Dagur - 29.01.1964, Side 1
m »
NÝIR KAUPENDUR
fá framlialdssöguna,
„GULLNA BORGIN“
frá byrjun.
Hringið í síma
1166 eða 1167.
■y ■ ■ ■ ---
VINSAMLEGA LÁT-
IÐ VITA EF VAN-
SKIL VERÐA Á
BLAÐINU.
Símar 1166 og 1167.
.. ' '
Sjóslangveiðifélag stofnað á Ák.
SJÓSTANGVEIÐIFÉLAG Ak-
ureyrar var stofnað að Hótel
KEA fimmtudaginn 16. janúar
sl. Fundinn sóttu milli tuttugu
og þrjátíu manns. Áhugi manna
er mikill fyrir slíkri íþrótt hér á
Akureyri, því á fáum stöðum er
hentugra til slíkra veiða.
Fundinn setti Steindór Stein-
dórsson járnsmiður, en skipaði
síðan Sigurð Ringsteð fundar-
stjóra og Kristján P. Guðmunds
son fundarritara.
Lesin voru upp lög Sjóstang-
veiðifélags Reykjavíkur og þau
samþykkt með þeirri einni
breytingu að félagið hér heitir
Sjóstangveiðifélag Akureyrar.
Stjórnina skipa þessir menn:
Steindór Steindórsson for-
maður, Karl Jörundsson vara-
formaður, Kristjáns P. Guð-
mundsson ritari, Matthías Ein-
arsson gjaldkeri og Gunnar
Árnason meðstjórnandi.
Eftir stjórnarkjör kvaddi Páll
A. Pálsson sér hljóðs, og bauð
(Framh. á bls. 7)
JAKOB
JAKOBSSON
LATINN
JAKOB JAKOBSSON,
Skipagötu 1 á Akureyri,
lézt í bílslysi í Þýzka-
Iandi sl. sunnudag. Hann
var 26 ára gamall og
stundaði tannlæknanám
í Erlangen í S.-Þýzka-
landi og átti aðeins eftir
um tveggja missera nám
til lokaprófs. Jakob
Jakobsson naut bæði
álits og trausts og er
öllum liarmdauði.
Báðir vildu þeir haia söim
En illa fór þegar átti að flytja hana til Dalvíkur
BRATTASTI bílvegur á Akur-
eyri er Langamýri, þar sem hún
liggur niður að Byggðavegi.
Hvað eftir annað hefur þar legið
við stórslysum nú í vetur, og
þyrfti tafarlaust að takmarka
akstur þar um eða gera þær
úrbætur, sem að haldi mega
koma.
Um helgina runnu 2 bílar þar
niður, enda hált, og hafnaði
annar á húsinu nr. 148 við
Byggðarveg, en hinn á sendi-
ferðabíl, gömlum sjúkrabíl.
Af bíl þeim, sem á sendiferða-
bílinn rakst er lengri saga. Dal-
víkingur hafði í haust fest kaup
á bíl þessum, A-763, og fór þá
með hann til síns heima. En
seljandinn taldi vanefndir á
greiðslu, tók bílinn og flutti til
Akureyrar. Dalvíkingurinn kom
til Akureyrar um helgina, og
vildi hafa sama hátt á og flytja
bílinn heim til sín. Margnefnd-
ur bíll stóð í Kringlumýri. Mað-
urinn settist nú undir stýri og
hélt af stað niður hina bröttu
áðurnefndu götu. En með því
bíllinn var bæði hemlalaus og
Hafnaði á gamla sjúkrabílnum.
(Ljósm. R. J.)
H
i Á laugardaginn áttu keðjulausir bílar í erfiðleikum í Brekkugötunni.
%;■■ **
(Ljósm. P. A. P.)
Framleiðniaukningin þrisvar
sinnum meiri í landbúnaði en
hjá öðrum stéttum
segir formaður Stéttarsambands bænda
GUNNAR GUÐBJARTSSON
bóndi á Hjarðarfelli og formað-
ur Stéttai-sambands bænda var
í síðustu viku á ferð um Norður
land og flutti erindi á fundum
búnaðarsambandanna. Á laugar
bifreiðina
keðjulaus og að öllu ógangfær,
tók hann, ásamt þyngdarlög-
málinu, stjórnina í sínar hend-
ur, með þeim afleiðingum, sem
áður greinir.
Dalvíkingurinn var handtek-
inn í bænum stuttu síðar.
Hann var próflaus og ölvaður,
samkvæmt umsögn lögreglunn-
ar. □
IÐJA MÓTMÆLIR
NÝJUM SKÖTTUM
Á ST J ÓRN ARFUNDI, sem
haldinn var í Iðju, félagi verk-
smiðjufólks á Akureyri, 24. jan.
1964 var eftirfarandi samþykkt
gerð:
„Stjórnarfundur í Iðju, félagi
verksmiðjufólks á Akureyri,
haldinn föstudaginn 24. janúar
1964 mótmælir harðlega laga-
frumvarpi því er ríkisstjórnin
hefur lagt fyrir Alþingi, um
hækkun á söluskatti. Telur fund
ui'inn að skattinnheimta þessi sé
mjög ranglát gagnvart láglauna-
fólki yfirleitt og sér í lagi gagn-
vart þeim er hafa fyrir barn-
mörgum heimilum að sjá, ekki
(Framh. á bls. 7)
daginn hittumst við í Þelamerk-
urskólanum nýja. Hann var á
vesturleið og vildi kynnast hinu
nýja menntasetri, er stendur við
þjóðveginn og sá er þetta skrif-
ar var þar sömu erinda, og not-
aði þá tækifærið til að spyrja
form. Stéttarsambandsins um
ferðir hans og nokkur atriði
þeirra mála, sem nú eru á dag-
skrá, bæði á Alþingi og í blöð-
um pólitísku flokkanna.
Hvemig hefur þú hagað ferðum
þínum, Gunnar?
Ég fór að heiman á sunnudag-
inn, ók þá norður á Blönduós,
og mætti á fundi þar á mánu-
dagskvöldið. Þar voru á annað
hundrað manns saman komnir.
Á Hólum í Hjaltadal var ég á
fundi á þriðjudaginn og voru
þar einnig mættir á annað
hundrað manns. Á miðvikudag-
inn var haldið norður í Keldu-
hverfi og fundúr haldinn í Skúla
garði og á Kópaskeri á fimmtu-
daginn. Þar voru mættir 80, eða
flestir bændur, sem þangað áttu
fundarsókn. Ekki vai' að þessu
sinni farið lengra austur, en
haldið í Aðaldal í S.-Þing. og
mætt á fundi ú Hólmavaði í gær,
þ. e. föstudag 24. jan. og þar
mættu 180 bændur. Þessir fund-
ir voru á vegum búnaðarsam-
bandanna og var fjallað um verð
lagsgrundvöllinn og landbúnað-
armálin almennt. í dag ek ég
vestur yfir heiði og mæti á enn
einum fundi í Varmahlíð í
Skagafirði.
Hvað þótti þér merkilegast á
þessum fundum?
Hinn algerði einhugur bænd-
anna um, að fá leiðréttingu á
Gunnar Guðbjartsson.
högum landbúnaðarins, og
breyta lögunum á þann veg, að
framleiðslukostnaður búanna
verði eftirleiðis rétt metinn,
samkvæmt- sannanlegum stað-
reyndum. Slíkt kom mér að
vísu ekki á óvart hér á Norður-
landi, en merkilegt er það engu
að síður, að engin hjáróma rödd
skyldi heyrast í hinum al
mennu umræðum, sem á hverj-
um fundi voru miklar og tæpi-
tungulausar. Og svo var fund-
arsóknin miklum mun meiri en
gert var ráð fyrir. Þessir fjöl-
(Framhald á blaðsíðu 4).
NÆSTU BÆNDA-
KLÚBBSFUNDIR
Á NÆSTA bændaklúbbsfundi,
sem haldinn verður 3. febrúar
ú Hótel KEA og liefst kl. 8.30,
verður Pálmi Einarsson land-
námsstjóri málshefjandi og
ræðir um vandamál dreifbýlis-
ins.
Gunnar Guðbjarsson form.
Stéttarsambands bænda mun
mæta á bændaklúbbsfundin-
um 10. febrúar, og verður nán-
ar vikið að því síðar. □