Dagur - 20.02.1957, Síða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 27. febrúar.
XXXX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 20. febrúar 1957
8 tbl.
Þarfur fararskjóti
í fyrradag voru tveir snjóbílar frá Húsavík hér á Akureyri. Sá er
Kánadtskur er mýndin er af og hefur reynzt vel. Honum fylgir
yfirbyggður sleði. — Ljósmynd E. D.
íslendinpr keppa á Holmenkollen
skíðamólinu - Tveir frá Ákureyri
Vörusala Kaupfélags Eyfirðinga jókst
enn verulega - Landbúnaðarvörur
25% meirð en síðastl. ár
Ur skýrslu framkvæmdastjóra, Jakobs Fri-
mannssonar á félagsráðsfundi í gær
í gær var haldinn félagsráðsl'undur Kaupfélags Eyfirðinga. Full-
trúa vantaði úr nokkrum deildum vegna crfiðra samgangna í hér-
aðinu. Form. félstj. Þórarinn EUljárn bauð fulltrúa velkomna og til-
nefndi síðan Valdimar Pálsson sem fundarstjóra og Ármann Dal-
mannsson ritara. Framkvæmdastjóri félagsins, Jakob Frímannsson,
fíutti síðan yfirlit um starfsár félagsins 1956.
Holmenkollenmótið hefst á
föstudaginn, 22. þ. m., í Norefjell
í Noregi. Fjórtán íslendingar
taka þátt í mótinu að þessu sinni,
að því er Hermann Stefánsson,
form. Skíðasambands íslands,
hefur tjáð.
Á mótinu keppa sem landsliðs-
menn: Eysteinn Þórðarson Rvík,
Jón Kail Sigurðsson ísaf., Hauk-
ur Ó. Sigurðsson ísaf., Hjálmar
Stefánsson Ak., Steinþór Jakobs-
son ísaf. og Ulfar Skæringsson
Reykjavík.
Auk þess keppa: Sigtryggur
Sigtryggsson Ak., Kristinn Bene-
diktsson ísaf., Svanberg Þórðar-
son Rvík og Jóhann Vilbergsson
Siglufirði og hinar þekktu skíða-
konur frá ísafirði, Marta og
Jakobína.
í skíðagöngu keppa sérstak-
lega, Hreinn Hermannson frá
Héraðssamb. Þingeyinga og Árni
Höskuldsson ísaf. Af upptaln-
ingu er ljóst, að um þessar mund-
ir eru ísfirðingar miklir skíða-
menn.
Á vegum Skíðasambandsins
eru nú nokkrir ungir menn við
. skíðanám í Svíþjóð, meðal ann-
arra Bragi Hjartarson frá Ak. —
„Lambaburður“ í
Mogganum
Morgunblaðið' segir frá því ný-
lega, að á bæ einum á Suðurlandi
sé „lambaburður" byrjaður og
hafi ær ein borið í janúar og
lambaþyngd tilgreihd.
Ekki þykir nú lengur fréttnæmt
hér nyrðra, þótt ær beri um
miðjen vetur. Hitt þykir meiri
nýlunda hér, að heyra það kall-
aðan „lambaburð", sem hingað
til hefui’ verið nefnt sauðburður.
Er fréttaklausan um „lamba-
burðinn" í Morgunblaðinu nán-
ast óburður.
Og við nám og keppni erlendis
eru enn fremur Þorlákur Sig-
urðsson Mývatnssveit og Otto
Tulinius Ak.
Skíðamót íslands verður háð
hér á Akureyri um páskana.
Síðastl. föstudag lauk stjórn-
málanámskeiði Félags ungra
Framsóknarmanna hér á Akur-
eyri. Þátttakendur voru 22.
Stjórnandi námskeiðsins var
Björn Hermannsson lögfræðing-
ur. En erindi fluttu, Jóhann Frí-
mann skólastjóri, Jóhannes Óli
Sæmundsson námsstjóri og Gutt-
Eggert kominn á þing
Eggert Þorsteinsson hefur nú
tekið sæti á Alþingi í stað Har-
aldar Guðmundssonar eftir sögu-
lega pólitíska baráttu stjórn-
málaflokkanna á Alþingi. Gerði
Sjálfstæðisflokurinn endurtekn-
ar tilraunir til að svipta Alþýðu-
flokkinn varaþingmanni í Rvík.
Má eftir atvikum telja niður-
stöðu þessa máls eðlilega.
Næsii bændaklúbbs-
íundur
verður mánudaginn 25. íebr.
á venjulegum stað og tíma.
Rætt verður um flutningamál-
in, sérstaklega þegar svo hagar
til, að snjóþyngsli hindra sam-
göngurnar. — Framsögumaður
verður Karl Friðriksson, vega-
málastjóri héraðsins.
ormur Sigurbjörnsson erindreki.
Megináhersla var lögð á ræðu-
mennsku og voru nemendur æfð-
ir á málfundum. Var mikill áhugi
ríkjandi meðal hinna ungu manna
og margir þeirra líklegir til starfa
á sviði félagsmála.
Námskeiðinu lauk með kaffi-
samsæti að Hótel KEA s. 1. föstu-
dag.
Mikil kaupgeta — vaxandi
vörusala.
Framkvæmdastjóri sagði meðal
annars í npphafi máls síns, að ár-
ið 1956 hefði verið miklu betra
verslunarár en búist hafði verið
við um þetta leyti í fyrra. Fram-
leiðsla til lands og sjávar byggð-
ist nú svo mikið á aðstoð ríkis-
valdsins og meira en áður var.
Ráðstafanir af opinberri hálfu
væru sjaldnast gerðar fyrr en á
síðustu stundu og væri því oftar
verra útlits en raunin yrði á. Ár-
ið sem leið hefði verið fremur
hagsælt ár, kaupgeta almennings
mikil og vaxandi vörusala.
Vörusala Kaupfélags Eyfirðinga
hfeði aukist um 17—18% á árinu.
Þessi aukning stafaði að nokru
af verðhækkunum en þó myndi
salan hafa aukist hvað vörumagn
snerti um 10% en verðhækkanir
frá 5—8%
Einstakar deildir.
Síðan gerði hann grein fyrir
hverri deild félagsins. Nýlendu-
vörudeildin ein hækkaði vöru-
sölu sína um 6,3 milljónir króna.
Er það mjög mikil hækkun og
stafar meðfram af því að sala
kjörbúðar er innifalin og fóður-
bætiskaup hefðu einnig vaxið
stórlega. Óll útibúin í bænum,
sem öll heyra undir Nýlendu-
vörudeildina hafa aukið sölu sína.
Vefnaðarvörudeild, Járn- og
glervörudeild, Skódeild, Bygg-
ingavörudeild, Véla- og bús-
áhaldadeild juku allar sölu sína,
misjafnlega mikið. Nokkrar breyt
ingar urðu í deildunum. Þannig
hætti Járn- og glervörudeildin að
versla með veiðarfæri og sala bif-
reiða var engin. Til jafnaðar var
söluaukning þessara deilda 17—
18%. Gefur aþð til kynna allgóða
verslunarafkomu og auknar tekj-
ur. Fióra seldi fyrir álíka og ár-
ið áður, en þá varð stóraukning á
framleiðslunni. Kjötbúðin seldi
að þessu sinni fisk allt árið og
mun sú breyting hafa ráðið
nokkru um að salan jókst þar
nokkuð. Lyfjabúðinn afgreiddi
fleiri lyfseðla en nokkru sinni
fyrr. Söluaukning þar var 20%
Miðstöðvardeildin jók sína sölu
og Olíusöludeildin seldi meira en
nokkru sinni fyrr. Pylsugerðin
stóð í stað með sína sölu. Smjör-
líkisgerðin einnig. Sjöfn fram-
leiddi álíka mikið og árið áður,
kaffibætisgerðin og Kaffibrennsl-
an juku söluna verulega.
Meðal-hækkun vörusölunnar í
öllum sölu-deildum félagsins
(Frapihald á 8. síðu.)
Ný saga eftir Halldór
Kilj an Laxness
Innan skamms er væntanleg á
bókamarkaðinn ný skáldsaga eft-
ir Halldór Kiljan Laxnes. Er það
Reykjavíkursaga og nefnist
Brekkukotsannáll.
Þykja það jafnan nokkur tíð-
indi, er ný bók kemur frá hendi
þessa höfundar. Er þetta fyrsta
bók hans, etfir að Svíar heiðr-
uðu hann með verðlaunum
Nobels.
Fremsta röð frá vinstri: Jón Einarsson, Geir Geirssin, Baldur Ágústsson, Björn Hermannsson, Ás-
grímur Stefánsson, Páll Pétursson og Sverrir Runólfsson. — Önnur röð: Már Pétursson, Ágúst Sig-
urðsson, Vilhjálmm- Hjálmarsson, Jón Ólafsson, Pálmar Magnússon, Gunnar Ámason, Árni Kárason.
— Aftasta röð: Bragi Ingólfsson, Páll Bjarnason, Tryggvi Pálsson, Sighvatur Snæbjörnsson, Eyþór
Stefánsson, Stefán Einarsson, Jón Rögnvaldsson og Haraldur Árnason.
Stjómmálanámskeið Félags ungra
Framsóknarmanna á Akureyri