félagið hefur ákveðið, að fram-
vegis skuli öll hús á landinu, sem
eru brunatryggð hjá félaginu, vera
jafnframt tryggð fyrir snjóðflóð-
um, sem oft hafa valdið miklu
tjóni hér á landi. Jafnframt hefur
verið ákveðið, að iðgjöld skuli
vera óbreytt frá þvi sem er og far-
ið verður eftir sömu reglum og um
brunatjón um bætur fyrir snjó-
flóðatjón.
Iðgjöld yfir 30 milljónir.
Árið 1955 var langmesta veltuár
Samvinnutrygginga frá stofnun
þeirra og jukust iðgjöld um 8,5
milljónir á árinu eða um 38%. —
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti
námu heildariðgjöld rösklega 30
milljónum kr.
Framkvæmdastjóri Samvinnu-
trygginga er Jón Olafsson, en auk
hans eru í framkvæmdastjórn fé-
! lagsins þeir Björn Vilmundarson
og Jón Rafn Guðmundsson. — í
stjórn félagsins eru nú: Erlendur
Einarsson, formaður, Jakob Frí-
mannsson, Karvel Ogmundsson,
Kjartan Ólafsson og ísleifur
Högnason.
Áflog í franska þinginu
Áflog urðu í franska þinginu sl.
fimmtudag, og kvað svo rammt að,
að forseti sá sig tilneyddan til að
slíta fundi.
Málið, sem fyrir lá, var kjörbréf
nokkurra Poujadista, enda hófust
óeirðirnar vegna pústra í þeirra
hópi, en þær breiddust óðfluga út
um salinn og börðust að lokum um
100 manns, ekki síður þingsveinar
en þingmenn.