Dagur - 21.03.1962, Side 2
- HEIMAMENN SKEMMTU í LAUGARBORG
(Framhald af bls. 8)
standast samanburð við bændur
og fjölskyldur þeirra í Hrafna-
gilshreppi, sem byggðu Laugar-
borg.
Akureyringum ætti heldur
ekki að vera ofvaxið að setja
samtímis upp 40—50 sæmilega
myndarlegar leiksýningar, úr
því bændur og fjölskyldur
þeirra í Hrafnagilshreppi geta
sett upp eina, ef miðað er við
hina mikilvægu höfðatölureglu.
En sleppum slíkum samanburði
og snúum okkur að því sem
fram fór í Laugarborg á sunnu
daginn.
Leynimelur 13 eftir Þrídrang
er ekki nýr af nálinni og hitta
sumir brandararnir því ekki í
mark nú. Samt sem áður er
þessi gamanleikur mikill gleði-
gjafi, þegar vel er á haldið. Hins
vegar verða sjónleikir af þessu
tagi leikurunum minna virði en
veigameiri viðfangsefni.
Guðmundur Gunnarsson ann
ast leikstjórnina og mun tím-
inn hafa verið takmarkaður um
of, en vel unnið. Sem heild var
sýningin ánægjuleg og snurðu-
lítil, en ekki búið að vinna nægi
lega úr góðum efniviði. En mik
ils er um það vert fyrir leik-
stprf í félagsheimilunum, að fá
mann eins og Guðmund til að
leiðbeina. Það vill svo til, að
fyrsti sjónleikurinn, sem Guð-
mundur setti á svið, var Leyni-
melur 13, sem sýndur var á Ak
ureyri árið 1945.
Þór Aðalsteinsson leikur Mad
sen klæðskerameistara af mikl-
um léttleika og fatast hvergi í
hi.nu stóra hlutverki.
Aðalheiður Jónsdóítir leikur
Dóru- konu hans af öryggi og er
framburður hennar mjög skýr.
Elsa Oskarsdóttir leikur
tengdamóðurina, heldui' illa
séða, svo sem títt er um tengda
mæður. Kannski mætti hún
vera meiri svarkur og gribbu-
legri í útliti, þótt hún skili
hlutverkinu mjög sómasamlega.
Guðlaugur Halldórsson leikur
heimilislækninn. Gervið er gott
pg hóflega farið með læknis-
hlutverkið. En kannski’ mættu
þau Elsa og hann leika sterkara
á köflum.
Ragnheiður Sigurðardóttir leik
ur vinnustúlku á heimili Mad-
•
Glnggasýning Fegr-
nnarfélagsms
FEGRUNARFÉLAG Akureyr-
ar opnaði gluggasýningu í Véla-
og búsáhaldadeild KEA á
föstudagskvöldið. Þar hafa
nxargir staðnæmzt síðan og virt
fyrir sér laglega gerð líkön af
skrúðgörðum og opnum svæð-
um í bænum, m. a. Skátagilinu
margumtalaða.
Fegrunarfélagið hefur þarna
einnig til sýnis töluvert af bók-
um, um gróður, garða og rækt-
un, verkfæi'i og sáðvörur.
Það er mjög vel til fundið hjá
félaginu að minna á þessi mál',
r.ú, er líða tekur að vori, vekja
athygli á óleystum verkefnum
og benda á eitt og annað til fróð
leilcs. □
senshjónanna og Hermann Jóns
son leikur Togga í Traðarkoti,
skáldið og drykkjumannin. Of
lítil rækt er lögð við þessi hlut
verk. En báðir leikendur sýna
það þó, að ofurlítil aukaþjálfun
hefði svarað fyrirhöfn.
Valgeir Axelsson leikur „hinn
eina og sanna“ Svein Jón Jóns-
son skósmið áberandi vel og
skemmtilega, svo hann mun
verða leikhúsgestum minnis-
stæður.
Alda Kristjánsdóttir leikur
sambýliskonu skósmiðsins og
móðui' 11 barna hans, og skilar
hlutverki sínu á mjög viðfelld-
inn og öfgalausan hátt.
Sigríður Schiöth ogAuður Ei-
ríksdóttir leika mæðgur tvær í
alleinkennilegri aðstöðu. Þær
hefðu báðar sómt sér sæmilega
á hvaða leiksviði sem var.
Gísli Björnsson leikur ástfang
inn heildsala af litlum tilfinn-
ingahita en hefur mjög skýra
framsetningu, Haraldur Hann-
esson danskan og spaugilegan
stóreignamann og Ólafur Jóns-
son lögregluþjón.
Þegar miðað er við aðstæður
allar og þá m. a. hve mai'gt leik
fólkið er lítt eða ekki sviðvant,
verður hlutur þess góður. Víst
er um það, að leikhúsgestirnir
skemmtu sér hið bezta og vii ég
fyrir þeirra liönd færa fram
bcztu þakkir.
E. D.
- Starfsmenn heiðraðir
(Framhakl af bls. 1)
ankvæði og Magnús Kristinsson
flutti ávarp. Að lokum var stig
inn dans.
Hér fara á eftir nöfn og starfs
aldur þeirra, sem fengu „Silfur
merki S1S“:
Rannveig Jósefsdóttir 31 ár
Aðalsteinn Tryggvason 31 —
Hallfríður Sigurðardóttir 31 —
Stefán Hansen 31 —
Hans Hansen 31 —
Freysteinn Sigurðsson 31 —
Baldur Benediktsson 30 —
Karl Grant 29 —
Hafliði Guðmundsson 29 —
Jóhann, Guðmundsson 27 —
Herbert Tryggvason 27 —
Elinór Þorleifsson 27 —
Þórir Björnsson 24 —
Sigfús Jónsson 2G —
Arnþór Þorsteinsson 26 —
Júlíana Andrésdóttir 26 —
Þorbjörn Kaprasíusson 26 —
Sigurður Guðmundsson 26 —
Sigríður Jónsdóttir 25 —
Gísli Friðfinnsson 25 —
Gunnar Guðmundsson 25 —
Anton Sölvason 25 —
Helga Kristjánsdóttir 25 —
Þorgeir Pálsson 25 —
Þórhallur Guðlaugsson 25 —
María Jónsdóttir 29 —
Aðalheiður Jónsdóttir 25 —
Baldur Arngrímsson 25 —
Skinnaverksmiðjan Iðunn:
Þorsteinn Davíðsson 34 —
Jóhannes Wæhle 26 —
Saumastofa Gefjunar:
Olafur Daníelsson 30 —
Guðrún Daníelsdóttir 29 —
Þórður Karlsson 25 —
Hekla:
Elinrós Sigmundsdóttir 25 —
Maður, líttu þér nær .
(Framhald af bls. 4)
Þakka bei' bað, að kostað
skuli til þess að börnin ha'i gott
skautasvell og séu þar í umsjá
góðra manna við hollan leik og
útivist.
Unga fólkið þarfnast mikillar
og góðrar aðstöðu til að
skemmta sér. Stjórn og umsjón
slíkra staða á að fela hæfum,
traustum reglumönnum og fé-
lagsmálafrömuðum. Hér virðist
þróunin stefna í þá átt, að póli-
tísk klíkufélög reisi sér skemmti
hús, svo að auðveldara verði að
draga fólkið í dilkana. Þetta
hefðu bæjaryfirvöldin getað
komið í veg fyrir með því að
taka í sínar hendur byggingu
veglegs félagsheimilis fyrir öll
félög bæjai’his, en banna öll
önnur.
Sameinumst um að knýja þá,
sem við kjósum til opinberra
starfa, til að skapa það aðhald
góðum málum, sem megnar að
styrkja heilbrigt almenningsá-
lit, ekki aðeins gagnvart áfengi
og skaðnautnum, heldur öllum
uppeldislegum verðmætum.
Æska landsins, sem senn verð-
ur hinn ráðandi almenningur,
er dýrmætasta eign þjóðarinn-
ar. Ekkert er of dýrt, ekkert of
fyrirhafnarsamt, sem við ger-
um til að treysta framtíð henn-
TAPAÐ
Stúlkurnar, sem fengu
lánaðan skíðasleðann í
Helga-magra-stræti,
merktan H. P., vinsam-
legast skili hontim í
Helga-magra-stræti 7.
NÝ KARLM.ÚLPA
tapaðist í bænum 17.
febrúar. — Finnandi vin-
saml. hringi í síma 2282.
RÁÐSKONA ÓSKAST
á gott beimili í Reykja-
vík. — Gott kaup.
Uppl. í síma 1063
eftir kl. 5 e. b.
AUKASTÖRF
Vil taka að mér bókhald,
innbeimtu eða önnur
störf. Þeir, sem vilja sinna
jlessu leggi nöfn sín inn á
afgr. Dags, merkt:
„Aukastörf 44“.
ar. Og með engu reisum við
okkur sjálfum ánægjulegri
minnisvarða en með heilsteyptri
viðleitni í þá átt að búa henni
bjarta og örugga framtíð í okk-
ar góða landi. En til þess að
slíkt megi takast, verðum við
sjálf að viðurkenna yfirsjónir
okkar, snúa blaðinu við og kapp
kosta að hafa það eitt fyrir
hinni upprennandi kynslóð, sem
hún aldrei þarf að iðrast eftir
að hafa tekið sér til eftirbreytni.
Jóhannes Óli Sænmndsson.
- KEA og Ak.kaupst.
RIFREIÐAKENNSLA
Georg Jónsson, sími 1233.
(einnig R.S.O., sími 2727)
FRÁ SKÁKFÉLAGI
AKUREYRAR
Skákþing Akureyrar
hefst mánudaginn 26.
marz í Ásgarði kl. 8 e. h.
Þátttökulistar liggja
frammi á félagsfundinum
Stjómin.
í málaferlum
(Framhald af bls. 1)
þegar þeir hafa verið að nöldra
yfir lágu útsvari á IvEA. En eins
og allir sjá er hér ekki um neina
smáræð'is upphæð að ræða, sem
KEA og samvinnufyrirtæki í bæn
um liafa gijeitt- á ári hverju, sem
hluta af útsvari sfim t/1 bæjar-
íélagsins.
Fyrir bæjarþingi Reykjavíkur-
borgar var samskonar mál flutt
fyrir skemmstu og átti Samband
íslenskra samvinnufélaga þar í
lilut. Málsniðurstajða varð hin
sama og hér á Akureyri, það er
að Sambandinu bæri ekki
að greiða samvinnuskattinn fyrir
árið 1959. Lögfræðingar Reykja-
víkurborgar töldu vonlaust að á-
frýja málinu til Hæstaréttar. Þess
vegna er mjög ólíklcgt að Akur-
eyrarkaupstaðúf vinni sanis konar
mál. Hins vegar er alveg víst, að
málskostnaður verður mikill og
hann verða skattgreiðendur á Ak-
ureyri að greiða, vegna þessa frum
hlaups íhaldsins í bæjarstjórn.
Fyrirtæki samvinmimanna á Ak
ureyri hafa aldrei skorazt undan
ftillri skattgreiðslu til bæjar og
ríkis, svo sem lijg mæla fyrir. En
ekkert réttlæti getur mxlt með
því, að þau greiði samvinnuskatt-
inn fyrir árið 1959, scm fallinn
var úr gildi.
TVÖ HERBERGI og
ELDHÚS TÍL SÖLU.
Góðir greiðsfuskilmálar.
Sími 2395.
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu 1. eða 14. maí.
(Tvö herbergi og eldbús)
F y r irf ramgrei ðsla
ef óskað er.
Uppl. í síma 1502.
ÍRÚÐ TIL SÖLU
Tveggja herbergja íbttð
til sölu í innbænum.
Sími 1182.
BÝLIÐ HLÍÐ
við Akureyri er til sölu
og iaust til ábúðar í vor.
Ræktað land ca. 30 dag-
sláttur. Nánari uppl. bjá
undirrituðum.
Sigfús Jónsson, Hlíð.
ÍBÚÐ ÓSKAST
til leigu frá 14. maí.
Fyiirfraingreiðsla,
ef óskað er.
Uppl. í síma 1939.
Vel með farin
PASSAP-PRJÓNAVÉL
TIL SÖLU.
Sími 2238.
TIL SÖLU:
Sem ný Hansaglugga-
tjöld fyrir tvo glugga,
stærð 139x120 cm.
Tækifærisverð.
Sími 1543.
TIL SÖLU
með tækifærisverði:
4 geislaofnar (Kosangas)
lítið notaðir. — Uppl. í
síma að Munkaþverá.
KLÆÐASKÁPUR
tvískiptur, sem nýr, til
sölu. Gott verð.
Uppl. í síma 2522.
Notuð HRÆRIVÉL
til sýnis og sölu í
Véla- og búsáhaldadeild
K. E. A.
TIL SÖLU:
Saumavél í borði
Verð kr. 1500.00
Lítið kvenreiðhjól
Verð kr. 500.00
Strandgötu 41, neðri hæð.
RÍLAR TIL SÖLU:
Opel Caravan ’55 og ’59
Ojxel Record og
Kapitan ’56
Vauxhall ’50 og 54
Volkswagen ’57, ’58, ’59
Ford Junior ’46 og 55
Fordson sendlabílar ’46
Austin ’4(i, stærð 8 og 14
Moschvits '57, ’59 og ’60
Standard
Hilmann
P. 70
Willy’s jeppar ’46 og ’54
Rússa-jeppar ’56 og ’57
Nokkrir sex manna bílar
af ýmsum gerðum.
Vinsamlegast hringið
ekki á vinnustað.
Höskuldur Helgason
Sími1191
úr ull, terylene- og
teygjuefnum
SKÍÐAÚLPUR
og PEYSUK
LOÐHÚFUR
Ný sending.
MARKADURINN
Sími 12G1