Dagur - 22.10.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 29. október.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 22. október 1958
51. tbl.
Lionsklúbbur Akureyrar hefur látið
gera líkan af Ákureyrarkirkju
Mun auka hróður kirkjunnar og efla hana
Lionsklúbburinn á Akureyri I
boðaði fréttamenn á sinn fund sl.
mánudag. Formaður hans er Ey-
þór Tómasson. Klúbbur þessi
hefur látið gera líkan af Akur-
eyi'arkirkju og verður það til
sölu sem minjagripur og til ágóða
fyrir Akureyrarkirkju. Líkanið
er gert í Þýzkalandi og er úr
málmblcndu og hið smekkleg-
asta. Hér á Akureyri fæst það í
Blómabúð KEA.
Á stefnuskrá Lionsklúbba, sem
eru alþjóðasamtök, eru fjölmörg
menningarmál, en stjórnmál og
trúmál, svo og eiginhagsmunir,
sniðgengin. Klúbbar þessir starfa
sérstaklega að velferð bæjarfé-
laga og vilja vekja og auka sið-
gæði í athafnalífinu og vinna að
vináttu meðal manna og frjálsri
husgun. Akureyrardeildin telur
ekki nema 29 félaga. Samt hefur
hún unnið að eflingu ekknasjóðs
og var það gott verk.
Þetta viðfangsefni, að auka veg
Akureyrarkirkju og tekjur henn
ar, er. einkar athyglisvert og
mjög vel til fundið. Hvort tyeggja
er, að kirkja okkar er fögur en
fjárvana. Líkan af henni sómir
sér vel innanlands og utan og er
hinn ágætasti minjagripur. En
að hinu leytinu skortir fé til að
fegra hið næsta umhverfi hennar.
Hugkvæmni Lionsklúbbs Akur-
eyrar er líkleg til að auka veg
hinnar fögru kirkju og er það
lofsvert. — Jón Sólnes hafði
einkum orð fyrir Lionsklúbbn-
um, auk formanns. Séra Pétur
Sigurgeirsson þakkaði fyrir hönd
kirkjunnar.
Fær orð fyrir flýti, og Iagleg er I Þær vinna nauðsynleg störf við nýtingu aflans — fyrir góða borgun.
liún líka. — (Ljósmynd: B. J.).
Enn fleiri geta fengið vinnu. — (Ljósmynd: B. J.).
Hraðfrystihús Ú. A. vantar konur í vinnu
Mesta gufugosið
Ur borholu einni við Gufudal
í Hveragerði, sem var 400 metra
djúp, kom það mesta gufugos,
sem orðið hefur hér á landi af
mannavöldum. — Samkvæmt
bráðabirgðamælingum hefur
það komið í fjós, að hitamagnið
úr þessari einu borholu mundi
nægja tú að hita upp Reykja-
víkurbæ.
Ráðgerðar eru fleiri boranir.
Fóru áður í síld - nú í fiskverkun
Um síðustu helgi unnu 100 konur í Hraðfrystihúsi Ú. A. á Akur-
eyri við verkun tveggja togarafarma.
Áður fóru konur í síldina, en
nú til Ú. A. Hraðfrystihúsið
vantar enn fleiri konur. Hús-
mæður, sem ekki geta unnið
nema hálfan daginn, geta fengið
þarna vinnu, þegar mikið er að
gera, eins og verið hefur undan-
farið, og helzt á þann hátt, að
tvær konur skipti með sér deg-
inum eftir samkomulagi sín á
Vetnissprengju-tilraunir munu valda heilsu- og
gáfnatjóni tugþúsunda barna í framtíðinni
framfarastefna mótar ríkisbúskapinn
Ytarleg ræða Eysteins Jónssonar f jár
Ameríski vísindamaðurinn og
Nóbelsverðlaunahafinn, dr. Linus
Pauling, hélt því fram á fundi í
Lundúnum fyrir skömmu, að
vetnissprengjutilraunir þær, sem
til þessa hafa verið framkvæmd-
ar, muni valda alvarlegu heilsu-
og gáfnatjóni 150.000 barna, bor-
inna og óborinna, í nánustu
framtíð. Afleiðing einnar há-
marks vetnissprengju sprengdrar
muni verða, að síðan fæðist um
15000 stórgölluð börn, andlega og
líkamlega. En nú svarar ein slík
sprengja til þess magns, sem ár-
lega hefur verið beitt í tilaruna-
skyni síðustu 10 árin. Ætti því
áhrifamagn þessara tilrauna að
geta valdið tjóni 150.000 barna á
þessu tímabili. En með gáfnatjóni
telur hann mjög áberandi gáfna-
skort fávita og hálfvita.
Æskulýðsheimilið fekur til starfa
Leikstofur og margs konar kennsla eins og áður
Æskulýðsheimili templai-a hef-
ur starfsemi sína að Varðborg
þriðjudaginn 21. okt. Tilhögun
verður með svipuðum hætti og
undanfarna vetur. Leik- og les-
stofur heimilisins verða opnar
fyrir börn úr 4., 5. og 6. bekkjum
barnaskólanna á þriðjudögum og
. föstudögum kl. 5—7 og á sömu
dögum verður opið fyrir ungl-
inga kl. 8—10. í leiksstofunum er
knattborð, borðtennis, bobb og
spil, en í lesstofunni er fjöldi
ágætra bóka og blaða-
I vetur eru fyrirhuguð nám-
skeið í pappírsföndri, leirmót-
un, hast- og tágavinnu, m'eð-
ferð olíulita, myndasmíði, bók-
bandi og flugmódeismíði. Auk
þcssara námskeiða stendur
heimilið fyrir Sagapon tungu-
málanámskeiðum í ensku og
þýzku, og er þeirra nánar getið
á öðrum stað í blaðinu.
Eins og að undanförnu sér
Tryggvi Þorsteinsson um starf-
semi heimilisins og gefur hann
allar nánari upplýsingar um
námskeiðin. Hann er til viðtals í
Varðborg á þriðjudögum og
föstudögum kl. 3—7 og kl. 8—10
síðdegis.
málaráðherra við fyrstu umræðu f jár-
laga - Stjórnarandstaðan stefnulaus
Nokkrir kaflar úr framsöguræðu Eysteins
Ríkisbúskapurinn 1950—1957.
Eins og eðlilegt er, verður miinn-
um tíðrætt um ríkisbúskapinn og
áhrif lians á Jrjóðarbúskapinn í
heild, og um það, hvcrnig til tekst
um þennan mikilsverða þátt.
I sambandi við undirbúning fjár-
laga að þessu sinni gerði ég nokkra
athugun á hel/tu niðurstöðum í
ríkisbúskapmhh á undanförnum ár-
um. Miða ég þennan samanburð við
árslok 1949 að öðru leytinu og á
hinn bóginn við árslok 1957, cn
lengra ná ekki, eins og gefur að
skilja, fullgerðir reikningar. Þykir
mér rétt að greina hér frá nokkrum
höfuðatriðum í þessu sambandi.
Skuldir lækkað — eignir aukizt.
Sk^ildir þær, sem ríkissjóði er
sjálfum ætlað að standa straum af,
að frádregnum sjóðum og innstæð-
um, hafa lækkað um rúmlega 20
millj. á þessu tímabili, og hefur |>ó
ríkissjóður tekið að sér, samkvæmt
ákvörðunum Alj>ingis, ýmsar skuld-
ir annarra stoliiana, og má í því
sambandi nelna 83 millj. kr. vegna
íf)úðalánasjé>ðs.
Ncttóeign ríkisins hcfur á þess-
um árum aukizt um 780 milljónir
kré>na.
A1 greiðsluafgangi hefur vcrið út-
hlutað á þessu tímabili samkvæmt
sérstökum lögum 138 millj. króna.
Hefur því fé verið varið jrannig:
Til Ræktunarsjóðs, Byggingar-
sjé)ðs og Veðdcildar Búnaðarbank-
ans 52 millj. kr.
Til íbúðarlánasjóðs, smáíbúða-
lána, verkamannabústaðalána, Fisk-
veiðasjétðs og Atvinnuleysistrygg-
ingarsjóðs 52 niilij. kr.
Til Bjargráðasjé)ðs 10.5 millj. kr.
'J’il ýmissa annarra framkvæmda
18.7 ntillj. kr.
Þessi úthlutun á greiðsluafgangi
hefur átt stcirfelldán þátt í J)eim
miklu framförum í sveitum og
(Framhald á 5. síðu.)
milli og í samráði við Karl Frið-
riksson verkstjóra.
Leitað var til Gagnfræðaskól-
ans um vinnuafl, og varð skóla-
stjórinn fús til fyrirgreiðslu og
unnu stúlkur og piltar eins
bekkjar skólans nokkra daga. —
Kvennakaup er 17.05 á klst., og
eru því góð búdrýgindi að geta
stundað vinnu utan heimilis öðru
hvoru og alveg nauðsynlegt fyrir
útgerðarfélagið að hafa fullan
vinnukraft, þegar mikill fiskur
berst á land. Akureyrartogararn-
iv hafa aflað sérlega vel og skila
fe-ikna miklum verðmætum á
land. Það væri mjög mót vonum,
ef konur á Akureyri létu sitt
eftir liggja.
Togarann Kaldbak varð að
senda til Sauðárkróks til að
landa fullfermi af karfa. Þá vant-
aði fólk til verka hér á Akureyri.
Guðmundur B. Árnason
85
ara
Síðastliðinn miðvikudag, 15. þ.
m., varð Guðmundur B. Árna-
son, fyrrum bæjai-póstur á Ak-
ureyri, 85 ára. Hann er kunnur
heiðursmaður. — Dagur þakkar
honum margar góðar greinar og
öll önnur kynni og óskar honum
til hamingju í tilefni afmælisins.
Almennur fundur í Framsóknar-
félaginu á sunnudaginn
Guðmundur Guðlaugsson talar um bæjarmálin
Næstkomandi sunnudag, 26.
október heldur Framsóknarfélag
Akureyrar almennan félagsfund
að Hótel KEA og hyrjar fundur-
inn kl. 4 e. h.
Dagskrá fundarins er eftirfar-
andi:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Umræður um bæjarmál. Fram-
sögumaður Guðmundur Guð-
laugsson, forseti bæjarstjórnar.
3. Stjórnmálaviðhorfið. — Fram-
sögumaður Ingvar Gíslason,
erindreki Framsóknarflokks-
ins.
4. Almennar umræður.