Dagur - 20.02.1963, Side 8
8
Fékk kampsel og mink
Nemendur Barnaskóla Akureyrar hlutu 30 verðlaun af 42, sem Menningarsjóður veitti fyrir teikn-
ingar íslenzkra skólabama. 1100 böm frá 67 skólum tóku þátt í samkeppninni. — Teiknikennari
Barnaskólans var Einar Helgason. Er hann hér ásamt nemendum sínum. En myndin var tekin í
hátíðasal skólans á laugardaginn, eftir að skólastjórinn, Hannes J. Magnússon, hafði, við hátíðlega
athöfn, afhent bömunum verðlaunin og Einari gjöf frá skólanum í viðurkenningarskyni fyrir
kennslu hans góðan árangur nemenda hans í samkennslu lians, sem bar svo ágætan árangur.
(Ljósmynd: E. D.)
Fréttir frá Búnaðar þingi
BÚNAÐARÞING situr á rök-
stólum í Reykjavík um þessar
mundir. Ketill Guðjónsson bún-
aðarþingsfulltrúi Eyfirðinga hef
ur orðið við þeim tilmælum að
segja fréttir af störfum þess.
Búnaðarþing var sett í Rvík
laugardaginn 9. febrúar. Forseti
þingsins var kosinn Þorsteinn
Sigurðsson bóndi Vatnsleysu,
formaður Búnaðarfél. íslands,
Skrifarar Jóhannes Davíðsson
Hjarðardal og Sveinn Jónsson
Egilsstöðum. Kjörbréfanefnd
Var kosin til að athuga kjörbréf
hinna nýkjörnu fulltrúa og taldi
hún þá alla hafa rétt til setu á
Búnaðarþingi næstu 4 árin.
í setningarræðu sinni gat
formaður Búnaðarfélags íslands
ýmissa mála, sem lögð yrðu fyr-
ir þetta þing til athugunar og
ályktunar og einnig hvernig
horfurnar væru varðandi hin
ýmsu málefni landbúnaðarins
sem stæði.
Ingólfur Jónson Landbúnaðar
ráðherra flutti ávarp í þingbyrj-
un og árnaði þinginu heilla í
störfum og íslenzkum landbún-
aði farsældar á komandi árum.
Nú hafa verið lögð fram á
þinginu 23 mál. Einnig hafa ver-
ið flutt erindi og sýndar kvik-
myndir. Þar á meðal flutti Dr.
Halldór Pálsson búnaðarmála-
stjóri skýrslur um störf Búnað-
arfélags íslands á liðnu ári. Var
hún mjög glögg og þar minnst
NEMENDASKIPTI
HINGAÐ til lands munu í sum-
ar koma til ársdvalar nokkrir
unglingar frá Bandaríkjunum í
nemendaskiptum á vegum kirkj
unnar, en aðrir fara utan frá ís-
lenzku kirkjunni eins og áður.
Æskulýðsfulltrúi kirkjunnar,
séia Ólafui' Skúlason beinir
hingað þeirri fyrirspurn, hvort
nokkurt heimili á Akureyri
muni vilja taka einn ungling.
Hann myndi vera á aldrinum
16—18 ára og ganga hér í skóla.
Nánari upplýsingar gefa sóknar
prestar. □
ýmissa viðkvæmustu vanda-
mála íslenzks landbúnaðar og
þeim gerð nokkur skil á athygl-
isverðan hátt.
Búnaðarþing hefur nú þegar
afgreitt nokkur mál. Þar á með-
al erindi Framleiðsluráðs land-
búnaðarins um auknar leiðbein-
ingar í mjólkurvinnslu og mjólk
urmeðferð.
Ályktun þingsins hljóðar svo:
„Búnaðarþing mælir með og
leggur áherzlu á að ráðinn verði
svo fljótt sem fært er, ráðunaut
ur í mjólkurmálum hjá Búnað-
arfélagi íslands. Felur þingið
stjórn Bí að fara fram á sér-
Stakt fjárframlag í þessu skyni.“
Þá var afgreitt erindi frá
sýslunefnd A,- Húnavatnssýslu
um hækkun á hundaskatti.
Búnaðarþing mælti með því
að lögum nr. 7 frá 3. febr. 1953
yrði breytt og árlegt gjald af
hundum búfjáreigenda, svo og
minkahundum, dýrhundum og
sporhundum yrði kr. 30,00, en
af öðrum hundum kr. 500,00.
Út af ei'indi fulltrúafundar
bænda í A.- Skaftafellssýslu og
Búnaðarfélags Kirkjubæjar-
hrepps um tjón af völdum grá-
gæsa. Samþykkti Búnaðarþing
eftirfarandi ályktun:
„ Búnaðarþing felur stjórn Bí
(Framhald á blaðsíðu 2).
UM HELGINA fóru margir á
sjó. Einn þeirra var Gústaf
Karlsson, Hafnarstræti 2, Akur-
eyri. Hann elti kampsel í fjórar
klukkustundir og skaut hann
síðan. Þetta var vænn og falleg-
ur selur. Spikið vóg 180 pund
en kjötið 146 pund. Selurinn
mun hafa verið 3—4 ára og ák-
aflega sver. Hann bætir, að
sögn, einu hári í kampinn fyrir
hvert ár.
Ýmislegt frá Ðalvík
Dalvík, 18. febr. Veðráttan er
frábær og flutningar á landi
auðveldir í vetur.
Róðrar hófust snemma í jan-
úar og voru gæftir þá góðar,
en í seinni hluta mánaðarins og
fram í febrúar voru gæftir stop-
ular.
Sl. haust keypti Helgi Jak-
obsson o. fl. 18 lesta bátinn
Dröfn. Nú hefur Sverrir Svein-
björnss. o. fl. keypt mótorbátinn
Faxa, sem er 15 smálestir.
Fimm dekkbátar stunda veiðar
nú og fjórir eru búnir ag taka
þorskanetin. Afli hefur verið
misjafn. Margrét fékk þó 10
tonn í 25 net í einni lögn og er
það sjaldgæfur afli.
Björgvin kom í korgun með
40 tonn eftir 6 veiðidaga og var
búinn að leggja upp 38 tonn áð
ur.
Heildaraflinn á Dalvík frá
áramótum er 320 tonn. Mest af
þeim afla hefur farið til fryst-
ingar.
Mánafoss kom hér í gær með
90 tonn af vörum, sem einkum
var símajarðstrengur, er lagður
verður frá Dalvík til Hörgár. □
f sömu ferðinni sá Gústaf
minnk í fjörunni, í landi skóg-
ræktarinnar, austan fjarðar.
Fór hann þá í land, en minnkui'-
inn skauzt inn í urðina. Maður-
inn gekk þá lítinn spöl í fjör-
unni og sá þá minnkaslóðir. Á
Básnefi tyllti hann sér sem
snöggvast niður til að blása
mæðinni. En ekki var hann
fyrr seztur, en minkur hleypur,
svo að segja undan fótum hans,
og í sjóinn. Synti hann um 30
faðma norður með fjörunni en
fór þar upp á stein. Þar endaði
hans Saga. Þetta var stór og
feitur kai'l-rninkur.
Áður var frá því sagt, hér í
blaðinu, að Gústaf skaut mink
á lóðinni hjá sér í vetur. Um
daginn kom hann út að kvöld-
lagi og stóð þá minkur, og það
all borubrattur, á tröppunum
við bakdyrnar. Sá á holu í kant
inum þar framan við og er ekki
ónáðaður, því að hann hefur
eytt öllum rottum á töluverðu
svæði. Betra er að hafa einn
mink en hundrað rottur, segir
húseigandi. □
Ætla að stækka sam-
komuhúsið
Laugum, 18 febr. Á laugardag-
inn hélt ungmennafélagið Efl-
ing í Reykjadal þorrablót á
Breiðumýri. Var það fjölsótt.
Blótgestii' höfðu með sér þorra-
matinn, bæði mikinn og góðan,
sem hafður var í trogum, að
gömlum sið. Söngur upplestur,
getraunir o. fl. var til skemmt-
unar undir borðum, en síðan
var dansað af miklu fjöri lengi
nætur.
Sunnudaginn 10. febrúar var
haldið eins konar þorrablót að
Laugum. En þá var því um leið
fagnað, að allir mislingasjúkling
ar skólans voru heilir orðnir.
En fast að fimmtíu nemendur
höfðu tekið veikina. Héraðs-
læknir og hjúkrunarkonur, sem
veitt höfðu ómetanlega aðstoð
á meðan veikindin herjuðu í
skólanum, voru meðal boðs-
gesta.
Þar voru mörg skemmtiat-
riði, bæði aðfengin og heima-
tilbúin.
Á aðalfundi ungmannaféags-
ins Eflingar, 2. febrúar, sam-
þykkti félagið að beita sér fyi'-
ir viðbyggingu við samkomu-
húsið á Breiðumýri og gera
endurbætur á því. Hefur félag-
ið nú leitað til hreppsnefndar-
innar með þetta mál, og fengið
þar hinar beztu undirtektir.
Skipuð hefur verið sameiginleg
framkvæmdanefnd, og tilkynnt
hefur verið um fjárframlög og
gjafavinnu, máli þessu til stuðn-
ings. □
Golþorskur, en of
lítið af honum
Ólafsfirði, 18. febr. í dag eða á
morgun verður farið út með
fyrstu netin. Aflinn á línu, hef-
ur ekki verið mikill, 4—5 tonn
í róðri, en allt golþoi'skur. Sjó-
menn hafa von um, að tími sé
til þess kominn að veiða í net.Q
Fóru upp um vakir
Reynihlíð, 18. febr. Hér eru all-
ir á kafi í skattinum og líta
varla upp. Ber fátt til tíðinda.
í sambandi við fréttir um sil-
ungsdauða í Höfðavatni, skal
þess getið, að veturinn 1921 eða
1922 var fremur þunnur ís á
vatninu, framan af vetri. Svo
gerði asahláku. Kom þá nokkuð
af silungi upp um vakir og göt
á ísnum og varð svo samfrosta
við ísinn. Ekki man ég' að þetta
hafi skeð nema í þetta eina
skipti. Veturinn núna er svipað-
ur og 1929. Þá var snjólaus jörð.
Og fé var sleppt síðasta dag
Góu. En síðan kom snjór og
hélzt lengi. Þá voru kuldar
suður í Evrópu. □
Samgöngur í vctur
Raufarhöfn, 18. febrúar. í vetur
hefur verið haldið uppi bílferð-
um milli Raufarhafnar og hefur
gengið ágætlega, vegna þess hve
snjólétt er og tíðin góð. Ferðir
þessar eru farnar 1—2 í viku
og er hér um vöruflutninga að
ræða.
Tveir bátar róa en fá fremur
lítinn afla. Trillurnar eru enn
Nýr kaupfélagsstjóri hefur
verið ráðinn, og er það Jóhann
Jónsson, áður kaupfélagsstjóri
á Þórshöfn. Jón Árnason, sem
verið hefur kaupfélagsstjóri,
mun veita forstöðu síldarsöltun-
arstöðvunum Borgum og Haf-
silfri.
Goðafoss tók hér síðustu síld-
ina, 1000 tunnur til Bandaríkj-
anna. En mikið af mjöli og lýsi
er ennþá eftir. í mest allan vet-
ui' hefur síldai'mjölið verið mal-
að upp, til að fá við það betri
vöru og eftirsóttari. □
Ljótur mumisöfnuíSiur
í Kinn
Ófeigsstöðum, 18. febr. Flestir
menn hér, hafa það fyrir stafni,
ásamt nauðsynlegustu störfum,
að bölva hinum nýju skattalög-
um, og eru til þess all fúsir.
Launamiðarnir voru sendir á
hvert heimili, og hafa ekki sézt
þar áður, en sektum hótað, jafn
vel tukthúsi, ef ekki er útfyllt
og frágengið fyrir vissan dag.
Mislingum er að mestu lokið
hér. Þeir eru aðeins á einum
bæ og á tveim bæjum í Aðaldal.
Þeir hafa ekki höggvið skarð í
raðir fólksins, eða skilið eftir
sig neinar hörmungar.
Elztu menn muna ekki betri
tíð. Snjóföl er á jörðu en allir
vegir færir, sem á sumardegi.
Þó er Fljótsheiði ekki farin nú,
vegna svellbunka vestan í heið
inni. □