Dagur - 13.05.1964, Blaðsíða 1
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
^ ............ -----........
Forseii Islands sjöfugur
í DAG er forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, sjötugur
Hann er fæddur í Kóranesi á
Mýrum 13. maí 1894. Foreldrar
hans voru Ásgeir Eyþórsson
kaupmaður þar og Jensína
Matthíasdóttir. Þau fluttust síð-
ar til Reykjavíkur.
Ásgeir Ásgeirsson reri til
fiskjar og stundaði önnur al-
geng störf til að létta á heimil-
inu, því heimilið var fátækt.
Þegar til Reykjavíkur kom, fór
Ásgeir í Menntaskólann, en
vann á sumrin, var m. a. þrjú
sumur kaupamaður í Möðrudal.
Stúdent varð hann 18 ára gam-
all og las síðan guðfræði við Há
skólann og lauk þar prófi 1915.
Þá varð hann biskupsritari, þá
bankaritari, kennari við Kenn-
araskólann og fræðslumálastjóri
1928 og aftur síðar, ennfremur
bankastjóri Útvegsbankans.
Ásgeir Ásgeirsson var kosinn
á þing í V.-fsafjarðarsýslu 1923,
og sat í fyrsta sinn á þingi 1924
og lét þá þegar nokkuð að sér
kveða.
Árið 1930 völdu þingmenn
Ásgeir Ásgeirsson til forustu,
sem forseta sameinaðs þings, til
að standa fyrir Alþingishátíð-
inni. Luku allir upp einum
munni um það, að þar hafi hon-
um vel farizt og glæsilega. Það
var e. t. v. undirstaða þess, hve
sigursæll hann varð síðar í for-
setakosningunum.
Studenterorkestret
KEMUR til Akureyrar 19. maí,
heldur hér koncert í Akureyrar
kirkju kl. 20.30 og fer síðan
með flugvél héðan til Osló kl.
24.00. — Nánar í næsta blaði.
KARLAKÓRINN
SYNGUR ENN
KARLAKÓR AKUREYRAR
endurtekur samsöng sinn n. k.
föstudagskvöld (15. maí) kl. 8
og nú í Sjálfstæðishúsinu. Eftir
sönginn gefst áheyrendum tæki-
færi til að skemmta sér við dans
og ágæta músík — hljómsveit
Ingimars Eydal og Óðinn Valde
marsson — í þessum glæsilegu
húsakynnum — án aukagreiðslu
fram til kl. 1 e. miðnætti. Öllum
er heimill aðgangur að skemmt-
an þessári meðan húsrúm leyfir.
Aðg.miðar eru til sölu á kr.
50.00 í Bókaverzlun Jóh. Valde-
marssonar og við innganginn. —
Að loknum samsöng, eða eftir
kl. 9.30, er Sjálfstæðishúsið opið
sem venjulega á föstudögum
(restauration og dans) eftir því,
sem húsrúm er til. □
Ráðsfefna um úfgerðar- og atvinnumál samþykkfi
að leita eftir aðstoð vegna aflabresfsins sl. vetur
AÐ FRUMKVÆÐI hreppsnefnd
arinnar á Dalvík var haldinn á
Akureyri 9. maí ráðstefna bæj-
ar- og sveitastjórna og útvegs-
manna á svæðinu frá Skaga-
strönd til Þórshafnar. Fjallaði
hún um þann vanda, sem skap-
azt hefur á Norðurlandi vegna
aflabrests undanfarin ár.
Fundarstjóri var Árni Flyger-
ing sveitarstjóri á Dalvík, en
fundarritarar Óskar Aðalsteins-
son og Halldór Gunnlaugsson,
báðir frá Dalvík.
1. Greiðslu afborgana og vaxta
af lánum vegna útvegsins og
fiskvinnslustöðva svo sem hjá
Stofnlánadeild sjávarútvegsins
og Fiskveiðisjóði íslands verði
frestað um 2 ár og lánin fram-
lengist um jafnlangan tíma.
2. Aukin verði aðstoð frá
Afla- og hlutatryggingasjóði til
útgerðarinnar á umræddu
svæði.
3. Aukin verði aðstoð við
hraðfrystihús og fiskvinnslu-
stöðvar m. a. með þvi að verð-
bæta smáfisk, enda hækki þá
fiskverð til útgerðarmanna.
4. Hraðað verði athugun
stjórnarvalda á stofnsetningu
iðnfyrirtækja norðanlands, þar
sem atvinnuástand er verst.
5. Skorað er á háttvirta ríkis-
stjórn og hið háa Alþingi að
hlutast til um að framkvæmdum
og fjárfestingu hins opinbera
verði beint til Norðurlands
meira en verið hefur, m. a. til
að hagnýta það ónotaða vinnu-
afl, sem þar er. □
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt:
Sameiginlegur fundur fulltrúa
bæjar- og sveitastjórna og út-
vegsmanna á svæðinu frá Skaga
strönd til Þórshafnar haldinn á
Akureyri 9. maí 1964, um út-
gerðar- og atvinnumál, sam-
þykkti með tilliti til hins lang-
varandi aflabrests fyrir Norður-
landi eftirfarandi ályktun:
Keppnisferð Í.B.A. í knattspyrnu
Töpuðu í Keflavík, en sigruðu Yal í Reykjavík
AKUREYRARÚRVAL í knatt-
spyrnu fór í keppnisferðalag
um sl. helgi. Á laugardag kl. 5
e. h. fór fram bæjakeppni við
Keflvíkinga á grasvellinum í
Njarðvík. Hvassviðri og rignin'g
var og völlurinn því blautur og
þungur. Akureyringar léku á
móti vindi í fyrri hálfleik og
fengu á sig eitt mark. í seinni
hálfleik tókst þeim ekki betur
upp, undan vindinum, úthaldið
virtist ekki duga sem bezt og
Keflvíkingar bættu öðru marki
við og endaði leikurinn 2:0 fyr-
ir Keflavík. Keflvíkingar virð-
ast í góði-i þjálfun, eru fljótir
og þróttmiklir og áttu skilið að
vinna leikinn eftir gangi hans.
Á sunnudag kl. 2 e. h. var svo
keppt við Val á Melavellinum
í Reykjavík í bezta veðri, sól-
skini og smágolu. Akureyrarlið-
ið var nú mun heilsteyptara en
daginn áður. Leikmennirnir
náðu góðu samspili, voru á-
kveðnir frá upphafi, og úthaldið
dugði til leiksloka. Valsmenn
réðu ekki við sóknarleik Akur-
eyringanna og gátu ekki brotið
vörn þeirra niður, fengu á sig
2 möi'k í fyrri hálfleik, en 4 í
seinni svo lokastaðan vai'ð 6:0
fyrir Akurfeyri. Glæsilegur sig-
ur.
Frammistaða Akureyringanna
má teljast góð í þessari ferð og
gefur okkur von um að dvöl
þeirra í annarri deild verði ekki
löng. □
FERÐ Á ÓFAGRA
STAÐI í BÆNUM
Á MÁNUDAGINN bauð Fegr-
unarfélagið blaðamönnum og
ýmsum ráðandi bæjarbúum í
ökuferð um Akureyrarbæ til að
sjá góða og illa umgengni á hin-
um ýmsu stöðum.
Kapp verður á það lagt að
auka fegurð bæjarins fyrir 17.
júní n.k. En til þess þarf sam-
eiginlegt átak margra aðila.
Nokkrar myndir úr ferðalag-
inu verða væntanlega birtar í
næsta blaði, ásamt greinargerð
Fegrunarfélagsins. Q
Árið 1932, þegar Tryggvi Þór-
hallsson endurnýjaði Framsókn
prstjórnina eftir mikinn kosn-
ingasigur 1931, varð Ásgeir
fjármálaráðherra og síðan for-
sætisráðherra í tvö ár, til ársins
1934.
Ásgeir gekk um þetta leyti
úr Framsóknarflokknum, en
Vestfirðingar kusu hann samt
utanflokka. í næstu kosningum
var hann orðinn Alþýðuflokks-
maður og náði kosningu og síð-
an, þar til að hann varð forseti.
í forsetakosningunum 1952
vann Ásgeir þó sinn frækileg-
asta kosningasigur. Hann náði
kosningu þótt stærstu blöð
landsins og valdamestu stjórn-
málaforingjar væru honum and
vígir. Síðan hefur hann skipað
mesta virðingarsætið, verið for-
seti landsins og þjóðhöfðingi
við almenna hylli, og mun verða
það enn um sinn.
Árið 1917 kvæntist Ásgeir Ás-
geirsson Dóru Þórhallsdóttur
biskups Bjarnarsonar og hefur
hjónaband þeirra verið farsælt
með afbrigðum. Börn þeirra
eru þrjú, Þórhallur er elztur.
Hann er deildarstjóri í við-
skiptamálaráðuneytinu, Vala,
kona Gunnars Thoroddsen fjár-
málaráðherra og Björg, gift Páli
Tryggvasyni, sendiráðsritara í
Stokkhólmi.
Þegar Ásgeir tók við hinu
virðulega embætti sínu 1952,
sat stjórn Steingríms Steinþórs-
sonar að völdum, síðan stjórn
Ólafs Thors, þá vinstri stjórnin,
Alþ.fl.stjóm og loks núverandi
„viðreisnarstjórn". Ásgeir hefur
því, sem forseti landsins, unnið
með fimm ríkisstjórnum, án á-
rekstra, og við mikinn trúnað.
Norðlendingar senda forseta
íslands, herra Ásgeiri Ásgeirs-
syni, konu hans og heimili hin-
ar beztu hamingjuóskir. □
Þessir kappróðrarbátar eru 10,5 m. á lengd og fallegar fleytur, sem Slysavarnadeild karla og
Sjómannadagsráð í Ólafsfirði eiga. Bátarnir eru smíðaðir í Sandgerðisbót á Akureyri af báta-
smiðunum Gunnlaugi Traustasyni og Trausta Adamssyni. En þessir menn hafa smíðað
nokkra minni báta, dekkbáta og trillur á undanförnum árum. Þeir hafa nú í smíðum 16 tonna
eikarbát, sem búið er að bandreisa. (Ljósm. E. D.).