Dagur - 06.11.1957, Page 7
Miðvikudaginn G. nóvember 1957
D A G U R
7
(Framhald af 8. síðu.)
tekin fyrstu árin eftir síðari
styrjöld, og líkur virðast benda
til að þetta ástand geri sjávarút-
veg landsmanna algerlega óarð-
bæran sem atvinnugrein, má
ljóst verða hvar íslenzka þjóðin
stendur, þar sem sjávarafurðir
eru, og hafa lengi verið, aðal-
gjaldeyrisvörur þjóðarinnar. —
Kunnugt er og hve ásókn er-
lendra þjóða á fiskislóðir við ís-
land er mikil og vaxandi með
hverju ári með nýtízku, stórvirk-
um aflatækjum, og má vera að
það eigi sinn stóra þátt í þessu
ástandi.
Sú leið, að færa út friðunar-
svæði eða landhelgi við strendur
landsins fyrir notkun stórvirkra
veiðitækja, og þá einkum gagn-
vart erlendum þjóðum, getur
ekki skoðast annað en siðferði-
legt samningsmál þeirrar þjóðar
— til lífsins — sem byggir landið.
BEITUMÁL.
Framsögumaður var Ásgeir
Kristjánsson. Lagði hann fram
eftirfarandi tillögu:
„Sambandsfundur fiskifélags-
deilda Norðlendingafjórðungs
skorar á Fiskíþing að vinna að
því, að öll síld, sem fryst er til
beitu, verði metin og vandað til
hennar eftir því sem tök eru.“
Svohljóðandi tillaga kom fram
á fundinum:
„Fundur sambands fiskifélags-
deilda Norðlendinga, haldinn á
Akureyri 12.-—14. október 1957,
skorar á stjórn fjórðungssam-
þandsins að beita sér fyrir því að
gerð verði tilraun til síldveiða
með reknet fyrir Norðurlandi nú
þégar, sökum almenns beitu-
skorts í þessum Iandsfjórðungi.“
SMÍÐI FISKISKIPA
INNANLANDS.
Framsögumaður var Helgi
Pálsson. Lagði hann fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Sambandsfundur fiskideilda
Norðlendingafjórðungs skorar
fastlega á Fiskiþing áð beita sér
fyrir því við ríkisstjórn og Al-
þingi, að nýsmíði fiskiskipa inn-
anlands verði stóraukin og skipa-
smíðastöðvum gert fært að geta
keppt við erlendar skipasmíða-
stöðvar.“
GRÆNLANDSMÁL.
Framsögumaður Hólmsteinn
Helgason. Lagði hann fram eftir-
farandi tillögu eftir að hafa í'eif-
að málið ýtarlega:
„Sambandsfundur fiskifélags-
deilda Norðlendinga, haldinn á
Akureyri 12.—14. október 1957,
beinir þeim tilmælum til Fiski-
J>ings, að taka til alvarlegrar yf-
irvegunar og ályktunar, rneint
réttindi íslendinga til Grænlands
að fornu og til nútíðar, og beita
sér fyrir því, að tekin verði upp
á formlegan hátt krafa til
danskra stjórnarvalda, og á al-
þjóðavettvangi, um opnun Græn-
iands, og hið forna samband þess
við íslenzka ríkið."
Til vara:
„Að íslendingar fái réttindi til
athafna á grænlenzkum höfnum
til fiskveiða og við verkun sjáv-
arafla, eigi minni en Danir hafa
tekið sér til handa, án þess að til
skerðingar komi á hinum forna
rétti vorum til landsins."
Greinargerð:
Það er óumdeilanleg, söguleg
sönnun fyrir því, að á þjóðveld-
isöld íslands var Grænland hluti
íslenzka ríkisins, enda fundið,
numið og byggt af íslenzkum
þegnum. Þessar staðreyndir og
þau réttindi, sem þær þar skópu,
munu enn óskertar. Um margar
aldir hafa íslendingar eigi haft
aðstöðu eða þörf til hagnýtingar
þessara réttinda og eigi getað
sinnt þeim. Nú er íslenzku þjóð-
inni lífsnauðsyn að notfæra sér
hin fornu arfsréttindi til Græn-
lands, sökum ássóknar og yfh'-
gangs erlendra þjóða á íslenzka
landgrunninu og örtraðar um
afiabrögð þar af þessum sökum.
íslendingar eiga nú mikinn
skipastól og vaxandi, og verða að
beita honum á fjarlægar fiski-
slóðir ef þjóðin á að geta lifað
mannsæmandi lífi, og eru þá
Grænlandsmið fyrir stafni. Sú
fjarlægð, frá Islandi á Grænlands
mið, sem er, gerir þessi bjargráð
ókleif, nema aðstaða sé í græn-
lenzkum höfnum til athafna fyrir
fiskiskipin og hagnýtingar á
framleiðslunni. Til þessarar að-
stöðu teljum vér að íslenzka
þjóðin eigi fyrsta rétt umfram
alla aðra.
DRÁTTARBRAUT.
Framsögumaður Helgi Pálsson.
Lagði hann fram eftirfarandi til-
lögu:
„Sambandsfundur fiskideilda
Norðlendinga fer þess eindregið
á leit við Fiskiþing, að það beiti
sér fyrir því við ríkisstjórnina og
hafnarmálastjórn, að hraðað
verði byggingu dráttarbrautar
fyrir allt að 2000 tonna skip hér á
Akureyri, og útvegað erlent lán
til framkvæmdanna.“
Greinargerð:
Það er vitað, að síðasta Alþingi
tók á fjárlög þessa árs kr. 300
þús. til þessara framkvæmda, og
sýndi Alþingi vilja sinn í málinu
með þessu .Þá hefur Akureyrar-
bær í sinni fjárhagsáætlun fyrir
þetta ár kr. 500 þús. í sama skyni.
Mörg erlend tilboð um sölu á
brautum liggja fyrir hjá hafnar-
málaskrifstofunni. Það er óþol-
andi ástand, sem nú ríkir, að öll
stæri'i skip, er þurfa botnvið-
gerðar við eða hreinsunar, þurfi
að fara til Reykjavíkur eða út-
landa til slíkra viðgerða. Á Ak-
ureyri er fjöldi ágætra iðnaðar-
manna og mjög fullkomin verk-
stæði, sem eru fær um að fram-
kvæma allar aðgerðir, sem ann-
ars verða framvkæmdar hér á
landi.“
VARAHLUTIR TIL VÉLA.
Framsögumaður Einar Sörens-
son. Lagði hann fram eftirfarandi
tillögu:
„Sambandsfundur fiskideild-
anna í Norðlendingafjórðungi
skorar á Fiskiþing að hlutast til
um að varahlutir í vélar til fiski-
flotans verði ávallt fáanlegir með
stuttum fyrirvara, og umboðs-
mönnum véla verði gert að
skýldu að liggja með öll algeng
slitstykki í þær vélategundir,
sem þeir selja. Afkoma einstakra
útgerða, sem verða fyrir véla-
tjónum, veltur oft á því, hvort
nægilega fljótt tekst að bæta
skaðann, sem oft verður á háver-
tíð. í mörgum tilfellum hafa af-
greiðslutafir vélstykkja valdið
varanlegu efnatjóni viðkomandi
aðila.“
TALSTÖÐVAR.
Framsögumaður Sveinbjörn Jó-
hannsson. Lagði hann fram eftir-
farandi tillögu:
„Sambandsfundur fiskideilda
Norðlendingafjórðungs, haldinn á
Akureyri 12.—14. október 1957,
vill þakka það, er áunnizt hefur
í talstöðvarmálum sjávarútvegs-
ins. Þó lítur þingið svo á, að enn
sé nokkurs vant í þessum efnum,
og þá einkum það, að talstöðvar
verði reknar í öllum útgerðar-
stöðum meðan á vertíð stendur,
og að ætíð séu varastöðvar fyrir
hendi í hverri veiðistöð, ef á þarf
að halda. Þá vill fundurinn einn-
ig beina því til Fiskiþings, að það
beiti sér fyrir því, að annað hvort
verði leigugjaldi fyrir talstöðvar
stillt meira í hóf en verið hefur;
eða að frádráttur af ársgjaldinu
komi fyrir þann tíma, sem bátur-
inn er ekki í notkun. Þá vill
fundurinn ítreka fyrri óskir
sínar, að rekin verði fullkomin
talbrú við Raufarhöfn, sem starfi
allt árið, og verði tekin til starfa
fyrir næstu síldarvertíð. Einnig,
að þannig verði gengið frá tal-
stöðvum í fiskiskipum, að björg-
unarskip og önnur skip eigi hægt
méð að ná miðunum af þeim.“
Margar fleiri ályktanir voru
gerðar, þótt séu ekki raktar.
KOSNINGAR.
Þá fór fram stjórnarkosning til
næstu tveggja ára.
Kosningu hlutu:
Valtýr Þorsteinsson 12 atkv.
Helgi Pálsson 12 atkv.
Angantýr Jóhannsson 11 atvk.
Vai'astjórn:
Sveinbjörn Jóhánnsson.
Egill Júlíusson.
Magnús Gamalíelsson.
14 sækja um sýslu-
Samkvæmt upplýsingum frá
Dómsmálaráðuneytinu hafa 14
menn sótt um sýslumannsemb-
ættið í Skagafirði. Umsóknar-
frestur rann út 24. þ. m. Þeir er
sóttu eru þessir:
Björgvin Bjarnason bæjarstjóri,
Friðrik Sigurbjöfnsson lögreglu-
stjóri, Jón Skaptason fulltrúi,
Stefán Sigurðsson fulltrúi, Jó-
hann Salberg Guðmundsson
sýslumaður, Þorvaldur Ari Ara-
son lögfræðingur, Sigurður Guð-
jónsson bæjarfógeti, Eiríkur
Pálsson skattstjóri, Sveinn
Snorrason fulltrúi, Guðmundur
Ingvi Sigurðsson fulltrúi,
Gunnlaugur Briem fulltrúi, Þór-
hallur Pálsson fulltrúi, Ófeigur
Eiríksson fulltrúi og Sigurður
Hafstað deildarstjóri.
S3 Huld, 59571167 — IV—V — 2.
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 2 ei h. —
Sálmar: 17 — 52 — 106 — 226 —
58. — K. R.
Fundur í aðaldeild
í kvöld kl. 9 í kap-
ellunni. 16 ára félag-
ar og eldri velkomn-
ir. Á sunnudaginn fundur í
drengjadeild kl. 5. Akurfaxar
annast fundarefni. 11 og 15 ára
drengir velkomnir.
Frá kristniboðshusinu Zíon. —
Almenn samkoma n.k. sunnudag
kl. 8.30 e. h. Gunnar Sigurjóns-
son, cand. theol., talar. Allir vel-
komnir.
Karlakór Akureyrar heldur að-
alfund sinn n.k. sunnudag kl. 5 e.
h. í Verkalýðshúsinu. Mætið allir
og stundvíslega kórfélagar. —
Stjórnin.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn 10. nóv. kl. 10.30 f. h.: Helg-
unarsamkoma. Kl. 2: Sunnu-
dagaskóli. Kl. 20.30: Almenn
samkoma. — Mánudag kl. 4:
Heimilissambandið. Kl. 20.30:
Æskulýðssamkoma. Velkomin.
2. spilakvöld Skógræktarfélags
Tjarnargerðis og Bílstjórafélags-
ins verður sunnudaginn 10. þ. m.
í Alþýðuhúsinu kl. 8.30 e. h. —
Miðasala við innganginn frá kl.
8 e. h. — Góð kvöldverðlaun.
Kvenfélagið Framtíðin hefur
nú gefið út jólamerkin sín, hin
smekklegustu að vanda, og fást
þau á pósthúsinu.
Dánardægur. Sveinbjörg Páls-
dóttir frá Streiti í Breiðdal lézt á
Sjúkrahúsi Akureyrar 27. okt. sl.,
74 ára að aldri.
Barnastúkurnar halda fundi í
Barnaskóla Akureyrar næstkom-
andi sunnudag. Samúð kl. 10 f. h.
og Sakleysið kl. 1 e. h. — Nánar
auglýst í skólum bæjarins.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Margrét
Sigurvinsdóttir frá Völlum, Saur
bæjarhreppi, og Jakob Thorar-
ensen, Gleráreyrum 6, Akureyri.
; .V ' :
NÝTT! - NÝTT!
Tweed-efni
í pils og kjóla
Einlit kjólaefni
Rautt úlpupoplin
Herðasjöl,
livít og mislit
N ylonundirk jólar
Stíf millipils
Enn fremur fallegt
úrval af
áteiknuðum
jóladúkum og reflum.
ANNA & FREYJA
Eldri-dansa klúbburinn
heldur DANSLEIK í Alþýðu-
húsinu laugard. 9. nóv. kl. 9
e. h. — Aðgöngumiðasala í Al-
þýðuhúsinu kl. 8—9 þetta
kvöld.
STJÓRNIN.
Bazar heldur Kvenfélag Akur-
eyrarkirkju 9. nóvember kl. 5 í
kapellu kirkjunnar. Þær konur,
sem ætla að gefa muni, komið
þeim- til eftirtaldra kvenna: Að-
alheiðar Antonsdóttur, Fróða-
sundi 3. — Steinunnar Jónas-
dóttur Helgamagrastræti 50. —
Láru Jónsdóttur, Strandgötu 41.
— Stefaníu Jóhannsdóttur, Æg-
isgötu 12. — Helgu Daníelsdótt-
ur, Grænugötu 6. — Þórhildar
Hjaltalín, Grundarðötu 6. —
Línu Jónsdóttur, Eyrarlandi.
Stúkan Brynja I. O. G. T.
heldur fund í Landsbankasalnum
uppi, á morgun, fimmtudag kl.
8.30 e. h. Inntaka nýliða. Skýrsl-
ur og innsetning embættismanna.
Yngri deild stjórnar fundi og sér
um skemmtiatriði.
- Móðir, kona, meyja
(Frnmhnld nj 4. síðn).
mín-pönnur gefa beztu liitadreif-
inguna.
Þess er svo vert að geta að lokum,
að margir réttir brenna ekki við,
og kemur þá hitadreifing pottsins
minna til grcina. (Freyr).
- Fyrstu lögin afgreidd
á Alþingi
(Framhald af 1. síðu.)
rennur ágóðinn af umræddu
happdrætti.
Það eru aðeins þrjú happ-
drætti, sem áður hafa notið
slíkra réttinda, að vinningar
væru skattfrjálsinr, nefnilega
Happdræti Háskólans, Sambands
íslenzkra berklasjúklinga og
Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna.
r
- Oþolandi ástand
(Framhald af 5. síðu).
hælis gengur í okkar litla þjóðfé-
iagi, að einhverju leyti eiga rót
sína að rekja til þess, að þeir sem
um stýristauma halda á hinum
hærri stöðum, væru ekki ætíð
svo gáðir, sem vera ber? Gæti*
ekki skeð, að óþarflega mikið
samneyti við Bakkus karlinn
gerði hugsun þeirra þokukennda,
deyfði viljaþrekið og sljóvgaði
hinn hvassa skilning ,svo að ekki
væri ætíð tekið eins djarflega á
málunum og skyldi?
Þessar spurningar hefði þjóðin
gott af að athuga.
H. J.
(Framhald.)
- Brúin milli. . .
(Framhald af 4. síðu.)
reyndist ekki einn einasti, sem
hélt tryggð við kommúnismann!
Um allt Ungverjaland var
lilutfallið nær hið sama meðal
hermannanna. Ungverskur her-
maður, sem barizt hafði gegn
Rússum, sagði eftir á: „Rússar
unnu að vísu. En þeir ættu
framvegis að hafa tvo af sínum
hermönnum í Búdapest fyrir
hvern Ungverja, sem þeir fá
byssu í hönd. Kreml getur sofið
upp á það!“
(Næst: Skammvinnur fögnuður)