Dagur - 01.03.1961, Side 7
7
- Þrettán ára bóndi í barnaskóla | BORGARBÍÓI
(Framh. á 5. síSu).
svo að halda áfram búskapnum,
— fara í búnaðarskóla, eða
hvað?
— Ég veit ekki, — en það er
gaman að stunda búskap.
Og þá er komið að því, sem
faðir hans óttast mest og kvíðir
fyrir: Margir sveitadrengir eru
duglegir heima fyrir, meðan
þeir eru litlir. En eftir fermingu
eru þeir óðar horfnir út í heim
inn og snúa baki við jörðinni!
Haraldur Haugstad vonar, að
Hákon sonur sinn taki við jörð
inni, þegar hann verður fullorð
inn. — En þessi ótti þjáir hann.
— Konan vinnur í verksmiðju
og aðstoðar son sinn við búskap
inn eftir megni. Og bæði lifa
foreldrin í voninni. — En það
er drengurinn þeirra, sem þau
hafa þó svo oft óttast að mydi
ofreyna sig á linnulausu starfi
og striti! En drengurinn hefur
stálvilja og starfsgleði og legg-
ur ekki eyru við neinu vor-
kunnar-lijali!
— Hvað fæst þú við á kvöld-
in? Hákon, spyr blaðamaður-
inn.
— Fyrst eru það nú lexíurn-
ar. Og svo hef ég gaman af að
spila. Ég á bæði fiðlu, munn-
spil, blokkflautu og gítar. Fiðl-
an er erfiðust. Sé maður ekki
hárnákvæmur með fingurna,
verður tónninn falskur, og þá*
er öllu lokið! — En munnspil
og blokkflauta eru skemmtileg.
Ég kann ekki enn þá á gítarinn,
en ég held, að hann verði lang-
skemmtilegastur.
— Vissurðu nokkuð af því,
að þú ættir að fá þetta fallega
félagsmerki?
— Nei, ég var á skemmtun-
inni, af því að ég er í blokk-
flautu-flokknum, og hann átti
að skemmta á samkomunni. Og
þegar Gunnsteinn Kolstað kall-
aði á mig, vissi ég ekki, hvaðan
á mig stóð veðrið, og svo varð
að ýta mér fram til hans!-----
Og nú hefur þetta heiðurs-
merki Bændafélags Hörðafylkis
hlotið heiðurssess á hillu Há-
konar hjá öðrum verðlauna-
merkjum hans fyrir íþróttir,
skotfimi o. fl. Því þrátt fyrir
æsku sína og búskapar-annirn-
ar hefur Hákon á Haugstöðum
fengið stundir til þátttöku í
margvíslegum áhugamálum
heilbrigðrar æsku, — og er nú
auk þess sennilega yngsti verð-
launa-bóndi Noregs!
v.
Síini 1500 É
i Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 =
Mynd vikunnar: §
| SUMAR í TYROL |
I Þýzk söngvamynd, tekin í I
í Agfalitum af snillingnum =
WILLY FORST. I
i Myndin er gerð eftir óper- =
i ettunni „Im weissen Rössl“, 1
É sem Erik Charell og Hans =
É Múller sömdu upp úr sam- \
l nefndum gamanleik eftir von I
É Blumenthal og Kadelburg. \
É Danskur texti. |
É Aðalhlutverk: 1
É Hannerl Matz i
i Walter Múller |
§ Johannes Heesters
i Rudolf Forster
i Myndin er bróðskemmtileg I
i og falleg. É
7ll HIIIIIMIIIIIII111111111111IIIllllllllIIIIIIIlllllllliMIIIIII?.
ÓSKILALAMB
í HáLshreppi S.-Þing.
hanstið 1960. Hvít lamb-
gimbur. Mark: Fjöður
aftan hægra, fjöður fram-
an og gat vinstra.
Hreppstjórinn.
FERMINGARFÖT
sem ný til sölu.
Uppl. í síma 2159.
Hálf jörðin
KERHÓLL
í Saurbæjarhr. er til sölu,
ef viðunandi tilboð fæst.
Jón Antonsson
BARNAVAGN
Vel með farinn barna-
vagn til sölu í Smjörlíkis-
gerð K.E.A. (íbúðin).
SVEFNSÓFI
til sölu í Gránufélags-
götu 5 niðri
Sími 1908.
FÖT
á fermingardreng til sölu
Uppl. í síma 2079
TRILLUBÁTUR
til sölu.
Afgr. vísar á.
TIL SÖLU
Tveggja tonna trilla með
17 ha. vél. Bátnum fylgir
15-20 stokkar lína, streng-
ir, belgir, stampar og sjó-
skúr 8x8 m. Selst á hag-
kvæmu verði ef samið er
strax.
Valgarður Kristinsson,
Brún, sími 02.
SKRIFBORÐ, 3 gerðir
KOMMÓÐUR, þriggja, fjögurra, fimm og sex skúffu
(Teak og Mahogny)
SKÁPAR með spegli
SNYRTIBORÐ o. fl. o. fl.
HÚSGAGNAVERZLUNIN KJARNI H.F.
Skipagötu 13. — Sími 2043.
ÚTSALA
Mánudaginn 6. marz hefst útsala á KJÓLAEFNUM
og mörgum fleiri vörum. — Mikill afsláttur.
VERZLUNIN L0ND0N
vdS- 0*^ 7^- 0*^ 0^ 0'«>' ^ •Á- 0**- 0*^ 0-^ 0^ 0
Innilegar hjartam þakkir sendi ég öllum slysavarnar- ^
konum d Akureyri fyrir ómetanlegan hlýhug og vindttu
i aldarfjörðung og nú siðast. góðar gjafir, yndislegt og
ógleymanlegt samsœli að Hótel KEA síðastl. föstudag.
Guð og allar góðar vœllir blessi ykltur og ykkar um
alla framtið.
SESSELJA ELDJÁRN.
t
%
t
%
t
%
Við þökkum innilega Akureyrardeild Kf. Eyfirðinga
og öllum öðrum, er auðsýndu samúð og vináttu við
andlát og útför eiginmanns núns, föður og tengdaföður
SIGTRYGGS ÞORSTEINSSONAR
Sigurlína Haraldsdóttir Sigríður Sigtryggsdóttir
Sigtryggur Sigtryggsson, Alda Guðmundsdóttir
Ólöf Sigtryggsdóttir, Jóhann Guðmundsson
Þorgerður Sigtryggsdóttir, Halldór Friðriksson
Hallgrímur Sigtryggsson, Kristín Sigurðardóttir
I. O. O. F. — 14233814 —
Kirkjan: Messað í Akureyr-
arkirkju kl. 2 e. h. á sunnudag-
inn. — Almennur æskulýðsdag
ur þjóðkirkjunnar. Sálmar: No.
4, 648, 420, 372, 424. — Fyrsti
dagur kirkjuvikunnar. — Allir,
yngri sem eldri, velkomnir. —
Báðir prestarnir annast mess-
una.
Möðruvallakl.prestakall. Mess-
að í Glæsibæ sd. 5 marz kl. 2
e. h. Æskulýðsmessa. Þess er
sérstaklega vænzt, að börn og
fullorðnir fjölmenni að þesari
messu. — Sama dag kl. 4 e. h.
guðsþjónustu í Elliheimilinu í
Skjaldarvík. — Sóknarprestur.
Sunnudagaskólabörn, sem
ætla að selja blað og merki
Æskulýðsdagsins, eru beðin um
að mæta í kirkjunni kl. 10 f. h.
á sunnudaginn.
Æskulýðsfélagar:
Komið til guðsþjón-
ustunnar á sunnu-
daginn kl. 2. Fimmtu
daginn 2. marz er fundur í mál-
fundaklúbbnum kl. 8.30 e. h. —
Mánudaginn 13. marz verður
sameiginlegur fundur kl. 8.30
e. h. Séra Olafur Skúlason
æskulýðsfulltrúi talar. Félagar
í drengja- og stúlknadeild mun
ið að mæta kl. 5 í kapellunni á
föstudaginn. — Stjórnin.
Akureyringar! Takið þátt í
kirkjuvikunni, styðjið æskulýðs
stax-fið, kaupið blað og merki
Æsulýðsdagsins á sunnudaginn
kemur.
Frá Kristniboðs- og æsku-
lýðsvikunni í Zion: Konsókvik-
myndin verður sýnd miðviku-
dag kl. 8.30. Börn fá aðeins að-
gang í fylgd með fulloi-ðnum.
Sérstök barnasýning verður á
laugardag kl. 5. Ókeypis að-
gangur. — Nefndin.
FREYV ANGUR
Dansleikur laugardaginn
4. marz kl. 10 e. h.
Júpiterkvartettinn leikur
söngvari Yngvi Jón
Voröld
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
heldur dansleik í Lands-
bankasalnum laugardags-
kvöldið 4 marz kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir við
innganginn.
Stjórnin.
KVÖLDSKEMMTUN
halda Verkamannafélag
Akureyrarkaupstaðar og
Verkakvennafélagið Ein-
ing í Alþýðuhúsinu næst-
komandi föstudagskvöld
kl. 8.30.
FÉLAGSVIST
ágæt verðlaun
DANS
ÓÐINN VALDIMARS-
SON syngur með hljóm-
sveitinni
Sala aðgöngumiða hefst
kl. 8.
Skemmtinefndin
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú
Helga Haraldsdóttir og Skúli
G. Ágústsson, starfsmaður í
Landsbanka fslands.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú
Ragnheiður Kai-lsdóttir, Hafn-
ai-sti-æti 15, og Björn M. Snoi-ra
son, Kristnesi. — Enn fremur
Aðalheiður Ingólfsdóttir, Djúpa
vogi, og Þór Aðalsteinsson,
Kristnesi.
Þýzk-íslenzka félagið heldur
skemmtifund fyrir félaga og
gesti fimmtud. 2. marz n. k. kl.
8(4 síðdegis að Hótel KEA.
Skemmtiatriði:
1. Samleikur á fiðlu og pianó,
Sigurður Öi-n Steingríms-
son og Kristinn Gestsson.
2. Kvikmyndasýn. Dil Cifel.
3. • Sameiginleg kaffidi-ykkja.
4. Dans.
Aðgangseyx-ir greiddur við
innganginn. — Stjórnin.
Slysavarnarfélagskonur, Ak-
lu-eyri. 25. aðalfundur deildar-
innar verður í Alþýðuhúsinu
þriðjud. 7. maxz kl. 8.30 e. h. —
Fulltrúi frá Slysavarnarfélagi
íslands mætir á fundinum. —
Fex-mdar stúlkur úr yngri deild
og fermingai-stúlkur í vor ei-u
velkomnar á fundinn. — Mætið
vel og stundvíslega. — Gjörið
svo vel að taka með ykkur
bollapör og borðdúk, en ekki
kaffi. — Stjórnin.
Kvenfélagið Hlíf heldxn- fund
í Pálmholti föstudaginn 3. mai-z
kl. 9 e. h. — Nefndai-kosningar.
— Strætisvagn fer frá Ferða-
skrifstofunni kl. 8.40. — Aðrir
viðkomustaðir Höfpner og
Sundlaug. — Stjórnin.
Skólaskemmtun Oddeyrar-
skólans verður um næstu helgi,
tvær sýningar á laugax-dag og
tvær á sunnudag. Til skemmt-
unar verður, kórsöngui-, sjón-
leikir, söngleikir, söngur með
gítarundii-leik, skrautsýning,
upplestrar o. fl. — Nánar aug-
lýst í götuauglýsingum.
Læknavakt. Miðvikudaginn
1. marz Sigurður Ólason, sími
1234, fimmtudaginn 2. marz Ól-
afur Ólafsson, sími 1211, föstu-
daginn 3. marz Bjarni Rafnar,
sími 2262, laugai-daginn 4. og
sunnudaginn 5. marz Pétur
Jónsson, simi 1432, mánudaginn
6. marz Inga Bjöi-nsdóttir, sími
2611, þriðjudaginn 7. marz ÓI-
afur Ólafsson, sími 1211.
Gjöf til Blindravinafélags ís-
lands frá öskudagsflokki Ester-
ar Steindóx-sdóttur kr. 200.00. —
Með þökkum móttekið. Laufey
Tryggvadóttir.
Kvenfélagið Framtíðin held-
ur fund að Hótel KEA (Rotary
sal) mánudaginn 6. marz kl.
8.30 e. h. — Stjómin.
I. O. G. T. St. Ísafold-Fjall-
konan nr. I. Skemmtikvöld með
Þorrablótssniði verður haldið
n. k. laugardagskvöld 4. þ. m.
að Bjargi. Nánari upplýsingar
og aðgöngumiðasala í Varðborg,
herb. m\ 65, sími 1642, í dag
(miðvikudag) kl. 8—10 e. h.
Æ. T.
I. O. G. T. Stúkan Brynja no.
99 heldur fund að Bjargi
fimmtudag 2. mai-z kl. 8.30 e. h.
Fundarefni: Inntaka nýliða. —
Skýx-sla framkvæmdastjóra
Vai-ðborgax- og Borgarbíós. —
Kosning í framkvæmdaráð. —
Skemmtiatriði og dans. — Mæt
ið öll. — Æðstitemplar.