Dagur


Dagur - 19.08.1959, Qupperneq 1

Dagur - 19.08.1959, Qupperneq 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 26. ágúst. XLH: árg. Akureyri, miðvikudaginn 19. ágúst 1959 43. tbl. AKUREYRINGAR VILJA KAUPA FLEIRITOGARA Fá daufar undirtektir valdhafanna í Reykjavík' ástæður leyfðu Baejarstrjórn Akureyrarkaup- staðar og Útgerðarfélag Akur- eyringa h.f. sækja það mál allfast við ríkisstjórnina að hingað verði úthlutað einum, og þó helzt tveimur, hinna nýja togara, auk togara Guðmundar Jörunds- Scnar útgerðarmanns hér í. bæ. Samkvæmt fundargerðum bæj- arstjórnar var svohljóðandi greinargerð bæjarstjórnar send sjóvarútvegsmálaráðherra: „G R E I N A R G E R Ð Akureyrarkaupstaðar vegna beiðni um kaup togara, sbr. bréf til ríkisstjórnarinnar dags. 22. 6. 1957 og áréttingu í sím- skeyti til sjávarútvegsmálaráðu- neytisins 10. júní 1959. Útgerðarfélag Akureyringa h.f. var stofnað árið 1947 til að gera út togara frá Akureyri og vinna að hagnýtingu afla þeirra hér, eftir því sem hverju: sinni. Akureyrarkaupstaður gerðist í upphafi hluthafi í félaginu ásamt hundruðum einstaklinga og fyr- irtækja í bænum og á bæjarsjóð- ur nú 2ja miilj. kr. hlutafé í fé- laginu af 3,6 millj. kr. hlutafé, eða ríflega heiming alls hluta- fjár félagsins. Og segja má, að bæjarstjórn Akureyrar hafi und- anfarin ór ráðið því, hverjir skipuðu stjórn félagsins, þar eð bæjarstjórn kemur fram með uppóstungur um menn í stjórn félagsins á aðalfundi, og eftir breytingu á lögunum um hluta- félög og á samþykktum félagsins, er ólíklegt, að framvegis verði aðrir kosnir í stjórn Útgerðarfé- lagsins en þeir, sem bæjarstjórn stingur upp á. Að -þessu leyti má jafna rekstri Ú. A. h.f. við bæjar- Framhald á 2. siðu. ISLENDINGÁR1 DANIRI Landsleiknum, sem háður var í Kaupmannahöfn síðdegis í gær milli Dana og íslendinga, lauk með jafntefli 1:1. íslendingar skoruðu sitt mark í fyrri hálfleik, en þegar stutt var til leiksloka tókst Dönum að jafna. Enn er óséð hvort íslendingar komast til Rómar sem þátttakcndur Olympíuleikanna. Landsleikur Norðmanna og íslendinga fer fram síðar í vikunni. Stytta af Jóni Árasyni verður af- hjúpuð næsíkomandi sunnudag Eins og áður hefur verið getið, fér fram hótíðarguðsþjónusta í Munkaþverárkirkju n.k. sunnu- dag, 23. ágúst, í tilefni af þvi, að afhjúpuð verður þann dag myndastytta sú, er Guðmundur Einarsson frá Miðdal hefur gert af Jóni biskupi Arasyni. Lista- maðurinn verður viðstadduf af- hjúpunina. ■ Guðsþjónustan hefst með skrúðgöngu klerka í kirkju kl. 1 e. h. Altarisþjónustu annast séra Sigurður Stefánsson, prófastur á Möðruvöllum, og séra Pétur Sig- urgeirsson, Akureyri, en séra Friðrik A. Friðriksson, prófastur á Húsavík, prédikar. Kirkju- sönginn annast kirkjukórar Munkaþverárkirkju og Glerár- þorps undir stjórn Áskels Jóns- sonar söngstjóra. Við afhjúpun styttunnar flytur séra Benjamín Kristjánsson að- Hjónavígsla að Lögbeigi. — Á sunnudaginn fór fram hjóna- vígsla að Lögbergi á Þingvöllum, sú fyrsta á hinum fornhelga stað síðan í fornum sið. Þar voru gef- in saman af séra Rögnvaldi Finnbogasyni Ásdís Oskarsdóttir frá Vík og Benedikt Gunnarsson listmálari í Reykjavík. Dalvík cr með hæstu söllunarslöðunum í sumar. (Ljósmynd: E. D.). SÍLDARAFLINN ORÐINN ÞÚSUND MÁL OG r Utflutningsverðmæii talin imi 185 míllj. króna Afli síðustu viku varð 114 þús. mál og tunnur. Nefjanskráðar töl- ur allar miðaðar við 15. þ. m. En síðan liefur verið bræla á miðun- um og ekki teljaiidi veiði. — f gær fór veður batnandi. in alræðuna og væntanlega verða þar fleiri ræður og ávörp, ef veður leyfir. Að lokinni þessari athöfn verð- ur kaffisamsæti í Freyvangi, sem félög byggðarinnar sjá um, og gefst þar öllum, er þess óska, kostur á að taka til máls. FULLTRUARAÐS- FUNDUR í Framsóknarfélagi Eyjafjarð- arkjördæmis verður haldinn að Hótel KEA laugardaginn 22. þ. m. kl. 2 e. h. — Mjög áríðandi mál á dagskrá. Kristinn Jóhannsson opnar mál- verkasýningu næstk. laugardag Átta skip skip komin yfir 10 þús. mál og tunnur: Víðir II, Garði ......... 14.547 Snæfell ,Akureyri........13.464 Faxaborg, Hafnarfirði . . 12.871 Jón Kjartansson, Eskifirði 12.608 Sigurður Bjarnason, Ak. 10.984 Guðm. Þórðarson, Rvík .. 10.891 Björgvin, Dalvík .........10.878 Arnfirðingur, Rvík .... 10.578 Níuííu skip yfir 5 þús. 225 skip hafa tekið þátt í veið- unum og aðeins 7 hafa fengið minna en 700 mál. Nær 90 skip hafa fengið yfir 5000 mál o tunnur og 8 skip yíir 10.000 mál og tunnur, eins og fyrr segir. A fjöida síldarskipanna er háseta- hluturinn þegar orðinn mjög góður. Einn af yngri listamönnunum, Kristinn Jóhannsson, opnar mál- verkasýningu í Gildaskála KEA næstkomandi laugardag. Sýning- in stendur í 10 daga. Þar verða sýnd 70 mólverk írá síðustu tveim árum. Kristinn Jóhannsson, sem er Akureyringur, hefur dvalið við nám við Listaháskólann í Edin- borg og er þetta fyrsta sýning hans hér á Akureyri eftir heim- komuna. En i Reykjavík hefur hann haldið tvær sýningar í sumar og hlotið mjög góða dóma gagnrýnenda og seldust þá marg- ar myndir hans. Kristinn Jóhannsson er óefað listamannsefni og mun halda áfram námi, ef fjárhagsástæður leyfa. Blaðið vill því hvetja bæj- arbúa og aðra lesendur sína til að sækja sýninguna og styrkja hinn unga Akureyring með því að skoða verk hans. Þeir munu ekki verða fyrir vonbrigðum. Akureyringar leika úrslifaieik við Vesfmannaeyinga n. k. fö: Knattspyrnuráð Akureyrar hefur nú valið lið það, sem leika á úrslitaleikinn í II. deild gegn Vestmannaeyingum. Leikurinn fer fram á Melavellinum í Reykjavík föstudaginn 21. þ. m., en liðið er skipað þessum mönnum: Einar Helgason Amgrímur Kristjánsson Tryggvi Gcstsson Rirgir Hermannsson Jón Stefánsson Arni Sigurbjörnsscn Bjarni Bjarnason Sfeingrímur Björnsson Jakob Jakohsson Tryggvi Georgsson Páll Jónsson Varmenn: Páll Magnússon, Siguróli Sigurðsson, Björn Olsen, Hilmar Gíslason, Þór Þorvaldsson og Gunnar Jakobsson. Auk þess mun liðið leika bæjarkeppni við Keflvíkinga á laugar- dag kl .17.00 og bæjarkeppni við Hafnfirðinga á sunnudag kl. 14.00. Einnig mun 3. cg 4. flokkur leika við jafnaldra sína á Suðurlandi í um þessa helgi og munu þeir ferðast með 1. flokki. Þess er að vænta, ef Akureyringar ganga með sigur af hólmi f úr- slitaleiknum á föstudagskvöldið, að mjög lifni yfir knattspvrnunni hér á Akureyri næsta sumar, þar sem gera má ráð fyrir, aö þá verði áfram haldið tvöfaldri umferð í 1. deild, svo sem verið liefur í sum- . ar, og ríður því á miklu, að allir leikmenn leggi sig vel fram. Beztu árnaðaróskir knattspyrnuunnenda, sem heima sitja, fylgja liði þessu á suðurför þess.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.