Dagur - 11.07.1956, Side 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 11. júlí 1956
VerSí
fluilar vesiur um haf?
fslenzki hundurinn að verða útdauður - Góðir
fjárliundar nauðsynlegir í sauðfjárræktarlandi
Þótt íslendingar hafi löngum stundað sauðfjárrækt og geri
enn, er ]>ví svo farið á landi hér, að fjárhundar hafa aldvei
verið ræktaðir. Mun þetta einsdæmi í sauðfjáræktarlandi. —
Enn sýnist hundarækt svo fjarri, að gert er grín að þeim, er
benda á þennan sjálfsagða þátt í sauðfjári-æktarbúskap.
Afhyglisverð knattspyrnukeppni
Bezta knattspyrnulið Luxemborgar keppir við
Akureyringa næstkomandi laugardag kl. 4.30
Ólíkt farið að.
Á meðan aðrar sauðfjárræktar-
þjóðir leggja kapp á að kynbæta
og temja góða fjárhunda og telja
þá hina nauðsynlegustu, blandast
okkar gamla, íslenzka fjárhunda-
kyn meira og meira af útlendum
hundum margra tegunda, svo að
nú er þannig komið, að okkar
gamli fjárhundastofn er að verða
útdauður.
Mun það líka æ alengara áð
bændur hafa aldrei kynnzt góðum
fjárhundi og þekkja ekki af eigin
reynslu hver not eru að slíkum
skepnum.
Aldrei vitað um föðurinn.
Þó er ekki því að leyna, að
þrátt fyrir algert sinnuleysi um
þessi mál, hafa þó af og til komið
fram góðir einstaklingar, sem með
þjálfun hefðu getað orðið afburða
fjárhundar, og enn munu þeir
hundar vera til. En þessum ágsetu
einstaklingurn er ekki sýndur
meiri sómi en svo, að alger til-
viljun ræður timgun, og mun eng-
inn hvolpur fæðast svo í landinu,
að vitað sé um föðurinn með
nokkurri vissu.
Rröfur annarra um
f járhunda.
Til að gefa hugmynd um kröfur
þær, sem gerðar eru til fjárhunda
í Skotlandi, er eftirfarandi laus-
lega og aðeins efnislega þýtt úr
„The Shell Magazine". Þar lýsir
greinaThöfundurinn, Robinson,
keppnum, er fjárhundar eru lótnir
heyja á stórum mótum, jafnvel
landsmótum. Og auðvitað þurfa
þátttakendur að uppfylla ýmis
skilyrði til að fá að keppa. Þeir
verða meðal annars að vera fjár-
hundar, en ekki þjálfaðir keppnis-
hundar.
Á þessum mótum verða hund-
arnir fyrir mörgum meiri háttar
truflunum, sem setur suma þeirra
út af laginu. Annarleg hljóð og
skarkali má engin áhrif hafa og
góðir hundar láta þau ekki villa
um fyrir sér. Þrautir þær, sem
þessum keppendum er ætlað að
leysa, eru mjög erfiðar, reyndar
svo erfiðar, að maður getur naum-
ast trúað, að sé á færi hunda.
Hundarnir keppa á
héraðsmótum.
Robinson segir að á venjuleg-
um héraðsmótum séu vanalega
notaðar þrjár kindur, sem hafðar
eru í 250 metra fjarlægð. Fjár-
hundinum er ætlað að sækja þess-
ar þrjár kindur og koma með þær
til smalans. Er þetta erfitt verk,
enda gefin mörg stig fyrir þraut
þessa, ef hún er leyst svo vel sem
hægt er. Stigin eru gefin í þrennu
lagi fyrir þessa íþrótt. Fyrst fyrir
það, hvernig hundurinn fer að á
leiðinni og þangað til hann er
kominn fyrir féð. Ekki má hann
hlaupa beint af augum, heldur
fara í stórum boga, annað hvort
til hægri eða vjnstri, eftir þvj
sem húsbóndi hans segir honum
fyrir.
Næst er gefið fyrir það, hyern-
ig hundurinn bregst við þegar
kindurnar taka til fótanna vegna
styggðarinnar eða hræðslu við
hundinn, og hvað honum ferst vel
að reka kindurnar til húsbónda
síns. Þetta er þó gert nokkuð tor-
velt. Girðingar og aðrar hindranir
eru á leiðinni og verður hundur-
inn sjálfur að átta sig á þeim og
haga sér samkvæmt þvi. En þetta
er hins vegar mjög til hægðar-
auka fyrir dómara og gamans fyrir
áhorfendur, sem sjaldan láta sig
vanta á slíkum mótum.
Hefst þá lokaþátturinn, er hann
í því fólginn að reka féð rétt og
rækilega gegnum hlið og nýjar
hindranir og siðast í rétt. Tíminn,
sem gefinn er, er 10 mínútur.
Miklar kröfur gerðar.
Á landsmótum eru verkefnin
miklu erfiðari en á héraðsmótum,
enda ekki á allra færi að heyja
þar keppni. Þá eru notaðar fleiri
kindur og þær hafðar mun lengra
frá, eða allt að 400 metrum. Fjár-
hundurinn verður að sækja kind-
urnar og eru torfærur á leiðinni.
Síðan á hann að koma með féð á
afmarkaðan hring, sem er 20
metrar í þvermál. Þar bíður hús-
bóndi hans eða smalinn hans og
hjálpast þeir að þvi að skilja tvær
ómerktar kindur frá hinum og má
engin kind fara út úr hringnum á
meðan. Síðan á hundurinn að reka
féð hjálparlaUst að réttinni og þar
biður smalinn hans og heldur í
endann á 6 feta löngum spotta.
En þessi spotti ákvarðar svigrúm
smalans við að hjálpa hundinum
að rétta féð.
Enn á ný verður hundurinn að
fara með kindurnar út og reka
þær í hringinn, sem áður getur.
Þar verður hann að ná merktri
kind úr hópnum. Smalinn fer nú
pokkurn spöl frá og segir hundin'-
um að koma með kindina til sin.
Ef dómararnir sjá, að þessari raun
er einnig lokið á viðeigandi hátt á
15 mínútum eða skemmri tíma,
gefa þeir einkunn sina eftir allri
frammistöðu hundsins. •
En snúum okkur aftur að ís-
lenzka fjárhundinum.
G.óður fjúrliundur auiðyeldar
fjárgæzlu.
Gaman væri að frétta um afrek
íslenzkra fjárhunda, sem grafjð
hafa fé úr fönn, smalað lönd hús-
bónda síns einir síns liðs eða sýnt
önnur merki um vit og vilja. Um
tryggðina efast enginn.
Skyldu þeir vera margir ís-
lenzku fjárhundarnir, sem leyst
gætu eina eða fleiri þrautir, þær
sem skozkum huindum er ætlað,
eigi þeir að teljast góðir fjárhund-
ar?
Það væri vissulega nauðsynlegt
og ómetanlegt fyrir bændur þessa
lands, að eiga reglulega góða fjár-
hunda til að létta erfiða smala-
mennsku og fjárgæzlu og fjárgæzl-
an yrði mun eftirsóknarverðari en
(Framhald á. 5 síðu)
Nýkomið frá Bosch:
Miþstöðvar
Jlal mflgnsþ iirrk u r
líásþnni ithejli
Rofar í bifreiðar
Véla- og bUsáhaldadeild
Á föstudaginn kemur hingað til
Akureyrar með flugvél frá Flug-
félagi Islands, fyrsta erlenda
knattspyrnuliðið frá félaginu
Spora í Luxemburg, en það er
stærsta íþróttafélag þar í landi, og
hefur m. a. tekið þátt í Ólympíu-
leikum og hlotið meistara. Spora
kemur hingað til lands á vegum
knattspyrnufélagsins Þróttar í
Reykjavík, en það félag var stofn-
að 1949 og er því yngsta íþrótta-
félag höfuðstaðarins. Þróttur lék
sinn fyrsta leikr við gesti sína sl.
sunnudagskvöld og hafði styrkt
lið sitt með sex lánsmönnum frá
öðrum félögum. Endaði leikur sá
með jafntefli, 3 mörkum gegn 3.
Spora mun leika fimm leiki hér
á landi í þessari ferð, þann fyrsta
lék liðið þann 8. þ. m. við Þrótt.
Annar leikur þeirra verður háður
hinn 10. þ. m. og munu þeir þá
leika við Akurnesinga. Fimmtu-
daginn 12. júlí munu þeir leika við
úrvalslið Reykjavíkur, en 14. júlí
keppa þeir við Akureyringa. Sið-
asti leikur Spora verður hinn 17.
júlí við úrvalslið Suð-Vesturlands.
Spora hefur á undanförnum ár-
um verið bezta. knattspyrnufélagið
í Luxemburg -og varð' Tneretari' á'
síðasta ári. Með liðinu hingað
koma tuttugu menn, þar af 17 leik
menn, fimm þeirra hafa leikið í
landsliðinu, en nokkrir aðrir hafa
leikið í B-landsliðinu. Þekktasti
maður liðsins er Austurrikismað-
urinn Willy Macho, sem hefur ver-
ið þjálfari liðsins síðan 1954, en
hefuf jafnframt leikið með því og
verið fyrirliði. Macho lék 17 sinn-
um með landsliði Austurríkis og
sést af því að hér er um mjög
snjallan leikmann að ræða. Einn-
ig er vinstri útherjinn, Letsch,
nokkuð þekktur á meginlandinu,
en hann hefur leikið um þriggja
ára skeið sem atvinnumaður í
Frakklandi, og hefur leikið fjöl-
marga leiki með landsliði Luxem-
burgar. Þess má geta, að allir leik-
menn liðsins eru áhugamenn.
Spora hefur náð ágætum ár-
angri í ár. Nýlega lék það við
VLF, Köln, og varð jafntefli, 2
mörk gegn 2. Einnig lék það við
Rancing Club Lens í Frakklandi,
Kemur röðin að okkur?
í nýjum, dönskum blöðum er
sagt frá því, að útvarpið í Sovét-
ríkjunum hafi í bréfi til danska út-
varpsins óskað eftir skiptum á list-
rænu útvarpsefni, einkum hljóm-
list. Danska útvarpsráðið ákveður
svar sitt á fundi x ágúst, og gert
er ráð fyrir því, að það verði já-
kvætt.
Ekki hefur heyrzt um, að Ríkis-
útvarpið hér hafi fengið nein slík
tilmæli, en kannske koma þau.
Fjölgar þá talsvert áheyrendum
að hljómlistarflutningi Islendinga.
sem varð annað í fyrstu deild í
frönsku keppninni. Frakkarnir
sigruðu með 5 mörkum gegn 3, eft
ir skemmtilegan leik. Spora leikur
meginlandsknattspyrnu, með stutt-
um, hröðum samleik.
Eins og fyrr segir koma hinir
erlendu gestir hingað til Akureyr-
ar á föstudaginn og munu dvelja
hér fram á mánudag. Fyrir hádegi
á laugardag munu þeir skoða bæ-
inn, en á sunnudaginn fara þeir
um nágrenni bæjarins og austur í
Mývatnssveit, og verða helztu
staðir á þeirri leið skoðaðir. Há-
degisverður verður snæddur í
Reynihlíð.
Á þessu sést, að ráðist er i mik-
ið af litlum efnum, en þeir sem
að þessu standa treysta ó sam-
hjálp fólksins, sem hefur áhuga
fyrir knattspyrnuíþróttinni. Knatt-
spyrnumenn okkar hafa æft vel í
vetur og vor. Þeir vita, að af þeim
er mikils krafizt og munu nú sem
áður gera sitt bezta.
En óhugsandi og óverjandi er
það, að ætlast til þess af þeim, að
þeir beri fjárhagsþunga þessarar
heimsóknar.
Knattspyrnuráð- Akureyrar
treystir því á alla, sem eiga þess
kost, að mæta á íþróttavellinum
næstkomandi láugardag, að fjöl-
menna.
Knattspyrnuráð Akureyrar vill
minna á að íþróttásvæðið er illa
girt og því erfitt að selja aðgang
að íþróttakappleikum. Sniðgangið
ekki þá sem selja miða, heldur
gangið til móts við þá og greiðið
góðfúslega.
íþróttanámskeið
að Laugarvatni
Dagana 29. ágúst til 6. septem-
ber næstk., mun að Laugarvatni
fara fram námskeið fyrir íþrótta-
kennara á vegum Iþróttakennara-
skóla Islands.
Á námskeiðinu mun verða
kennt: Fimleikar með undirleik og
hrynjandi-æfingar (rythmik),
körfuknattleikur, stökk, gönguæf-
ingar og dansar.
Aðalkven-íþróttakennari Iþrótta-
háskólans í Köln, mun kenna á
námskeiðinu. Þá munu þau Sigríð-
ur Þ. Valgeirsdóttir og Árni Guð-
mundsson einnig annast kennslu.
Erindi flytur dr. Broddi Jóhann-
esson og efnt verður til samræðu-
funda og funda í íþróttafélagi Is-
lands og nemendasambandi
Iþróttakennaraskólans á Laugar-
vatni.
Golftreyja
gleymdist í Vaglaskógi 14.
i:. m. — Skilist vinsamlega á
afgr. Dags.
íslen/kur landnemi í Californíu. Hann er ljósgulúr aó lit
nieð Jningað skott og vel ujxprétt eyru. Myndin tekin vestra.