Dagur - 09.09.1961, Side 7
7
•miiiiiiiiiiimiiiiiiimmimiiiiiiiiiiiuiiiMiuiiiiiaai'*
| BORGARBÍÓI
| Sími 1501) e
: ASgöngumiðasala opin trá 7—9 |
|TÁP 0G FJÖR)
(Krudt og klunker.) =
| Dönsk gamanmynd byggð á |
| hinum sprenghlægilegu end- §
É urminningum Benjamins |
1 Jacobsens ,.Midt i en i
klunketid.“ i
Aðalhlutverk:
Gunnar Lauring
i Vera Gebuhr |
Ellen Nielsen |
i Elga Olga |
Johannes Meyer
I og VIVI BAK (ný stjarna). |
i Framleiðandi: =
I JOHAN JACOBSEN. I
LESTO
Rafmagnsborvélar
eins til fjögurra hraða.
—o—
N Ý K 0 MIÐ :
Rafmótorar
margar gerðir.
Loftræstiviftur
fyrir verksmiðjur og
gripahús.
Vatnsdælur
tvær gerðir
og m. fl.
ATLABÚÐIN
Strandgötu 23.
Sími 2550.
TILKYNNING
Nr. 20/1961.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð
í smásölu á framleiðsluvörum Raftækjaverksmiðjunn-
ar h.f., Hafnarfirði:
Eldavél, gerð 2650 kr. 3.950.00
Eldavél, gerð 4403A.................. — 5.250.00
Eidavél, gerð 4403P>................. — 5.950.00
Eldavél, gerð 4403C.................. - 6.550.00
Eldavél, gerð 4404A.................. - 5.850.00
Eldavél, gerð 4404B.................. - 6.550.00
Eldavél, gerð 4404C.................. - 7.100.00
Hitahólf .......................... - 600.00
Þvottapottur 100 1................... — 3.600.00
Þvottapottur 50 1.................... — 2.750.00
Kæliskápur, L-450 ................... - 8.425.00
Þilofn, 250 w....................... - 420.00
Þilofn, 300 w....................... - 440.00
Þilofn, 400 w....................... — 460.00
Þilofn, 500 w....................... - 535.00
Þilofn, 600 w....................... - 590.00
Þilofn, 700 w........................ - 640.00
Þilofn, 800 w...................,... - 720.00
Þilofn, 900 w........................ - 800.00
Þilofn, 1000 w...................... - 910.00
Þiloín, 1200 w....................... - 1.060.00
Þilofn, 1500 w....................... - 1.220.00
Þilofn, 1800 w...................... - 1.460.00
Á öðrunr verzlunarstöðum en í Reykjavík og Hafn-
arfirði má bæta sannanlegum flutningskostnaði við oí-
angreint hámarksverð.
Söluskattur er innifalinn í verðinu,
Reykjavík, 7. september 1961.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
STÚLKA ÓSKAST
til heimilisstarfa í október
og nóvember. Til greina
kæmi vinna hálfan
daginn.
Valgarður Haraldsson.
sími 2407
GUMMISTIGVEL
fyrir unglinga,
konur og karla,
nýkomin.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkomudag.
Matthíasarsafnið verður fram
vegis opið kl. 2—4 e. h. á
sunnudögum og miðvikudögum.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn 10. sept. kl. 20.30. Hjálp-
raeðissamkoma. Kapelán Anna
Ona og lautinant Æglen tala. —
Allir velkomnir.
Hjónaefni. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sina ungfrú María
Sigurbjörnsdóttir frá Grófar-
gili í Skagafirði og Stefán Aðal-
steinsson kennari frá Kristnesi.
Nonnahúsið. Vegna viðgerða
verður húsið lokað um óákveð-
inn tíma.
Sjötugur. Ólafur Ágústsson,
húsgagnasmíðameistari, Strand
götu 33, Akureyri, varð sjötug-
ur í gær, 8. september.
Sextugur. Svanlaugur Þor-
steinsson Rauðuvík á Árskógs-
strönd varð sextugur 1. sept. sl.
Hann hefur um 10 ára skeið
verið togarasjómaður, lengst af
á Akureyrartogurunum og var-
ið nálega öllum tekjum sínum
til ræktunar og fegrunar á
Rauðuvík, sem hann á hluta í.
Sú jörð mun tæpast bera meira
lof á annan. Dagur sendir Svan
laugi hugheilar árnaðaróskir.
STAL HÚSI
MAÐUR einn kvartaði undan
því við lögregluna í Reykjavík,
að búið væri að stela sumarbú-
stað sínum, sem þó var steyptur
í hólf og gólf. För sáust eftir
stórvirk tæki.
Ef rétt er með farið eru
þjófar komnir drjúgan spöl á
undan byggingariðnaðarmönn-
um hér á landi í verkkunn-
áttu. □
- Frá aðalíundi Stétt-
arsambands bænda
(Framhald af bls. 1)
Þessar þrjár ályktanir voru
samþykktar samhljóða.
Fjallað var um ýmis önnur
mál.
Samþykkt var gerð um aukin
fjárframlög á fjárlögum til
mjólkurbúa og greiðari aðgang
að stofnlánum handa þeim, sem
eru að hefja búskap.
Þá kom einnig til afgreiðslu
hvaða afstöðu æskilegt sé
að taka til efnahagsbandalags
Evrópu. Var samþykkt, að ís-
lendingum bæri að fara mjög
varlega í sakirnar, og ekki
kæmi til mála, að útlendingar
fengju jafnan rétt og landsmenn
til atvinnurekstrar á íslandi eða
í íslenzkri landhelgi. □
TOGARAR U.A.
Harðbakur landaði 29. ágúst
140 tonnum.
Norðlendingur 30. ágúst 95
tonnum.
Sléttbakur 31. ágúst 134 tonn-
um og Kaídbakur 4. sept. 116
tonnum.
Allar landanirnar fóru fram
á Akureyri. Aflinn er sóttur á
heimamið og eru veiðiferðir
stuttar og aflabrögð, samkv.
framanskráðu, því sæmileg.
Norðlendingur var hér í gær
og er hann að fara í söluferð til
Grimsby. Þar selur hann á
fimmtudaginn kemur, og er það
fyrsta söluferð Akureyrartog-
ara á þessu hausti. □
FRÁ DALVÍK
Dalvík, 8. sept. — í sumar voru
gerð út 6 mótorskip á síldveið-
ar, 1 skip á togveiðar, 1 mótor-
bátur á línu, 3 á handfæri og
nokkrar trillur.
Síldveiðum er lokið. Baldur
varð aflahæstur með 13.786 mál
og tunnui', næstur varð Bjarmi
með 13.500 og þriðji Björgvin
með 12.376. — Alls var saltað í
19.232 tunnur og skipiist söltun
þannig:
Söltunarstöð Dalvíkur 6.947 tn.
— Múli h.f. 6.039 tn. — Söltun-
arstöðin Höfn 6.246 tn.
Hæsti handfærabáturinn hef-
ur aflað 100 skippund.
KVEÐJA OG HEILSA
Kveð ég þig, búð, með klökkum
huga,
kærustu þakkir fyrir allt.
Þú varst of lengi látin duga,
lofuð og blessuð samt þú skalt.
Hamingja sönn þér leggi lið
til lukku þeim sem taka við.
ULLARMÓTTÖKU
er senn lokið. Þeir, sem
enn þá eiga eftir að koma
með ullina eru vinsamleg-
ast beðnir að gera það
sem allra fyrst.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
BÆNDUR!
Stál-mjólkurdunkainir
30 lítra, eru komnir.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
Hinni nýju ég heilsa glaður,
höndlunin verður ekki treg.
Nú er okkur búinn betri staður,
breytingin verður stórkostleg.
Við þig svo allir votta tryggð,
velkomin sértu í Glcrárbyggð.
H. J.
- Góðar gjafir
(Framhald af bls. 8)
Snorrasonar, sem þjónaði Tjarn
arprestakalli árin 1814—1833 og
gaf kirkjunni altaristöflu þá,
sem þar er enn, af heilagri
kvöldmáltíð, og ber ártalið 1818.
Andre Einard er kaþólskur
og er gjöf hans því enn merki-
legri. Mun hún sennilega vera
fyrsta gjöf frá kaþólskum
manni til Lútherskrar kirkju
hér á landi. Gluggarnir setja
fagran og framandi blæ á kirkj
una og gera hana mjög hátíð-
lega. □