Dagur - 20.02.1957, Síða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 20. febrúar 1957
DAGUR
Ritstjóri: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Þorkell Björnsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sífni 1166.
Argangurinn kostar kr. 75.00.
Blaðið keniur út á miðvikudögum.
Galddagi er 1. júlí.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Hvatt til verkfalla
Ef einliver, sem ekki er trúaður og harðsoðinn
íhaldssiuni, skyldi hafa efazt uni lúð rétta innræti
Sjálfstæðisflokksins, getur hann mcð hægu móti kom-
izt að réttri niðurstöðu nú um þessar mundir með
því að lesa og fylgjast með máigágni flokksins í
Reykjavík og bera skrifin saman við nokkurra ára
gömul blöð, ýmist Þjóðviljann eða Morgunblaðið.
Vorið 1955 stóð eitt harðsóttasta og almennasta
verkfall í sögu íslenzkra verkalýðsmála. Ýmsir álitu
þá og liéldu því fram, að því væri að einhverju leyti
beint gegn stjórnarvöldum landsins, það væri póli-
tískt, en ætti ekki rót sína að rekja til raunverulegrar
hagsmunabaráttu verkalýðsins. Verkalýðsstéttirnar
liefðu þannig verið notaðar tii pólitískra ódæðisverka
gegn stjórnarvöldunum. Sjálfstæðismenn héldu þessu
fram þá. Þá voru þeir í stjórn. Þeir báru það.á komm-
únista, að þeir stæðu fyrir og hvettu til verkfalla.
Og það var rétt. Þjóðviljinn livatti óspart til verk-
l'alla. En livað gerist svo um það bil tveimúr árum
síðar. Þá hafa ýmsar breytingar orðið á hinum póli-
tíska himni. íhaldið er ekki lengur í stjórn. Og þess
vegna getur það Ieyft sér að hvetja til skémmdar-
verka gegn rikisvaldinu, hvetja óspart til verkfalla.
Það leyndi sér ekki gleðihreimurinn í Morgunblað-
inu, þegar ]>að boðaði flugmannaverkfallið.'Og. þegar
blaðið skýrði frá málalokunum eftir það verkfall, var
frásögnin í tveggja ára gömlum Þjóðviljastíl: Stór-
felldar kjarabætur náðust el'tir viku verkfall. Með
öðrum orðum vildi blaðið segja við launþega og
önnur liagsmunasamtök: Gerið þið bara verkfall,
þið munuð fá liærra kaup.
Svona framkoma heitir að tala tveim tungum —
leika tveim skjöldum. Hún er raunar þess eðlis, að
hún dæmir sig sjálf. En hvort er Sjálfstæðisflokkur-
inn með atvinnurekendum og á móti verkalýðnum,
eins og han-n var 1955, eða með verkalýðsstéttunum
cn á móti atvinnurekendum. Hvernig myndi Bjarni
Benediktsson svara þeirri spurningu? En varla þurfa
launþegar að velta lienni lengi fyrir sér, áður en
þeir geti svarað. Svo mikið hafa þeir lært af margra
ára reynslu. Það er því hreinasti óþarfi fyrir íhalds-
menn að þykjast bera hag launþega svo mjög fyrir
brjósti. íhaldið er samt við sig og stendur enn
sem fyrr með auðmönnunum og bröskurunum og
mun gera það svo lengi sem áhrifa þess nýtur í ís-
lenzkum stjórnmálum. En hitt er svo allt annað mál,
að Ólafur og Bjarni vilja þessa ríkisstjórn feiga og
ætla sér að láta einskis ófreistað í þeirri viðleitni.
Auðinn og völdin telja ]>eir aldrei of dýru verði
keypt. Þess vegna á nú að Iáta sverfa til stáls, þó að
það jafnvel kosti það, að fólkið sjái í gegnum vinnu-
aðferðir þeirra og ylirgefi flokkinn. Hugsanagangur
þeirra mun vera eiitthvað á þá leið, að það sé betra
að falla með særnd lyrir hugsjón braskaranna, en að
lifa við smán, valdalaus óg með engu betri mögu-
leika til auðsöfnunar en sauðsvartur almúginn.
Hvenær fær „íslendingiir“ málið?
Morgunblaðið hellur áfram hræsnisfúllum vand-
lætingarskrifum yfir því, að enginn lýðræðissinni
megi nokkru sinni láta það henda sig að styðja
kommúnista til valda í trúnaðarstöðu og sízt af öllu
innan verkalýðshreyfingarinnar. Slík skrif eru gerð
til þess að blekkja lýðræðissinnað fólk, sem í raun
og sannleika vill ekkert saman við kommúnista ciga
að sælda, og til þess að reyna að telja fólki trú um,
að Sjálfstæðismenn séu manna h'k-
legastir til að vera útverðir sanns
lýðræðis. Þannig lítur baráttan gegn
kommúnismanum út á pappírnum.
Hér á Akureyri birtist hún ]>ó
öðruvísi í framkvæmdinni og ér
það vægast sagt hryggileg sjón að
sjá íramámenn Sjálfstæðisflokksins
í bænum í áköfum faðmlögum við
munu vera til í bænum, stórhrifnir
al' frammistöðu sinna manna í bæj-
arstjórninni, enda var fulltrúi
þeirra þar kúgaður til þess að sitja
heima, þegar endanlega var gert út
um þessi mál. Síðan átti hann að
friða umbjóðendur sína mcð því að
scgja að liann hefði ckki komið
nærri þessari ráðsmennsku! svo stór-
kommúnista, semjandi um launuð
störf lianda skjólstæðingum sinum
á víxl. Þannig afhentu bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins einum
kommúnista einræðisvald í málum
atvinnulausra verkamanna í bæn-
um, og má draga það mjög í efa, að
verkamenn í bænum kunni þeini
miklar þakkir fyrir. Sízt af öllu eru
Sjállstæðisvcrkamenn, — cn þeir
mannleg sem slík framkomá er.
En meðal annarra orða: Hvenær
ætlar „Islendingur," blað llialds-
manna hér í bæ, að birta þessi tið-
itidi frá bæjarstjórn. Um þetfa sam-
starf Sjálfstæðismanna og kommún-
ista liafa orðið talsverð blaðaskrif,
en íslendingur heíur alltaf þagað.
Lesendur þess blaðs liljóta að gera
einhverjar lágmarkskröfur.
Sigurbjörn Jónsson, Björgum,
biður blaðið fyrir eftirfarandi at-
hugasemd:
„í fimmtugasta og fyrsta tölu-
blaði „Dags“ f. á., er smá grein
með fyrirsögninni: „Kindahópur
bíður dauða síns í Ógöngufjalli."
Og: „Austan í Ógöngufjalli í
Kinn bíður kindahópur dauða
síns, — þar er gróðurlaust með
öllu, og kindurnar búnar svelta
nær tvær vikur.“ — Þá segir: „í
öðrum göngum sluppu 11 kindur
frá gangnamönnum úr Litlufjöru
torfu og komust eftir klettasyll-
um um 300 metra veg í skál eina
allbreiða en gróðurlausa er þar er
litlu sunnar, og er þetta í Ógöngu
fjalli austanverðu.“
Síðar í sömu grein: „Átta af
þessum kindum fóru af sjálfs-
dáðum til baka norður klettana
og var borgið. Hinar eru eftir og
virðist ekkert bíða þeirra nema
dauðinn, því að enga björg er
þarna að hafa.“
Það eru algjör ósannindi, að
fyrrnefndar kindur færu frá
gangnamönnum Litlufjörutorfu.
Heldur sluppu þær úr smölun
Bakranga, en hann er vestur-
hluti Ógöngufjalls. Þar var
smalað 21. sept. Aftur á móti
var Litlufjörutorfa smöluð 22.
sept. og af öðrum mönnum.
Eg finn sérstaka ástæðu til að
leiðrétta fyrrnefndan söguburð
vegna þess að orð leikur á að
hann sé af slæmum toga spunn-
inn, og ekki orðið fyrst til í
munni ritstjóra „Dags“.
I öðru lagi hefur sá maður, sem
þessu var kunnugastur, í engu
hallað þar réttu máli, en sagt
frómt og drengilega frá orsökum
þess að kindurnar fóru í skálina.
Og því ekki kennt gangnamönn-
um Litlufjörutorfu um. Enda
voru þeir þann dag heima að bú-
um sínum.
Fréttaritararnir.
Fjórir fréttaritarar hér í hér-
aði hafa orðið til að skrifa um
kindurnar í skálinni, margt af því
er, vægast sagt, vafasamar full-
yrðingar. Mun það, hjá sumum
þeirra, stafa af ókunnugleika. En
þá hafa þeir heldur ekki hirt um
að leita hins rétta. Hin „algera
sjálfhelda" — með fl. — er ekki
til, nema nokkra daga af þeim
nær 5 vikna tíma, sem sumar
kindurnar voru í skálinni, og var
þá lausasnjór til trafala. Skýrasta
sönnun þessa er náttúrlega sú, að
allar kindurnar komust burtu að
lokum þ. e. þegar kindurnar
snerust að því að fara í norður,
en hættu við að leita til suðurs.
Ekki geta Bjargamenn tekið
undir það, að ekki sé gróður í
skálinni. Hann blasir við augum
séð frá láglendi. Þar er að
minnsta kosti ein grastorfa, og
grænka víða um urðina. Það
kemur nokkrum sinnum fyrir að
kindur fara (að sumarlagi) i
þessa skál, en dvelja þar sjaldn-
ast lengi, utan nú, og þá er faðir
minn sótti þangað 2 kindur fyrri
hluta vetrar. Aftur á móti var
engin kind í skálinni er Guð-
mundur, núverandi bóndi á Ytri-
Leikskálará, fór þangað, en höfðu
verið þar skömmu áður.
Fréttaritarinn á Ófeigsstöðum,
sem talinn er vera Baldur Bald-
vinsson, hefur náttúrlega talað og
ritað mest um kindurnar í skál-
inni, enda er hann oddviti sveit-
arinnar. Eitt skrif hans er að
finna í 56. tölubl. „Dags“, 24. okt.,
og hljóðar svo:
„Bíða enn í Djöflaskál."
„Ófeigsstöðum í gær.“
„Nú eru aðeins eftir 3 kindur í
skálinni austan í Ógöngufjalli.
Er það tvílembd ær. Er henni enn
gefinn frestur til að snúa til baka,
en annars verður hún skotin,
þótt aðstaða til slíks sé hin
versta.“
Svona tala aðeins þeir, sem
valdið hafa.
Einhvern veginn finnst mér, að
kindur, sem búnar eru að vera í
j„algerri sjálfheldu“ i 34 daga, séu
farnai' að slakna að kröftum og
sinnu. Og því sé óréttmætt að
krefjast rösklegra tilþrifa.
En, sjá, oddvitinn talaði.
Dilkærin var farin úr skálinni
eftir 1—2 daga.
En athugum samt úrslitaráð
Baldurs, þ. e. að skjóta kindurn-
ar. Þá var það úr svo lausu lofti
gripið, að mér vitanlega var aldr-
ei athugaður sá staðurinn, sem
stytzt var til kindanna. Um aðra
staði var ekki að ræða sökum
fjarlægðar.
Svo má hver sem vill þenkja
hér um.
Eins og fyrr segir fóru síðustu
kindurnai' úr skálinni 25. eða 26.
október, en 30. okt. voru þær
sóttar í Litlufjörutorfu, alls 5
kindur tvær höfðu farið fyrr úr
skálinni norður í Litlufjörutorfu,
en þrír karlmenn voru hér að
verki. En þrátt fyrir það réðu
þeir ekki við kindurnar fyrir
styggð og fráleik, en mistú þær
allt aðra leið úr Torfunni en
nokkurn tíma hefur áður rekin
verið, svo að vitað sé, og gátu
ekki sjálfir farið þar á etfir kind-
unum.
Það er mjög skiljanlegt, hvers
vegna fréttaritararnir vildu ekki
segja frá lokaþætti þessarar sögu.
Kindurnar voru sem sé ekki bún-
ar að svelta í 5 vikur.
Nafngiftin.
Baldur á Ófeigsstöðum hefur
játað það fyrir einum heimilis-
manna hér, (Hlöðver) að hann
(Framhald á 7. síðu.)
Enn um Húsmæðrakennaraskóla
Þinginenn Akureyrar haia á undanförnum áruni
borið írám á Alþingi frumvarp um lagabreytingu ]>ess
efnis, að Húsmæðrakennaraskóla lslands sé ekki með
lögum ákveðinn staður í Reykjavík, svo sem nú er.
Er það ckki Iaunungarmál, að nieð ]>essari lagabreyt-
ingu átti að opna leið til þess að flytja skólann til
Akureyrar. Fyrrverandi þingmaður bæjarins, Jónas G.
Rafnar og fleiri unnu lyrir málið, og núverandi þing-
maður, Friðjón Skarphéðinsson, flutti lrumvarp um
sama efni á því þingi, sem nú situr.
Þessi lagabreyting liefur ekki ennþá náð fram að
ganga, og er það næsta undarlegt, þegar á það er litið,
að Húsmæðrakennaraskólinn hefur verið á hrakhólum
með húsnæði og er nú liættur störfum vegna algers
húsnæðisskorts, cn hér á Akurevri er myndarlegur Iiús-
mæðraskóli, sem ekki er notaður sem slíkur, vel búinn
og hinn vandaðasti utan og innan, á mjög rúm-
góðri lóð og ágætlega staðsettur. Með tiltölulega litl-
um breytingum cr ]>etta skólahús hinn ágætasti staður
fyrir Húsmæðrakennaraskóla íslands.
Það má telja með ólíkindum, að fyrrnefnt laga-
ákvæði, sem bindur ]>essa stofnun við Reykjavík, skuli
ekki hafa verið úr gildi fellt og heimild gefiti til að
staðsetja skólann annars staðar, ef henta þykir.
Skólanefnd Húsmæðráskóla Akureyrar mun hafa
verið því samþykk, að húsakynni skólans hér yrðu
notuð fyrir hinn aðþrengda og húsnæðislausa skóla í
Reykjavík. Hér á Akureyri eru mörg' jhin ákjósanleg-
ustu skilyrði. Hér er vel menntuð kennarastétt, eins
konar miðstöð iðnaðar, sem húsmæðrakennurum er
hollt að kynnast af eigin sjón og raun, og hér á Akur-
evri er margháttað meniiingarlíf, sem livern skólabæ
má prýða. Að samanlögðu má fullyrða, að vaxtarskil-
yrði séu Iiin ágætustu og starfsskilyrði öll, ef skólinn
verður fluttur hiiigað norður.
Ennþá virðast hin aunarlegu sjónármið, að allt skuli
vera í Reykjavík, hafa ráðið úrsíitum um mál þetta.
Jafnvel eltir að Húsmæðrakennaraskólinn er lagður
niður, eins og nú er í vetur, reníbist fólk við að telja
upj> dásemdir höfuðstaðarins, seni Iiinn eina útvalda
stað fyrir skólann.
Ávörp frá Nemendasambandi Húsmæðrakennara-
skólans birtist í sunnanblöðum um þessar mundir. Þau
sánha, að enn eru liin annarlegustu sjónarmið ráðandi
í þessu máli. Þau sjónarmið, að í Reykjavík einni sé
að linna himin og jörð handa ísléndingum.
Samkvæmt því viðurkennda þjóðfélagsvandamáli, að
mjög liafi raskazt jafnvægi í byggð landsins og að
stuðla beri að auknu jafnvægi, á ný, mega alþingis-
menn hugsa sig tvisvar um, áður en þeir fella fram-
komið frumvarp um að fella úr lögum að Húsmæðra-
kennaraskóli íslands skuli vera i Reykjavík.
Vitað eri að hið opiilbera> er orðið langt á eftir með
lögboðnár greiðslur til skólabygginga víðs vegar unV
landið. Mcð nokkurri \ issu má álykla, að biðin verði
nokkuð löng, ]>ar til nýjar byggingar í Reykjavík full-
nægðu þörfum Húsmæðrakennaraskóla. Kemur þar og
til álita, livort liægt er að verja ]>á ráðsmennsku, að
leggja út í dýrar byggingaframkvæmdir — ef þess er
ekki þörf.
Það er raunar fullkomið hneyksli, að Húsmæðra-
kennaraskóli lslands skuli ekki starfa í landinu, svo
nauðsynlegur sem liann er, þegar á ]>að er litið, að
skólahús á Akureyri stendur honum til boða.
Læknar ráðleggja hlýjan klæðnað
Það hefur verið öllum hryggðarefni hve margir
nýjir sjúklingar hafa nú orðið að leyta hælisvistar
að Kristnesi. Þrálátt kvef og innfluensa hafa herj-
að í bæ og byggð í vetur og er talin ein orsök þess
að nú sækja berklar fastar að en mörg undanfarin
ár. Hin hlýja veðrátta með öllum sínum umhleyp-
ingum á vetrum hefur jafnan þótt ills viti hvað
snertir kvéf og fleiri umgangssjúkdóma.
Gömul berklahreiður hafa tekið sig upp á ný,
þegar þrálátt kvef dregur úr mótstöðukrafti fólks
og er ekki talið nema eitt nýtt tilfelli um að ræða af
þeim sjúklingum er leytað hafa hælisvistar. Hús-
mæður ráða miklu um klæðnað fjölskyldu sinnar.
Ættu þær að kosta kapps um hlýjan klæðnað á
þessum árstírha og sérstakleya þegar svo er ástatt
sem nú, að illkynjað ltvef og innflúensa herjar.