Dagur - 25.04.1956, Page 11
Miðvikudaginn 25. apríl 1956
D A G U R
11
- Saiiðfjárræktiii er heilagur atvimmvegur
(Framhald af 12. síðu).
um eindregið að nota vigtina. Það
væri margsannað mál, að sumir
fjármenn teldu fé í fullum haust-
holdum, þótt það hefði létzt um 5
—8 kg. Ekki væri þörf að vigta
allt féð, en þó nægilea stóran hóp.
Þá varaði hann við þeim hugsun-
arhætti, að trúa því statt og stöð-
ugt, að einhver eða einhverjir
væru fjármenn af Guðs náð og
öðrum þýddi ekki að reyna. Slika
minnimáttarkennd bæri að endur- I
skoða fyrr en seinna.
Lömbin eiga að þyngjast
um 400 gr. á dag.
Ráðunauturinn taldi landlétt hér
í mörgum hreppunum, svo sem í
Hrafnagils- og Ongulsstaðahreppi,
en gott land í Hörgárdal og Öxna
dal. Hann benti á, að ekki væri
nóg að fá ærnar tvílembdar og
fóðra þær sæmilega á veturna.
Það yrði líka að sjá til þess að
sumarbagana skorti ekki. Ærnar
yrðu að mjólka og lömbin að fá
fylli sína af kjarngóðu grængresi,
svo að þau þyngdust um 400 gr. á
dag til jafnaðar fram að rúningu.
Þó yrði að teljast sæmilegt ef tví-
lembingar þyngdust um eða yfir
300 grömm á dag til jafnaðar.
Beita tún eða siga hundum.
Þá benti ráðunauturinn á beiti-
rækt. Sagðist ekki sjá fallegri sjón
en tún löðrandi af tvílembum á
vorin. Væri það'- reýndar annað en
að siga hundi ef kindur sæist
. nærri túni. — Hann taldi líka
lieppilegt að beita sauðfé á tún að
haustinu, sérstaklega að fita þar
dilka til slátrunar.
Þriggja vikna beit —
1 kg. kjöt.
Um frjósemistilraunir að Hesti
sagði hann að' ‘máfglembur borg-
uðu vel fóðrið sitt, þótt þær
gengju í túni allt sumarið. Gat
hann um fjórlembu, sem
gaf 144% kg. í dilkunum
í lífvígt, en vóg sjálf 80 k., eða 1
kg. meira en hún vóg árið áður, þá
aleld, og þrílembur, sem gáfu til
jafnaðar 45,3 kg. af kjöti og voru
vænar sjálfar.
Ráðunauturinn áleit að dilkar,
sem beitt er í tún á haustin,
þyngist um 1 kg. af kjöti á 3—5
vikum.
Varar við ofnotkun
hormonalyfja.
Ef að líkum lætur mun bændum
innan skamms verða gefið frjálst
að nota hin umtöluðu hormonalyf,
til að auka lambatöluna eftir vild.
í því sambandi varaði Halldór þó
við ofnotkun þeirra.
Um fóðrun á gemlingum sagði
hann, að oftast væri bezt að taka
þá snemma á hús og kenna þeim
átið og forðast umfram allt að láta
þá hrekjast í illviðrum. Sam-
kvæmt eðli sínu ættu þeir að vera
mjög gráðugir og auðfóðraðir enda
væri vandalaust að láta þá þyngj-
ast um 12—15 kg. yfir veturinn.
Framúrskarandi fundur.
Yfirleitt kom dr. Halldór Páls-
son mjög víða við í ræðu sinni og
notaöi, .ekki tæiptungu,' þár sem
honum þótti á skorta hjá bændum
við búskapinn. Var ræða hans
einkar vel fallin til umræðna og
við það miðuð að nokkru og
skemmtilega flutt. Mun fundur
þessi hafa verið einn sá skemmti-
legasti Bændaklúbbsf. er hald-
inn hefur verið um langt skeið.
Umræður hófust þegar eftir
framsöguerindið og stóð fundur til
kl. 2 um nóttina.
MOÐIR. KONA, MEYJA
(FramhalcL af 6. siðu).
Teldu þér ekki harmatölur í ein-
rúmi. Leitaðu út undir bert loft,
út í sólskinið. Leitaðu á leið til
skógar, hafs eða upp til fjalla. A
þeirri leið cr lreilsubót og sálu-
lijálp að finna sérhverju lirjáðu
mannsbarni.
(Þýtt úr Encyclopedia ol Health;
B. Macfadden).
(Heilsuvernd).
(Framhald af 1. síðu).
nýjar eða nýlegar, svo sem strau-
skifan, botnavél, laggavél og
þykktarhefill. Járnavélarnar eru
aftur á móti nokkuð gamlar orðn-
ar, en vel nothæfar ennþá. Við all-
ar þessar vélar starfa sérstakir
menn, er með kunna að fara, svo
sem meðfylgjandi myndir sýna.
Hrjúfir fjalarstubbar úr timbur-
hlaðanum, verða að lítilli stundu
liðinni að hvítum og fallegum,
fullsmíðuðum tunnum.
Vantar skýli og vantar hita.
En tvennt er það, sem vantar
alveg tilfinnanlega, og er svo aug-
ljóst, að hvert mannsbarn getur
skilið. Það vantar tunnuskýli, þar
sem framleiðslan sé geymd og það
vantar upphitun á vinnustað.
Þótt tunnuhlaðinn sé raunar
fallegur, virðist það augsætt að
jafnóvarinn fyrir veðri og vindi og
hann er, hljóta tunnurnar að
skemmast meira og minna, fré því
þær eru smíðaðar og þangað til
þær standa við hlið síldarstúlkn-
anna á einhverju ■ síldarplar.inu,
ekki minna en 7—8 ballar af kurli
og spænir að auki. Þetta er verð-
lítil eða verðlaus vara nú.En þó er
þessi úrgangur mjög heppilegur til
vinnslu, t. d. í ýmiss konar bygg-
ingarefni. Sveinbjörn Jónsson
byggingameistari, sem hefur byrj-
að framleiðslu veggplata úr þessu
efni fyrir sunnan, ætlaði að hag-
nýta þennan úrgangsvið í vetur,
en af því varð ekki að þessu sinni
□ Rún 59564307 - Lokaf.:
H & V.:
Kirjkan. Messað í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn kemur kl. 2
e. h. Sálmarnir verða þessir: Nr.
534, 512, 447, 17 og 511. P. S.
Msssað í 3arn_skólanum i Gler-
árþorpi n.k. sunnudag kl. 2 e. h. —
Sálmar: 17, 223, 136 og 131. K. R.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli. Sunnudaginn 6. maí
(bænadag) Munkaþverá kl. 1.30 e.
h., Kaupangi sama dag kl. 3.30 e.
h. — Fermingarbörn komi til við-
tals í Barnaskólanum á Svðra-
Laugalandi ménudaginn 7. maí kl.
1.30 e. h.
Fundur í stúlkna-
deild n.k. sunnudag
kl. 5 e. h. Baldurs-
brár- og Birkifjólu-
sveitir sjá um fundarefni. — Loka-
fundur.
í happdrætti Kvenfélagsins
Hlífar á sumardaginn fyrsta, féllu
vinningar á eftirtalin númer: Nr.
103 (borðrefill), nr. 3 (Ævisaga
Alberts Schweizer), nr. 221(herra-
skyrta), nr. 181 (kökuhnífur), nr.
162 (kaffidúkur). — Vinninganna
skal vitja til Gerðar Sigm^rsdótt-
ur, Norðurgötu 48, sími 1852. —
Vinningur í happdrætti barna-
skemmtunar Hlifar í Samkomu-
húsinu á sumardaginn fyrsta féll á
nr. 115. — Vitjist til Ingileifar
Jónsdóttur, Eiðsvallagötu 8.
Guðni Friðriksson og Gunnar
Konráðsson við botnasmíði.
vegna húsnæðisvöntunar fyrir vél-
ar og hráefni. En það getur þó
staðið til bóta og er vonandi að
það verði.
Geitur til sölu
Nokkrar ungar, góðar geit-
ur eru til sölu á Sörlastöð-
um í Fnjóskadal.
Ólafur Pálsson,
Sími um Skóga.
Pálmi Sigmundsson hnoðar j
gjarðir.
tilbúnar að gleypa hverja síldina
af annarri úr hendi hinna hrað-
virku kvenna.
Þörf atvinnuaukning.
Tunnusmíðin á Akureyri er
veruleg atvinnubót og framkvæmd
á heppilegasta árstima, þeim tíma
er daufast er yfir atvinnulífinu í
bænum. Margar fjölskyldur njóta
góðs af þeim ca. 450 þús. krón-
um, sem greiddar voru í vinnulaun
í vetur. Þyrfti þó vetrarstarf
þeirra fjölmennu verkamanna í
bænum, sem ekki eru neinir há-
tekjumenn að sumrinu, að vera
rniklum mun meira.
Ogrynni af spónum og kurli fell-
ur daglega til í verksmiðjunni, eða
Piltar athugið!
2 góð forstofuherbergi til
leigu, með afnotum af baði
og síma. Fæði á sama stað.
Reglusemi áskilin.
Uppl. í síma 2340.
YFÍRD0MÁRINN
Sýning laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 8.30 e. h. að
Sóígarði.
ALMENNUR dansleikur
eftir sýningu, bæði kvöldin.
Góð vntsik. — Veitingar.
Kvenfél. Hjálptn.
með lausri lilið,
n
Bólstruð húsgögn h.f.
Hafnarstræti 88. Sími 1491.
Chevrolet-vörubíll
módel 1935, er til sölu.
Uppl. í sima 1533.
2 herbergi og eldhús
til leigu í 4 mánuði.
Uppl. í sima 1838.
Skyndisala
á ýmiskonar fatnaðarvörum, með mjög góðu verði, er
hafin og stendur yfir nokkra daga.
A mörgum tegundum má nefna: Kvenpeysur, kven-
undirföt, náttkjóla, nylon-, crepe- og pcrlon-roHM,
telpuundirkjóla, blússur, barna- og unglinga-rLT/eóúr,
sportskyrtur og hcttustakkar. Allskonar nærfatnaður á
börn og fullorðna og ótal margt fleira.
Sannfærist sálf um hið hagkvæma verð, með því að
líta inn til okkar i Hafnarstræti 94, Hamborg (þar sem
áður var bilabúoin).
I. O. O. F — 137427814
Hjálrpræðiskerinn. Miðvikudag-
inn 2. maí kl. 20.30: Fagnaöarsam-
koma fyrir kommandör og frú
Sundin. Börn úr sunnudagaskólan-
um bjóða þau velkomin með söng
og upplestri. — Fimmtudaginn 3.
maí kl. 16: Heimiliasambandið All
ar konur velkomnar. Kl. 20.30: Al-
menn samkoma. Kommandör og
frú Sundin tala á þessum sam-
komum. Deildarstjórinn, major
Gulbrandsen, kapt. Guðfinna Jó-
hannsdóttir, foringjar og hermenn
taka þátt. Allir velkomnir.
Leiðrétting. Mishermt var það í
síðasta tölublaði Dags að Garðar
Halldórsson á Rifkelsstöðum væri
þar fæddur. Hann er fæddur í Sig-
túnum í sama hreppi og ólst þar
upp til 16 ára aldurs.
Hjónaefni. A sumardaginn fyrsta
opinberuðu trúlofun sína ungfrú
Svanhildur Friðriksdóttir, starfs-
stúlka í efnagerðinni Flóru, og
Gunnbjörn Jónsson bóndi Yzta-
Gerði.
Hjúskapur. Síðastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Jóhanna Svanfríður
Tryggavd., verzlunarmær, Helga-
magrastræti 7, Akureyri, og Hall-
dór Pálmi Pálmason, rafvirki, Æg-
isgötu 19, Akureeyri. — Heimili
þeirra verður að Helgamagratr. 7.
Hestamananfélagið Léttir held-
ur fund 30. apríl kl. 9 e. h. að Hó-
tel KEA (Rotarysal). Fulltrúi írá
L. H. mætir á fundinum.
Akureyringar! Kvenfélagið Hlíf
þakkar yður góða þátttöku í fjár-
söfnun þess á sumardaginn fyrsta,
fyrir dagheimilið.Pálmholt, Félag-
ið þakkar alla aðstoð og margvís-
lega fyrirgreiðslu á einn og annan
hátt, nú sem fyrr. — Lifið heilir!
Gleðilegt sumar! — Stjórnin.
Kirkjugifting. Þann 18. apríl
voru gefin saman í hjónaband ung-
frú Anna María Hallsdóttir og
Baldur Agústsson deildarstjóri. —-
Heimili þeirra er að Ránargötu
10. -=_A sumardaginn fyrsta voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Alda Þorgrímsdóttir og Garðar
Aðalsteinsson bifreiðastj. Heimili
þeirra er að Brekkugötu 1. —
Sama dag voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Guðný Elísabet
Halldórsdóttir og Kristinn Sigur-
páll Kristjánsson símavirki. Heim-
ili þeirra er í Þingvallastræti 6.
Akureyringar! Hjálpið til við
fegrun kirkjulóðarinnar og eflið
minningasjóðinn með því að
kaupa minningarspjöldin. Þau fást
í Bókaverzlun POB.
Frá Barnaverndarnefnd. Fyrir-
hugað er, að leikvellir bæjarins
taki til starfa 16. maí, ef veðrátta
leyfir. — Starfsstúlkur verða þær
sömu og sl. sumar, að öðru leyti
en því, að frú Jónborg Þorsteins-
dóttir, sem verið hefur yfirgæzlu-
kona undanfarin sumur, hefur sagt
upp starfi sínu. Vill nefndin alveg
sérstaklega þakka henni góð störf
í þágu leikvallanna. Þá hefur ver-
ið tekin upp sú nýbreytni að ráða
ungfrú Ásdísi Karlsdóttur, íþrótta-
kennara, til að ganga á vellina og
skipuleggja ýmiss konar leiki, sem
verða mættu til gleði og þroska
fyrir börnin.
ísafoldar-félaéar! Athugið að
næsti fundur verður miðvikudag-
inn 2. maí næstk. Lokafundur. —
Fundarefni: Vígsla nýliða, kosning
fulltrúa á Umdæmis- og Stórstúku-
þing, mælt með umboðsm. Stór-
templars o. fl. Hagneíndaratriði.
Æðstitemplar.