Dagur - 29.04.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því sem gerist
faér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
AGU
DAGUK
kemur næst út miðviku-
daginn 6. maí.
¦•^míCíM
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 29. apríl 1959
23. tbl.
Í>/K<íc//í!
Hótel KEÁ opnað um næstu helgi
Gagngerð viðgerð hefur farið fram og er
hótelið allt hið vistlegasta
Hétel KEA verSur opnað um
næstu helgi eftir gagngerðar
endurbætur og viðgerðir. Það
hefur verið lokað að mestu frá
því í október í haust vegna gagn-
gerðra viðgerða.
Öll herbergin hafa verið máluð
og eru þau hin vistlegustu, björt
og snyrtileg, salurinn á annarri
bæð er allur endurbættur og lít-
ur mjög vel út. Fatageymslur eru
nú mjög rúmgóðar og nauðsyn-
legar snyrtingar settar upp. Frá-
gangur á öllu þessu er mjög
vandaður.
Aðalviðgerðin er þó í því fólg-
in að skipta algerlega um hita-
lagnir og miðstöðvarkerfið í
húsinu, ennfremur frárennsli. Sú
aðgerð þoldi ekki neina bið og
var óumflýjanleg. En henni
fylgdi mikil röskun og þurfti að
brjóta upp gólf og veggi til þess
að unnt væri að skipta um lagnir.
Þá var ennfremur sett nýtt loft-
ræstingarkerfi í húsið.
Hótel KEA er fullkomnasta
hótel utan Reykjavíkur og hefur
noíið mikilla vinsælda allt frá
því að það hóf starf undir stjórn
Jónasar Lárussonar gestgjafa og
til þessa dags. Hinir stöðugu
ferðamannahópar, sem hingað
leggja leið sína á sumri hverju,
hafa áningarstað að Hótel KEA.
Og yfir veturinn er einnig mikil
þörf á þeirri þjónustu, sem hó-
telið veitir. Sást það bezt á síð-
astliðnum vetri, hver vandræði
urðu vegna lokunar hótelsins.
Hótel KEA leitast við að veita
þá beztu þjónustu, sem kostur er
á hverju sinni og hefur margt til
þess að gera staðinn eftirsóttan,
svo sem hin ágætu hótelherbergi,
fjölbreytt og gott fæði, sem
kunnáttumaður fjallar um og
hinn stóra og smekklega sam-
komu- og borðsal, auk Gilda-
skálans. Síðast, en ekki sízt, má
svo nefna hvers konar fyrir-
greiðslu hótelstjórans, Sigurðar
Sigurðssonar, sem leggur sig
frarn við að leysa hvers manns
.vandræði af.sinni þekktu hátt-
vísi.
Sennilegt er, að rekstur jafn
vandaðs hótels og Hótel KEA er,
sé ekki vænlegur lil gróða
nema yfir sumarmánuðina. En að
því.er menningarauki fyrir höf-
uðstað Norðurlands og það veitir
gestum og gangandi hina ómet-
anlegu þjónustu og gerir það
vonandi um langa framtíð. Þess
vegna mun því fagnað þegar það
tekur til starfa á ný.
Brezkur to
Félagsheimili verka-
lýðsfélaganna
Verkalýðsfélögin á Akureyri,
sem hafa nær 2 þúsund félags-
menn innan sinna vébanda, hafa
mikinn hug á að byggja nýtt og
vandað félagsheimili fyrir starf-
semi sína. Félögunum hefur verið
úthlutuð Ióð fyrir bygginguna við
Smáragötu, vestan við Lögreglu-
stöðina. Mundi félagsheimilið
verða vel sett á þessum stað. Fé-
Iögin hafa þegar fengið fjárfest-
ingarleyfi fyrir byggingafram-
kvæmdum, og nú er unnið að
teikningu heimilisins.
Allur ágóði af 1. maí hátíða-
höldunum rennur til félagsheim-
iíisbyggingarinnar.
ærður fyrir
isl
Fyrsti hrezki togaraskipstjórinn, sem lögsóttur
er fyrir landhelgisbrot utan fjögurra mílna
Réttarhöldin eru í Vestmannaeyjum
Brezki togarinn Montgomery
lávarður var staðinn að veiðum á
Selvogsbanka 8,75 sjómílur innan
fiskveiðitakmarkanna fimmtu-
daginn 23. þ. m. Varðskipið Ægir
kom að togaranum kl. 8,17 að
kveldi, gerði staðarákvörðun og
gaf stöðvunarmerki og skaut 3
lausum skotum að veiðiþjófnum
og honum skipað að nema staðar.
Skipstjóri hafði það að engu og
hélt áfram veiðum. HerskipiS H.
M. S. Tenby var þá beðið að
jý Ákuref rarmet sett á Sund-
meisfaramóti íslands í Reykjavík
Sundmeisíaramót íslands hófst
í Reykjavik sl. mánudag. Sund-
fólk héðan frá Akureyri tók þátt
í mótinu og náði ágætum árangri.
Guðmundur Þorsíeinsson synti
©-
Eitt hinna nýviðgerðu hótelherbergja. (Ljósm.:
E. Sigurgeirsson.)^
400 m. bringusund á 6.33,2 mín,
og er það 3,6 sek. betra en eldra
Ak.metði, sem hann átti sjálfur.
Björn Arason vann sinn riðil í
100 m. skrið'sundi drengja á 1.12,6
og fékk 3. verðlaun í þeirri grein.
Frammistaða Ástu Pálsdóttur,
sém er einn yngsti keppandi
mótsins, aðeins 13 ára, var hin
glæsilegasta. Af 12 keppendum í
50 m. bringusundi varð Ásta í 2.
—3. sætu á 44,0 sek., sem er jafnt
Ak.meti Helgu Haraldsdóttur. —
Skömmu síðar keppti Ásta í 200
m. bringusundi kvenna og náSi
þar 3. verðlaunum á frábærum
tíma, 3.21,3, sem er nýtt Ak.met,
og bætti hún þar met Steinunnar
Jóhannesdóttur, sem var 3.31,8,
og staðið hefur óhaggað. í 20 ár
(sett á íslandsmóti 1939, og var
þá íslandsmet).
Þegar blaðið fór í pressuna
voru ekki kunn úrslit eða tímar
úr keppnum seinni dagsins.
stöðva togarann og varð það við
þeirri ósk, athugaði staðsetningu
og leyfði honum síðan að halda
veiðunum áfram í landhelgi. Síð-
an setti herskipiS sig í samband
viS flotamálastjórnna brezku, og
varð niðurstaðan sú, að varð-
skipinu var loks leyft að færa
hinn brezka togara til hafnar
„samkvæmt fyrirmælum eig-
enda" og með þeim skilyrðum að
fangarnir yrðu látnir sæta góSri
meðferð!
Réttarhöldin.
SiSan hafa réttarhöld staðið
yfir í Vestmannaeyjum, og kom
þá í ljós, að George Harrison,
skipstjóri á Montgomery, var
ekki alveg ókunnur íslenzkri
landhelgisgæzlu, því að þetta er
gamall landhelgisbrjótur. Dundu
nú á hann kærurnar og urðu þær
25 talsins, og hefur hann játað
flest eða öll brot sín. Harrison
var áður skipstjóri á Lord Plen-
der og voru mörg brotanna fram-
in þá.
Bæjarfógetinn í Vestmanna-
eyjum, Torfi Jóhannsson, hefur
málið til meðferðar, en áheyrnar-
fulltrúi dómsmálaráðuneytisins
var Valdimar Stefánsson. Búizt
var við því í gær, að dómur falli
í máli þessu í dag.
Munu sektir verða hinar hæstu
sem lög heimila, enda er þetta
umfangsmesta mál, sem höfðað
hefur verið gegn togaraskipstjóra
hér á landi.
Afsökun hins brotlega.
George Harrison skipstjóri
heldur því fram í réttinum, að
hann hafi aðeins fiskað á þeim
slóðum, sem sér hafi verið fyrir-
skipað af útgerðinni og brezku
herskipunum.
Hluti af aðalsal Hótels KEA. — (Ljósmynd: Edvard Sigurgeirsson.)
íkviknun
í gær var slökkviliðið hvatt að
Tunnuverksmiðjunni vegna elds,
sem þar varð laus í rusli. Búið
var að slökkva þegar slökkviliðið
kom, þótt það væri fijótt í ferð-
úm, og urðu engar skemmdir. —
Tveir sóttu
Aðeins tveir menn sóttu um
yfirlögreglsuþjónsstarfið hér í
bæ, sem auglýst var til umsókn-
ar. Það voru þeir Björn Guð-
mundsson og Gísli Ólafsson vakt-
stjórar í lögregluliði bæjarins.
Umsóknarfrestur var útrunn-
inn hinn 25. þ. m.