Dagur - 14.03.1964, Blaðsíða 7
7
Mótmæla hækkun á vöruverði
Á STJÓRNARFUNDI ISju, fé-
lags verksmiðjufólks, sem hald-
inn var 11. marz, var eftirfar-
andi samþykkt gjörð:
„Stjórnarfundur, haldinn, í
Iðju, félagi verksmiðjufólks, Ak
ureyri, þann 11. marz 1964, mót
mælir harðlega þeim stórfelldu
verðlagshækkunum á lífsnauð-
synjum almennings, sem nú
daglega dynja yfir. Telur fund-
urinn að slíkar hækkanir séu í
mörgum tilfellum óraunhæfar
og handahófskenndar og í engu
samræmi við yfirlýsta stefnu
eða vilja stjórnarvaldanna um
að tryggja beri raunhæfar kjara
bætur handa þeim lægst laun-
uðu í þjóðfélaginu. Stjórnin
mótmælir alveg sérstaklega,
þeim þeim fullyrðingum stjórn-
arvaldanna að slíkar vöruverðs
hækkanir, sé afleiðing 15%
launaleiðréttingar, sem gerð var
í desember s.l. og bendir á að
þá fékkst aðeins leiðrétting að
nokkrum hluta til að mæta
þeirri dýrtið, er þá var orðin.
Þær skefjalausu verðhækkanir,
sem nú dynja yfir, má rekja til
rangrar stjórnarstefnu, þar sem
eigi sé hin minnsta tilraun gerð
til að hindra þá óheilla verðlags
þróun, sem áfram stígur hærra
og hærra. Miklu fremur og af
yfirlögðu ráði eru allar verð-
ákvarðanir, sem máli skipta,
lagðar í hendur manna, sem
geta ráðstafað verðinu að eigin
vild.
Þegar slíkt ástand er sltapað,
stutt og varið af stjórnarvöld-
um landsins, sér stjórn Iðju ekki
ástæðu til að verkafólk almennt
sætti sig við slíkar álögur og
verðrýrnun launa, og beri því
að undirbúa og hefja mótaðgerð
(Framhald af blaðsíðu 8).
Ég hef ekki ennþá séð fátæk-
lega búinn mann.
Utan borgarinnar er það skóg
urinn, sem setur svip á landið.
Réttara væri þó að segja trén,
því eiginlegir skógar eru ekki
miklir hér í grennd, en tré, tré
og enn og aftur tré, fura, greni,
björk og gamlar eikur, hvar
sem augað lítur. Ekki þarf þó
að aka langt út úr borg til að
sjá hvað skógurinn er geysilega
mikill þáttur í atvinnulífi þess-
arar þjóðai-. Allsstaöar sjást
menn að bjástra með tré: trakt-
orar að draga tré að vegi, vörur-
bílar hlaðnir trjábolum, flotar
höggvinna trjáa, sem ekið hef-
ur verið út á frosin vötn, og
bíða leysinga. Þó flytja Norð-
menn ekki út óunnið timbur,
þvert á móti, þeir flytja þó
nokkuð inn. En timburvörur í
stórum stíl flytja þeir út, papp-
ír, plastefni og alls konar unnið
timbur og af öllu þessu lifir
stór hluti þjóðarinnar.
En til jarðræktar er landið
ekki vel fallið, a. m. k. mest af
því. Einlægir ásar, margir snar-
brattir og mjóir dalir eða kvos-
ir á milli. Það er mest áberandi
í landslaginu og svo auðvitað
há fjöll þegar fjær dregur. Þó
ir til að ná fram fullum rétti,
til að verðleggja vinnu sína því
verði að laun 7 stunda vinnu-
dags nægi fyrir þörfum eðlilegs
lífsframfæris.‘“
Þannig samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum. □
eru nokkur ágæt landbúnaðar-
héruð í grenndinni. Mjólkur-
framleiðsla fyrir Osloarmarkað-
inn hefur löngum verið höfuð-
búgreinin á þeim slóðum. Nú
er hins vegar sú skringilega
öfugþróun að gerast, að fleiri
og fleiri bændur hætta mjólkur-
framleiðslu og taka upp korn-
rækt, þ. e. fyrst og fremst bygg-
rækt til skepnufóðurs svo og
kartöflur og grænmeti. Þetta
veldur því, ásamt með vaxandi
fólksfjölda í borginni, að mjólk
verður að sækja lengra og
lengra og það í mjög fjarlægar
sveitir til þess að fullnægja þörf
inni, einkum á vetrum, þegar
samgöngur eru oft mjög erfið-
ar. Hvað mundi valda slíku öf-
ugstreymi? Jú, kýr eru bind-
andi hér eins og á Fróni,
heimta mikla vinnu, erfitt að
beita við þær vélvæðingartök-
um nema að vissu marki. Bú-
fjárlaus búskapur, það er draum
ur fleiri og fleiri manna. En að
gera þann draum að veruleika,
það geta ekki allir, en þeir geta
það hér, og gera það, fleiri og
fleiri, og finnst þeir hafi himin
höndum tekið. Það þarf varla
að taka það fram, að þessi þró-
un getur ekki gengið mjög langt
og erfiðleikar geta beðið þess-
ara manna, og þeir miklir. En
við sjáum af þessu hvemig
glímt er við sömu vandimalin
hér og heima, og þá ekki síður
í Danmörku.
Um þetta og skyld efni skrifa
ég míáske seinna. ■ • ! ■' vt
Hjörtur E. Þórarinsson.
TIL SÖLU:
Nýr, ókeyrður, Chévrolet,
árgerð 1964, A—5.
Enn Iremur:
Opel Record, árg. 1956.
Árni Ingimundarson,
sími 1278.
TIL SÖLU
með tækifærisverði:
Hanomag dráttarvél R 12
með sláttuvél. Einnig
Herkules múgavél. Báðar
vélarnar í góðu lagi.
Ingimar Guttormsson,
Skeggsstöðum.
Sími um Dalvík.
TAPAÐ
KVENARMBANDSÚR
(gullúr)
tapaðist sl. mánudag.
Vinsamlegast hringi í
1518 eða 1258.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. — Messað á
Bakka á morgun kl. 2 e. h.
Hallgrímsminning. — Séra
Stefán Snævarr messar. —
Sóknarprestur.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Almenn samkoma n. k. sunnu
dag kl. 20,30. Benedikt Arn-
kelsson cand. theol. talar. —
Allir hjartanlega velkomnir.
— Sunnudagaskóli kl. 11 f. h.
Oll börn velkomin.
KVENFÉLAGIÐ FRAMTÍÐIN
heldur fund að Hótel Varð-
borg þriðjud: 17. marz kl. 8,30
e. h. — Konur, fjölmennið.
Stjórnin.
DÁNARDÆGUR. Frú Aðal-
björg Benediktsdóttir á Húsa
vík, andaðist 12. marz, 85 ára
að aldri. Aðalbjörg var dóttir
Benedikts Jónssonar frá
Auðnum, hins kunna sam-
vinnumans, og var merk kona.
ÁRSÞING ÍBA hefst þriðjudag-
inn 24. þ. m. kl. 20,20 í fundar-
sal ÍBA í íþróttahúsinu. —
Félög og sérráð innan ÍBA,
sem ekki hafa skilað árs- og
kennsluskýrslum, eru áminnt
um að gera það nú þegar. —
Stjórn ÍBA.
aðalfundur Varðbergs
félags ungra áhugamanna um
vestræna samvinnu, verður
haldinn að Geislagötu 5 (sal
ísl. ameríska fél.) mánudag-
inn 16. marz kl. 8,30. — Sjáið
nánar auglýsingu í blaðinu.
ÍSLENZK-AMERÍSKA félagið.
Skemmtikvöld verður haldið
í Sjálfstæðishúsinu sunnudag
inn 15. marz n. k. og hefst kl.
20.30. Til skemmtunar: 1.
Kvikmyndasýning. Sýndar
verða tvær nýjar kvikmyndir
með íslenzku tali: a. Mynd frá
Mið-Ameríku. b. Skemmtileg
og fróðleg mynd um sjónvarp.
2. Dansað til kl. 23.30. Félags-
menn fjölmennið og takið
með ykkur nýja félaga. —
Iíorað í bæjarlandinu
(Framhald af blaðsíðu 1).
um það -fullyrt, hvort nægilegt
rennsli til flutnings til Akur-
eyrar fæst úr borholum. Deild-
in telur þó réttlætanlegt að
reikna með því, að árangur
verði a. m. k. nægur til að bera
borunarkostnað. Er þá gert ráð
fyrir notkun vatnsins á borun-
arstað.
Á hvorum staðnum 1) og 2)
telur deildin rétt að gera a. m.
k. eina 1000 til 1500 metra bor-
holu, og getur kostnaður hverr
ar holu orðið 1,6 til 2,5 millj kr.
Eru slíkar boranir framkvæmd
ar með Norðurlandsbornum, og
gæti hann verið kominn til Ak-
ureyrar á n. k. sumri.
Þriðja svæðið, þ. e. nágrenhi
Akureyrar er að sjálfsögðu að-
eins fræðilegur möguleiki, og er
algerlega óvíst um árangur. Áð-
ur en djúpborunartilraun verð-
ur ákveðin á þessum stað telur
deildin rétt að kanna hitastigul
jörðu með því að bora tvær hol
ur til hitamælinga niður á um
100 metra dýpt. Slíkar holur
eru boraðar með léttum jarðbor,
og getur kostnaður þeirra orð-
ið um 300.000,00 kr. Boranir í
bæjarlandinu hefjast að líkind-
um í þessum mánuði.
Samkvæmt lögum um jarð-
hitasjóð er sjóðnum heimilt að
styrkja jarðhitaboranir bæjar-
félaga. □
GUÐNI SIGURÐSSON biður
þess getið, að Jökulsárbrú hjá
Upptyppingum, sé byggð af
áhugamönnum á Akureyri,
með aðstoð Húsvíkinga, en
ekki eins og frá er sagt í grein
hans „Oræfarabb," sem íýkur
í blaðinu í dag.
SAMÞYKKT M.F.Í.K.
UM STJÓRNAR-
SKRÁRBREYTINGU
AÐALFUNDUR Akureyrar-
deildar Menningar- og friðar-
samtaka íslenzkra kvenna var
haldinn að Hótel Varðborg 19.
febrúar s.l.
Formaður, frú Sigríður Þor-
steinsdóttir, flutti skýrslu stjórn
arinnar og lesnir voru upp
reikningar deildarinnar og sam-
þykktir.
í stjórn deildarinnar fyrir yf-
irstandandi ár voru kosnar:
Formaður frú Sigríður Þor-
steinsdóttir.
Varaformaður frú Soffía Guð-
mundsdóttir.
Ritari frú Guðrún KristjánS-
dóttir.
Gjaldkeri frú Þórhalla Steins-
dóttir.
Meðstjórnendur frú Ragnheið
ur Dóra Árnadóttir, frú Gunn-
ur Júlíusdóttir og frú Krist-
björg Gestsdóttir.
Að loknum aðalfundarstörf-
um flutti Þórir Daníelsson er-
indi um friðarbaráttuna og þá
áfanga, sem náðst hafa á þeim
vettVangi á síðasta ári.
Félagið hyggst halda almenn-
an fund á hinum alþjóðlega bar-
áttudegi kvenna, 8. marz, svo
sem það hefur gert frá stofnun.
. .^Á.fundinum var einrþjn^ sarp-
þýkkrf eftirfáíandi tillagái>' .?♦
• „Aðalfundur Akureyrardeild-
ar Menningar- og friðarsamtaka
íslenzkra kvenna, haldinn 19.
febrúar 1964, mótmælir ein-
dregið öllum fyrirætlunum um
að hér á landi verði komið upp
atvinnurekstri í eigu erlendra
manna eða erlcndra félaga.
Fundurinn varar við þeirri
hættu, sem sjálfstæði og menn-
ingu íslendinga er búin, ef af
þessu verður og beinir þeirri al-
varlegu áskorun til hins háa Al-
þingis, að samþykkja frumvarp
það til stjórnskipunarlaga, sem
þeir Einar Olgeirsson og Hanni-
bal Valdimarsson hafa flutt.“
TIL SÖLU:
Rafha-eldavél oa; barna-
rúm með dýnu
í Vanabyggð 11.
Sími 2051.
TIL SÖLU:
Barnavagn og suðuplata
(með tveim hellum).
Selst ódýrt.
Sími 2385.
Móðir okkar
AÐALBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR,
Húsavík,
andaðist á sjúkrahúsinu á Húsavík 12. marz síðastl.
Jarðariörin ákveðin síðar.
Börnin.
Við þökkum af alhug sýnda vináttu og samúð við
fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður tengdaföð-
ur, sonar og afa,
VALDIMARS HARALDSSONAR,
forstjóra.
Kaupfélagi Eyfirðinga og Starfsmannafélagi Kaupfé-
lags Eyfirðinga þökkum við virðingu þá er vottuð var
hinum látna.
Anna Kristinsdóttir.
Viðar Valdimarsson, Valdimar Vaklimarsson.
Edda L. Valdimarsdótlir, Hallgrímur Baldvinsson.
Haraldur Óli Valdimarsson, Ólína Sigurjónsdóttir.
Haraldur Þorvaldsson og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum, sem auðsýndu
okkur samúð við andlát og jarðarför
SIGURÐAR SUMARLIÐASONAR,
skipstjóra frá Akureyri.
Sérstaklega þökkum við Skipstjórafélagi Norðlendinga
fyrir þá virðingu, sem þeir sýndu hinum látna starfs- •
bróður sínum.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Kristján J. Sigurðsson.
- Fréttabréf frá Oslo