Dagur - 20.02.1963, Blaðsíða 1
Mái.gagn Framsóknarmanna
Rn sr.iÓRi: Erlingur Davídsson
Skkifstofa í Hafnarstræti 90
Sími 1166. Sf.t.mngu og prentun
ANNAST PrENTVERK OdDS'
Björnssonar h.f., Akureyr;
Dagur
%
XLVI. árg. — Akureyri, miðv-ikudaginn 20. febrúar 1963 — 10. tbl.
Alglýsingastjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ÁrGÁNGURINN KOSTAR
kr. 120.00. Gjalddagi er 1. jút.í
Bladio kemur út á miovikudög-
UM OC Á LAUGARDÖGUM,
ÞEGAR ÁST.EDA ÞYKIR TIL
Hverf stefnir í fiskiUinum?
1
ÍSLENZKUR fiskiðnaður
hefur staðnað. Ilann treystir
sér ekki til að greiða nema
rúmar 3 krónur fyrir kílóið
af góðum línufiski, á sama
tíma og brezkur fiskiðnaður
grciðir allt að 10 krónum fyr-
ir kílóið af íslenzkum ísfiski.
íslenzkur fiskiðnaður greið
ir í hæsta lagi eitthvað á
aðra krónu og niður í 70
aura fyrir kílóið af glænýrri
vetrarveiddri síld, á sama
tíma og Þjóðverjar borga 5
krónur fyrir kílóið af 10
daga gamalli ísaðri síld og
þykjast gera góð kaup.
Nýting fisksins hér á landi
er öll með gamla laginu. Aðr
ar þjóðir leggja kapp á fjöl-
þættan fiskiðnað. Um þetta
fjallar m. a. grein Helga
Bergs, annars staðar í blað-
inu í dag. □
.. >
,,,
,y I I >12'
Frá Skákþingi Norðlendinga
SKÁKÞING Norðlendinga hófst
á Akureyri sunnudaginn 10.
febrúar. Telft er í Landsbanka-
salnum. Þáttakendur eru 28
talsins, þar af 11 í meistara-
flokki. Lárus Johnsen skák-
meistari frá Reykjavík teflir
sem gestur þingsins.
í meistaraflokki tefla, auk
Lárusar, Freysteinn Þorbergs-
son Siglufirði, Halldór Einars-
son frá Móbergi Laugadal, Jón
Hannesson Blönduósi, Hjörleif-
ur Halldórsson Steinsstöðum
Öxnadal, Jón Jónsson Húsavík,
Jón Ingimarsson, Halldór Jóns-
son, Ólafur Kristjánsson, Jón
Þór og Rendver Kerlesson, all-
ir frá Akureyri.
Eftir 9 umferðir er Lárus
Johnsen hæstur með 8J4 vinn-
ing. Freysteinn Þorbergsson
hefur 6V2 vinning og biðskák.
Jón Þór 6 vinninga. Hjörleifur
Halldórsson 4(4 vinning og bið-
skák. Ólafur Kristjánsson hefur
einnig 4Vz vinning og biðskák.
Tehús ágústmánans
LEIKFÉLAGIÐ æfir af kappi
sjónleikinn „Tehús ágústmán-
ans“ og verður frumsýningin
fyrir eða um næstu mánaðamót.
Um 20 manns koma fram í
leik þessum, auk geitarinnar.
Leikstjóri er Brynhildur Stein-
grímsd. Har. Sigurðsson, gjald-
keri, leikur aðalhlutverkið.
FRAMSÓKNARMENN!
Munið klúbbfundinn á morg-
um, fimmtudag kl. 8,30 e. h. í
skrifstofu flokksins.
Frunnnælandi Hjörtur Eiríks-
son ullarfræðingur. □
Halldór Jónsson 4 vinninga.
Halldór Einarsson 2Vz vinning.
Randver Karlesson 2 vinninga.
Jón Jónsson 114 vinning og bið-
skák og Jón Ingimarsson og
Jón Hannesson IV2 vinning
hvor.
Lárus Johnsen og Ólafur
Kristjánsson hafa lokið 9 skák-
um, aðrir keppendur 8.
f fyrsta flokki er keppni lok-
ið. Efstur varð Haukur Jóns-
son með 5V4 vinning af 6 mögu-
legum. Næstur Guðmundur
Búason með 4V4 vinning.
Hraðskákmót Norðurlands
verður á föstudaginn. Skákstjór
ar eru Haraldur Bogason og
Haraldur Ölafsson. Q
Þegar Mánafoss kom til Ak.
ÁRDEGIS á laugardaginn kom
hið nýkeypta flutningaskip Eim
skipafélags íslands til Akureyr-
ar með vörur. Það kom beint
að utan og fór tollskoðun fram
áður en lagst var að bryggju.
Kl. 11 f. h. lagðist Mánafoss
svo að Torfunefsbryggju. Það er
nú algengt orðið, að íslenzk
farþega- og flutningaskip, auk
varðskipanna, hafa ekki hina
eðlilegu samvinnu við hafnar-
mannvirki og svo fór í þetta
sinn. Mánafoss kom öslandi að
bryggjunni og hjó stefninu inn
í hana, svo sem stefni skipsins
og Torfunefsbryggja bera merki
um.
Margt fólk skoðaði skipið áuk
sérstakra boðsgesta síðar um
daginn.
Mánafoss er Norðlendingum
kærkomið skip, sem gefur fyrir-
heit um aukna flutningaþjón-
ustu við hinar mörgu byggðir —
utan Reykjavíkur. — Það ér
smíðað í Hollandi 1959, en 1409
tonn að stærð, rúmfet lestanna
eru 63.500. Áhöfn er 11 manns.
Skipstjóri er Éiríkur Ólafsson,
I. stýrimaður Bernódus Krist-
jánsson og yfirvélstjóri Haukur
Lárusson. p
AÐALFUNDUR AKUREYRDEILDAR
Kaupfél. Eyfirðinga
SVO SEM venja er, hefjast að-
aðfundir hinna ýmsu félags-
deilda Kaupfélags Eyfirðinga
fljótt að félagsráðsfundi lokn-
um. En frá þeim fundi var sagt
í síðasta blaði og helztu upplýs-
ingum, sem þar voru veittar,
svo sem gert hefur verið hér í
blaðinu mörg undanfarin ár.
Fyrsti deildarfundurinn var
haldinn í stærstu deildinni, Ak-
ureyrardeild, á mánudagskvöld-
ið að Hótel KEA. Deildarstjór-
inn, Ármann Dalmannsson, setti
fundinn en Torfi Guðlaugsson
var fundarritari.
í skýrslu deildarstjórans kom
það m. a. fram, að Akureyrar-
deild KEA á nær 143 þús. lcr.
í, sjóði. Félagsmenn eru 2466.
Akureyringar, þ. e. 18 framleið-
endur, lögðu inn 676.275 lítra
mjólkur með 3,86% fitu og
fengu fyrir lítrann 349,3 aura
að meðaltali (1961) og 1700 kind
um var lógað í sláturhúsi. Með-
alvigt dilkanna var 13,3 kg. sem
er lítið eitt minni en heildar
meðalvigtin, sem varð tæp 14
kg. á sláturhúsum KEA sl.
haust.
Akureyrardeild KEA hefur
samþykkt að verja nokkru fé
til menningar- og fræðslumála
og hefur verið rætt um, að fá
fræðslufulltrúa SÍS eða annan
mann til að flytja hér fræðslu-
erindi, sýna kvikmyndir o. fl.
Stjórn deildarinnar hefur ákveð
ið að leggja 5 þús. krónur í
minningarsjóð Þorsteins Þor-
steinssonar, sem varðveittur er
hjá Skógræktarfélagi Akureyr-
ar.
Jakob Frímannsson fram-
kvæmdastjóri KEA flutti félags
mönnum yfirlitsskýrslu um
starfsemi KEA og rekstur á
liðnu ári, sagði þó, að þrátt fyr-
ir vélabókhald og aðra tækni,
væri reikningum enn ekki lok-
ið og endanlegar niðurstöður
lægju því ekki fyrir. En vegna
aukinnar umsetningar í verzlun
og framleiðslu mundi heildar-
niðurstaðan verða viðunandi,
þrátt fyrir stóraukinn verzlun-
arkostnað og miklar verðhækk-
anir þeirra vara, sem nota verð
ur til viðhalds og uppbygging-
ar á húsum og öðrum mann-
virkjum og munum félagsins.
X
Framkvæmdastjórinn sagði,
(Framhald á blaðsíðu 4).
Byrjað á hafnarframkvæmdum
Ogurleg sprenging í Hafnavíkurhól í Hrísey
Fundur Framsóknarmanna í Laugarborg
Á SUNNUDAGINN var hald-
inn fundur á Laugaborg að til-
hlutun Framsóknarmanna í
Hrafnagilshreppi.
Frummælendur fundarins
voru þcir Ingvar Gíslason al-
þingismaður og Hjörtur E. Þór-
arinsson bóndi á Tjörn. Fund-
arstjóri var Guðlaugur Hall-
dórsson í Hvammi.
Ræða Ingvars fjallaði um
kosningaundirbúninginn í kjör
dæminu, stjórnmálaviðhorfið al
mennt og Efnahagsbandalagið.
Hjörtur talaði einkum um land-
búnaðarmálin og viðhorf stjórn-
málaflokkanna til þeirra og
vandamál dreifbýlisins. Ræð-
um þessum var ágætlega tekið
af fundarmönnum. Síðan hófust
umræður og tóku margir til
máls.
Fundarmenn voru einhuga
um, að vinna vel að undirbún-
ingi alþingiskosninganna og
voru bjartsýnir.
Allmargir Akureyringar
mættu á fundinum og tóku þeir
þátt í umræðunum. Q
Hrísey, 18. febr. Nú er byrjað
á hafnarframkvæmdum hér
í Hrísey. Vinnuflokkur er hing-
að kominn frá vitamálaskrifstof
unni með margs konar vélar og
verkfæri. Fyrsta verkið var að
sprengja grjót í Hafnarvíkurhól.
Varð það sprenging svo mikil
að jörð skalf. En grjótið er tal-
ið mjög gott og verður nú gerð-
ur 80 metra grjótgarður og síð-
an á að setja strengjasteypu
norðan við grjótgarðinn. Starfs-
menn, aðkomnir og heimamenn,
eru 15—18 talsins og verkið
virðist ætla að ganga vel.
Hríseyingar eru nú að .búa
sig á net. Fyrstu fréttir af neta-
veiðum gefa vissulega til kynna
að kominn sé tími til að koma
netunum í sjóinn.
Q
; Bændaklúbbsfundur
; verður að Hótel KEA mánu-
; dagskvöldið 25. þ. m. og hefst
: kl. 9.
Gísli Kristjánsson ritstjórí
; innleiðir umræður um
’ BÚSKAPARVIÐHORF.
Stutt kvikmynd verður sýnd
t upphafi fundarins. Q