Dagur - 11.07.1956, Side 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagu
DAGUR
kemur næst út mið-
vikudaginn 18. júlí.
XXXIX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 11. júlí 1956
39. tbl.
Opnun nýju sundlaugarinnar markar
óf í sundmálum bæjarins
Þarsteihn M. Jónsson, forseti bæjarstjórnar, í ræðustól við
opnun sundlaugarinnar á Akureyri 7. júlí síðastl.
Mikil sild á vestursvæðinu
Bræla er nú á austurmiðunum
Sigtufirði í £ær.
Samkvæmt viðtali við bæj-
arstjórann á Siglufirði, Jón
Ivjartansson, fréttist að nokk-
ur skip hefðu fengið afla 24
sjómílur norðvestur af Siglu-
firði í gærkveldi.
Fóru skipin út hvert af öðru og
fengu 30 skip síld í nótt og í
morgun. Samtals um 10 þús. tunn-
ur. — Voru það þessi skip:
Fanney 500 tunnur, Fróði 100,
Grundfirðingur 200, Keilir 350,
Hilmir 250, Sigurður 600, Þor-
steinn frá Sigluf. 500, Pétur Jóns-
son 300, Bjarmi 400, Víðir S. U.
400, Faxaborg 450, Súlan 450,
Særún 600, Erlingur III. 100,
Baldur 200, Hrönn 450, Páll Páls-
son 450, Bergur 250, Helgi Fló-
ventsson 450, Helga 250, Böðvar
100, Hringur 450, Gunnólfur 500,
Mummi 150, Arnfirðingur 100,
Einar Hálfdánarson 650, Tjaldur
150.
Saltað var á flestum söltunar-
Fegurðarsamkeppnin
á Langasandi
A föstudaginn fer frani fegurðar
iamkeppni kvenna á Langasandi í
CJaliforníu. Fegurðárdrottningin ís-
len/.ka, er valin var í sumar, frk.
Guðiaug .Guðmundsdóttir, er farin
yestur til þátttiiku í þessari alþjóða
fcgurðarsamkeppni, og óskum við
hcnni fararheilla.
Óvíst um myndun
nýrrar ríkisstjórnar
Foringjar stjórnmálaflokkanna
og aðrir tilkvaddir menn kanna
möguleika til myndunar rikis-
stjórnar þessa dagana. Ekkert hef-
ur verið látið uppi um árangurinn
enn sem komið er.
Landkjörstjórn hefur lokið
störfum og er búizt við að Alþingi
komi saman um eða úr miðjum
júlí.
stöðvum á Siglufirði í nótt. En
alls eru söltunarstöðvarnar 21 á
staðnum.
Hingað munu vera komnar til
söltunar ca. 35 þús. tunnur, en lít-
ið hefur verið brætt enn sem kom-
ið er.
Á austursvæðinu fengu 10—11
skip litla veiði, enda bræla á mið-
unum þegar austar dró.
Þrjátíu þúsund mál í bræðslu
á Raufarhöfn.
Raufarhöfn í gær.
Nokkur skip komu hingað með
sild til söltunar í morgun, en nú er
norðanstormur hér eystra og lítil
veiði.
17 þúsund tunnur er búið að
salta og vantaði fólk þegar mest
barst að af síldinni til að salta og
var þá ekki hægt að taka nema
takmarkað magn af hverju skipi,
en hitt látið í bræðslu,30 þús. mál.
Yfir 1000 aðkomufólk er nú
komið til Raufarhafnar og at-
vinnulífið fjörugt það sem af er
síldarvertíðinni.
Loftleiðir
opna nýja skrifstofu
Mánudaginn 2. þ. m. opnuðu
Loftleiðir nýja skrifstofu í Frank-
furt am Main í Þýzkalandi, en sú
borg er mikil miðstöð fiugsam-
gangna og er nú í miklum vexti.
Skrifstofan er við eina af aðal-
götum borgarinnar, Rathenauplatz,
og er á fyrstu hæð byggingarinnar
nr. 2—8.
Þetta er fyrsta skrifstofan, utan
Hamborgar, sem Loftleiðir opna í
Þýzkalandi, en vinsældir félagsins
þar í landi eru nú vaxandi og
standa vonir til þess að hin nýja
skrifstofa muni verða til þess að
auka tölu viðskiptamanna Loft-
leiða í Þýzkalandi.
Loftleiðir halda nú uppi fjór-
um áætlunarferðum í viku til og
frá Hamborg.
Síðasta sjóferð þriggja
gamalla skipa
Hollenzki dráttarbáturinn Tyne
er nýlega lagður af stað héðan
með 3 skip í togi, sem seld eru
sem brotajárn til Hollands og
fermd brotajárni. Skipin eru:
Sverrir, Bjarki og Jökull frá Rvík.
Vonandi tekst þessi síðasta sjó-
ferð skipanna að óskum.
Kostar um 3 milljónir króna, en fullnægir
ströngustu kröfum um slíkar byggingar
Sundlaugin nýja á Akureyri var opnuð með viðhöfn á*laug-
ardaginn var. Þessa atburðar mun liafa verið beðið með
óþreyju um margra ára skeið, eða allt frá árinu 1948, þegar
hafin var framkvatmd þeirra viðbótarmannvirkja, sem nú eru
fullbúin og tekin til notkunar á sundlaugarsvæðinu.
Sundfrömuðirnir Lárus Rist
og Ólafur Magnússon.
Vandaður sundstaður í
hjarta bæjarins.
En hinn langi aðdragandi og
seinagangur á framkvæmdum
gleymast í einni svipan og for-
ráðamönnum framkvæmda, sem
eru orðnir fjölmargir, fyrirgefast
margar vanrækslusyndir, þegar
hið nýja hús, með kennslusund-
laug á neðstu hæð, er endanlega
fullbúið og býður bæjarbúum og
öðrum er þess eiga kost, hina
ákjósanlegustu aðstöðu til sund-
iðkana, hreinlætis og þeirrar holl-
ustu, sem vandaður sundstaður í
hjarta bæjarins getur veitt.
Vönduð bygging.
Aðalbyggingin er 2730 m". Á
neðstu hæð er mjög vönduð
kennslusundlaug og hitunartæki
(næturhitun) og vélasalur. Á mið-
hæð er karladeildin með 58 bún-
ingsklefum og að auki 5 einmenn-
ingsklefum, þar sem hver baðgest-
ur fær lykil að. Klefar þessir eru
smíðaðir á Valbjörk h.f. og eru
vandaðir að efni og frágangi.
Hljóðeinangrun og
loftræsting.
Hljóðeinangrun er í loftinu,
gerð af gosullarmottum og götuð-
um asbestplötum. Ljósin eru vætu
varin og hljóðeinangrunin líka, þ.
e. gosullin. Loftræstingin á að vera
fullkomin og er loftið hitað á
neðstu hæðinni.
J....É.&.Í
Kennslusundlaugin nýja er mjög fullkomin og skemmtileg
Sjálfvirk blöndun.
I karladeildinni eru 5 steypi-
böð. Blöndunin er að mestu sjálf-
virk og er sá útbúnaður einnig í
vélasal niðri. Eru þessi blöndun-
artæki nauðsynleg vegna þess að
slys gæti hlotist af sjóðandi vatni
og í öðru lagi er hætt við að
óþarflega mikil hitaorka færi til
einskis að öðrum kosti. Þ,ó er á
einum stað við böðin sjóðandi
vatn.
Handklæðahillur eru þarna og
að sjálfsögðu klósett.
Á gólfi eru gólfflisar, sem lítt
munu þekktar hér á landi, nema á
Flugvallarhótelinu í Keflavík. Þær
eru snyrtilegar og sagðar sterkar.
Kvennadeildin.
Á efstu hæðinni er kvenna-
deildin. Er þar mjög svipuð til-
högun og stærð. Þó er hárþurrk-
, sem þarna er fyrirhuguð,
hvergi sjáanleg í karladeild. Klef-
ar eru jafnmargir, en litir aðrir á
þessari hæð.
Böð.
I norðurenda eru þurrböð, en
eldri gufubaðstofa lögð niður. —
Einnig er hvíldarherbergi fyrir
baðgestina. í baðstofunni á að
geta verið mjög heitt eða allt að
100 stig. Loft, veggir og gólf er
einangrað með 10 cm. þykku
korklagi.
Hreinlæti.
Oll tæki sundlaugarinnar taka
um 600 kilovattastraum, þar með
talin upphitun beggja sundlaug-
anna. Sérstök tæki hreinsa vatnið
og eyða bakteríum, og klór er
einnig notað til að eyða gróðri og
gerlum.
Kennslulaugin.^
Kennslulaugin er mjög falleg og
einkar þægileg til afnota. Þar er
ágæt birta og gott loft, enda all-
bátt til lofts og hljóðeinangrun
góð, eins og annars staðar í hús-
inu.
Sjálft er vatnið lýst upp með 7
ljóskerum, sem eru undir yfirborði
vatnsins og setja skrautlegan svip
á laugina.
Laugin sjálf er 12,5 metrar á
lengd en tæpir 6 metrar á breidd,
Framhald á 7. síðu).