Dagur - 26.03.1958, Page 8
8
Bagub
Miðvikudaginn 26. marz 1958
Friðarboginn á landamærum Kanada og Bandaríkjanna.
- Blaine í Washingtonfylki
i.
í 5. tbl. DAGS, 22. jan. sl. sagði
eg lítillega frá íslands-kynningu
Hal Linkers víðs vegar um Norð-
ur-Ameríku með hinum glæsi-
legu íslands-kvikmyndum sínum.
Guðmundur Sveinsson
hálf sjötugur
Guðmundur Sveinsson, fulltrúi
hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, átti
65 ára afmæli 11. þ. m. Hann er
vel kunnur og vinsæll hér í bæ
Guðmundur Svcinsson, fulltrúi
og héraði og hefur alla tíð verið
mikill starfsmaður.
Auk sinna aðalstarfa við kaup-
félagið um 30 ára skeið, hefur
hann komið mjög víða við sögu í
stjórn bæjarmála, átt sæti í bæj-
arstjórn fyrir Framsóknarflokk-
inn frá því að Sauðárkrókur fékk
bæjarréttindi, þar til nú er hann
lætur af þeim störfum. Um eitt
skeið var hann forseti bæjar-
stjórnar. Áður átti hann sæti í
hreppsnefnd um mörg ár. Hann
hefur og komið við sögu í fjöl-
mörgum öðrum félagsmálum. í
öllum störfum hefur hánn reynzt
hinn réttsýnasti og traustasti
maður. Honum bárust góðar
kveðjur á 65 ára afmælinu.
Guðjón Ingim.
Var þar sagt frá sýningum í smá-
bænum Blaine, nyrzta bæ Banda
ríkjanna í Washington-fylki á
Kyrrahafsströnd. En Blaine er
einmitt sérstaklega íslenzkur bær
og því væntanlega hugðarefni
fyrir okkur heimalandana. Verð-
ur hér sagt í stuttu máli frá
Blaine og íbúum þessa athafna-
sama smábæjar.
Blaine er strandbær og liggur
á landamærum Bandaríkjanna og
Kanada, þannig að landamæra-
iínan, sem er dregin hárrétt eins
og með reglustiku frá hafi til
hafs (Atlantshafs og Kyrrahafs)
liggur um lystigarð Blaine, og er
Friðarboginn reistur í miðjum
garðinum. í þessum garði safnast
saman þúsundir beggja þjóðanna
til „þjóðhátíðar" á hverju sumri.
Og oft hefur Sigurður frændi
Helgason (tónskáld) stjórnað
stórum söngkórum í garði þess-
um á hinni sameiginlegu sumar-
hátíð. — Þarna á landamærun-
um er einnig tollstöð og um-
íerðaeftirlit o. fl.
Blaine er aðeins smábær, tæp
2000 ibúar, og þar af um helm-
ingur íslendingar eða íslenzkrar
ættar. Bærinn myndaðist aðal-
lega um og upp úr aldamótunum.
Þar er áberandi fullt af íslenzk-
um nöfnum í verzlun, iðngreinum
ýmsum og margvíslegum fyrir-
tækjum, — t. d. Breidfjord, Ey-
fjord, Sveinbjörnsson o. s. frv.
Og íslenzkar konur eru giftar
mönnum af margvíslegum, er-
lendum uppruna. T. d. er aðal-
læknir bæjarins, dr. Abraham
Stegeman (hollenzkúr að ætt),
kvæntur íslenzkri konu.
Elliheimilið STAFHOLT er eitt
hinna þriggja eða fjögurra elli-
beimila í Vesturheimi. Dregur
það nafn sitt af tveim ísl. bygg-
ingameisturum í San Francisco,
bræðrum, ættuðum frá Stafholti
í Borgarfirði, og gáfu þeir lönd-
um sínum þar nyrði'a þetta
myndarlega heimili. — Yfir
útidyrum er nafnið Stafholt
á hvítum stafnveggnum, og
nokkru ofar málmskjöldur með
upphleypti-i mynd af íslands-
valnum. í álmunni til hægri er
bókasafn og lesstofa heimilisins,
og þar hefur Sigurjón frændi
minn Björasson umsjón og ski'if-
stofustörf fyrir heimilið, þótt
ekki sé hann þar vistmaður.
Stafholt er allstói' einnar hæð-
ar bygging og grunnflötur alls
um 30x40 metrar, og garður um-
hverfis, auk þess vinnustofa fyrir
handiðnai’menn. Hælið allt talið
mjög rúmgott og vistlegt á alla
vegu. Þar eru allmargar umsjón-
ar- og hjúkrunai'konur o. fl. —
Vistmenn ei-u þar um 40 og allir
af íslenzkum uppruna, að 4 und-
anskildum, m. a. Þjóðvei'ji 92 ára,
Norðmaður einn eða tveir o. s.
frv.
Landarnir þarna vestra virðast
bæði duglegir og athafnasamir.
M. a. reka þeir sum hinna víð-
kunnu hressingarhæla og sumar-
hótela á sjávarströndinni við
Bjarkavík, um 5 km. fi'á bænum.
Er þar falleg strandgata og mikill
skógur að baki, og þar eru all-
mörg hressingai'hæli og smáskál-
ar til útilegu handa ferðamönn-
um um stundarsakir. í hælum
þessum eru einnig verzlanir með
minjagripi og mai'gvíslegar ferða
mannavörur.
Gamli Ágúst Breidfjord
er nú vistmaður í Stafholti, 85
ái’a að aldri, en hi'ess og skemmti
legur, skrifar fi'ændi minn mér.
Þetta er stór fjölskylda, og böi’n
hans nefna sig Breidford. Jón
sonur hans rekur Breidford
Motor Co. í Blaine, hefur umboð
fyrir Ford-verksmiðjurnar og
einnig viðgerðarverkstæði o. fl.
í síðari kafla verður sagt fi-á
fiskiveiðum íslendinga á þessum
slóðum.
Helgi Valtýsson.
Nokkrir selir sáust nýlega hér
skammt noi'ður á fii'ðinum. Einn
þeirra mun hafa lent í pottinum
hjá Akureyringum.
Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum
Frostastöðum 16. marz 1958.
Illstætt austanrok geisaði hér
í gær. En í dag er suðaustan gola
og þíðviði'i. Vonandi fer nú vetur
konungur að lina tökin. Mun
mörgum þykja mál til þess kom-
ið. Innistaða á sauðfé er nú oi'ðin
13 vikur og er óvenjulegt hér um
slóðii'. Hrossum hefur að sjálf-
sögðu vei'ið gefið, því að beit fyr-
ir þau hefur víðast hvar verið
annað tveggja lítil eða engin.
Vegir oftast ill- eða ófærir, því
að þótt ýtur hafi rutt öðru hvoru,
hefur fljótlega skafið í slóðina á
ný. Er menn tóku að þreytast á
þungfærð veganna var.brugðið á
það i'áð, að nota þann veginn,
sem náttúran sjálf lagði mönnum
í hendur, að aka eftir eylendinu,
sem allt er einn svellgaddui'. Og
þannig hafa flutningar fai'ið fram
í og úr Blönduhlíð og víðar nú
um hríð. Má nú iðulega sjá jeppa
og dráttarvélar bruna hér eftir
eylendinu. Minnir það á gamla
daga
„. . . . er keyrðum við um ísa
og kveðin vísa
af köi'lum úr Hlíð“,
eins og Magnús skáld á Vöglum
segir. — Þá voru það nú bara
hestar og sleðar. Menn komust
leiðai' sinnar allt um það.
—o—
Eðlilega er félagslíf allt hér
um sveitir að mestu leyti drepið
í dróma þegar svona ei'fiðlega ár-
ar. Kai'lakórinn Heimir, sem
annars æfir vikulega, hefur þó
reynt að halda uppi æfingum, en
tilfinnanlegar eyðui' hafa orðið
í þá viðleitni. Kórinn hefur nú
starfað í 30 ár og hyggzt minnast
afmælisins þegar betur raknar úr
með að bera sig yfir.
Til stóð að Sæluvika Skagfirð-
inga hæfizt í dag, en henni var
auðvitað frestað um óákveðinn
tíma.
í gær voru liðnar þær 6 vikur,
sem tamningastöðinni í Varma-
hlíð var ætlað að starfa. En frá
henni var sagt í fréttapistli fyrir
nokkru. Kom þá stjórn hesta-
mannafélagsins þar saman, ásamt
ráðunautum Búnaðarsambands
Skagfirðinga, til þess að kynna
sér hvernig tekizt hefði tamn-
ingin. Luku allir upp einum
munni um ágætan árangur af
þessari tilraun. Þar sem miklu
fleiri óskir komu fram í upphafi,
um að fá hesta tamda, en hægt
var að fullnægja, hefur nú verið
ákveðið að stöðin starfi annað
tímabil og er hún þegai' fullskip-
uð á ný.
Það hendir að minkar geri sig
heimakomna hér í sveit. Fyrir
nokkru komst einn í hænsnahús
að Bjarnastöðum. Gekk róni sá.
rösklega til verks, eins og þeirra.
illdýra er háttur, og létti ekki.
fyrr en öll hæsnin voru dauð, að
einni hænu undanskilinni, sem.
bjargaðist út um glugga.
M. H. G.
Fosshóli 17. marz.
Hér blotaði aðeins í snjó. —
Dráttarvélar fara um Bárðardal £
snjóbílsslóð. Ekki hefur heyrzt
neitt í Goðafossi undanfarið.
Hann er algerlega hulinn klaka.
og þykkri snjóhengju. Heilbrigði
er í fólki og fénaði. Reynt hefur
vei'ið á dorg í heiðarvötnum, en.
veiði engin. Víða er að verða.
olíuskortur.
ORÐSENDING
frá dýraverndarnefnd Akureyrar
Dýraverndarfélagi Akureyrar
bárust kvartanir vegna útigöngu-
hesta, sem taldir eru illa leiknir í
þeim vetrarharðindum, sem nú
ganga yfir.
Því vill dýraverndunarnefnd
benda hestaeigendum á lög um
dýravernd nr. 21, frá 13. apríl
1957, I. kafla, 2. grein, er hljóðar
svo:
„Öllum þeim, sem dýr eiga eða
ráða yfir þeim að öðru leyti eða
hafa umsjá með dýrum fyrir eig-
anda þeirra eða annan rétthafa,
er skylt að sjá svo um, að dýrin
fái nægilegt vatn og fóður við
þeirra hæfi og viðhlítandi um-
hirðu. Eiganda eða öðrum rétt-
hafa er skylt að sjá dýrunum,
fyrii' hæfilegum vistarverum,
skjólgóðum og rúmgóðum, enda
er skylt að ræsta slíka staði með
viðunandi hætti.“
Skorar nefndin á alla þá, sem
eiga úti hesta, að gefa þeim nánar
gætur og veita þeim þegar að-
hlynningu á viðunandi hátt.
Auk þess vill hún í vinsemd
beina þeirri ósk til allra, sem vitar.
um vanhirt hross, að þeir gerl
eigendum þeirra aðvart án tafar,.
í því trausti að úr verði bætt. —
Beri það ekki árangur, verður að
leita til yfirvaldsins.
Dýraverndunarfél. Akureyrar-
Starfsfræðsludagurinn
Reykvíkingar héldu þriðja
starfsfræðsludag sinn á sunnu-
daginn. Á þrettánda hundrað
unglinga sóttu hann og margir
um langan veg. Fulltrúar um 90
starfsgreina og skóla svöruðu
fyrirspurnum og leiðbeindu ungl
ingunum. Ólafur Gunnarsson,
sálfræðingur, undirbjó þennan
fræðsludag.
Mikils má vænta af slíkum
fræðsludögum, bæði fyrir ungl-
inga og ekki síðui' fyrir hina ráð-
andi menn þjóðfélagsins.
Hvenær verður starfsfræðslu-
dagurinn á Akureyri í ár?