Dagur - 17.12.1957, Side 1
12 SÍÐTJR
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út fimmtu-
daginn 19. desember.
XXXX. árg.
Akureyri, þriðjudaginn 17. desember 1957
63. tbl.
Núvcrandi ríkisstjórn ásamt forseta landsins. Á myndina vantar Quðm. f. Guðmundss. utanríkisráðh.
Tiliögur Fjárveitinganefndar um 11.4
millj. hækkun til verkl. frarnkvæmi
Meiri hluti nefndarinnar miðar tillögur sínar í
heild við það að f járlögin verði hallalaus
Nýr fiugvöliur í Aðaldalshrauni
r
Aætlunarferðir vikulega. Aðflug ágætt
°g völlurinn talinn mjög góður
Á fimmtudaginn var, var blað brotið í samgöngumálum Suður-
Þingeyinga. Þann dag lenti Glófaxi, Flugfél. íslands á hinum nýja
flugvelli í Aðaldalshrauni í fyrstu áætlunarferð sinni á þann stað.
Nýlega var lagt fram á Alþingi
nefndarálit meiri hluta fjárveit-
inganefndar, svo og álit minni
hluta nefndarinnar og breyting-
artillögur frá báðum aðilum. —
Meiri hluti nefndarinnar gerir
tillögur um 12.4 milljón kr.
liækkun á útgjöldum, þar af 11.4
milljón til beinna, verklegra fram
kvæmda. Hins vegar frestar
rrteiri hlutinn til 3. umræðu að
bera fram tillögur við tekjulið
frumvarpsins.
Upphaf nefndarálits meiri hlut-
ans er á þessa leið:
41 fundur.
Fjárlagafrumvarpið var lagt
fyrir Alþingi fyrsta dag þingsins,
10. október. Alþingi vísaði því til
íjárveitinganefndar 21. október.
Nefndin hélt fyrsta fund sinn 22.
s. m., og á öðrum fundi sínum,
sem haldinn var degi síðar, hóf
nefndin athugun frumvarpsins og
umræður síðar um það.
Nefndin hefur alls haldið 41
skráða fundi. Henni hafa borizt
um 350 skrifleg erindi, og til
viðtals við hana á fundum hafa
komið 46 utanþingsmenn.
Nefndin stendur öll að flutn-
ingi breytingartillagnanna á þskj.
145, eins og það ber með sér. En
»
í sambandi við afgreiðslu þeirra
létu nefndarmenn Sjálfstæðisfl.
(J. K., M. J. og P .O.) á fundi
nefndarinnar í gær bóka svo-
hljóðandi yfirlýsingu:
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
óska tekið fram, að hækkun á
framlögum til verklegra fram-
kvæmda sé í meginatriðum í sam
ræmi við þeirra afstöðu, en varð-
andi sumar tillögur nefndarinnar
telja þei’r sig hafa óbundnar
hendur.“
Nefndarmenn hafa því ekki
allir fulla samstöðu, og skilar
minni hlutinn (J. K., J. M. og P.
O.) vafalaust séráliti.
Meiri hlutinn frestar til 3. umr.
að gera brtt. við tekjuhlið frum-
varpsins.
Einnig á meiri hl. eftir að ganga
írá ýmsum brtt., að því er gjöldin
snertir, þar á meðal brtt. við
framlög til skólabygginga, því að
þau verður ekki komizt hjá að
hækka frá frumvarpinu vegna
gildandi laga. Þá má og nefna, að
ófrágengnar eru brtt. við 18. gr.
Verða þau málefni athuguð milli
'2 og 3. umræðu, nánar en að-
, stæður hafa enn verið til.
Afgreidd hallalaus.
Meiri hlutinn er ennfremur sér-
staklega að athuga — og láta at-
huga — möguleika til sparnaðar
á ýmsum útgjaldaliðum ríkis-
sjóða. Ekki er enn í ljós komiö
hvaða útgjaldasparnaður telzt
geta komið til greina á næsta
fjárlagaári. Margt, sem um hefur
verið rætt, er lögbundið og þarf
lengri aðdraganda. Meiri hlutinn
vill fá þessi málefni krufin fyrir
3. umr. betur en orðið er.
Það skal fram tekið, að meiri
hlutinn ætlar að miða tillögur
sínaní heild við það, að fjárlögin
verði endanlega afgreidd halla-
laus.
Hækkunartillögur meiri hluta
nefndarinnar eru þessar: 1) við
11. gr.: Vegna næturvinnuálags,
sem greitt er tollþjónum, samkv.
gildandi reglugerð um það efni,
þykir óhjákvæmilegt að leggja
til 84 þús. kr. hækkun á liðnum
annar kostnaður hjá tollgæzlunn
í Reykjavík.
2) Við 12 kr.: 56547 kr. hækk-
un til Hjúkrunarkvenanskóla ís-
lands vegna fjölgunar á starfsliði.
Skólinn þarf að bæta við einni
nýrri hjúkrunarkonu. Framlag til
norrænu lyfjaskárnefndarinnar
hækki um 8000 kr.
Unnið er nú af fullum krafti að
smíði sementsverksmiðjunnar á
Akranesi, en byggingarfram-
kvæmdum hefur miðað mjög vel
áfram á þessu ári.
'—s
Smíði fyrstu verksmiðjuhús-
anna hófst fyrir hálfu öðru ári, í
maí 1956. Síðan hafa risið upp
margar byggingar, sumar geysi-
stórar, og er nú unnið að því að
koma verksmiðjuvélunum fyrir í
þei.m. Nú er d. t. búið að sjóða
saman brennsluofninn, sem er
100 metra langur sívalningur, á
fjórða metra í þvermál, og vega
mun fullgerður og þegar hann
hefur verið tekinn í notkun um
Jóhann Skaptasin sýslumaður
tók á móti fulltrúum flugmála-
stjórnarinnar á flugvelli. Síðan
var haldið til Húsavíkur og þar
fagnað hinum merka áfanga í
sögu samgöngumálanna við þetta
hérað.
Flugvöllurinn er um 10 km. frá
Húsavík, vestan Laxár, gegnt
nýju Laxárbrúnni eða litlu sunn-
ar, og er þar hið ágætasta flug-
vallarstæði. Grunnurinn er
hraun, sem þó er ekki mjög örö-
ugt að vinna og aðflugið er mjög
í'úmt, því að langt er þar á milli
fjalla, en opið haf, Skjálfandaflói,
í norðurátt.
Flugvöllurinn er 1000 metra
langur og 50 metra breiður. Skáli
hefur verið byggður fyrir far-
þega og til almennrar afgreiðslu.
Fastar ferðir hafa verið auglýstar
þangað einu sinni í viku
á fimmtudögum, í sambandi við
fefðirnar frá Akureyri til Kópa-
skers. Bygging þessa nýja flug-
vallar er talin hafa kostað um
Jörundur
Samkv. útvarpsfrtétum samþ.
börgarafundur í Stykkishólmi að
kaupa togarann Jörund frá Ak-
ureæri. Togarinn er þó ekki
seldur og samningar ekki langt á
veg komnir.
2000 lestir. Ennfremur er nú
unnið að smíði mikils kvarna-
húss.
Fullsteyptur verður reykháfur
sementsverksmiðjunnar 70 m. að
hæð.
'—".
Að sögn Jóns Vestdals, for-
manns bygginganefndar se-
mentsverksmiðjunnar, er þess
að vænta að verksmiðjan geti
tekið til starfa á fyrra hluta
næsta árs, eða fyrir írtitt árið.
Verður verksmiðjan þá vænt-
anlega tekin í notkun að ein-
hverju leyti, enda þótt smíði
hennar verði þá ekki að fullu
lokið.
eina milljón króna. Ráðgert er að
stækka hann að mun.
Snorri Snorrason flugmaður var
flugstjóri í þessari fyrstu áætl-
unarferð til flugvallarins í Aðal-
dal.
Togarinn Andanes
Gi'imsby-togarinn Andanes
kom hingað 6. des. með skipstjóra
og fjóra háseta veika af inflú-
enzu. Eftir fjóra daga fór togar-
inn aftur á veiðar. Skipstjórn
hafði þá Sæmundur Auðunsson
og með honum fóru ísl. hásetar í
stað hinna ensku, sem veikir
voru.
Nú hefur áhöfn togarans fengið
heilsu sína á ný og Andanesið
lét úr höfn á sunnudagskvöldið
og hélt á miðin.
Skipstjóri Andaness og eigandi
að hálfu er Páll Aðalsteinsson og
hefur hann um langt skeið átt
heima í Grimsby. Hann er sonur
Aðalsteins heitins Pálssonar skip
stjóra, sem var síðasti eigandi
Fylkis og margir sjómenn kann-
ast við .
Þakkir til Siglfirðinga
Fimmtudaginn 5. des. fór Leik-
félag M. A. í sýningarferð til
Siglufjarðar. Leikurinn „Gestur
til miðdegisverðar" var sýndur
fjórum sinnum við góða aðsókn
og ágætar undirtektir.
Sig'lfirðingar tóku með afbrigð-
um vel á móti leikfólkinu, eins og
þeirra er vandi, en L. M. A. fór
einnig s.l. vetur til Siglufjarðar,
svo að menn vissu að hverju
gengið var. Leikfólkið dvaldi á
heimilum nokkurra ágætis
manna og kvenna og var viður-
gerningur þar með ágætum.
Leikfólkið færir Siglfirðing-
um kveðjur sínar og þakkir.
DAGUR
Næsta tölublað kemur út á
fimmtudaginu. — Auglýsing-
ar þurfa að hafa borizt fyrir
hádegi á miðvikudag.
Kaffiverð lækkar
Kaffi hefur nú lækkað í verði,
eins og verðlagsyfirvöldin hafa
auglýst. — Hin nýja verð-
lækkun er kr. 2.30 á kg. af
brenndu og möluðu kaffi.
(Framhald á 12. síðu.)
Semenlsverksmiðjan verður vænt-
anlega tekin í notkun næsia ár
Byggingarírarakvæmdiim miðar vel áfram