Dagur - 17.12.1957, Page 11
t'riðjudaginn 17. dcsember 1957
D A G U R
11
(Framhald a£ 2. síðu.)
fylgdarmanna sinna. í ungmenna
félagi sveitarinnar var hann kos-
inn í stjórn og formannsstöðu. 1
skóla var hann dáður af skóla-
bræðrum sínum. Við kennslu-
störfin vann hann hylli nemenda
sinna. Kosinn var hann í hrepps-
efnd og til fleiri trúnaðarstarfa af
sveitungum sínum. í Bílstjórafé-
lagi Eyjafjarðar var hann kjörinn
í formannssæti af starfsbræðrum
sínum. Og í félagi berklasjúkl-
inga í Kristnesi var. hann talinn
sjálfsagður formaður. Ekki vann
hann sér traust með því að mæla
eins og hver vildi heyra. Má
frekar segja að hann væri nokk-
uð sérstæður í skoðunum og fór
sínar eigin leiðir í hugsun og
málafylgju. En hann flutti sitt
mál á drengilegan hátt. Var gam-
cn og gott með honum að vinna.
Flann var vel gefinn maður.
Skapfastur og viljastyrkur. Og
þó að hann væri sérstæður í
skoðunum var hann víðsýnn í
bezta lagi og krufði hvert mál til
mergjar.
Við, vinir Garðars og sveit-
ur.gar, fundum til þess með sár-
urn söknuði er hann varð að fara
úr sveit okkar á hælið. Viö
líveðjum hann nú með þökk fyrir
allt og allt. Og hinn mikli mann-
fjöldi er rnætti í Akureyrar-
kirkju við jarðarför hans, mun
taka undir þá kveðju með hlýjum
hug.
Magnús Hólm Árnason. -
—o—
Mcnn hverfa yiir móðuna miklu
til landsins handan lífs og dauða,
og líklega finnur margur land
sinna drauma fyrir handan feigð-
arver eftir erii, - strit og margs
konar erfiðleika og þjáningar
þessa lífs, jafnvel þó að margir
dagar hafi verið bjartir.
Hver og einn þekkir, að úr
hópi samferðafóiksins eru alltaf
einhverjir að kveðja, venzla-
menn, vinir og kunningjar á
ýmsum aldri.
Eg vil hér í fáum orðum minn-
ast eins vinar míns, sem eg um
langt skeið ævinnar hef verið
samferða, frá því að hann var lít-
ill drengur og til æviloka hans,
það er Garðar Jóhannesson frá
Gilsá. En hann er nýlátinn. —
Hann var fæddúr að Gilsá í
Eyjafirði 17. des. 1904 og var því
tæpra 53 ára er hann lézt. For-
eldrar hans voru Jóhannes Frí-
mannsson, áður bóndi á Gilsá, og
kona hans Ólína Tryggvadóttir,
eru þau bæði á lífi í Eyjafirði og
mætti rekja þær ,þó að það sé
ekki gert hér.
Garðar ólst upp á Gilsá ásamt
systkinu msínum, en þau voru 7
að tölu. Nú eru þau 5 á lífi, því
að ein systirin, Helga húsfreyja á
Kilgrimastöðum, lézt fyrir nokkr
um árum. öll hafa þau systkin
verið orðlögð fyrir dugnað, og
þau voru ekki gömul, þegar þótti
muna um handtökin þeirrá, unna
sveitalífi og sveitamenningu, og
eru þessir etginleikar ríkir í ætt-
inni.
.Npkkru eftir fermingu hugði
Garðar á framhaldsnám. Hann
bjó sig undir það, heima í sveit-
inni og var að mestu við námið
hjá þeim er þetta ritar. Hann var
góður námsmaður og' nokkuð
jafnvígur á allar námsgreinar, og
eg minnist þess, hve fljótur hann
var að skilja tungumál, t. d.
dönsku. Hann settist í 2. bekk
Gagnfrcéðaskólans á Akureyri og
laúk' gagnfræðapróif úr skólan-
um, Einn merkur skólamaður,
sem var skólabróöir hans, minnt-
ist á hann við mig hér um árið,
. 'sem mjög góðs námsmanns og fé-
lsga.
Garðar kom aftur heim í sveit-
ina, var aukakennari um skeið,
en tók svo að sér mjólkurflutn-
inga í Sáurbæjarhreppi og var
mjólkurbílstjóri allmörg ár með-
an heilsan leyfði.
En eg held að Garðari hafi
verið hugþekkast að stunda bú-
skap. Hann keypti Kolgrímastaði
og hóf búskap þar 1934. Hann
hagði brátt allmikið bú, hafði um
skeið aðra jörð m'eð og lét brjóta
land til ræktunar. Sveitungar
hans báru traust til hans til
hreppsmála og félagsmála, var t.
d. í skólanefnd o. fl. En svo bil-
aði heilsan 1940 og hann varð að
fara á Kristneshæli og varð að
dvelja þar langdvölum til ævi-
loka. Þar hafði hann ýmis störf á
hendi í þarfir berklavarna.
Garðar var kvæntur Hildigunni
Pvlagnúsdóttur járnsmiðs Árna-
sonar frá Litla-Dal.'- Hún er vel
gefin og var kona í þess orðs
merkingu (að fornri og nýrri).
— Með afburða dugnaði
hefur hún séð um heimilið, fyrst
með búskapinn í sveitinni og svo
um heimilið í Flríseyjargötu 1 á
Akureyri, eftir að þau urðu að
hætta búskapnum 1948. Börn
þeirra eru 6, öll mannvænleg og
sum á unga aldri.
Garðar var vel greindur,
myndaði sér ákveðnar skoðanir á
málefnum og hélt jafnan fast á
sínu máli. Ekki vorum við sam-
mála í sumum málefnum, en það
setti engan skugga á vináttu okk-
ar.
Garðar bar sjúkdóm sinn með
þreki og stillingu. Hann svaraði
jafnan með fáum orðum ,ef mað-
ur spurði hann um heilsufarið ig
vék að öðrum málefnum. Hann
barðist á vígstöðvum hins hvíta
dauða og lagði út í tvísýna að-
gerð. Honum var það ljóst, að þar
var annað hvort að sigra eða
falla.
Ilann var jarðsunginn að Ak-
ureyrarkirkju 28. nóv. að við-
stöddu miklu fjölmenni, bæði úr
bæ og sveit.
Eg þakka góðum dreng fyrir
gangna tíð. Blessunar og velfarn-
aðar bið eg eftirlifandi konu hans
og börnum.
Pálmi Kirstjánsson.
NÝKO? ILl ANDL Mars MATVÖRl IIÍÐ: ÆVÖTN og ITSVÖTN ;ar tegundir. (JBÚÐIR
Auglýsingar þi fjfaðinu íyrir h urfa að hafa borizt ádegi á msðvikudag
Dönmjakkar
úr ull og ullarjersey
mjög fjölbr. úrval
Verð frá kr. 297.00.
Verzlunin DRÍFA
Simi 1521.
Ilálstreflar
úr ull og perlon
nýkomnir.
Mjög fallegt úrval.
Heppileg jólagjöf.
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
Til jófacpfa:
Stofuskápar
Skrifborð
Bókahillur
Kommóður
Rúmfataskápar
Sófaborð
Utvarpsborð
Innskotsborð
Blómaborð
Teborð
Rokkborð
Blómasúlur
o. m. fl.
Bólstruð liíisgögn lii.
Húsgagnaverzlun
Ilafnarstrœli 106.
Sími 1191.
Óskilaköttur
hvítur með dökkleitt skott.
í Helgamagrastræti 43.
Til jólagjafð:
FYRIR DÖMUR:
Kjólaefni
Blússur
(popliu og nylon)
Undirföt
Náttkjólar
Náttföt
Brjóstaliöld
Mjaðmabelti
Sokkar
Umvötn
Steinkvötn
Varalitir
FYRIR HERRA:
Náttföt
Miliiskvrtur
(hvítar og mislitar)
Bindi
Hanzkar
Sokkar
Hárvötn
FYRIR BÖRN:
Útiföt (fóðruð)
Náttföt
Sportskyrtur
Slaufur
Belti
Sokkar
Verzlimin LONÐON
Sími 1359.
- Þórður Jónsson
(Framhald af 2. síðu.).
Einnig gegndi liann fleiri trúnaðar-
störfum, sem of langt yrði upp að
telja.
Þórður er persónulega sterkur,
léttur í lund og glaður og ennþá
ungur í anda. Hann er með ágæt-
um tillögugóður um almenn mál-
efni og hollráður vinum sínum.
Kvæntur er ÞórSur Guðrúnu Sig-
urðardóttur, a.ttaðri frá Breiðafirði.
mestu myndar- og athafnakonu.
Eiga þau sex börn, öll uppkomin,
hvert öðru efnilegra, en þatt eru:
Jón, framkvæmdastjóri á Reykja-
lundi, Sigurður, vélsm. í Reykjavík,
Árinann, bóndi á Þóroddsstöðum,
Sigríður, húsfreyja á Þöroddsstöð-
um, Eysteinn, vélv. og skíðakappí
í Reykjavík, og Svanberg, iðnnemi
í Reykjavík.
Nú á Jressum merku tímamótum
í ævi Þórðar lrygg ég að margir hlý-
ir hugir streymi til lians hcðan frá
Ólafsfirði með söknuði yfir því, að
við skyldum ckki fá að njóta hinna
frábæru starfskráfta hans lengur í
þágu félagsiífsins hér.
Að lokum seiidi ég honttm og
fjölskyldu hans mínar lutgheilustu
árnaðaróskir á þesstt merkisafmæli
með þökk fyrir samstarfið á liðn-
mn árum. . Ólafsfirðingur.
©
©
1»
•
m
®
0
©
©
©
©
GÓÐIR SKÓR ER GÓÐ OG
GAGNLEG JÓLAGJÖF.
Aldrci meira úrval en nú.
Margar nýjar gerðir.
Tökum upp á morgun
hinar eftirspurðu
B ARN A-SNJÓHLÍ F AR
og
KÁRLMANNA
KULDASKÓ
nýjasta tízka.
SKÓÐEILD