Dagur - 06.04.1961, Side 7
7
Ræða Sngvars Gíslasonar
(Framhald af bls. 5)
höndum núverandi valda-
manna. Greiðsluhalli við út-
lönd er geigvænlegur, þrátt fyr
ir krepputökin, og kjaraskerð-
ingin og kauprýrnunin slík, að
hagur aimennings hefur aldrei
verið lakari, þótt stjórnin ausi
úr ríkissjóði hundruðum millj-
óna til niðurgreiðslna og fjöl-
skyldubóta.
Það er fullkomin sögufölsun,
þegar því er haldið fram, að
vinstri stjórnin hafi farið frá
vegna þess, að ailt væri í kalda
koli. Ástæðan var sú, að ýmis
óábyrg en áhrifamikil öfl utan
og innan stjórnarflokkanna
voru að knýja fram verðbólgu,
sem ekki náðist samkomul. um
innan stjórnarinnar, hversu
mæta skyldi. Það er þáttur út
af fyrir sig að rekja hátterni
Sjálfstæðisflokksins um þær
mundir, skrif Morgunblaðsins
og ræðufiutning Sjálfstæðis-
forustunnar, samstarf Sjálf-
stæðisflokksins við Moskvu-
kommúnista og fleira slíkt, sem
þessum herrum óar ekki við,
þegar það hentar pólitísku
valdabrölti þeirra.
Sjálfstæðismenn skulu ekki
halda það, að menn séu búnir
að gleyma því, hverjir það
voru, sem efldu kommúnista
mest til valda og áhrifa hér á
landi, hverjir það voru, sem
dilluðu þeim hæst. Menn eru
ekki svo gleymnir, að þeir muni
ekki, þegar Sjálfstæðismenn
vor-u í óbeinu stjórnarsamstarfi
við kommúnista árið 1942 og
síðar í mjög virku og nánu sam
starfi við þá árin 1944—1947,
þegar hæstv. núverandi forsæt-
isráðherra, Ólafur Thors, var
forsætisráðherra í ríkisstjórn,
þar sem sjáifur hinn andlegi
leiðtogi kommúnista á íslandi,
Brynjólfur Bjarnason, var
menntamálaráðherra.- í þeirri
sömu stjórn var einnig núver-
andi hæstv. sjávarútvegsmála-
ráðheri’a,' E'mil Jóhsson, sem
enn í dag þiggur -náðarbrauð
kommúnista í Hafnarfirði og
myndar þar með þeiim meiri
hluta í bæjarstjórn.
Eitt síðasta daemið um virka
samstöðu Sjálfstæðisflokksins
og kommúnista er barátta
þeirra fyrir kjördæmabreyting
unni 1959, og það er heldur
ekki gléymt, að fyrir rúmum
tveimur árum var Sjálfstæðis-
flokkurinn tilbúinn að mynda
ríkisstjórn með kommúnistum.
Og þessir herramenn eru að
klína kommúnistaorði á Fram-
sóknarflokkinn. Ég held þeir
| DÁNARDÆGUR |
AÐ KVÖLDI annars dags
páska lézt Sigurgeir Guðnason
á Jarlsstöðum í Bárðardal.
Sigurgeir heitinn var rúml.
áttræður að aldri og hafði búið
að Jarlsstöðum síðan 1916. □
- Suraaráætlun F. í.
(Framhald af bls. 1)
manna-fargjöldum á þessum
leiðum, en skilyrðl er, að far-
þegar ljúki ferðinni á einum
mánuði. Samkvæmt hinum
lágu fargjöldum kostar flugfar
frá Reykjavík til Barcelona og
heim aftur kr. 7820.00. Frá
Reykjavík til Nizza og heim
aftur kr. 7468.00. Frá Reykjavík
til Palma (Mallorca) og heim
kr. 8188.00 og frá Reykjavík til
Rómaborgar kr. 8354,00 fram og
aftur. □
gætu unnið sjálfum sér eitt-
hvað þarfara en að standa í
steinakasti úr því glerhúsi, sem
þeir búa í.
Lokaorð.
Þessu þingi er nú senn lokið.
Ríkisstjórnin og sá meiri hluti,
sem hún styðst við, hafa ráðið
gerðum þess í öllum aðalatrið-
um. Stefna ríkisstjórnarinnar
hefur verið óbreytt á þessu
þingi frá því í fyrra, að því
leyti, að haldið hefur vei'ið á-
fram að framkvæma kreppu-
stefnuna, sem mörkuð var með
valdatöku Sjálfstæðisflokksins
og Aiþýðuflokksins.
En þó að þingið sé með sömu
einkennum og var í fyrra og
sjaldgæft sé í íslenzkri þing-
sögu, að þingmeirihluti streit-
ist við að búa til fjárhags- og
atvinnukreppu með löggjafar-
starfi sínu, þá verður seta þessa
þings ekki fyrst og fremst
minnzt fyrir það, heldur annað.
Hátindur þeirrar uppgjafar- og
undanslóttarstefnu, sem núver-
andi ríkisstjórn rekur á öllum
sviðum, eru aðgerðir hennar í
landhelgismálinu. Síðari kyn-
slóðir munu fyrst og fremst
muna eftir þessu síðasta þingi
í sambandi við uppgjafarsamn-
inginn við Breta, þegar ís-
lenzka ríkisstjórnin samdi af
sér fyrlr alla framtíð í mesta
hagsmunamáli þjóðarinnar. Rík
isstjórninni og liði hennar hef-
ur því tekizt að gera sjálfa sig
fræga — en fræga að endem-
um. □
Fermmgarbörn í
Akureyrarkirkju
sunnudaginn 9. apríl
kl. 10.30 f. h.
D r e n g i r :
Arnar J. Magnússon, Eiðsvallag. 13.
lírynjólfur Jónsson, Engimýri 8.
Einar K. Haraklsson, Byggðav. 91.
Friðbjörn Berg, Strandgötu 29.
Garðar Karlsson, Norðurgötu 4ö.
Guðmuntlur IV'tursson, Brekkug. 35.
Gunnar V. Aðalsteinsson, Hmstr. 24.
Gitnnar Thorarensen, Hafnarstr. ö.
Gunnar G. Malmquist, Strandg. 45.
Ingólfur A. Guðmundssqii, Grund. 5.
Jón Einar Árnason, Hólabraut 17.
Jónas Hallgrímsson, Aðalstrteti lö.
Kristjiín Kristinsson, BrekkugiHu 30.
Sigurjón Hilmar Jónsson, Iloltag. 2.
Stefán J. Hreiðarsson, Möðruvstr. 3.
Stefán Stefánsson, Munkaþv.str. 20.
Valdimar Gunnarsson, Rauðam. 11.
S t-ú 1 k u r :
Anna B. Árnadóttir, Hafnarstr. 81 a.
Auðtir Daníelsdóttir, Mýrarveg 124.
Birna I. Tobiasdóttir, Norðurg. 40.
Bryndís Tryggvadóttir, Mtinkaþv. 5.
Dröfn Dórarinsdóttir, Eiðsvallag. 3.
Fanný Jónsdóttir, Goðabyggð 3.
Guðlaug Sigurðardótir, Hamarst. 36.
Guðrún Bjarnadóttir, Brekkugötu 8.
Helga Guðmundsdöttir, Laugarg. 1.
Hermína ósk Valgarðsdóttir, Brún.
Hólmfríður Gísladóttir, Oddag. 15.
Ingibjörg M. Sigurðardóttir, I>ing. 8.
Jóna Sigurðardóttir, Hrauni.
ólína K. Jóbannsdóttir, Strandg. 35.
Rannveig Ágústsdóttir, Ásvcg 17.
Regína Pétursdóttir, Hrafnabjörgum
Steingerður Axclsdóttir, Ægisg. 15.
Sigrún Stefánsdóttir, Gránufélg. 11.
Sigrún S. Hrafnsdóttir, Gnenum. 18.
Sigríður ólafsdóttir, Gránufél.g. 51.
Valgerður Benediktsdóttir, Sniðg. 2.
I. O. O. F. — 142478% —
Trúboðsþáttur fluttur að
Sjónarhæð nk. laugard.kvöld
kl. 8.30 Segir frá heimsókn
konu til trúboðsstöðvar í
Afríku. — Allir velkomnir.
Sæmundur G. Jóhannésson.
Bazar og kaffisala verður í
sal Hjálpræðishersins laugard.
8. apríl frá kl. 3—10 e. h. Kom-
ið. Gerið góð kaup og styrkið
gott málefni. Hjálpræðisherinn.
Zíon. Sunnudaginn 9. apríl:
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. —
Samkoma kl. 8.30 e. h. Ólafur
Ólafsson sýnir síðari hluta kvik
myndarinnar frá Kína. Allir
velkomnir.
Sálarrannsóknafélagið á Ak-
ureyri. Fundur verður haldinn
í Landsbankasalnum mánudag-
inn 10 apríl n. k. kl. 9 síðdegis.
Erindi.
Mikið ferðazt á sl. ári
NÝÚTKOMIN Hagtíðindi
greina frá ferðalögum, til og frá
landinu á síðastliðnu ári, sam-
kvæmt skýrslu útlendingaeftii'-
litsins.
Til landsins komu með skip-
um og flugvélum 12.806 útlend
ingar og 9.491 Islendingur. Frá
landinu fóru 13.016 útlendingar
og 10.222 íslendingar.
Af útlendingum voi'u Danir
fjölmennastir, 3.996 komu, en
4.106 fóru. Fámennastir voru
Portúgalar og Júgóslavar,
komu 3 og fóru 3 frá hvorum.
Ríkisfangslausir komu 5 og
fóru 3. □
Síðasti boðskapur
dr. D. G. Barnhouse
(Niðurlag haus.)
„ÞETTA er speki Guðs! Hann
hefir gert það’ kleift fyrir menn,
sem gerðir eru englunum lægri,
að rísa englunum hæn-a. Sköp-
uðum verum hefir hann gert
kleift að verða honum synir.
Hann hefir gert þeim kleift,
sem áður voru bundnir við jörð
ina og allt hennar aðdráttarafl
á sérhverju sviði, að leysast frá
jörðinni og að þekkja hásæti
Guðs sem eilífðarheimkynni
sitt.
„Ég þakka þér, Drottinn, að
þetta eru síðustu orð míns
veika og lítilfjörlega verks. Þér
ber öll dýrðin vegna Jesú
Krists. Veikleikinn allur í starf
inu hefir komið frá Donald
Grey Barnhouse. Allur styrkur,
máttur, kærleikur, náð og dýrð
hefir komið frá þér. Guði, ein-
um alvitrum Guði, sé dýrðin að
eilífu fyrir Jesúm Krist. Vegna
Jesú Krists. Amen.“
^Þetta er vitnisburður manns,
er á ungum aldri tók á móti
Jesú Kristi sem frelsara sínum
og Drottni, þjónaði honum í
meir en hálfa öll, varð fjölda
manns til tímanlegrar og eilífr-
ar blessunar og kvaddi heiminn
elskaður af mörgum, en virtur
af öllum.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Bjónaefni. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Ingi-
björg Kristinsdóttir frá Dalvík
og Hafsteinn Þorbergsson, rak-
ari, Akureyri. — Hinn 29. marz
sl. opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Saga Jónsdóttir, Akur-
eyri og Grímur Friðriksson,
Rauðá, Ljósavatnshreppi.
Hjúskapur. Hinn 1. apríl
voru gefin saman í hjónaband
Jónas Gestsson, verzlunarmað-
ur, Munkaþverárstræti 2, og
Björg Arndís Kristjánsdóttir,
Bjarmastíg 9. Heimili þeirra
verður að Munkaþverárstr. 2.
Einnig Sigurður Hjartarson,
nemi, Þórunnarstræti 122 og
Jóna Kristín Sigurðardóttir,
Grundargötu 7. — Á annan í
páskum voru gefin saman í
hjónaband í Grundarkirkju af
séi'a Benjamín Kristjánssyni,
ungfrú Ásta Lilja Jónsdóttir frá
Litla-Hóli í Eyjaf., og Snævarr
Valentínus Vagnss., verkamað-
ur, Akureyri. Framtíðarheimili
ungu hjónanna verður á Akur-
eyri.
Fimmtugur. Áskell Jónsson,
söngkennari og söngstjóri, varð
fimmtugur í gær.
Leiðrétting. í grein frá H. S.
Þ. í blaðinu 15. marz, var mein-
leg villa í frásögn viðvíkjandi
félagsmerki H. S. Þ. — Á að
vera „Fundurinn 1961 sam-
þykkir, að félagsmerkið (barm-
merki) verði til sölu fyrir nú-
verandi og fyrrverandi félags-
menn.
Filnúa sýnir á sunnud. kl. 1
e. h. Sýndar verða heimsfrægar
fræðslumyndir, þar á meðal hin
fræga mynd Hirosima, sem
sýnir kjarnorkuárásina á Hiro-
sima og hinar hörmulegu afleið
ingar hennar. — Athugið vel
breyttan sýningartíma. Filmía.
I. O. G. T. St. Ísafold-Fjall-
konan nr. 1 heldur fund að
Bjargi nk. fimmtudag 6. þ. m.
kl. 8.30 e. h. Fundarefni: Vígsla
nýliða, ársfjórðungsskýrslur,
kosning og innsetning embættis
manna. Félagsvist spiluð á eftir
fundi. Verðlaun veitt. Mætum
öll og stundvíslega.
Æðstitemplar.
Afmælishóf Ferðafélags Ak-
ureyrar verður í Alþýðuhúsinu
n. k. laugardagskvöld. Munið
að taka aðgöngumiða hjá Sig-
tryggi og Pétri, gullsmiðum, á
miðvikudag og fimmtudag.
Frá Þýzk-íslenzka féláginu.
Næsta kvikmyndasýning verð-
ur laugardag 8. apríl kl. 3 síð-
degis í Borgarbíó. Ókeypis að-
gangur heimill öllum meðan
húsrúm leyfir. Börn yngri en
12 ára þurfa að vera í fylgd
með fulloi'ðnum.
Bazar verður n. k. sunnudag
kl. 4 í Ásgarði.
VORIÐ
tímarit fyrir böm og unglinga,
jan.—marz hefti þessa árs er
komið út og flytur m. a. Flótt-
inn til Egyptalands eftir Selmu
Lagerlöf, Bjarnarspor í baðker-
inu, ný verðlaunagetraun, frétt
ir frá Æskulýðsheimili templ-
ara á Akureyri, Húfan hans
Andrésar, ævintýraleikurinn
Föstuganga á eftir fullu tungli
o. fl. — Ritstjórar eru Hannas
J. Magnússon og Eiríkur Sig-
urðsson, skólastjórar á Akur-
eyri. □
I . , ?
'I Innilegt þakklœti sendi ég öllnrn, sem glöddu mig á
'£ áttatiu ára afmœli minu 29. marz sl., með lieimsókn-
um, gjöfurn og heillaskeytum.
rt Guð blessi ykkur öll.
GUÐRUN GUÐNADOTTIR.
?
i
?
y.i.
©
4-
f
ö Innilegar þakkir flyt ég ættingjum mínum og ná-
'f grönnum, sem heimsóttu mig, sernlu mér heillaskeyti, ,t.
® og scnndu mig góðum gjöfurn á■ scxtíu ára afmælinu %
| þaun 25. marz siðastiiðinn.
I SNORRI HANNESSON.
T
9/-
!
& \
Maðurinn minn og faðir okkar
HERMANN INGIMUNDARSON, trésmiður,
andaðist 31. marz sl. að heimili sínu Fjólugötu 13 Ak-
ureyri. Jarðarförin ákveðin laugardaginn 8. ajníl frá
Akureyrarkirkju kl. 1.30 síðdegis.
Anna Halldórsdóttir, börn og tengdabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför föður okkar
ÓSVALDAR SIGUR JÓNSSONAR.
Sérstaklcga þökkum við Útgerðarfél. Akureyringa.
Óskar Ósvaldsson, Hörður Ósvaldsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför konunnar minnar, móður okkar og tengda-
móður
SIGRÍÐAR N. KRISTJÁNSÐÓTTUR,
Aðalstræti 63, Akureyri.
Sigurður Flóventsson,
Erna Sigurðardóttir, Magnús Guðmundsson,
Hektor Sigurðsson, Hjördís Wathne.