Dagur - 10.02.1960, Blaðsíða 8
Daguk
Miðvikudaginn 10. febrúar 1960
Iíarl Guðmundsson (til vinstri) og Jón ’Sigurðsson ræða um leikinn
á skrifstofu Dags. — (Ljósmynd: E. D.).
Ýmis fíðindi úr nágrenna
Skemmtileg veðrátta
Leifshúsum 8. febrúar. — Frá
miðjum nóvember hefur verið
óvenjulega góð og skemmtileg
vetrarveðrátta, mjög oft hæg-
viðri eða logn. Síðari hluta janú-
ar var dálítill frostkafli og kom
þá nokkur klaki í jörð, enda snjó-
laust að kalla á láglendi hér. Nú
hefur skipt um veður þannig, að
síðustu 3 daga hefur verið sunn-
an stormur og rok, með allt upp
í 10° hita, og stundum rigningu.
Skemmtanalíf er hér með svip-
uðu sniði og undanfarna vetur.
»-
Nýr sjónieikur frumsýndur um helgina
Menntaskólaleikurinn „Eftirlitsmaðiiriim“
undíir stjórn Karls Guðmundssonar leikara
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri auðgar hvern vetur
leikhúslíf bæjarins með leiksýn-
ingum. Að þessu Sinni æfir það
sjónleikinn „Eftrlitsmaðurinn“
eftir Nikolai Gogol afmiklukappi
og undir leikstjórn hins kunna
leikara Karls Guðmundssonar.
Æfingar hófust um miðjan síð-
asta mánuð og frumsýningin
verður um næstu helgi. — Leik-
endur eru um eða yfir 20 talsins,
en um 30 nem. alls vinna við
leikinn og að undirbúningi hans.
Blaðið hitti þá að máli, Karl
Guðmundsson leikstjóra og Jón
Sigurðsson, formann Leikfélags
MA. Leikstjórinn sagði, að
ánægjulegt væri að vinna með
nemendum MA, leikritið væri
skemmtilega háðskur gamanleik-
ur, kunnáttusamlega upp byggð-
ur og væri ádeila á embættis-
mannastéttina. Hressandi fyndni,
ásamt tæpitungulausri orðgnótt,
setti svip sinn á þennan sjónleik.
Þegar blaðið beindi þeirri
spumingu til formanns leikfélags
ins, hvort leikstörfin tefðu ekki
töluvert fyrir náminu, benti hann
á það, að leikstarfsemi undir
góðri stjórn væri menntandi á
sinn hátt, og skólabækurnar
væru svo sem ekki lagðar á hill-
una.
Með aðalhlutverk þessa nýja
sjónleiks Leikfélags Menntaskól-
ans fara: Jón Sigurðsson, sem
leikur borgarstjórann, Aðalheið-
ur Jónsdóttir leikur konu hans
og dóttir þeirra hjóna er leikin
af Iðunni Steinsdóttur.
Sjálfan eftirlitsmanninn leikur
Pétur Einarsson.
Þetta fólk og fl. hefur áður
tekið þátt í skólaleikjum M. A.,
en nýliðar eru margir og
teikararnir eni flestir úr efri
bekkjunum, 5. ög 6. bekk. A'f
hálfu kennaranna er Árni Krist-
jánsson verndari og hjálparhella
leikendanna.
Þjóðleikhúsið, LA og LR lána
búninga.
Blaðið þakkar leikstjóra og
formanni fyrir ' upplýsingarnar
og óskar Leikfélagi MA til ham-
ingju með leikinn.
Hin fuilkomna viðskipfakurfeisi!
Kynhvötin notuð í þjónustu kaupsamninga
Kaupsýslumenn eru áhugasam-
ir um allar nýungar, sem líklegar
eru til að auka viðskiptin. — Ed
nokkur Murrow, sem er kunnur
útvarpsmaður í Bandaríkjunum,
sýndi fram á það með rökum,
þeirra á meðal vitnaleiðslum, að
kaupsýslumenn þar í landi bjóða
ekki aðeins glas af víni hinum
væntanlegu viðskiptavinum,
heldur einnig fagra blómarós til
ÞORRABLOT
héldu ungmennafélögin í Svarf-
aðardal um síðustu helgi. Þar var
samfelld skemmtiskrá, ræður,
söngur og kveðskapur og þar var
gnótt matar.
Að lokum var stiginn dans. —
Þorrablótið var fjölsótt og stjórn-
Hjörtur Þórarinsson oddviti því.
Fjölsóff skólamóf á Dalvík
Þann 1. febrúar síðastliðinn
vár fjölmenn bindindissamkoma
haldin í barnaskólanum á Dalvík.
Þarna voru mættir allir nemend-
ur unglingaskólans og börn
barnaskólans 10 ára og eldri. Á
samkomu þessari voru eirinig
mættir allir kennarar skólans og
skólanefnd.
Valdimar Óskarsson, formaður
áfengisvarnanefndarinnar á Dal-
vík, stjói'naði samkomunni og
flutti þar ávai'psoi'ð. Þá flutti
Guðmundur Kai'l Pétursson, yfii'-
læknir á Akui'eyi'i, ei'indi um
áhrif áfengis á mannlegan tíkama
cg dró fram dæmi úr heilbrigðis-
skýrslum máli sínu til sönnunar.
Þá flutti Eiríkur Sigui'ðsson,
skólastjóri á Akureyri, ræðu um
bindindisfélög og starfsemi
þeiri-a. Gat hann um Bindindis-
félag Fjölnismanna, Ungmennafé-
lögin, Góðtemplai'aregluna og
störf áfengisvarnaráðs. f lok
samkomunnar sýndi Pétur
Bjöi’nsson, ei'indreki
vai’nai'áðs, kvikmyndir um hætt-
ur áfengisnautnar og útskýrði
þær.
Eftir hádegi þennan sama dag
var svipuð samkoma fyrir yngri
böi-n skólans. Þar flutti Helgi Sí-
monarson, Þverá, ræðu, en Pétur
Bjöi-nsson sýndi kvikmyndir.
Fyrirhuguð eru svipuð skóla-
mót um bindindismál víðar í
Eyjafirði síðar í vetui'.
stundargamans. Þykir þetta mjög
auka á líkurnar fyrir hagkvæm-
um viðskiptum. Blómarósirnar
eiga, samkvæmt fyrix-mælum, að
gefa blíðu sína fljótt og vel fyrst
í stað, en láta hana síðan vei'a í
fullu samræmi við gang við-
skiptamálanna. Ef kúnninn er
tregur að skrifa undir samning-
inn, á vændiskonan að örfa hann
og lofa blíðu sinni í lok samn-
ingagerðar. Þykir þetta oft gefa
hinn glæsilegasta árangur.
Einn kaupsýslumaður á að
hafa sagt um þetta mál: „Kyn-
hvötin er bezta hjálparhella, sem
kaupsýslumenn hafa nokkurn
tíma fundið. Hvers vegna er ósið-
semi að boi'ga vændiskonu 100
dollai'a fyi'ir að hjálpa mér til að
koma vörum mínum í verð, fyrst
sjálfsagt er talið, að borga stórfé
í auglýsingar af nöktu kvenfólki
til að vekja athygli á vörum.“ —
Ekki er hanri fagur sá nýi siður,
sem hér er lýst, og vonandi vei'ð-
ur hann fremur til vamaðar hér
en til eftirbi'eytni.
ök á staur
Rólegt var hér um helgina, að
því er lögreglan tjáði blaðinu í
áfengis- gær, það sem mönnum var sjálf-
rátt. Hins vegar var rok á sunnu-
dag og mánudag. Þá losnuðu
þakplötur á nokkrum húsum og
var leitað aðstoðar lögreglunnar.
Skemmdir Ui'ðú ekki téljandi.
Maður einn ók yfir gangstétt
hér í bæ og á steyptan girðingar-
staur og braut hann og skrámaði
bílinn. Málið er í rannsókn og
leikur grunur á, að ökumaður
hafi verið ölvaður.
Aðalskemmtanirnar eru, að spil-
uð er Framsóknai'vist og dansað
á eftir. í vetur hafa þessar sam-
komur verið 6 sinnum og þátt-
taka verið mjög góð og almenn
ánægja með þær.
Þann 10. janúar var haldin
barnasamkoma, sem Ungmenna-
félagið - Æskan og - Kvenfélag
Svalbarðsstrandar gengust fyrir,
en þessi félög hafa undanfarna
vetur staðið saman um að hafa
jólatrésskemmtun fyi'ir börn,
annað hvoi't á þi'ettánda dag jóla
eða x'étrt þar á eftir. í þetta sinn
mættu öll börn frá eins árs og til
13 ára aldui's, en þau eru um 70.
Veður var eins gott og bezt varð
á kosið, og skemmtu bömin sér
ágætlega.
Með fleira móti af fólki hefur
leitað sér atvinnu utan sveitar-
innar í vetur, ýmist á vertíð eða
við önnur stöi'f, og munu vera á
milli 10 og 20 fjarverandi af þess-
um ástæðUm.
Mannfjöldi hér í sveitinni var
í árslok 1959 236, og hafði fjölgað
um 14 á ái'inu, 8 fluttust inn í
sveitina og 7 fæddust á árinu, en
einn dó. Síðan 1954 hefur fólks-
fjöldi verið frá 218 til 226. S. V.
Héraðsvöt í ógur-
legiim vexti
Sauðárkróki 9. febrúar. — Um
helgina hljóp svo mikill vöxtur í
Héraðsvötn, að menn muna ekki
annað eins að vetri til. Á eylend-
inu var unnið að því í gær að
bjarga hrossum, sem ýmist stóðu
í vatni eða á skui'ðruðningum,
sem upp úr stóðu og var talið
tvísýnt er síðast fréttist að björg-
un tækist að fullu.
Blanda glaðleg
Blönduósi 9. febrúar. — Blanda
var með glaðara móti í fyrradag,
og þó sérstaklega í gær. — Til
marks um vöxt hennar er það, að
ekki var nema rúmur meter frá
vatnsborðinu upp á brúna hér á
staðnum og hefur ekki slíkt flóð
orðið síðan 1948. Áin flæddi upp
á veginn hjá Gunnsteinsstöðum
og Æsustöðum og hefur það að-
eins mjög sjaldan komið fyrir
áður.
Kvenfélagið Vaka hélt Þorra
blót um helgina og var þar etið
fast, mikið drukkið og lengi
dansað og skemmtu menn sér hið
bezta.
Gífurlegir vatnavextir
Fosshóli 8. febrúar. — Skjálf-
andafljót er að ryðja sig með
feiknalegum hamförum og jafn-
vel smálækir eru orðnir að vatnS'
föllum,
Á milli Stóruvalla og Hlíð-
skóga er ófært bifreiðum, því að
lækir hafa skemmt veginn,
Annars er ekki vitað um tjón
af völdum hvassviðrisins og allur
snjór hvarf eins og dögg fyrir
sólu og aðeins eftir fannir í gilj-
um þegar dregur til fjalla.
Nýlega var haldinn almennur
sveitarfundur í Ljósavatnshreppi
og ákveðið að láta fara fram at-
kvæðagreiðslu um það, hvort
menn vilja byggja félagsheimili
og skóla með Fnjóskdælingum að
Stóni-Tjörrium. Atkvæðagreiðsl-
unni á að vera lokið fyrir 15. fe-
brúar.
Þann 29. janúar var haldinn
álfadans og Þorrablót í Kinn og
síðasta föstudag héldu Bárðdælir
Þorrablót.
Flæddi yfir Hrísaveg
Svarfaðardal 9. febrúar. —- Hér
var mjög hvasst, en skemmdir
urðu ekki teljandi. Vatnavextir
urðu miklir. Vegurinn hjá Hrís-
um fór í kaf og varð ófær þar til
flóðið minnkaði aftur. Allur
snjór er horfinn í byggð og langt
upp til hlíða.
Ekkert sjóveður i 5 daga
Ólafsfirði 9. febrúar. — Hér
var asahláka á sunnudaginn og í
gær og rok. Ekki hefur gefið á
sjó síðustu 5 daga. Gunnólfur er
að búa sig til togveiða, ennfrem-
ur Sigurður, sem einnig leggur
upp afla sinn hér. Hafþór mun
líka leggja upp afla sinn hér í Ól-
afsfirði.
Kvenfélagið Æskan hélt Þorra-
blót á laugardaginn. Það var
fjölmennt mjög, þrátt fyrir það,
að vertíðarfólkið er farið suður.
Lítils háttar rauðmagaveiði er
byrjuð.
Sigurður Guðjónsson bæjarfó-
geti varð fimmtugur fyrra sunnu-
dag og heimsótti hann fjöldi
fólks af því tilefni.
Gat ekki landað
Hrísey 9. febrúar. — Heldur
gustsamt þótti okkur hér á sunnu
daginn og í gær, en nú er komið
gott veður. Enginn bátur er á
floti hér ennþá, nema póst- og
farþegaferjan Sævar, og sakaði
hana ekki. Eltki urðu heldur
verulegar skemmdir á landi,
nema fiskhjallar fuku niður. Sig-
urður Bjarnason ætlaði að landa
hér 64 tonnum af fiski í gær, en
varð að hætta við það sökum
hvassviðris og þótti okkur súrt í
brotið að fá ekki fiskinn.
Sextug Ijósmóðir
Frú Rósa Jónsdóuir í Hvassafelii,
fyrrverandi ljósmóðir í Saurbæjar-
og Hrafnagilslireppum, varð sextug
í gær, 9. iebrúar.
Frú Rósa er nú stödd í Reykjavík,
en þangað munu hlýjar kveðjur
berast í tilefni afmælisins.
Rok og ofsahláka
Um helgina gerði ofsarok, þótt
skemmdir yrðu vonum minni. —
Hitabylgja gekk yfir landið á
sarna tíma og mældist mestur
hiti á Dalatanga 17 stig á mánu-
dagsnóttina. Áður hefur mestur
hiti mælzt 15 stig á þessum árs-
tíma.
Vatnavextir urðu gífurlegir, en
þó minni en orðið hefðu, ef mikill
snjór hefði verið.