Dagur - 20.06.1959, Qupperneq 8
8
Laugardaginn 20. júní 1959
Bagur
Sfórt ftutningaskip rak á land
í ÓEafsfirði í ofviðrinu 17. júní
Ofviðri og stórbrira - Gunnólfur sigldi út
þótt bryti þvert yfir f jörðinn
Ólafsfirði 18. júní.
Hér gekk hann aftur til norð-
austanáttar á þriðjudaginn. Allt
varð hvítt alveg niður að sjó um
kvöldið. í fyrrinótt hvessti hann
og gerði aftaka brim, svoað lá við
stórskemmdum á skipum og bát-
um, sem lágu á höfninni.
Síldarbátarnir Einar Þveræ-
ingur og Þorleifur Rögnvaldsson
komu heim á þriðjudagsnótt-
ina vegn ógæfta og sjógangs úti
fyrir. Ut af Siglufirði sökk
snurpubátur Einars. En hann
náði honum upp aftur við illan
leik og nótinni stórskemmdri. —
Voru því öll síldarskip inni, 6 að
tölu, og auk þess 20 smærri
bátar.
Hér var statt stórt fisktöku-
skip frá Spáni. Það kom hingað á
mánudaginn og ætlaði að lesta
hér þurrkaðan saltfisk á þriðju-
dag. En ekki var það hægt vegna
bleytu og illviðris.
Klukkan 6 í gærmorgun slitn-
aði skipið upp frá hafnargarðin-
'jim og 3 síldarbátar, sem lágu of-
ar við garðinn. Hið erlenda skip
rak umsvifalaust á land og án
þess að nokkuð yrði við það ráð-
ið. Stendur það í sandinum, svo
að segja á þurru með fjöru og
hallast lítið eitt. Sennilegt er, að
það sé með öllu óskemmt og
skipverjar hafa von um að ná því
út með dráttarbáti.
Stígandi var einn þeirra báta,
sem slitnaði upp. Hleypti hann
upp í sandinn sunnan við báta-
bryggjuna og fór vel um hann
þar, þangað til hann komst sjúlf-
ur út á flóði í gær. Einar Þveræ-
ingur þröngvaði sér inn í krik-
ann norðan við bátabryggjuna,
þótt þar væri þröngt fyrir. —
Gunnólfur vai' einn hinna
þriggja báta, sem upp slitnuðu.
En hann brá á það ráð að sigla
burtu. Fór hann út fjörðinn, þótt
bryti yfir hann þveran, og
sigldi til Hríseyjar.
Ein smátrilla sökk á höfninni,
en náðist aftur lítið skemmd. —
Sennilega hefði ekkert orðið að,
ef fyrirhuguð lenging bryggj-
Karlakór Keflavíkur
á söngför imi Norðurl.
Karlakór Keflavíkur mun
kima til Akureyrar n.k. mánu-
dag og syngja í nýja-Bíó það
kvöld kl. 9. Þetta er nær 40
manna kór og hefur unnið sér
mikið álit undir'stjórn Herberts
Hriberscheks — frá Austurríki.
Undirleik annast Ragnheiður
Skúladóttir og einsöngvarar eru
þrír: Böðvar Pálsson, Hreinn
Líndal og Sverrir Olsen. Á
söngskrá kórsins eru 14 lög, þar
af sjö eftir innlend tónskáld.
FLOKKSSKRIFSTOFAN:
Símar 1443 og 2406
unnar hefði verið komin í fram-
kvæmd.
Lágheiði er talin ófær og þar
töluvert mikill snjór. Bændur og
fjáreigendur áttu í erfiðleikum
með fé sitt í þessu hreti. Snjór er
nú að hverfa af götum bæjarins
a KRISTINN BERGSSON.
-!íí'
Námsmður frá Ákureyri verð-
launaður við skóla I Svíþjóð
Kristinn Bergsson frá Sæborg
í Glerárþarpi hefur sl. ár dvalið
við nám í skóiðnaðarskóla í Sví-
þjóð (Orebro Lans Landstings
Yrkesskola) á vegum Skóverk-
smiðjunnar Iðunnar.
Við skólaslitin nú í júní af-
henti rektor skólans, hr. J. Folk-.
marson, Kristni fyrstu verðlaun
skólans fyrir bóklegt og verklegt
nám á undanförnu starfsári, en
Kristinn var efstur við lokapróf
skólans ásamt sænskum pilti.
Hafa sænsk blöð getið um hinn
unga og duglega Akureyring að
verðleikum.
Rðunverulegur fljúgandi diskur
Hinn „fljúgandi diskur“ Breta,
sem er hugsanlegt að sé undan-
fari flugvélar, er verður míla á
lengd og vegur 100.000 tonn, fór
jómfrúarflugferð sína fyrir
skömmu, að viðstöddum fjölda
áhorfenda. Hann fór tvær ferðir
yfir land og sjó. Þessi sporöskju-
lagaða flugvél vegur fjögur tonn
og sýndi fyrst í 15 mínútur hæfi-
leika sinn til að liggja á loft-
„svæfli“, sem vélknúin lofdæla
beinir niður. Um 200 blaðamenn
fylgdust með vélinni, þar sem
hún lá um fet ofar jörðu og sneri
sig hægt í allar áttir.
Seinna flaug vélin, sem hafði
tveggja manna áhöfn, út yfir sjó
í fyrsta sinn. Horfðu hundruð
manna á vélina liggja kyrra í
nokkrar mínútur yfir úfnum sjó.
Síðan flaug hún yfir vatnið með
allt að 20 mílna hraða og olli
miklu særoki. Áður hefur vélin
flogið í fimm stundir í reynslu-
skyni og mikið rannsóknarstarf
er fyrir höndum enn.
f vélinni er 435 hestafla Alvis
Leonides vél og rekur hún loft-
dælu, sem knýr loft út um op, er
liggja í hring neðan á vélinni.
Myndast þannig loft„svæfillinn“
milli vélarinnar og jarðar.
Eyfirzku bændurnir komnir heim
úr Suðurlandsferð sinni
Síðasta áfangann var ekið í snjó og hríðarveðri
Bændur róraa viðtökur stéttarbræðra sinna
Sunnudaginn 7. júní sl. lögðu
eyfirzkir bændur af stað í svo-
kallaða bændaför til Suðurlands,
í hinum nýja strætisvagni á Ak-
ureyri. Þeir voru 42 talsins og
auk þess Ragnar Ásgeirsson far-
arstjóri og bifreiðastjórinn Ing-
ólfur Þorsteinsson.
Fyrsta daginn var ekið suður í
Borgarfjörð og gist þar á ýmsum
bæjum. Næsta dag var ekið um
Kjalarnes og snæddur hádegis-
verður að Hlégarði í boði Bún-
aðarsambands Kjalarness, en
síðan haldið um Þingvöll til
Laugarvatns og gist þar.
Þriðja dag ferðarinnar var ek-
ið um Selfoss og austur að
Sámsstöðum og Múlakoti, en gist
í Landeyjum. Fjórða daginn var
Eyjafjallasveitin skoðuð, Selja-
landsfoss, Drangshlíð, Skógarfoss
o. fl. staðir,_ en þaðan haldið
áfram til Víkur í Mýrdal og gist
á vegum Búnaðarsambands Suð-
urlands. Fimmta daginn var ekið
um Álftaver og Skaftártungur
og að Fossi á Síðu. En snúið þar
við og ekið til Víkur.
Var nú haldið vestur á bóginn
og þá komið að Gunnarsholti á
Rangárvöllum og gist í Hrepp-
um.
Á sjöunda degi ferðarinnar var
Geysir skoðaður og Gullfoss og
haldið til Reykjavíkur, dvalið
þar í einn dag, en þá lagt af stað
norður. Þá var ekið til Hvann
eyrar og notið boðs Búnaðarsam
bands Borgarfjarðar og staður-
inn skoðaður að veitingum lokn-
um. Þaðan haldið sama dag vest- ■
ur Mýrar og Snæfellsnes til
Vegamóta á Miklaholtshréppi og
gist þar hjá stéttarbræðrum.
Á 10. degi ferðarinnar var farið
um Kerlingarskarð, gengið á
Helgafell og þaðan farið sem leið
liggur til Stykkishólms og
snæddur miðdegisverður í boði
Búnaðarsambands Snæfellinga.
Þaðan ekið um Skógarströnd og
Dali til Búðardals. En þar þágu
norðanmenn veitingar hjá Bún-
aðarsambandi Dalamanna.Áfram
var haldið um Bröttubrekku á
Norðurlandsleið og komið til
Blönduóss kl. 2 um nóttina, en
ekið áfram og alla leið til Akur-
eyrar og þangað komið árdegis
17. júní. Seinfært var síðasta
áfangann vegna snjóa og illviðris,
en allt gekk slysalaust.
Bændur róma mjög allar við-
tökur stéttarbræðra sinna er þeir
hittu á leið sinni.
VíSa á Norðurlandi urðu enn fjárskaðar
Enn berast. fréttir af fjársköð-
um í síðara hretinu víða á Norð-
urlandi. Snjókoma var mikil, svo
að heiðarvegir tepptust, en hvass
viðri og krapahríð gengu hart að
sauðfénu, sem víðast var komið
td fjalla. Þess eru og dæmi, að
hross króknuðu í þessu veðri. —
Þótt snjókoman virtist nokkuð
mismunandi, urðu víða fjárskað-
ar, og eru þó engin tök á að leita
svo sem þyrfti að fénu í fönn. —
Fullyrða má, þótt ekki séu öll
kurl komin til grafar, að saman-
lagðir fjárskaðar eftir tvö und-
anfarin hret séu stórfelldir og al-
veg óvenjulegir á þessum árs-
tíma.
í Svarfaðardal og Skíðadal var
hnédjúpur snjór á túnum
fremstu bæja og varð að moka
ofan af fyrir fénu á túnunum.
I Bárðardal var leitað upp um
alla heiði, dauð lömb fundust í
lækjum og allmargar lamblaus-
ar ær.
Ráðstefnan 1960
BRETAR hafa síðan 1. sept. síðast-1
liðið haust sýnt íslendingum þá
dæmalausustu tegund ósvífni, sem !
um getur í landhelgismálum. Ekki
færri en 25 aðrar þjóðir færðu sjina
landhelgi út á sarna hátt og Islend-
ingar gerðu nú, þeirra á meðal
Rússar.
Þessi mynd var tekiu í Húsavík í fyrra.
Bretar gripu aldrei til örþrifa-
ráða gegn neinni af þessum þjóð-
um. En þegar fámennasta þjóðin,
sem þar að auki er vopnlaus, lriðar
hluta landgrunnsins vegna óum-
dejlanlegrar nauðsynjar, þá gripu
Bretar til vopna og fyrirskipuðu
rán og ofbeldi á íslandsmiðum, sem
enn stendur.
Bretar höfðu ástæðu til að ætla,
að lslendingar stæðu ekki einhuga
að útfærslunni vegna óþjóðhojlrar
stjórnarandstöðu, þcgar ákvörðun
um hin nýju íiskveiðitakmörk voru
ákveðin. Nú stendur þjóðin saman
sem einn maður, og nú er sigurs
að vænta.
Alþjóðleg ráðstefna um réttar-
regfur og fiskveiðirétt verður hald-
i11 að vori. I>ar á Island fulltrúa,
Og við þessa ráðstefnu eru miklar
vonir bundnar. Með rétti okkar
sem sjálfstæðs ríkis til fullrar jrátt-
tiiku og með góðan málstað til að
berjast fyrir, er ástæða til nokkurr-
ar bjartsýni.
í framhaldi af þéssu mætti varpa
fram þeirri spurningu, hvort betur
hentaði okkur íslendingum að
senda sérstakan fulltrúa á ráðstefn-
una, eða að ti! ráðstelnunnar væri
kosið „hlútfallskosningu í stórum
kjördæmunr“, þar sem íslendingum
væri ætlað að kjósa sinn fulltrúa
eða sína fulltrúa með hinum Norð-
urliindunum. Samkvæmt rökum
Framliald á 7. siðu.