Dagur - 29.01.1964, Blaðsíða 7
VT:
:-y.-y.'v.'/jrv.
■lil
SKÍÐAMÓTIN AÐ HEFJAST Á AKUREYRI
SUNNUDAGINN 26. jan. sl. fór
fram skíðakeppni í Hlíðarfjalli
fyrir flokka 13—15 ára og 12
ára og yngri. Ekki var mót þetta
vel sótt enda auglýst með stutt-
um fyrirvara og þetta fyrsta
drengjamót vetrarins.
Mót þetta sóttu eingöngu
drengir úr Glerárhverfi, en þeir
hafa verið mjög duglegir við
skíðaæfingar og ekkert látið
hindra sínar æfingaferðir um
helgar í Hlíðarfjalli. Hafi ekki
bílferðir fallið, leggja þeir land
undir fót, allt að 10 km.
leið.
Mættu unglingar gjarnan hafa
þennan hóp drengja sér til fyrir-
myndar og stunda fjallaferðir
um helgar með slíkum dugnaði,
sem þeir, enda eru þær hollar
og hressandi.
Úrslit í drengjamótinu urðu
þessi:
13—15 ára
1. Árni Óðinsson K. A. 44,9
2. Ingvi Óðinsson K. A. 49,9
3. Jónas Sigurbjörnss. Þór 51.7
4. Bergur Finnsson Þór 61.5.
12 ára og yngri:
1. Arngr. Brynjólfss. Þór 57.0
Allir þessir drengir eru mjög
efnilegir skíðamenn og má segja
að undanfarin ár hafi verið mik
il keppni milli þeirra. Árni Óð-
insson hefur oftast farið þar
með sigur af hólmi í yngsta
flokki, en nú keppir hann í fl.
12—15 ára og sigraði þar með
yfirburðum sl. sunnudag. Að
vísu vantar drengi úr þessum
flokki, sem eldri eru, eins og
t. d. Bjarna Jensson o. fl., sem
stóðu sig vel í fyrra. Arngrímur
Brynjólfsson var aðeins einn í
sínum flokki og keppti í sömu
braut og eldri flokkur. Var ár-
angur hans mjög góður, þegar
miðað er við að hann er tveim
árum yngri en hinir. Væntan-
lega verður meiri þátttaka í
Heimsmeistarakeppn-
in í handknattleik
ÍSLENDINGAR eru meðal 16
þjóða sem taka þátt í úrslita-
keppni heimsmeistaramótsins í
handknattleik karla, sem hefst í
Tékkóslóvakíu 6. marz n. k.
Hafa 12 leikmenn frá 6 félögum
verið valdir til fararinnar, og
er nú lagt kapp á sem bezta
þjálfun þeirra. Búast má við
harðri keppni að þessu sinni, en
íslenzkir handknattleiksmenn
hafa sýnt það að þeir standa
framarlega í íþrótt sinni, sem
bezt sást á frammistöðu þeirra
í síðustu heimsmeistarakeppni
fyrir 5 árum, þar sem ísland
hlaut 6. sætið. Vegna þeirrar
frammistöðu þurfa íslendingar
ekki að taka þátt í undanrásum
nú og fara því beint í lokakeppn
ina. Öll hin Norðurlöndin, nema
Finnland hafa nú öðlazt þann
þátttökurétt. Q
af beztu svigmönnum landsins,
Svanberg Þórðarson. Ekki er
enn vitað hvað margir aðkomu-
menn verða á þessu móti, en
vonast er til að skíðamenn frá
framangreindum stöðum sjái
sér fært að koma. Q
Handknattleiksmót
r
Islands
KEPPNI í I. deild stendur nú
yfir. Hefir hún verið jöfn og
spennandi og erfitt að spá um
úrslitin, þó Fram eða Hafnfirð-
ingar séu taldir líklegir sigur-
vegarar. Aðeins Reykjavíkur-
félög og F. H. Hafnarfirði eiga
nú sæti í fyrstu deild. Staðan í
mótinu er þess:
Fram 8 stig. í. R. 7 stig. F. H.
5 stig. K. R. 4 stig. Víkingur 4
stig. Ármann 0 stig.
F. H. og Ármann hafa leikið
4 leiki en hin félögin 5. Q
Ólafur Stefánsson form. Skíða-
ráðs t. v. og fvar Sigmundsson
skíðakennari við enda nýju
togbrauíarinnar.
næstu skíðamótum drengja
enda verða nú fastar ferðir að
Skíðahótelinu og senn fer að
lengja daginn. Þá er drengjum
heimilt að sækja æfingar skíða-
ráðsins í íþróttahúsinu, sem eru
á miðvikudögum kl. 7 e. h.
Þá fór fram um helgina æf-
ingamót skíðamanna úr A, B,
og C-flokkum. Kepptu þar allir
í sömu braut. Beztir brautar-
tímar voru þessir: (en alls fór
hver maður 3 ferðir).
Sek.
1. Reynir Pálmason KA 26.3
2. ívar Sigmundsson KA 26.6
3. Magnús Ingólfsson KA 27.0
4. Eggert Eggertsson Þór 2S.1
5. Viðar Gaí’ðarsson KA 28.3
6. Reynir Brynjólfsson Þór 29.0
7. Smári Sigurðsson KA 29.8
í , i i > r f ’
8. Þorariiín Jðnsson Þór 30.5
Stórt skíðamót um næstu helgi.
Um næstu helgi er ráðgert
stórt skíðamót í Hlíðarfjalli og
hefur til þess verið boðið kepp-
endum frá Ólafsfirði, Siglufirði,
ísafirði og Reykjavík. Tilefni
þessa móts er vígsla togbrautar
sem Skíðaráð Akureyrar hefur
látið gera við Strompinn. Keppt
verður bæði laugardag og
sunnudag og jafnframt fer fram
bæjakeppni í flokkasvigi' milli
Ólafsfjarðar og Akureyrar, en
sú keppni var tekin upp í fyrra,
þegar skíðamenn frá Akureyri
heimsóttu Ólafsfjörð. Geta má
þess að Ólafsfirðingar eiga einn
Missa lóðir sín-
4h . 4
^ Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim mörgu, sem d ®
J einn eöa annan hátt minntust mín d sjötugsafmceli t
minu, þann 24. janúar sl. >
í - ÁRNI BJÖRNSSON, kennari. Í
*T 1
FRÁ ÍSAFIRÐI berast þær
fregnir, að bátar hafi misst lóð-
ir sínar undir ís á venjulegum
bátamiðum.
ísinn er næn-i landi um þess-
ar mundir.
Keilir frá Skagaströnd var
dreginn til hafnar með bilaða
skrúfu, en hann hafði lent í ís
29 mílur norðaustur af Horni.
ísinn er á mikilli hreyfingu og
illt að varast hann.
Þá kvarta sjómenn mjög um
yfirgang útlendra togara á þess-
um slóðum, en þeir virðast láta
sér í léttu rúmi liggja, þótt þeir
valdi veiðarfæratjóni. Q
BRIDGEKEPPNU,
» ,' . > . i i / * t .\ . ... .
ÞRIÐ JUÐAGINN -1 > 14. ’ janúar
hófst sveitakeppni meistarafl.
Bridgefélags Akureyrar.
8 sveitir taka þátt í keppninni
og eru þær þessar:
Sveit Soffíu Guðmundsdóttur,
sveit Mikaels Jónssonar, sveit
Halldórs Helgasonar, sveit Bald-
vins Ólafssonar, sveit Ragnars
Steinbergssonar, sveit Aðal-
steins Tómassonar, sveit Knúts
Ottersted og sveit Zophoníasr
Jónssonar.
1. umferð: Halldór vann Bald-
vin 6—0, Mikael vann Soffíu
6—0, Ragnar vann Knút 6—0,
Aðalsteinn vann Zophoníar 6—0
2. umferð: Mikael vann Knút
6—0, Soffía vann Zophoníar
6—0, Aðalsteinn vann Baldvin
6—0, Halldór vann Ragnar 6—0.
Eftir 2 umferðir er staðan
þessi:
Halldór, Mikael og Aðalsteinn
með 12 stig. Soffía og Ragnar
með 6 stig. Baldvin Knútur og
Zophonías með 0 stig. Q
I. O. O. F. — 14513181/2
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 5
e. h. — Sálmar: 43 — 425 —
136 — 687. Athugið reyttan
messutíma. B. S.
Æ. F. A. K. Aðaldeild
Fundur verður í
Skíðahótelinu n. k.
föstudagskvöld. Far-
ið verður frá Kirkjunni kl.
7.30 e. h. — Skemmtiatriði og
skuggamyndir. Hafið með kr.
25.00. Athugið breyttan fund-
ardag. Stjórnin.
UNGLINGAR þeir,
sem áhuga hafa á smá-
fiskarækt, er bent á að
f u n d i r fiskiræktar-
klúbbsins „Ugga“ eru annan
hvern miðvikudag í íþrótta-
vallarhúsinu klukkan 8 e. h.
Nýjum meðlimum heimil inn-
ganga á fundunum. Upplýs-
ingar í síma 2722 milli kl. 2
og 4 á daginn. Stjómin.
I. O. G. T. Stúkan Brynja nr. 99
heldur fund að Bjargi, fimmtu
daginn 30. jan. kl. 8.30 s. d.
Vígsla nýliða. Upplestur
,(framhaldssaga). Skemmti-
atriði að loknum fundi.
AKUREYRINGAR! Fjáröflunar
dagur Slysavarnad. kvenna er
á sunnudaginn kemur. Við vit
um af fenginni reynslu, að þið
munuð taka vel konunum,
sem koma með merki til ykk-
ar og einnig kaupa muni og
kaffi. — Bazarinn og kafisalan
hefjast á Hótel KEA kl. 2.30
e. h. — Hljómsveit leikur. —
Þá viljum við minna á mess-
una kl. 5 e. h. Fyllið kirkjuna
og sendið sameiginlega bæn
fyrir öryggi og handleiðslu
allra manna á sjó, landi og í
lofti.
FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN Ath!
Æfingar á miðvikudögum kl.
6 e. h. Kennari Hermann Sig-
tryggsson. Stjómin.
FRÁ SJÁFSBJÖRG.
Spilakvöldin byrja aft-
ur laugard. 1. febrúar
kl. 8.30 e. h. — Félagar
fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
- Sjóstangveiðifélag
(^Fratnh. af bls. 1),.
öllum félagsmönnum til sjóferða
í marz—apríl n. k. Þakkaði for-
maðurinn höfðinglegt boð. Tek-
ið skal fram að enn er hægt að
gerast stofnmeðlimur.
Áætlað er að hér fari fram
landsmót í sjóstangveiði á vori
komanda, sem gefur 1—5 mönn-
um kost á að sækja Alþjóð-
legt mót, sem haldið verður í
Reykjavík í lok maímánaðar
næst komandi. Q
- IÐJA MÓTMÆLIR
(Framhald af bls. 1.)
sist þegar þess er gætt að fjöl-
skyldubætur hafa ekki hækkað
sem aðrar bætur Almannatrygg
inganna.
Fyrir því telur fundurinn, að
hér sé verið að ráðast harka-
lega á kaupmátt launanna og
skerða lífskjör fólksins í land-
inu, skorar fundurinn því á
þingmenn alþingis að fella frum
varpið*.
(Fréttatilkynning).
HJÓNAEFNI. í síðustu viku
opinberuðu trúlofun sína Sól-
ey Friðfinnsdóttir Sæborg
Glerárhverfi og Bergur Ing-
ólfsson Uppsölum Önguls-
staðahreppi.
MINNINGARSPJÖLD fyrir
fegrunarsjóð Akureyrarkirkju
fást í Bókabúð Jóhanns Valdi-
marssonar.
SLYSAVARNARKONUR. Mun
ið að koma munum á bazar-
inn til viðtakanda, í síðasta
lagi á föstudag. Þá viljum við
minna á fundinn í Alþýðu-
húsinu kl. 8.30 e. h. á mánu-
daginn.
SJA AUGLÝSINGU í blaðinu í
dag um árshátíð Þingeyinga-
félagsins.
AUSTFIRÐINGAR! Munið árs-
hátíð Austfirðingafélagsins á
Akureyri í Sjálfstæðishúsinu
föstudaginn 21. febrúar n. k.
Nánar auglýst síðar. Nefndin.
ÁRSHÁTÍÐ Ólafsfirðingafélags-
ins verður haldin í Alþýðu-
húsinu laugardaginn 8. febr.
Nánar auglýst síðar. —
Skenuntinefndin.
FUNDUR í LIONS-
KLÚBBNUM H U G
I N N að Hótel KEA á
morgun (fimmtudaginn 30.
þ. m.) klukkan 12.05.
FÍLADELFÍA Lundargötu 12.
Samkomur verða dagana 29.
janúar til og með 2. febrúar.
Miðvikudag, fimmtudag föstu-
dag, laugardag og sunnudag
kl. 8.30 s. d. (alla dagana) —
Ræðumaður og einsöngvari
Ole Hoff frá Noregi. — Akur-
eyringar! Notfærið ykkur
þetta ágæta tækifæri. Komið
og hlustið. — Allir hjartan-
lega velkomnir.
SKÍÐAHÓTELIÐ HLÍÐAR-
FJALLI. Opið daglega fyrir
gistingu og greiðasölu. Borð
og matpantanir í síma um 02.
Hótelstjóri.
INNILEGAR ÞAKKIR til allra
þeirra, sem veittu aðstoð við
ársfagnað gamla fólksins á
Hótel KEA síðasliðinn sunnu-
dag. Sömuleiðis þökkum við
auðsýnda vinsemd og virðing
á 70 ára afmæli félagsins 13.
þ. m. Kvenfélagið Framtíðin.
MINNINGARKORT lóðar Akur
eyrarkirkju fást í Bókabúíí
Rikku og Bókabúð Jóhannd
V aldimarssonar.
FRÁ VESTFIRÐIN G AFÉ AG-
INU á Akureyri. Þeir Vest-
firðingar, sem ekki gátu mætt
á stofnfundinn 26. janúar,
geta innritað sig, sem stofn-
félagar til 10. febrúar 1964. —.
Áskriftalisti liggur frammi í
umboði DAS, Hafnarstræti 96.
Stjómin.
ENN EINU SINNI vill blaðið
minna á, að það hirðir ekki um
nafnlausar greinar og kvæði og
birtir ekki þannig, nema í sam-
ráði við höfundinn. Q
DRÁTTARVÉL
11 ha. Deutz, 1956 model,
til sölu með sláttuvél og
heyýtu.
Gunnlaugur Þ. Halldórss.
Draflastöðum.
Sími um Saurbæ.