Dagur - 24.08.1960, Side 1
'--------------
Máuíacn Framsóknarmanna
R tstjóri: Eri.incur IJavíösson
Skrifstofa í H aj narstr.th 90
StMt H(56 . Sftnincu oc prentun
ANNAST PrENTV£RK OllDS
BjÖRNSSONAR II.T. AKllRKVR!
^'
XLIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 24. ágúst 1960 — 38. tbL
■-------------------:—...........*
Al'Gl.ÝSJNUASTJÓRI! JÓN Sam-
ÚKI.SSON . ArCANCURIN'n KOSTAR
kr. 100.ÖÖ . Gjaiddaci er L JÚU
BuAÐtB KtíMl'R i r Á VII»VTKU1)ÖG-
nt OC Á 1.AUCARBÖCUM
(’F.CAR ÁSi .EÖA* ísyKIR TU.
v---------------------------------J
SILDVESÐUM VIRÐIST LOKIÐ
Afli síðustu viku aðeins 4400 mál og tunnur
Skipin á heimleið síðustu daga
Á Austurmiðum var stormasamt alla síðastliðna viku og gátu
veiðiskipin ekkert athafnað sig á þeim slóðum. Þegar lygndi í viku-
lokin og skipin komust út, var hvergi síldar vart. Á Norðurmiðum
var gott veiðiveður síðari hluta vikunnar, en þar varð eltki vart
síldar.
Síldarvertíðin er mun lakari nú fyrir Norðurlandi en í fyrra og
ekki búið að salta nema í hluta þess er fyrirfram sölusamningar
gerðu ráð fyrir.
Útgerðin gengur með skarðan hlut frá horði og sjómenn hafa
létta pyngju, flestir, er þeir stíga á land.
Sextán síldarleysisár, sem nú eru að baki, munu þó ekki megna
að gera menn fráverfa síldveiðum. Ekki heldur sú staðreynd, að
undanfarin ár hafa útfluttar síldarafurðir verið harla litlar miðað
við tilkostnað. Minna má á til samanburðar, að hið litla brot land-
búnaðarvara, sem út er flutt og sjaldnast er að miklu getið, er þó
vel hálfdrættingur á móti síldarafurðunum.
Halda Ákureyringar sæfi sínu?
Sökkhlaðinn síldarbátur að landa á Vopnafirði snemma í þessum mánuði. (Ljósmynd: E. D.).
Eru lægstir að stigatölu en eiga eftir tvo leiki
á heimavelli. - Leika við Fram á sunnudaginn
Nokkrir fallegir skrúðgarðar á Akureyri
fá viðurkenningu Fegrunarfélags Ak.
Verðlaunaveitingar og aðrar opinberar viður-
kenningar fyrir fagra skrúðgarða vekja hollan
metnað og verða öðrum fyrirmynd
Fyrstu deildar keppninni í
knattspyrnu fer senn að ljúka.
Sex lið keppa að þessu sinni:
Akurnesingar, Fram, Keflvík-
ingar, Valur, KR og Akureyr-
ingar og fellur eitt úr fyrstu
deild.
Keppni er langt komið og eins
og er, eru Akurnesingar hæstir
með 12 stig. Keflvíkingar hafa
I BÍLL BRENNUR |
í fyrradag kviknaði í mann-
lausum bíl frá Akureyri ná-
lægt Bægisá. Eigandinn var við
veiðar skammt frá, en dætur
hans í berjamó. Þær urðu elds-
ins varar og gerðu föður sínum
aðvart. Bíllinn varð brátt alelda
og var honum hrundið í ána til
að slökkva í honum. Hann mun
nær ónýtur.
Með snöggri breytingu at-
vinnu- og þjóðlífshátta hér á
landi síðustu áratugina, hverfur
fjöldi muna af sjónarsviðinu,
sem áður voru daglega notaðir
á flestum heimilum. Um þá
gilda sömu lögmál og torfbæina,
sem nú eru að verða svo sjald-
gæfir mannabústaðir, að ástæða
þykir til að varðveita nokkra
þeirra sem forngripi.
Skagfirðingar komu sér upp
myndarlegu byggðasafni. Þing-
eyingar munu nú eiga full-
komnasta og myndarlegasta
byggðasafn landsins að Grenj-
aðarstað. Eyfirðingar hafa ekki
5 stig og eiga eftir einn leik
(við KR). Akureyringar eiga
hins vegar tvo leiki eftir á
heimavelli, eru lægstir með 4
stig, en ekki vonlausir.
Akureyringar hafa aðeins
unnið Keflvíkinga með 3:1 og
KR á sunnudaginn með 5:3, en
töpuðu fyrir Akranesi með 3:1,
Fram með 3:1, Keflvíkingum
með 5:2, Val með 3:2 og 2:1,
Akurnesingum með 7:1.
Akureyringar leika við Fram
á sunnudaginn hér á íþrótta-
vellinum og má búast við að sá
leikur verði spennandi og geti
orðið úrslitaleikur í fyrstu
deildar keppninni á þessu ári,
hvað snertir heiðurssæti akur-
eyrskra knattspyrnumanna
meðal þeirra fremstu í þessari
íþróttagrein.
sýnt eins mikinn áhuga á þessu
sviði og nágrannarnir fyrir aust-
an og vestan, er sýnilegan ár-
angur hefur borið. Þó hafa
margir áhuga fyrir varðveizlu
fornra muna.
Kaupfélag Eyfirðinga, Akur-
eyrarbær og Eyjafjarðarsýsla
tóku málið upp á sína arma fyr-
ir nokkrum árum. Þá þegar
hófst munasöfnun og varð vel
ágengt. — Nú eru 7—800 skrá-
settir munir til og eru þeir
geymdir í húsnæði, sem bærinn
hefur yfir að ráða, auk þess
óskrásettir munir. En þessir
munir hafa ekki komið fyrir al-
Fegrunarfélag Akureyrar
kallaði blaðamenn á sinn fund
að Hótel KEA á sunnudaginn
var til að vera viðstadda er sex
skrúðgarðseigendum í bænum
var veitt viðurkenning fyrir
garða sína. Formaður Fegrun-
arfélagsins, Jón Kristjánsson,
bauð gesti velkomna og afhenti
skrautleg heiðursskjöl hinum
lánssömu garðeigendum, er
flestir voru viðstaddir.
menningsaugu ennþá, en var
holað niður í bráðabirgða-
geymslur, fyrst í kjallara nýju
heimavistar Menntaskólans á
Akureyri og síðan í húsnæði
bæjarins. Engum eru þeir til
fróðleiks eða ánægju þar, þótt
betra sé að vita af þeim geymd-
um en týndum.
Fram hefur komið hugmynd
um það, að Akureyrarkaupstað-
ur ráðstafi ekki í bráð nokkr-
um lóðum í Innbænum, Fjör-
unni, frá húsi Friðbjarnar
Steinssonar suður að Skamma-
gili. En á því svæði er Nonna-
húsið, hús Matthíasar, Elínar-
baukur og fleiri merk hús hinn-
ar gömlu Akureyrar. Á þessu
svæði yrði svo byggður sveita-
bær í gömlum stíl og þar með
(Framhald á 7. síðu.)
Enginn fékk verðlaun að
þessu sinni. Að áliti dómnefnd-
ar»var enginn skrúðgarður þess
verður og mjög víða þótti dóm-
nefnd á skorta í umhirðu.
Þessir hlutu viðurkenningu:
Guðrún Hannesdóttir og Karl
Friðriksson, Grænugötu 2,
Liesel og Jóhann Malmquist,
Ásabyggð 3, Petronella Péturs-
dóttir og Jón Helgason, Helga-
magrastræti 13, Málfríður Frið-
riksdóttir og Kristján Kristjáns-
son, Brekkugötu 4, Anita og
Geir S. Björnsson, Goðabyggð
4, og Hulda Ingólfsdóttir og
Baldur Arngrímsson, Löngu-
mýri 17.
Nokkrar umræður spunnust
um skrúðgarða, hirðingu bæjar
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi samþykkt frá Iðju, félagi
verksmiðjufólks á Akureyri:
„Fundur haldinn í Iðju, fé-
lagi verksmiðjufólks á Akur-
eyri, fimmtudaginn 18. ágúst
1960, lítur svo á, að nú sé svo
komið, að laun fyrir 8 stunda
vinnu á dag hrökkvi engan veg-
inn fyrir brýnustu lifsnauð-
synjum. Fimdurinn samþykkir
því að fela stjórn félagsins að
semja og setja fram kröfur til
vinnuveitenda, sem fela í sér
og opinberra stofnana annarra
á löndum sínum og lóðum í bæn
um, svo og um njólann, sem
margir telja í örum vexti. Illar
tungur segja, að njólinn og
garðyrkjuráðunauturinn hafi
samið frið á bak við tjöldin. —
Slíkt hlýtur að vera á hinum
mesta misskilningi byggt og
miklu trúlegra að þessir erki-
féndur reyni hvor um sig að
ganga af hinum dauðum og
vonum við að ráðunauturinn
verði lífseigari.
Viðurkenningar fyrir fagra
skrúðgarða eru vel til þess
fallnar að vekja áhuga á skrúð-
garðarækt. Fögru garðarnir eru
alltaf til fyrirmyndar og sem
betur fer, er fegurð og snyrti-
mennska smitandi, ekki síður
en margt af hinu lakara'. Fólk,
sem horfir daglega á fagran
garð hjá nágranna sínum, getur
tæplega látið sína lóð umhirðu-
lausa. — (Framhald á 7. síðu.)
25—30% almenna kauphækkun
og að laun kvenna verði hækk-
uð það, að þau verði minnst
85% af launum karla. Ennfrem-
ur verði teknar upp allar þær
kröfur í meginatriðum, sem fé-
lagið setti fram í sumar. Félags-
stjórninni er falið að hafa sam-
band við Alþýðusamband ís-
lands um útfærslu á þessum
kröfum félagsins.“
Þá var ennfremur samþykkt
einróma verkfallsheimild til
handa félagsstjórninni.
GamRr bæir og gamlir munir
r
A Akureyri eru 800 fornir munir skrásettir og
eru á hrakhólum. - Að Laufási hefur gamall og
fornfrægur sveitabær verið endurbyggður
Kröfur um 25-30% kauphækkun